kennsla
Stofur, salir og gistiaðstaða

Háskóli Íslands býður upp á leigu á kennslustofum og sölum fyrir ýmsa viðburði utan kennslutíma. Þá hefur háskólinn til umráða nokkur herbergi ætluð fræðafólki.

Leiðbeiningar, verð og reglur

Beiðnir um stofur þurfa að berast með a.m.k. 2-3 virkra daga fyrirvara.

Ávallt er nauðsynlegt að taka fram:

  • hver stendur að viðburðinum
  • viðfangsnúmer fyrir bókanir innan HÍ
  • nafn og kennitölu greiðanda utanaðkomandi aðila
  • dagsetningu og nákvæma tímasetningu
  • hvaða stærð af stofu/sal óskað er eftir.

Skrifstofur sviða/deilda sjá um að bóka öll regluleg námskeið samkvæmt kennsluskrá og einstaka fundi á vegum deilda, nemendafélaga og stofnana Háskóla Íslands.

Einstakir fundir eru m.a. deildarfundir, nefndarfundir og fræðslufundir sem tengjast starfi fyrrgreindra. Ekki er tekið gjald fyrir slíka fundi, þó skal greitt fyrir vinnu umsjónarmanna ef þörf er á aðstoð þeirra.

Miðað er við að fundir sem þessir séu ekki oftar en einu sinni í viku, séu staðsettir í einni stofu/fundarherbergi og taki innan við þrjár klukkustundir. Ef bókanir eru fleiri en ein vegna sama viðburðar í sömu viku skal greitt fyrir báðar/allar bókanir.

Ekki er heimilt að láta utanaðkomandi aðila í té fundarherbergi eða kennslustofur án þess að formleg bókun liggi fyrir og greiðsla sé samkvæmt gjaldskrá.

Til að bóka stofur fyrir annað en að ofan greinir, t.d. námskeið eða ráðstefnur, þarf að senda bókunarbeiðni.

Upplýsingar um leigu á stofum

Háskóli Íslands hefur til umráða 27 herbergi á 3. hæð í norðurálmu Sögu og eru þau ætluð fræðafólki sem kemur til samvinnu við Háskólann í skamman tíma.

Upplýsingar um herbergin á Sögu

Nemendur og nemendafélög geta bókað stofu einu sinni í viku á virkum dögum í allt að 3 klukkustundir vegna hópavinnu eða funda. Formenn nemendafélaga geta einir óskað eftir bókunum í þeirra nafni.

Til að bóka stofu eða sal þarf að senda bókunarbeiðni.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar

Skylt er að ganga vel um húsnæði háskólans, umhverfi, tæki og búnað á hverjum stað. Reykingar eru bannaðar innanhúss og við innganga háskólabygginga, sem og undir opnanlegum gluggum.

Húsreglur í Háskóla Íslands

Verðlagning fyrir leigu á stofum fer eftir fjölda sæta.

Gjaldskrá er í 2. grein Reglna um gjaldskrá vegna leigu á kennslustofum og annarri aðstöðu í byggingum Háskóla Íslands, nr. 1310/2024.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um stofur í byggingum Háskólans og sætafjölda í þeim. Athugið að listinn er ekki tæmandi.

Hér má nálgast upplýsingar um staðsetningar og stofuskipan bygginga.

ByggingStofa/salurFjöldi sæta
AðalbyggingA-05030
AðalbyggingA-05124
AðalbyggingA-05236
AðalbyggingA-06924
AðalbyggingA-22040
AðalbyggingA-22920
AðalbyggingHátíðarsalur180
AskjaN-12122
AskjaN-12824
AskjaN-12925
AskjaN-13035
AskjaN-13155
AskjaN-132150
ÁrnagarðurÁg-10130
ÁrnagarðurÁg-20196
ÁrnagarðurÁg-30196
ÁrnagarðurÁg-30344
ÁrnagarðurÁg-30460
ÁrnagarðurÁg-30686
ÁrnagarðurÁg-30940
ÁrnagarðurÁg-31022
ÁrnagarðurÁg-31138
EddaE-20820
EddaE-20920
EddaE-21018
EddaE-21864
EirbergEIR101C84
EirbergEIR103C100
EirbergEIR105C54
EirbergEIR325B18
GimliG-13930
HagiHagi-10447
HagiHagi-21334
HáskólatorgHT-10156
HáskólatorgHT-102180
HáskólatorgHT-103100
HáskólatorgHT-104100
HáskólatorgHT-105180
LögbergL-101106
LögbergL-10250
LögbergL-10350
LögbergL-20138
LögbergL-20424
LögbergL-20524
OddiO-10193
OddiO-10316
OddiO-10416
OddiO-10518
OddiO-10630
OddiO-20188
OddiO-20240
OddiO-20316
OddiO-20416
OddiO-20518
OddiO-20630
SagaS-05436 (óstaðfest)
SagaS-07536 (óstaðfest)
SagaS-114126
SagaS-261114
SagaS-26260
SagaS-26724
SagaS-27512
SagaS-27732
SagaS-27816
SagaS-28140
SagaS-28410
SagaS-28540
SagaS-2866
StapiStapi 10728
StapiStapi 10836
StapiStapi 21048
StapiStapi 21628
Veröld, hús VigdísarVHV-00740
Veröld, hús VigdísarVHV-00840
Veröld, hús VigdísarVHV-023121
Veröld, hús VigdísarVHV-10320
Veröld, hús VigdísarVHV-10420
Veröld, hús VigdísarVHV-10720
Veröld, hús VigdísarVHV-10820
Veröld, hús VigdísarVHV-20710
Veröld, hús VigdísarVHV-2226-8
Veröld, hús VigdísarVHV-2236-8
Veröld, hús VigdísarVHV-22710
Veröld, hús VigdísarVHV-22810
VR-IIV02-13822
VR-IIV02-14730
VR-IIV02-15254
VR-IIV02-15532
VR-IIV02-15775
VR-IIV02-15875
VR-IIV02-25834
VR-IIV02-26160

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil