Nemendur við Háskóla Íslands greiða árlegt skrásetningargjald við skólann sem er kr. 100.000 (kr. 75.000 ef sótt er um innritun á vormisseri).
Eindagi skrásetningargjalds við Háskóla Íslands er:
- 4. júlí fyrir háskólanám sem hefst að hausti.
- 6. janúar fyrir háskólanám sem hefst að vori
Eftir eindaga fellur vilyrði um skólavist niður.
Nemendum og umsækjendum sem ekki greiða skrásetningargjaldið fyrir eindaga gefst þó kostur á að skrá sig utan auglýstra skráningartímabila og greiða gjaldið með 15.000 kr. álagi. Frestur til að staðfesta skrásetningu sína með þeim hætti rennur út 12. ágúst. Sjá nánar reglur um greiðslu skrásetningargjalds hér að neðan.
Nánar er fjallað um skrásetningargjald í kennsluskrá.
Sjá einnig reglur um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl. og innheimtu skrásetningargjalds.