""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að læra að stofna og reka þitt eigið fyrirtæki?
  • Hefur þú áhuga á að öðlast góða þekkingu á markaðsfræðum og ná árangri í markaðssetningu?
  • Langar þig að vita út á hvað vextir og lán ganga?
  • Viltu læra inn á fjárfestingar?
  • Langar þig að eiga möguleika á að komast í góðar stjórnunarstöður?

BS nám í viðskiptafræði byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnunarfræði.

Kjörsvið

Í upphafi náms velja nemendur sér kjörsvið en boðið er upp á fimm áherslulínur.

  • Almenn viðskiptafræði
  • Fjármál
  • Markaðsfræði
  • Reikningshald
  • Stjórnun

Meðal viðfangsefna eru:

  • Markaðsfræði
  • Stærðfræði
  • Fjárhagsbókhald
  • Rekstrarhagfræði og bókhald
  • Tölfræði
  • Tölvunotkun og tölvureiknir
  • Stjórnun
  • Alþjóðaviðskipti
  • Vörumerkjastjórnun
  • Neytendahegðun og markaðsstarf
  • Tjáning og viðskipti
  • Þjóðhagfræði
  • Markaðssamskipti og rannsóknir

Viðskiptafræði er einnig hægt að taka sem 60 eininga aukagrein með 120 eininga aðalgrein.

Viðskiptafræði er einnig hægt að taka sem 120 eininga aðalgrein með 60 eininga aukagrein úr öðru fagi. 

Til að hefja BS-nám við viðskiptafræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar.
Æskilegur undirbúningur er minnst 25 framhaldsskólaeiningar í ensku og íslensku (þar af a.m.k. 10 einingar af þriðja hæfniþrepi í hvorri grein) og að minnsta kosti 20 einingar í stærðfræði (þar af a.m.k. 5 einingum á þriðja hæfniþrepi).

Þá teljast nemendur einnig uppfylla inntökuskilyrði Viðskiptafræðideildar sem lokið hafa einhverri af þremur eftirfarandi aðfararnámsbrautum:

  • viðskiptafræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík;
  • viðskipta- og hagfræðideild við háskólabrú Keilis;
  • háskólagátt frá Háskólanum á Bifröst, enda hafi viðkomandi lokið að minnsta kosti 10 einingar af 3.hæfniþrepi í íslensku og ensku og að minnsta kosti 5 einingar af 3.hæfniþrepi í stærðfræði.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).

Ljúka þarf 180 ECTS einingum. Skipan bakkalárgráðu miðast við þrjú ár eða 6 misseri. Prófgreinar til bakkalárgráðu í viðskiptafræði eru m.a. fjármál, rekstrarhagfræði, reikningshald, markaðsfræði, stjórnun, stærðfræði, tölfræði, upplýsingatækni og aðrar greinar samkvæmt ákvörðun Viðskiptafræðideildar, alls 180 einingar. Náminu lýkur með lokaritgerð.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Fyrsta ár | Haust
Inngangur að markaðsfræði (VIÐ101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðs eru markaðshugtakið, markaðsáherslur og tengsl markaðsfræðinnar við stjórnun og stefnumótun. Einnig er fjallað um greiningu á markaðsumhverfinu, greiningu á kauphegðun, stefnumótun markaðsmála, samkeppni og samkeppnisforskot. Að síðustu er fjallað um með hvaða hætti á að útfæra markaðsstarf svo árangur náist. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Stærðfræði A (VIÐ102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Mikilvæg atriði úr námsefni framhaldsskóla rifjuð upp. Línuleg og ólínuleg föll. Prósentureikningur og grunnatriði í fjármálastærðfræði. Diffrun og hlutdiffrun. Hámörkun og lágmörkun með og án hliðarskilyrða, aðferð Lagrange.  Heildun. Undirstöðuatriði fylkjareiknings.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að fjárhagsbókhaldi (VIÐ103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði fjárhagsbókhalds og ársreiknings og gera nemendur læsa á reikningsskil fyrirtækja.

Eðli tvíhliða bókhalds verður skýrt út frá bókhaldsjöfnunni og lögð áhersla á að nemendur skilji hvernig einstök viðskipti hafa áhrif á eignir, skuldir, eigið fé, tekjur og gjöld.

Fjallað verður um grundvallarforsendur, reglur og hugtök reikningshalds og form og uppbyggingu ársreiknings.

Sérstök áhersla verður lögð á rökrænt samhengi milli:

  • bókhalds,

  • rekstrarreiknings,

  • efnahagsreiknings,

  • eiginfjáryfirlits,

  • sjóðstreymisyfirlits.

Fjallað verður um hvað veldur breytingum á eigin fé og nemendur kynnast helstu aðferðum við greiningu ársreikninga, einkum útreikningi og túlkun kennitalna.

Notkun bókhaldskerfisins Reglu í seinni hluta námskeiðsins hefur það markmið að tengja fræðilega þekkingu nemenda við raunverulega framkvæmd bókhalds og gerð reikningsskila.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Rekstrarhagfræði I (VIÐ105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum grunnatriði í hagrænni hugsun og meginkenningum í rekstrarhagfræði þannig að þeir kunni skil á helstu hugtökum og notkun. Framboð, eftirspurn og teygni. Neytendahagfræði. Markaðir, skilvirkni og velferð. Skattkerfi og áhrif skattlagningar. Ytri áhrif, samgæði og auðlindir. Ósamhverfar upplýsingar, freistnivandi og hrakval. Kostnaður við framleiðslu, samkeppni, fákeppni, einokun. Vinnumarkaður, mismunun og tekjuskipting. Verkaskipting og verslun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Vinnulag í viðskiptafræði (VIÐ157G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um gagnrýna hugsun, siðferði, hópavinnu, samskipti, hlustun, notkun gervigreindar, skriflega framsetningu og kynningu á verkefnum. Nemendur vinna hóp- og einstaklingsverkefni af ýmsum toga

Markmið námskeiðs er að veita nemendum grundvallarfærni í faglegum akademískum vinnubrögðum í viðskiptafræði; meðal annars er lögð áhersla á að nemendur öðlist leikni við skrif, framsetningu, úrvinnslu heimilda og hvernig vinna á í hópum. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Tölfræði A (VIÐ263G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að byggja traustan grunn undir notkun tölfræði í öðrum námskeiðum, í starfi og í daglegu lífi, og að gera nemendur talnagleggri. Efni: Lýsandi tölfræði. Líkindafræði: atburðir, líkur, hendingar, helstu dreifingar. Ályktunartölfræði. matsaðferðir, tölfræðileg próf. Línulegt aðhvarf.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
UI - tölvunotkun og töflureiknir (VIÐ201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er skipt í verklegan- og fræðilegan hluta.

Í verklegum hluta verður farið yfir helstu þætti Excel með áherslu á fjármálaútreikninga, gerð rekstrarlíkana og úrvinnsla gagna. Farið verður yfir hagnýt verkefni sem ætla má að komi nemendum að gagni í öðrum greinum námsins og í starfi síðar meir.

Í fræðilegum hluta verður leitast við að gefa nemendum yfirsýn yfir tölvunotkun í fyrirtækjum, innsýn í fræðilegar hliðar tölvunotkunar og þá þætti sem máli skipta í fjárfestingu og rekstri tölvukerfa.

Í námskeiðinu er gert ráð fyrir að nemendur hafi tölvu og þekkingu á notkun stýrikerfis.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Rekstrarbókhald (VIÐ204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynning á rekstrarbókhaldi. Kynnt verða fjölmörg kostnaðarhugtök og kostnaðargreining (núllpunktsgreining). Farið yfir helstu aðferðir við bókun framleiðslukostnaðar og skiptingu óbeins kostnaðar. Munurinn á rekstrarreikningi út frá aðferð fjárhagsbókhalds og með framlegðarútreikningi. Áætlanagerð, staðalbókhald og frávikagreining. Frammistöðumat deilda og afurða og skipting kostnaðar. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa góðan skilning á mikilvægi rekstrarbókhalds við ákvarðanatöku um rekstur fyrirtækja.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Markaðsfærsla þjónustu (VIÐ205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um eðli og eiginleika þjónustu, þjónustuþríhyrninginn, þjónustugapið, kauphegðun í þjónustu, væntingar og skynjun ásamt mikilvægi þess að byggja upp varanlegt samband við réttan hóp viðskiptavina. Einnig er fjallað um hönnun þjónustu, staðla og viðmið, umgjörð þjónustu, hlutverk viðskiptavinar í árangursríkri þjónustuframkvæmd, hlutverk starfsfólks í árangursríkri þjónustuframkvæmd, jafnvægi framboðs og eftirspurnar þegar þjónusta er annars vegar, verðlagningu og hvað ber að hafa í huga þegar mótuð er kynningarstefna fyrir þjónustulausnir. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Inngangur að stjórnun (VIÐ258G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur kynnist grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í stjórnun og forystu fyrirtækja og stofnana. Nálgunin og sjónarhornið er út frá viðfangsefnum og hlutverkum stjórnenda og stjórnun mannauðsins.

Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, gestafyrirlestrasr, umræður, verkefnavinna, og herminám þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Viðskiptaáætlanir (VIÐ528G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum þekkingu og reynslu í gerð viðskiptaáætlana sem tekur á öllum þeim þáttum sem nemendur hafa lært í námi sínu og nýtist þeim afar vel þegar út í atvinnulífið er komið. Þá ýtir námskeiðið undir hæfni nemenda til þess að skapa nýja hluti og jafnvel störf í samfélaginu, stofni þeir til eigin rekstrar. Nemendur fá þjálfun í að standa að baki og kynna eigin hugmyndir líkt og um fjárfesta væri að ræða. Viðskiptaáætlun og rekstrarlíkan er skjal þar sem markmið fyrirtækis eru sett fram og rökstudd með tölulegum gögnum og staðreyndum.  Viðskiptaáætlun á einnig að sýna fram á hvernig ná á markmiðum með aðgerðum er snúa að tekjuöflun, kostnaði, innri ferlum og starfsfólki. 

Viðskiptaáætlanir eru líka mjög mikilvægur þáttur fyrir aðila sem koma að fjármögnun fyrirtækja, hvort sem það eru fjármálastofnanir eða fjárfestar, þar sem slíkar áætlanir eiga að innihalda flestar þær upplýsingar sem þeir aðilar þurfa til að átta sig á því í hverju þeir eru að fjárfesta og áhættuna samhliða fjárfestingunni.

Markmið námskeiðsins er nemendur geti skapað og unnið með eigin viðskiptahugmyndir og lagt fram viðskiptaáætlanir í samhengi við t.d stefnumótun fyrirtækja.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Tölfræði B (VIÐ311G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur verði vel undirbúnir fyrir notkun tölfræðilegra aðferða í starfi og í öðrum námskeiðum. Lögð er áhersla á að nemendur nái góðum tökum á notkun Excel við tölfræðilega útreikninga. Nemendur öðlist skilning á tölfræði, fyrir líf og starf. Nemendur þjálfist í að draga skynsamlegar ályktanir af upplýsingum m.a. að alhæfa mun minna út frá litlu og skekktu úrtaki. Nemendur þjálfist í að taka tillit til hendingarkenndra (óvissra) stærða við ákvarðanir.
Í námskeiðinu er viðfangsefnið einvíð aðhvarfsgreining, margvíð aðhvarfsgreining viðbótarefni í aðhvarfsgreiningu, tímaraðagreining og spálíkön, stikalaus próf, gæði mats, dreifigreining og úrtaksfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Fjármál I (VIÐ301G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið með námskeiðunum Fjármál I og Fjármál II er að nemendur tileinki sér:
* Aðferðir að meta gildi einfaldra fjármálagerninga á mismunandi tíma; að reikna til núvirðis mismunandi fjárstrauma peningalegra eigna, verkefna og fastafjármuna.
* Tækni, við fjármálastjórn og áætlanagerð fyrirtækja.
* Aðferðir, sem fjármálafræði býr yfir, þegar leitað er lausna á torveldum viðfangsefnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði (VIÐ302G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.

Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.

Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Inngangur að alþjóðaviðskiptum (VIÐ303G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

 Fjallað er um helstu kenningar í alþjóðaviðskiptum, umhverfi og þróun. Þá er fjallað um áhrif menningar í alþjóðlegum viðskiptum, alþjóðlega mannauðsstjórnun, erlenda fjárfestingu og staðsetningu framleiðslu. Fjallað er um mögulegar leiðir við alþjóðavæðingu fyrirtækja, kosti þess og galla fyrir fyrirtæki að hafa starfsemi erlendis, útrás íslenskra fyrirtækja og hvað má læra af sögunni, skipulag alþjóðlegs rekstrar, alþjóðlega markaðssetningu og þróunarstarf, alþjóðlegt samstarf og stjórnun. Þá verður fjallað um hvernig kreppur hafa áhrif á rekstur sem og heimsfaraldur á borð við Covid 19.

Kennslutungumál: Enska

Annað ár | Vor
Lestur og greining ársreikninga (VIÐ626G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lestur og greining ársreikninga er grunnur að skilvirkri ákvarðanatöku og kemur að ýmsum atriðum í rekstri fyrirtækja. Tilgangur námskeiðsins er að bæta færni nemenda í lestri sem og greiningu ársreikninga út frá ýmsum forsendum. 

Um getur verið að ræða ákvörðun sem snýr að fjárfestingu, lánveitingu sem og samanburðargreiningu milli félaga og takmörkunum slíks samanburðar. 

Oft eru félög í umbreytingarferli sem gerir það að verkum að engan veginn er nægilegt að skoða einfalda breytingu á rekstrarniðurstöðu milli tveggja ára og draga af því miklar ályktanir. Námskeiðið mun auka færni nemenda í að átta sig á því hvaða liðir skipta máli út frá mismunandi greiningum. 

Í námskeiðinu er stuðst við kennslubók og raunveruleg gögn skráðra hlutafélaga á Aðallista Kauphallarinnar og í einhverjum tilvikum erlend skráð félög. Slíkt kennsluform nýtist nemendum vel og sýnir efnistök og aðferðarfræði í raunverulegum aðstæðum.

Farið verður yfir tengingu verðmata við gögn úr ársreikningum sem og lánaákvarðanir og til hvaða atriða er horft þar, meðal annars út frá sjónarhorni lánanefnda fjármálastofnana.  Báðir þessir liðir taka til fjármögnunar félaga.  Einnig verður farið yfir greiningu á nýtingu fjármuna félaga og frásögn þeirrar nýtingar og framsetningu eignamats eigna í efnahagsreikningum. Þá verður skoðuð framsetning á upplýsingum innan uppgjöra, miðuð við raunveruleg fyrirtæki, hvort sem um er að ræða efnahagsreikninga, rekstrarreikninga og eða sjóðstreymi félaga og ekki síst tenging þessara upplýsinga við skýringar uppgjöra sem sífellt eru að verða umfangsmeiri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Stjórnun og skipulagsheildir (VIÐ415G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað skipulagsheild er og á því umhverfi sem skipulagsheildir starfa í. Fjallað er um hagsmunaaðila og hvernig má auka líkurnar á því að ná árangri og virðisauka í rekstri skipulagsheilda. Farið er yfir áhrifaþætti og áskoranir er varða hönnun skipu­­lags og siðferðislegar og samfélagslegar áskoranir. Komið er inn á hvernig ýmsar breytingar og þróun geta haft áhrif á ákvarðanatöku, skipu­lag, stefnu, starfsfólk og menningu. Einnig  er fjallað um umbreyt­ingar og líftíma skipu­lags­heilda, sem og ágreining og völd. Þá verður getið um áhrif gervigreindar á skipulag og starfshætti skipulagsheilda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Fjármál II (VIÐ402G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Góðir stjórnarhættir og sérstaklega vönduð fjármálastjórnun hafa úrslitaáhrif á  rekstrarárangur fyrirtækja. Fjármál II er framhald af Fjármálum I þar sem meginviðfangsefnið er fyrirtækið sjálft og hvernig það er rekið í fjármálalegu tilliti.  Þá er farið yfir hvað eru góðir stjórnarhættir, hvernig hvatarnir liggja innan fyrirtækja og hvaða áhrif þeir kunna að hafa á fjárhagslega afkomu félagsins.  Meginviðfangsefni námskeiðsins er fjármálastjórnun, þ.e. fjármagnsskipan félagsins, skammtíma fjármögnun og langtímafjármögnun, gerð fjármögnunaráætlana, arðgreiðslur til hluthafa,  fjárfestingarákvarðanir félagsins, hlutskipti og hegðan þess á fjármálamarkaðnum sjálfum.  Þá verður einnig farið yfir þær ákvarðanir sem stjórnendur standa frammi fyrir þegar verulegir fjárhagserfiðleikar eiga sér stað.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Óháð misseri
BS ritgerð (VIÐ265L, VIÐ265L, VIÐ265L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12/12/12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandinn gerir sjálfstæða rannsókn á einhverju sem tengist fræðasviðinu, aflar frumgagna og vinnur niðurstöður úr þeim. Í umfjölluninni gerir hann grein fyrir aðferðinni sem hann beitir, kenningalegum bakgrunni og leggur út af niðurstöðum sínum, t.d. hvort þær eru í samræmi við það sem almennt má búast við eða hvort þær eru óvæntar. Lengd 12-14 þús. orð.

Sjá upplýsingar um umsókn um leiðbeinanda úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar og ritgerðaskil í Kennsluskrá í kafla undir "Upplýsingar" - "Lokaritgerðir". Í samráði við leiðbeinanda gera nemendur rannsóknaráætlun og vinna lokaritgerð samkvæmt henni. Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Heimilt er að prófa stúdent munnlega úr efni ritgerðar og meta frammistöðu hans sem hluta af einkunn.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða

Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

BS ritgerð (VIÐ264L, VIÐ264L, VIÐ264L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0/0/0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandinn fjallar um valið efni á fræðasviðinu, reifar það og útskýrir og greinir frá kenningalegum bakgrunni, beitingu og álitamálum sem tengjast því. Um er að ræða heimildaritgerð þar sem unnið er með fyrirliggjandi gögn. Lengd 6-8 þúsund orð.

Nemandinn fjallar um fyrirfram ákveðið efni á fræðasviðinu, reifar það og útskýrir og greinir frá kenningalegum bakgrunni, beitingu og álitamálum sem tengjast því. Um er að ræða heimildaritgerð þar sem unnið er með fyrirliggjandi gögn. Lengd 6-8 þúsund orð.

Óháð námsári | Haust
Aðferðafræði (VIÐ525G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum vísindalega aðferðafræði eigindlegra og megindlegra rannsókna og muninn á milli þessara rannsóknaaðferða. Í námskeiðinu er farið yfir það hvernig rannsóknaráætlun er uppbyggð frá rannsóknarspurningu, til rannsóknarsniðs, gagnaöflunar og greiningar og túlkunar á gögnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I) (HAG103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og hugtök heildahagfræði. Fjallað verður um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar heildahagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma ásamt helstu hugtökum í efnahagsumræðu. Áhersla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál, sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og erlendis. Staðgóð þekking á þjóðhagfræði býr nemendur undir ýmis önnur námskeið, og lífið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Vinnumarkaðurinn og þróun hans (VIÐ510G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið með námskeiðinu er að kynna fyrir viðskiptafræðinemum helstu grunnatriði í vinnumarkaðsfræðum (industrial/employee relations). Rætt verður um skipulag á íslenskum vinumarkaði, tvískiptingu hans og rætt um mun á hinum almenna og opinbera vinnumarkaði. Fjallað verður um kenningar um vinnumarkaðinn og samskipti aðila vinnumarkaðarins, stofnanauppbyggingu, hlutverk einstakra aðila á vinnumarkaði (verkalýðsfélög, atvinnurekendur og ríkisvald). Fjallað verður um kjarasamninga (fyrirtækja- og vinnustaðasamninga), vinnulöggjöfina, verkföll og verkfallskenningar. Enn fremur farið í helstu réttindi og skyldur í vinnusambandinu, ráðningarsamband, samkeppnisákvæði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
UII - viðskiptagreining og gagnavinnsla (VIÐ502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum verkfæri upplýsingatækni sem nýtast við stefnumótun og ákvarðanatöku á sviði viðskiptalífsins. Lögð er áhersla á að nemendur auki færni sína í úrvinnslu gagna, skoðuð uppbygging gagnagrunna, vöruhús og SQL fyrirspurnamálið. Farið er yfir viðskiptagreiningu, gervigreind, gagnavísindi, rafræn viðskipti. Skoðuð helstu notkunarsvið og hvernig hún styður við stefnumótun og ákvarðanatöku í stjórnun og rekstri.

Áhersla er lögð á að leysa hagnýt verkefni með ýmsum verkfærum s.s. Excel, Access, og Power BI.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Fjármálagerningar (VIÐ503G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um vaxtamarkaði og hvernig eingreiðsluvaxtaferlar eru leiddir út. Verðlagning mismunandi tegunda skuldabréfa er skoðuð og farið er yfir eiginleika og áhættu helstu skuldabréfa á markaði með áherslu á íslenskan vaxtamarkað. Verðlagning afleiðna er því næst skoðuð og hverjir eru helstu eiginleikar þeirra. Sérstaklega eru skoðaðir framvirkir samningar, skiptasamningar og valréttir. Farið er yfir tilgang og eðli afleiðuviðskipta og hverjir helstu áhættuþættirnir eru.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Ársreikningagerð A (VIÐ505M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fjármála- eða reikningshaldskjörsviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á atriðum sem stjórnendur fyrirtækja þurfa að tileinka sér til að geta lagt fram ársreikning samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur í reikningshaldi sem gilda samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og ákvæðum íslenskra laga. Farið verður yfir: formkröfur reikningsskila, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Meðferð tekna og kostnaðar, meðhöndlun birgða, viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, óefnislegar eignir, tekjuskatt, virðisrýrnunarpróf, bókun áhættufjármuna og skulda, skammtímaskuldir, langtímalán og eiginfjárliði. Verkefni verða lögð fyrir.

Fjármálamarkaðir (VIÐ505G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í siðmenntuðum ríkjum mynda fjármálastofnanir stoðkerfi efnahagslífsins. Hlutverk þeirra er að styðja fólk og fyrirtæki í allri framleiðslu þeirra og framkvæmdum, sem og að liðsinna í áhættustjórnun, áhættu, sem fólk og fyrirtæki tekst á hendur. Afar mikilvægt er að öðlast skilning á tilgangi og innri virkni fjármálafyrirtækja, til þess að geta séð fyrir um hegðun þeirra og framþróun. Þannig má öðlast færni við að draga ályktanir um áhrif þessara stofnana á raunhagkerfið sjálft frá einum tíma til annars, í einu landi eða öðru. Þetta námskeið miðar af því að kynna fjármálafræði (e. theory of finance) í gegnum sögu fjármálastofnana og fjármálaþjónustu, svo sem banka, greiðslumiðlunar, tryggingafélaga, seðlabanka, verðbréfamarkaða og afleiðumarkaða. Farið verður yfir styrkleika þessara stofnana sem og ófullkomleika, til að varpa ljósi á það, hvert þessar stofnanir stefna til framtíðar. Íslenska bankahrunið býður upp á ótal dæmi, sem dreginn verður lærdómur af í gegnum allt námskeiðið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Inngangur að verkefnastjórnun (VIÐ506G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta. 

Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna,  þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.

Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Inngangur að mannauðsstjórnun (VIÐ509G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

The course covers the basic principles and techniques of human resource management (HRM). A practical view is taken to integrate the contributions of the behavioral sciences with the technical aspect of implementing HRM practices of recruitment, performance management, development, rewards and employee relations. Not everyone taking this course will become a human resource professional, although they will learn about the role of different HRM professionals in organizations. As this will be the only HRM course that many business students take it is intended to build the base for them as managers playing an integral role in implementing and carrying out HRM policies and practices in organizations. In addition, managers have to understand the HRM department and be able to communicate and cooperate with HRM professionals. The course is designed to be an interactive class as the subject matter of HRM is quite rich and complex. Therefore both preparation before class and participation in class are important factors of the learning process. Practical exercises and analysis of cases will take place in class.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Markaðsrannsóknir (VIÐ511G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um markaðsrannsóknarferlið og mismunandi tegundir og aðferðir markaðsrannsókna. Gerður er greinarmunur á megindlegum og eigindlegum aðferðum og við hvaða aðstæður hvor aðferðir hentar betur. Fjallað er um fyrirliggjandi gögn og frumgögn og nemendur þjálfaðir í að vinna niðurstöður úr tölulegum gögnum og setja þær fram. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Viðskipti og alþjóðasamskipti (VIÐ512G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að búa nemendur undir að starfa á vettvangi alþjóðaviðskipta, efla menningarlæsi þeirra og aðlögunarhæfni. Markmið námskeiðsins eru að nemendur: Þekki og geti beitt helstu kenningum um menningarlegan mismun og fjölbreytileika. Hafi skilning á og séu meðvitaðir um eigin menningu, gildi og viðhorf og áhrif þeirra á samskipti og hegðun. Hafi skilning á og geti greint vinnumenningu og þjóðmenningu. Hafi skilning á viðskiptum í menningarlega fjölbreyttu samfélagi og samskiptum ólikra hópa. Geti aðlagað sig að fjölbreyttum aðstæðum og átt samskipti við einstaklinga og hópa frá fjölbreyttum menningarheimum. Nemendur taka þátt í fjölmenningarlegri hópvinnu, flytja fyrirlestra og skrifa skýrslur. Öll kennsla og samskipti í námskeiðinu fara fram á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Inngangur að vörumerkjastjórnun (VIÐ513G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemandinn þekki vel til þeirra lykilþátta sem mynda markaðsmál með sérstakri og skarpri áherslu á stjórnun vörumerkja. Marmiðið er að nemandinn skilji lykiláherslur vörumerkjafræða og átti sig á hvernig einstakir þættir þess sviðs tengjast innbyrðis. Ekki síst er lögð áhersla að nemandi átti sig á tengingu vörumerkjafræða við stefnumótun, samkeppnisstöðu og aðgreiningu á markaði.

Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Einstaklingsskattaréttur (VIÐ501G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður farið yfir meginreglur ísl. skattalaga um skattskylda aðila og skattskyldar tekjur þar á meðal hvaða gjöld heimilt er að draga frá þeim. Sérstök áhersla verður lögð á uppgjör tekjuskattsstofna hjá einstaklingum og sjálfstætt starfandi með úrlausnum á dæmum og raunhæfum verkefnum. Kynnt verður gerð skattframtals einstaklinga og hjóna svo og atvinnurekstrarframtals. Fjallað verður um ákvörðun hvers konar bóta og afslátta frá skatti. Farið verður yfir grundvallarreglur réttarfars í skattamálum, endurákvarðanir á sköttum og afleiðingar af vísvitandi röngum skattskilum. Veitt verður innsýn í meginreglur laga um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður geti talið fram fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki svo og kært skattákvörðun ef hún er röng að hans mati.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Markaðssamskipti (VIÐ526G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu öðlast nemendur skilning á, með hvaða hætti er unnt að byggja upp vörumerkjavirði í gegnum samhæfð markaðssamskipti. Nemendur kynnast grundvallarkenningum um markaðssamskipti, markmiðasetningu og áætlanagerð, þegar kemur að markaðssamskiptum. Farið verður yfir allar helstu leiðir í markaðssamskiptum ásamt því, með hvaða hætti er mögulegt og æskilegt að tvinna þær saman í gegnum samhæfð markaðssamskipti. Að auki öðlast nemendur skilning á eiginleikum ólíkra miðla og læra að meta fýsileika þeirra í samhengi við markhópa og þær auðlindir, sem í boði eru.
Í gegnum lestur námsefnis, fyrirlestra og samskipti í kennslustundum öðlast nemendur grundvallarþekkingu á hugtökum og kenningum, sem snúa að markaðssamskiptum. Í gegnum verkefnavinnu, þar sem nemendur hanna samhæfða markaðssamskiptaáætlun, öðlast nemendur þjálfun í beitingu þeirrar þekkingar, sem þeir öðlast í gegnum lestur, fyrirlestra og samskipti við kennara og aðra nemendur.
Gert er ráð fyrir gestafyrirlesurum, innlendum og/eða erlendum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Þjónustugæði og þjónustumat (VIÐ158M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur hafi fræðilegar forsendur til að vinna með aðferðir þjónustumælinga hvort sem er út frá fræðilegu sjónarhorni eða hagnýtu. Nemendur vinna að framkvæmd þjónustumælinga í samráði við fyrirtæki eða stofnun og vinna skýrslu þar sem fram kemur rökstudd tillaga um með hvaða hætti á að forgangsraða úrbótaþáttum. Samhliða þessu verkefni vinna nemendur að fræðilegu yfirliti um eitthvert það viðfangsefni er tengist þjónustugæðum og þjónustumælingum.

Nýsköpun og sjálfbærni í sjávarútvegi og eldi (VIÐ302M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu munu nemendur fá innsýn inn í einn af hornsteinum íslensks atvinnulífs, sjávarútveg og eldi. Lögð er áhersla á nýsköpun, sjálfbærni, fullnýtingu sjávarafurða og tækifærin sem felast í tækniframförum, gervigreind og hringrásarhagkerfi. Þátttakendur fá einnig að kynnast því  hvernig íslenskur sjávarútvegur og eldi standast alþjóðlega samkeppni, leggja sitt af mörkum til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og nýta íslenskt hugvit til að skapa aukið virði.

Með verkefnamiðuðu námi vinna nemendur raunhæf verkefni í samvinnu við fyrirtæki og stofnanir í greininni, þar sem tekist verður á við raunverulegar áskoranir tengdar markaðssetningu, sjálfbærni, tæknivæðingu og fullnýtingu til aukinnar verðmætasköpunar.

Áhersla er lögð á:

  • Nýsköpun og þróun á fullnýtingu sjávarafurða.
  • Sjálfbærni og tengsl við umhverfismál og hringrásarhagkerfi.
  • Ný tækifæri með tækniframförum, svo sem gervigreind og framleiðslu með lágmarks kolefnisspori.
  • Sögu, stjórnun og stefnumótun í sjávarútvegi og eldi.

Nemendur fá tækifæri til að heimsækja framúrskarandi fyrirtæki í greininni og læra í gegnum reynslu þeirra. Aðstaða fyrir verkefnavinnu verður í Sjávarklasanum, þar sem nemendur geta tengst frumkvöðlum í atvinnugreininni.

Námskeiðið er í nánu samstarfi við fyrirtæki, ráðuneyti og stofnanir í sjávarútvegi en samstarfsaðilar Viðskiptafræðideildar eru: Brim, Fisk, Ísfélag Vestmannaeyja, Ice Fresh, Íslandsstofa, Matvælaráðuneytið, Marel, Samherji, Síldarvinnslan, Sjávarklasinn, Vinnslustöðin og Vísir.

Athugið að skyldumæting er á Stefnumót við stjórnendur í sjávarútvegi

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er

Starfsþjálfun (VIÐ033G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Starfsþjálfun fyrir BS nemendur í viðskiptafræði er metin til 6 ECTS eininga og skal vera 150 klukkustundir. Markmið starfsþjálfunarinnar er að þjálfa nemendur í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum.  Verkefnin skulu tengjast einhverjum þeirra námsgreina sem kenndar eru í Viðskiptafræðideild og skulu þau reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér þar. 

 Í lok starfstímans skal nemandi skila til umsjónarmanns:

    • Skýrslu um meginverkefni nemandans, framkvæmd þeirra og niðurstöður, eftir því sem trúnaður leyfir. Í skýrslunni skal nemandi tengja verkefnin við þekkingu, hugtök og aðferðir úr viðskiptafræðináminu, rökstyðja faglegt mat sitt og ígrunda eigin vinnubrögð, hæfni, reynslu og þróunarþarfir.
    • Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.

Starfsþjálfun telst ekki lokið fyrr en umsjónarmaður á vinnustað hefur staðfest ástundun og þátttöku nemandans og lagt stutt mat á framkvæmd verkefna, ábyrgð, sjálfstæði, samstarf og fagleg vinnubrögð. Umsjónarmaður starfsþjálfunar hjá Viðskiptafræðideild staðfestir að skil og framkvæmd starfsþjálfunarinnar uppfylli kröfur námskeiðsins.

Nemendur geta ekki skráð sig í þetta námskeið heldur eru þau skráð eftir að búið er að staðfesta að viðkomandi nemandi hafi fengið starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki/stofnun. 

Starfsþjálfunarstöður eru auglýstar sérstaklega í upphafi hvers kennslumisseris. Allar frekari upplýsingar má finna hér.
Vinsamlega sendið fyrirspurnir á vidskipti@hi.is

Kennslutungumál: Íslenska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum

Mætingaskylda er í námskeiðinu

Skapandi atvinnugreinar (VIÐ522G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námsskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á sérstöðu skapandi atvinnugreina og lista sem hvorutveggja eru háð styrkjum til framfærslu sinnar á sama tíma og hluti af sömu greinum eru í arðbærum rekstri. Jafnframt verður framtíð skapandi atvinnugreina skoðuð í ljósi aukinnar alþjóðavæðingar ekki síst í formi starfrænnar dreifingar.
Kennslan mun fara fram í formi fyrirlestra og umræðutíma og verða gestafyrirlestrar og kynningar fyrirtækja í skapandi atvinnugreinum eftir efnum.

Alþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína) (VIÐ506M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur skoða alþjóðaviðskipti Vesturlanda og Asíu (Kína og Japan) út frá þjóðhagsfræðilegu sjónarmiði. Einnig nota örgreiningu (micro persective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu (Kína og Japan).

  • Nemendur skoða hvernig viðskipti og fjárfestingarmynstur á Asíusvæðinu mótast af alþjóðlegu stjórnmálahagkerfi.
  • Nemendur munu greina einstök fyrirtæki og viðskipti þeirra á Asíumarkaði, hvernig fjárfestingum (FDI) er háttað hjá þessum fyrirtækjum og greina virðiskeðju þeirra.
  • Nemendur vinna raundæmi (Hópverkefni) á fyrirtæki sem stundar viðskipti í Asíu

Nánari lýsing:
Þetta námskeið er hugsað sem kynning á rekstri fyrirtækja og þjóðhagsfræðilegum atriðum með sérstaka tilvísun til Asíu og þá Japan og Kína. Í námskeiðinu er notast bæði við fræðilegar skilgreiningar sem og raundæmi. Námskeiðinu er skipt í 3 megin hluta:

  • Í fyrsta hluta verður þjóðhagsfræðilegt sjónarhorn á viðskipti og fjárfestingar á Asíu svæðinu rædd út frá einstökum gögnum um viðskipti, afleiðingum WTO sem og fríverslunarsamningar verða kynntir og afleiðingar þeirra, sérstaklega verður fríverslunarsamningur Kína og Íslands skoðaður og afleiðingar hans.
  • Í öðrum hluta námskeiðsins verður örgreining (microperspective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu kynnt. Skoðuð verður bein erlend fjárfesting (FDI) og alþjóðlegar virðiskeðjur (GVC). Fræðileg nálgun verður notuð til að útskýra val fyrirtækja  á staðsetningu vegna FDI. Vestræn fyrirtæki sem koma inn í Asíu sem og asísk fyrirtæki sem koma inn á vestræna markaði verða í brennidepli.
  • Þriðji hluti námskeiðsins fer í verkefnavinnu þar sem nemendur greina fyrirtæki sem hefur starfsemi í Kína eða Japan eða þá kínversk/japönsk fyrirtæki sem hafa haslað sér völl á Íslandi. Nemendur vinna raundæmi (e.case) og gera rannsókn á fyrirtæki með starfsemi í Asíu.

Óháð námsári | Vor
Fyrirtækjaskattaréttur (VIÐ403M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir helstu lög sem snerta atvinnurekstur í landinu. Gerð verður grein fyrir skattlagningu hinna ólíku rekstrarforma, hvaða reglur gilda um skattlagningu við stofnun fyrirtækis, meðan á rekstri stendur og við lok starfsemi. Fjallað verður um skattfrjálsa umbreytingu einstakra fyrirtækjaforma, samsköttun fyrirtækja í rekstri og uppgjör til skatts í erlendum gjaldeyri. Rætt verður um helstu auðkenni skattasniðgöngu og muninn á henni og skattaskipulagningu. Þá verður ítarlega farið yfir lög um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Reynt verður að efla sjálfstæði nemanda með úrslausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi staðgóða þekkingu á meginreglum íslenskra laga um skattlagningu fyrirtækja.

Reikningsskil (VIÐ401G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af Inngangi að fjárhagsbókhaldi. Lögð er áhersla á færslutæknileg atriði í bókhaldi og við lokun uppgjörstímabils, niðurfærsla viðskiptakrafna, afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna, viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir, birgðamatsaðferðir, afföll og yfirverð á skuldabréfum, ábyrgðarskuldbindingar, tekjuskattsskuldbinding o.fl. Flokkun áhættufjármuna og peningalegra eigna. Sjóðstreymi. Fyrirmæli laga um ársreikninga verða skoðuð rækilega og höfð hliðsjón af alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, IFRS. Útreikningur tekjuskatts er tekinn til meðferðar. Lögð verða verkefni fyrir nemendur í því skyni að gera þá færa um að semja tiltölulega einfaldan ársreikning. Skilaskylt heimaverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Lögfræði B - þættir úr fjármálalögfræði (VIÐ601G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um löggjöf og lagaleg viðfangsefni sem snerta fjármálamarkaði, fjármál fyrirtækja og rekstur þeirra. 
Fjallað verður um lagaumhverfi fjármálafyrirtækja, löggjöf um verðbréfaviðskipti, ábyrgð sem hvílir á sérfræðingum, auðgunarbrot, lögfræðileg viðfangsefni sem tengjast kaupum og sölum fyrirtækja, áreiðanleikakannanir o.fl. Þá verður fjallað um samninga og skjöl sem reynir á á fjármálamarkaði, þar á meðal lánasamninga, kaupsamninga, og hluthafasamninga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Markaðsáætlanagerð (VIÐ602G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Umfjöllunarefni námskeiðsins er gerð stefnumiðaðra markaðsáætlana. Farið er ítarlega í þá aðferðafræði sem tengist gerð markaðsáætlunar, allt frá greiningu markaðstækifæra til aðgerðaáætlunar. Fjallað er um aðferðir við að greina stöðu vöru eða þjónustu á markaði, hvernig móta á markaðsstefnu og hvernig samvali söluráðanna skuli hátta. Nemendur vinna stefnumiðaða
markaðsáætlun fyrir vöru eða þjónustu, 4 í hóp og er ætlað að koma sjálfir með tillögu að verkefnum fyrir skipulagsheild sem þeir vinna undir handleiðslu kennara.

Ársreikningagerð B (VIÐ604M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu Ársreikningagerð A, sem kennt er á haustmisseri. Reiknað er með að nemendum þessa námskeiðs sé fullkunnugt efni fyrra námskeiðsins.
Í námskeiðinu verður fjallað um gildandi reglur í reikningshaldi samkvæmt IFRS og ákvæðum íslenskra laga. Umfjöllunarefni:  sjóðstreymi, tekjuskattur, hagnaður á hlut, fjármálagerningar, tekjuskráning, skuldbindingar, fjármögnunarleigusamningar, fastafjármunir til sölu og aflagður rekstur, fjárfestingaeignir, skuldbindingar, upplýsingar í ársreikningi og tengdir aðilar.

Verkefni verða lögð fyrir og er skilaskylda á þeim.
Áskilinn réttur til breytingar á námskeiðslýsingu.

Stefnumótun fyrirtækja (VIÐ609G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í upphafi námskeiðs er áherslan á umfjöllun um fagið og skilgreiningar á lykilhugtökum. Markmiðið er að nemandinn nái vel utan um þekkinguna og þau viðfangsefni sem fagið spannar. Síðan er viðfangsefnið greining á ytra umhverfi fyrirtækja og innra umhverfi þeirra. Markmiðið þar er að nemendur nái skilningi og færni í að meta stöðu fyrirtækjanna, þ.m.t styrkleika þeirra og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Þá er farið yfir það sem ná þarf utan um í stefnumótun fyrirtækis, sérstaklega heildarstefnu og viðskiptastefnu. Að lokum er farið yfir það sem tryggir árangursríka framkvæmd stefnu. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna,  þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Neytendahegðun og markaðsstarf (VIÐ418G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Skilningur á hegðun neytenda er grundvallaratriði í öllu markaðsstarfi svo hægt sé að spá fyrir um og hafa áhrif á eftirspurn eftir vörum og þjónustu, upplifun neytenda á vörumerkjum og viðbrögð neytenda við markaðsaðgerðum.

Námskeiðið byggir á umræðum og verkefnavinnu sem ýmist eru unnin í kennslustundum eða utan þeirra. Gengið er út frá því að nemendur séu búnir að kynna sér námsefnið fyrir hvern tíma og séu þannig í stakk búnir að taka virkan þátt í umræðum og verkefnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Stýring fjármálasafna (VIÐ604G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um þá aðferðafræði sem liggur að baki ákvarðanatöku fjárfesta og fyrirtækja við myndun og stýringu eigna- og skuldasafna. Áhættustýring fyrirtækja verður einnig tekin fyrir.

Námskeiðið er kennt á ensku

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Stjórnun fjölbreytileika (VIÐ416G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjölbreytileiki er flókið og margþætt fyrirbæri. Í þessu námskeiði verður kafað inn í þetta flókna fyrirbæri með því að veita innsýn inn í félagsfræði, sálfræði, alþjóðasamskipti, mannkynssögu, stjórnun, viðskipti og rannsóknir um skipulagsheildir. Þetta námskeið er hannað með það að markmiði að byggja upp skilning á grunnhugtökum og grundvallarreglum í stjórnun fjölbreytileika, til að gera nemendum kleift að efla samskipti sín við fólk með mismunandi bakgrunn og eiginleika. Það er nauðsynlegt fyrir stjórnendur og starfsfólk skipulagsheilda að þróa fræðileg, hugtaka- og hæfniviðmið, til að auka skilning í þessu sérstaka samhengi og til að geta þróað áhrifaríkar leiðir í stjórnun fjölbreytileika.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Tjáning og samskipti (VIÐ406G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur: Geti tjáð hug sinn skýrt í töluðu máli, séu öruggir, áheyrilegir og í góðu sambandi við áheyrendur. Geti tjáð sig skýrt og markvisst í rituðu máli. Þekki fræðin um upplýsingamiðlun á vinnumarkaði. Munnleg tjáning: Raddbeiting, framsögn og öndun. Áheyrileiki og samband við áheyrendur. Kvíði og aðferðir til að yfirvinna hann. Skýrt skipulag og efnistök. Tjáning á fundum og í smærri hópum. Skrifleg tjáning: Einföldun upplýsinga, skýrslugerð og gerð ferilskráa. Upplýsingamiðlun: Skipulag, aðgengi og notagildi upplýsinga, notendagreining. Nemendur taka þátt í munnlegum og skriflegum æfingum. Námskeiðið er kennt á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Stafræn markaðssetning (VIÐ625G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Til að mæta vaxandi samkeppni í nútíma viðskiptaumhverfi þurfa fyrirtæki og stjórnendur að öðlast færni í að nýta þau tækifæri sem notkun síbreytilegrar stafrænnar tækni býður uppá í markaðssetningu. Markmiðið með námskeiðinu er að efla fagþekkingu nemenda á þessu sviði og þar með samkeppnishæfni þeirra á vinnumarkaði.

Rekstrarstjórnun (VIÐ404G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Velkomin í Rekstrarstjórnun

Hefurðu einhvern tíma tekið eftir því hvernig allt í kringum okkur virðist einhvern veginn bara virka? Um það snýst þetta námskeið - að afhjúpa heillandi heim ferla í fyrirtækjum sem og daglegu lífi okkar. Við munum kanna hvernig hlutirnir verða til, allt frá minnstu græjum til stærstu véla. Þetta snýst ekki bara um verksmiðjur og færibönd, heldur munum við kynna okkur hvernig allt frá þínu uppáhalds kaffihúsi til allra nýjustu tæknifyrirtækjanna nota ferla til að skila okkur vörum.
Kafað verður ofan í hvernig á að hanna þessa ferla, halda þeim gangandi og bæta þá stöðugt.
Vertu því tilbúin til að líta á heiminn í kringum þig á nýjan hátt, sem röð ferla sem gera líf okkar betra. Vertu tilbúin til að sjá heiminn eins og rekstrarstjóri.

Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II) (HAG201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af Inngangur að hagfræði/Rekstrarhagfræði I. Áhersla er lögð á nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Það verður gert með því að gera frekari grein fyrir helstu kenningum í rekstrarhagfræði og sýna hvernig nota megi fræðin til að fjalla skipulega um margvísleg mál.

Þriðja ár | Haust

Þriðja ár | Vor

Haglýsing (HAG311G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um þróun íslenska þjóðarbúskaparins og stöðu hans í dag. Námsefnið er fjórskipt. Fyrst er fjallað um hagsögu fram til loka nítjándu aldar. Þá er farið yfir nútímavæðingu landsins með sérstakri áherslu á þéttbýlishagfræði og fasteignamarkaði. Og síðan er fjallað um hagþróun tuttugustu aldar með sérstakri áherslu á utanríkisviðskipti og gjaldeyrismarkað. Loks, er fjallað um þjóðhagslegan ábata, tekjuskiptingu og fjármagnsmarkaði. Lögð er áhersla á að tengja námskeiðið því sem hæst ber í efnahagsumræðu hverju sinni. Engar forkröfur eru gerðar um hagfræðikunnáttu til þess að geta setið námskeiðið en nemendur eru kynntir fyrir helstu hagfræðikenningum er máli skipta jafnóðum í gegnum námsefnið.

Heildahagfræði II (Þjóðhagfræði II) (HAG209G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að veita stúdentum yfirsýn yfir viðfangsefni nútímaþjóðhagfræði og innsýn í þau lögmál efnahagslífsins, sem þjóðhagfræði fjallar um. Höfuðáherzla er lögð á að lýsa ákvörðun og samspili þjóðartekna, atvinnu, verðlags, vaxta, launa og annarra helztu þjóðhagsstærða í bráð og lengd og skilyrðum almannavaldsins til að hafa áhrif á gang efnahagsmála. Áherzla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins. Höfuðviðfangsefni námskeiðsins eru: Hagfræði og hagtölur. Hagvöxtur. Atvinnuleysi. Verðbólga. Heildareftirspurn og vörumarkaður. Ríkisfjármál og peningamarkaður. Heildarframboð og vinnumarkaður. Hagstjórn í opnu hagkerfi.

Fyrsta ár
  • Haust
  • VIÐ101G
    Inngangur að markaðsfræði
    Skyldunámskeið
    6

  • VIÐ102G
    Stærðfræði A

  • VIÐ103G
    Inngangur að fjárhagsbókhaldi

  • VIÐ105G
    Rekstrarhagfræði I

  • VIÐ157G
    Vinnulag í viðskiptafræði

  • Vor
  • VIÐ263G
    Tölfræði A

  • VIÐ201G
    UI - tölvunotkun og töflureiknir

  • VIÐ204G
    Rekstrarbókhald

  • VIÐ205G
    Markaðsfærsla þjónustu

  • VIÐ258G
    Inngangur að stjórnun

  • VIÐ528G
    Viðskiptaáætlanir

  • VIÐ311G
    Tölfræði B

  • VIÐ301G
    Fjármál I

  • VIÐ302G
    Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði

  • VIÐ303G
    Inngangur að alþjóðaviðskiptum

  • VIÐ626G
    Lestur og greining ársreikninga

  • VIÐ415G
    Stjórnun og skipulagsheildir

  • VIÐ402G
    Fjármál II

  • Óháð misseri
  • VIÐ265L, VIÐ265L, VIÐ265L
    BS ritgerð
    Skyldunámskeið
    12/12/12

  • VIÐ264L, VIÐ264L, VIÐ264L
    BS ritgerð
    Skyldunámskeið
    0/0/0

  • VIÐ525G
    Aðferðafræði
    Valnámskeið

  • HAG103G
    Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I)

  • VIÐ510G
    Vinnumarkaðurinn og þróun hans

  • VIÐ502G
    UII - viðskiptagreining og gagnavinnsla

  • VIÐ503G
    Fjármálagerningar

  • VIÐ505M
    Ársreikningagerð A

  • VIÐ505G
    Fjármálamarkaðir

  • VIÐ506G
    Inngangur að verkefnastjórnun

  • VIÐ509G
    Inngangur að mannauðsstjórnun

  • VIÐ511G
    Markaðsrannsóknir

  • VIÐ512G
    Viðskipti og alþjóðasamskipti

  • VIÐ513G
    Inngangur að vörumerkjastjórnun

  • VIÐ501G
    Einstaklingsskattaréttur

  • VIÐ526G
    Markaðssamskipti

  • Ekki kennt á misserinu
    VIÐ158M
    Þjónustugæði og þjónustumat
    Valnámskeið
    7,5

    VIÐ302M
    Nýsköpun og sjálfbærni í sjávarútvegi og eldi

  • VIÐ033G
    Starfsþjálfun

    VIÐ522G
    Skapandi atvinnugreinar

    VIÐ506M
    Alþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína)

  • VIÐ403M
    Fyrirtækjaskattaréttur

  • VIÐ401G
    Reikningsskil

  • VIÐ601G
    Lögfræði B - þættir úr fjármálalögfræði

  • VIÐ602G
    Markaðsáætlanagerð

  • VIÐ604M
    Ársreikningagerð B

  • VIÐ609G
    Stefnumótun fyrirtækja

  • VIÐ418G
    Neytendahegðun og markaðsstarf

  • VIÐ604G
    Stýring fjármálasafna

  • VIÐ416G
    Stjórnun fjölbreytileika

  • VIÐ406G
    Tjáning og samskipti

  • VIÐ625G
    Stafræn markaðssetning

  • VIÐ404G
    Rekstrarstjórnun

Annað ár

Þriðja ár

Óháð námsári

    Inngangur að markaðsfræði hide

    Stærðfræði A hide

    Inngangur að fjárhagsbókhaldi hide

    Rekstrarhagfræði I hide

    Vinnulag í viðskiptafræði hide

    Tölfræði A hide

    UI - tölvunotkun og töflureiknir hide

    Rekstrarbókhald hide

    Markaðsfærsla þjónustu hide

    Inngangur að stjórnun hide

    Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I) hide

    Tölfræði B hide

    Fjármál I hide

    Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði hide

    Inngangur að alþjóðaviðskiptum hide

  • HAG201G
    Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II) hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald af Inngangur að hagfræði/Rekstrarhagfræði I. Áhersla er lögð á nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Það verður gert með því að gera frekari grein fyrir helstu kenningum í rekstrarhagfræði og sýna hvernig nota megi fræðin til að fjalla skipulega um margvísleg mál.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VIÐ401G
    Reikningsskil hide

