Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á alþjóðlegt samstarf á sviði rannsókna, menntunar og nýsköpunar. Með öflugum tengslum við háskóla, rannsóknastofnanir og samstarfsnet um allan heim skapast tækifæri til þekkingarsköpunar, þekkingarmiðlunar og alþjóðlegra samskipta nemenda og starfsfólks.
Alþjóðlegt samstarf er mikilvæg forsenda þess að efla alþjóðlega stöðu Háskóla Íslands, styrkja gæði kennslu og rannsókna og stuðla að fjölbreyttu og alþjóðlegu fræðasamfélagi.