Framkvæmda- og tæknisvið (FTS) hefur yfirumsjón með málefnum er lúta að byggingum og lóð Háskóla Íslands ásamt rekstri á þeim. Undir þessi málefni falla mörg verkefni.
Helstu verkefni sviðsins eru:
- Húsnæðismál
- Öryggismál
- Umhverfismál
- Viðhald og rekstur fasteigna
- Umsjón með bókunum í stofur/sali
- Eftirlit með almennri nýtingu á húsnæði HÍ
- Rekstur deilibíla
- Umhirða, lagfæringar og breytingar á lóðum, göngustígum og bílastæðum
Framkvæmda- og tæknisvið starfar með eftirfarandi nefndum
Á skrifstofu FTS eru starfandi sviðsstjóri og verkefnisstjórar sviðsins. Málaflokkar sem skrifstofan sinnir eru meðal annars:
- húsnæðismál
- öryggismál
- umhverfismál í rekstri HÍ
- skipulagsmál
- samþætting deilda innan sviðsins
Húsnæðismál
Viðhald fasteigna sér um viðhald og endurbætur á húsnæði skólans og rekstur fasteigna sér um rekstur þess. Deild viðhald lóða sér um viðhald og rekstur á lóð og bílastæðum Háskóla Íslands.
Öryggismál
Framkvæmda- og tæknisvið hefur yfirumsjón með öryggismálum hjá HÍ. Hjá sviðinu starfar starfsmaður sem jafnframt er starfsmaður öryggisnefndar HÍ. Einnig fara umsjónarmenn bygginga með hlutverk öryggisvarða og eru aðgangskerfi, öryggiskerfi og öryggismyndavélar í umsjón FTS.
FTS heldur úti öryggisvef sem hefur að geyma margvíslegar upplýsingar og myndbönd um öryggi og heilsu.
Öryggismyndavélar
Háskólinn rekur öryggismyndavélakerfi sem einungis er notað til þess að vakta innganga í byggingar og tryggja öryggi á háskólasvæðinu. Engum gögnum er safnað um einstaklinga og öllum reglum persónuverndar er fylgt.
Aðgangsmál starfsmanna
Sé aðgangskorti eða lyklum týnt skal tilkynna það til deildarstjóra fasteignaumsjónar, bam@hi.is.
Ef stofna þarf til nýs aðgangs skal viðeigandi yfirmaður sækja um það sömuleiðis til deildarstjóra fasteignaumsjónar.
Þegar nemandi við HÍ þarf að sækja um aðgangskort eða frekari heimildir um aðgang skal hafa samband við þjónustuborð á Háskólatorgi.
Umhverfismál
FTS hefur yfirumsjón með flestum umhverfisþáttum er við koma rekstri Háskólans og sinnir eftirliti með þeim t.d. raforku, vatnsnotkun, sorphirðu, o.fl. Sviðið hefur einnig yfirumsjón með verkefninu Græn skref í ríkisrekstri og sér um að skila inn Grænu bókhaldi um losun gróðurhúsalofttegunda í rekstri skólans.
Ítarefni og frekari upplýsingar um ýmis umhverfismál má finna á vef sjálfbærni- og umhverfismála.
Úrgangsmál
FTS hefur yfirumsjón með sorphirðu við skólann. Þessum málaflokki má skipta í tvennt, almenna sorphirðu og spilliefni. Viðkomandi umsjónarmaður veitir frekari upplýsingar. Vinsamlegast sendið fyrirspurnir eða ábendingar á beiðnakerfi FTS.
Viðhald fasteigna hefur umsjón með endurbótum og viðhaldi bygginga Háskóla Íslands og rekur sitt eigið smíðaverkstæði. Viðhald lóða tilheyrir deildinni. Hún sinnir viðhaldi og rekstri á lóð og bílastæðum HÍ. Hjá deildinni starfa smíðameistarar, smiðir, rafvirkjameistari og rafvirki, málarameistari, skrúðgarðyrkjumeistari og aðrir starfsmenn.
Deildarstjóri Viðhalds fasteigna er Kristinn Kristinsson
Helstu verkefni
- Endurbyggingar
- Breytingar og viðhald húsnæðis
- Umsjón með kerfum s.s. raf-, hita-, loftræsti- og stýrikerfum
- Málningarvinna innandyra sem utan
- Innkaup og viðhald á húsgögnum og búnaði ýmiskonar
- Umhirða, lagfæringar og breytingar á lóðum, göngustígum og bílastæðum
- Rekstur á trésmíða-, véla- og rafmagnsverkstæði
Hjá fasteignaumsjón starfa umsjónarmenn bygginga sem fást við margslungin verkefni eins og:
- ýmis konar aðstoð við starfsfólk og aðra notendur bygginga
- samskipti við ræstingaraðila
- eftirlit með almennri notkun húsnæðis
- öryggismál
- öryggisvarsla í byggingum sem eru í umsjón þeirra.
Deildarstjóri hjá Fasteignaumsjón er Björn Auðunn Magnússon
Ef hætta steðjar að skal hringja í Neyðarlínuna, 112
- Utan við almennan vinnutíma (milli kl. 16:00 - 22:00 á virkum dögum og laugardögum 7:30 - 17:00) er hægt að ná í þann umsjónarmann sem viðlátinn er hverju sinni í vaktsíma 834-6512
- Beint samband við stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar er 530-2400
Rekstur fasteigna sér um allan almennan rekstur á húsnæði Háskóla Íslands. Verkefnin eru m.a.:
- leigusamningar
- samningar við ýmsa þjónustuaðila
- umsjón með bókunum í stofur/sali
- eftirlit með almennri nýtingu húsnæðis HÍ
- rekstur á deilibílum sem standa starfsfólki til boða í styttri vinnutengd erindi
- rekstur Íþróttahúss háskólans
Deildarstjóri reksturs fasteigna er Jón Sigurður Pétursson
Íþróttahús Háskóla Íslands er opið öllum nemendum og starfsfólki. Boðið er upp á fasta dagskrá í leikfimissal og aðgang að tækjasal á vægu verði.
Upplýsingaskrifstofan er hluti af Þjónustuborði HÍ á Háskólatorgi og veitir á hverjum tíma bestu upplýsingar um starfsmenn og starfsemi skólans. Þjónustuborð skólans er aðgengilegt og fyrsta val gesta í leit að upplýsingum. Þjónustuborðið sér meðal annars um bókanir í stofur og gestaíbúðir HÍ. Sími: 525-4000.
Framkvæmda- og tæknisvið tekur við beiðnum í gegnum Uglu. Hér má senda beiðni um breytingar á húsnæði HÍ eða ábendingar um húsnæði og lóð. Nauðsynlegt er að allar beiðnir um breytingar á húsnæði og óskir um húsgögn séu gerðar með heimild frá viðeigandi sviðsforseta, sviðsstjóra eða annarra sem hafa umboð til þess.
Sviðsstjóri