Employees of UI
Upplýsingar um sviðið
Hlutverk og verkefni

Í öllu starfi Háskóla Íslands er áhersla lögð á heiðarleg vinnubrögð. Samskipti einkennast af gagnkvæmri virðingu og trausti. Mannauðssvið starfar eftir áherslum HÍ26 úr stefnu Háskóla Íslands 2021-2016. Lögð er áhersla á að hlúa að mannauði skólans með því að stuðla að lifandi og fjölskylduvænu starfsumhverfi, jafnrétti, heilbrigði og tækifæri til starfsþróunar.

Verkefni mannauðssviðs tekur mið af starfsmannastefnu Háskólans. Leitast er við að gera Háskólann að góðum vinnustað þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Tryggja á starfsmönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi.

Helstu verkefni sviðsins eru:

  • Starfsmannamál og útfærsla á starfsmannastefnu HÍ.
  • Eftirlit og ráðgjöf vegna mála er varða réttindi og skyldur starfsmanna.
  • Stoðþjónusta við stjórnendur.
  • Auglýsingar og starfsumsóknir.
  • Ráðningarmál - aðstoð, þjónusta og leiðsögn við ráðningarferlið.
  • Ráðningarviðtöl - þátttaka, leiðsögn og þjónusta.
  • Ráðgjöf við skipulagningu og samræmingu á störfum.
  • Launaröðun - starfsmanna í stjórnsýslu.
  • Starfs-, hæfnis- og ársmat.
  • Lögfræðileg ráðgjöf vegna starfsmannamála.
  • Einstaklingsmálefni, Samskiptamál - ráðgjöf og úrræði.
  • Handbók starfsmanna.
  • Kjarasamningar og stofnanasamningar.
  • Starfslýsingar - utanumhald, leiðbeiningar og fræðsla.
  • Starfsmannasamtöl.
  • Starfslokaviðtöl - stjórnsýslustörf.
  • Lífeyrismál og starfslok.
  • Umsjón með námsleyfum starfsmanna í stjórnsýslu og launalausum leyfum starfsmanna.
  • Umsjón með starfsfræðslu, starfsþróun og starfsþjálfun.
  • Fræðsla og þjónusta við erlenda starfsmenn.
  • Fræðsla og þjónusta við fyrrum starfsmenn Háskólans.
  • Starfsmannaskrá og þjónusta sem henni viðkemur.
  • Fjöldatölur og tölfræðilegar samantektir vegna starfsmanna.
Launateymi

Hlutverk Launateymis er að allir starfsmenn Háskólans fái laun sín greidd á réttum tíma og þau séu í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga.

Staðsetning: Launateymi er staðsett á Háskólatorgi fyrir aftan þjónustuborð skólans
Opið: kl. 10 - 15 alla virka daga
Sími: 525-4390
Netfang: laun@hi.is

Nauðsynlegt er að öll launagögn berist til Launateymis í síðasta lagi 15. hvers mánaðar til að tryggja að launavinnslu sé lokið á réttum tíma. Útborgun er einu sinni í mánuði, fyrsta dag hvers mánaðar.

Spurt og svarað

Á vef Þjónustumiðjunnar eru ýmsar upplýsingar um mannauðs- og launamál.

Starfsfólk

Sviðsstjóri

Mannauðsstjórar fræðasviða

Félagsvísindasvið

Heilbrigðisvísindasvið

Hugvísindasvið

Á hugvísindasviði er starfandi mannauðsráðgjafi:

Menntavísindasvið

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Verklagsreglur og skýrslur
Tengt efni
""
kennarar
Hafðu samband
Mannauðssvið
Eftir samkomulagi
Launateymi
Allt starfsfólk
Fólk situr fyrir utan Háskólatorg á björtum og sólríkum degi

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil