Nemendur kennsla
Skráning og skipulag náms

Nemendaskrá Háskóla Íslands heldur skrá yfir alla umsækjendur og nemendur skólans. Skráin er sá grunnur sem allt skipulag háskólanámsins byggist á, svo sem stundaskrár, skipulag prófa, stofubókanir, bókakaup og margt fleira.

Ef óskað er eftir aðstoð við skráningu í nemendakerfi HÍ, Uglu, er best að senda tölvupóst á nemskra@hi.is eða hringja í síma 525-4309.

Ef óskað er eftir upplýsingum varðandi rafræna umsókn og stöðu umsóknar er best að senda tölvupóst á umsokn@hi.is eða hringja í síma 525-4309.

Helstu hlutverk Nemendaskrár í samvinnu við deildir Háskólans:

  • Móttaka rafrænna umsókna um nám.
  • Afgreiðsla umsókna í grunnnám.
  • Umsjón með fylgigögnum umsókna í framhaldsnám.
  • Umsjón með skrásetningu nemenda.
  • Umsjón með skráningu námsframvindu.
  • Innheimta skrásetningargjalds.
  • Brautskráning nemenda úr grunn- og framhaldsnámi.
  • Varðveisla gagna um nemendur og frá umsækjendum.
  • Taka saman fjöldatölur um umsóknir og nemendur.

Helsta þjónusta sem Nemendaskrá veitir er m.a. að:

  • Afgreiða almennar fyrirspurnir um nám sem berast með tölvupóstum eða í síma.
  • Afgreiða beiðnir frá nemendum, kennurum og öðrum starfsmönnum skólans varðandi skráningu í Uglu.
  • Útgáfa brautskráningaryfirlita fyrrverandi nemenda.
  • Aðstoða við umsókn um nám.
  • Aðstoða við árlega skráningu nemenda.
  • Aðstoða við skráningu námsframvindu og fleira.
  • Skrá inn vottorð vegna veikinda í prófum.
  • Halda utan um fylgigögn með umsóknum.
  • Senda út ýmsar tilkynningar til nemenda um skráningar.

Áður en fyrirspurn er send til Nemendaskrár gæti verið gagnlegt að skoða algengar spurningar og svör við þeim.

Hafðu samband
Nemendaskrá
Virka daga 10:00 - 14:00
Rafrænar umsóknir

Fyrir rafrænar umsóknir og stöðu umsóknar:
hi@hi.is

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil