Staðsetning
Sæmundargata 4
102 Reykjavík
Staðsetning
Sæmundargata 4
102 Reykjavík
Almennur opnunartími
Mán-fös: 7:30 - 19:00
Lau: 7:30 - 17:00
Sun: Lokað
Opið með aðgangskorti stúdenta alla daga frá 7:30-0:00
Háskólatorg, Gimli og Tröð voru vígð 1. desember 2007. Byggingarnar eru samtals um 10.000 fermetrar að stærð og með þeim er skólanum sköpuð stórkostleg umgjörð til að sinna sínu mikilvæga hlutverki. Áhersla er lögð á opið rými – Torg sem nýtist nær allan sólarhringinn.
Háskólatorg hýsir á þriðja hundrað starfsmenn og um 1.500 stúdenta á hverjum tíma, auk gesta. Háskólatorg er miklu meira en bara hús því það tengir saman nokkrar lykilbyggingar Háskólans og gjörbreytir þannig hlutverki þeirra og notkunarmöguleikum. Háskólatorg er hjarta Háskóla Íslands og þangað eru allir velkomnir.
Hönnuðir Háskólatorgs eru arkitektarnir Ögmundur Skarphéðinsson og Ingimundur Sveinsson en Íslenskir aðalverktakar sáu um framkvæmdina.
1, 3, 6, 12, 55
ATH. aðalinngangur er á 2. hæð.