    Stjórnun og skipulagsheildir hide

    Fjármál II hide

    Viðskiptaáætlanir hide

    Aðferðafræði hide

    UII - viðskiptagreining og gagnavinnsla hide

    Fjármálagerningar hide

    Fjármálamarkaðir hide

    Lestur og greining ársreikninga hide

    Lögfræði B - þættir úr fjármálalögfræði hide

    Stýring fjármálasafna hide

    BS ritgerð hide

    Markaðssamskipti hide

  • HAG311G
    Haglýsing hide
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um þróun íslenska þjóðarbúskaparins og stöðu hans í dag. Námsefnið er fjórskipt. Fyrst er fjallað um hagsögu fram til loka nítjándu aldar. Þá er farið yfir nútímavæðingu landsins með sérstakri áherslu á þéttbýlishagfræði og fasteignamarkaði. Og síðan er fjallað um hagþróun tuttugustu aldar með sérstakri áherslu á utanríkisviðskipti og gjaldeyrismarkað. Loks, er fjallað um þjóðhagslegan ábata, tekjuskiptingu og fjármagnsmarkaði. Lögð er áhersla á að tengja námskeiðið því sem hæst ber í efnahagsumræðu hverju sinni. Engar forkröfur eru gerðar um hagfræðikunnáttu til þess að geta setið námskeiðið en nemendur eru kynntir fyrir helstu hagfræðikenningum er máli skipta jafnóðum í gegnum námsefnið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VIÐ501G
    Einstaklingsskattaréttur hide

    Ársreikningagerð A hide

    Inngangur að verkefnastjórnun hide

    Inngangur að mannauðsstjórnun hide

    Vinnumarkaðurinn og þróun hans hide

    Markaðsrannsóknir hide

    Viðskipti og alþjóðasamskipti hide

    Inngangur að vörumerkjastjórnun hide

    Þjónustugæði og þjónustumat hide

    Nýsköpun og sjálfbærni í sjávarútvegi og eldi hide

    Starfsþjálfun hide

    Skapandi atvinnugreinar hide

    Alþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína) hide

    Neytendahegðun og markaðsstarf hide

    Fyrirtækjaskattaréttur hide

    Stjórnun fjölbreytileika hide

  • HAG209G
    Heildahagfræði II (Þjóðhagfræði II) hide
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur þessa námskeiðs er að veita stúdentum yfirsýn yfir viðfangsefni nútímaþjóðhagfræði og innsýn í þau lögmál efnahagslífsins, sem þjóðhagfræði fjallar um. Höfuðáherzla er lögð á að lýsa ákvörðun og samspili þjóðartekna, atvinnu, verðlags, vaxta, launa og annarra helztu þjóðhagsstærða í bráð og lengd og skilyrðum almannavaldsins til að hafa áhrif á gang efnahagsmála. Áherzla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins. Höfuðviðfangsefni námskeiðsins eru: Hagfræði og hagtölur. Hagvöxtur. Atvinnuleysi. Verðbólga. Heildareftirspurn og vörumarkaður. Ríkisfjármál og peningamarkaður. Heildarframboð og vinnumarkaður. Hagstjórn í opnu hagkerfi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VIÐ406G
    Tjáning og samskipti hide

    Markaðsáætlanagerð hide

    Ársreikningagerð B hide

    Stefnumótun fyrirtækja hide

    Stafræn markaðssetning hide

    Rekstrarstjórnun hide

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Fjármálastjórn
  • Sérhæfð viðfangsefni banka og verðbréfafyrirtækja
  • Markaðsáætlanagerð
  • Bókhald
  • Undirbúningur og framkvæmd stefnumótunar
  • Starfsmannahald og tengd verkefni
  • Rekstrarverkefni

Listinn er ekki tæmandi.

Nemendafélag viðskiptafræðinema heitir Mágus og er það eitt fjölmennasta og öflugasta nemendafélag skólans.

Ýmsir viðburðir eru haldnir yfir skólaárið svosem nýnemaferð, útilega, vísindaferðir, íþróttamót og árshátíð.

Frekari upplýsingar má sjá á vef Mágusar eða samfélagsmiðlum.

Umsagnir nemenda
Júlía Rut Kristjánsdóttir
Þegar ég ákvað að fara í háskóla fékk ég valkvíða, því það er gríðarlegt framboð af spennandi námi í boði. Mér hefur alltaf þótt gaman að læra og áhugasvið mín mörg. Viðskiptafræðin varð fyrir valinu þar sem mér fannst hún fjölbreytt og tengjast öðrum sviðum, sem heillaði mig. Viðskiptafræði hefur gefið og kennt mér ótrúlega margt og þá ekki einungis námslega. Ég hef kynnst fjölbreyttum hópi fólks, lært viðburðastjórnun í gegnum störf mín hjá Mágusi, stækkað tengslanetið mitt og svo lengi mætti telja. Ég fór í nýnemaferð Mágusar eftir nýnemakynninguna fyrsta daginn minn og fann þá strax að þarna ætti ég heima. Ég held ég gæti ekki verið ánægðari með val mitt í dag og sé fram á að þessi gráða muni nýtast mér vel bæði í atvinnulífinu sem og hversdags lífinu.
Ljósmynd af Guðjóni Gunnari Valtýssyni Thors
Degi fyrir nýnemadag Háskólans skipti ég um námsleið yfir í viðskiptafræðina og get ég sagt með fullu öryggi að það hafi verið besta ákvörðun sem ég hef tekið á lífsleiðinni. Námið er bæði áhugavert og spennandi. Það sem heillaði mig er að það tengist daglega lífinu beint og óbeint. Mín sýn á sjónvarpsauglýsingum breyttist strax eftir fyrstu vikurnar og mér fannst mjög fróðlegt að kynnast fræðunum á bakvið margt sem þú sérð í hinu daglega lífi. Ekki er hægt að tala um viðskiptafræðina án þess að lofsyngja Mágus, nemendafélag viðskiptafræðinema við Háskóla Íslands. Allar vísindaferðirnar, partý og samkomur sem Mágus stendur fyrir hafa gefið mér bæði ógleymanlegar minningar en einnig vinabönd og tengslanet sem munu hiklaust hjálpa mér í viðskiptalífinu á næstu áratugum.
Ljósmynd af Auði Elísabetu Guðrúnardóttur
Það sem heillaði mig mest við viðskiptafræðina var hversu fjölbreytt námið er og að gráðan myndi nýtast mér í starfi bæði á Íslandi og erlendis. Námið var virkilega skemmtilegt en á sama tíma krefjandi og lærdómsríkt. Það kom mér á óvart hversu samheldinn hópurinn var í gegnum námið og aðgengi nemenda að kennurum er til fyrirmyndar. Ég var kjörin forseti viðskiptafræðinema á Norðurlöndunum sem leiddi mig í skiptinám til Finnlands en ég mæli eindregið með að nemendur við deildina nýti sér þau einstöku tækifæri til skiptináms sem þeim bjóðast. Viðskiptafræðin er grunnþekking fyrir lífið og er ég viss um að námið komi til með að nýtast mér bæði í starfi og fjölskyldulífi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil