Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs veitir nemendum, kennurum og deildum faglega þjónustu og ráðgjöf frá umsókn og inntöku til brautskráningar. Einingin sér um umsýslu kennslu og prófa, lokaritgerðir, brautskráningar, alþjóðleg málefni og skiptinám, auk stuðnings við kennara og deildir.
Markmiðið er að tryggja skilvirka þjónustu, skýra upplýsingagjöf og styðjandi námsumhverfi.
Þjónustutorg Gimli
Opið: Mánudag til föstudags kl. 09.00 til 15.00
Sími: 525-4500
Netfang: nemfvs@hi.is
Bóka viðtal við nemendaþjónustu Félagsvísindasviðs
Gagnlegar upplýsingar fyrir nemendur Félagsvísindasviðs eru í Uglu (þarfnast innskráningar).
Nýnemar
Nemendaráðgjöf HÍ
Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands (NHÍ) veitir nemendum allra fræðasviða skólans ráðgjöf og stuðning meðan á námi stendur.
Þjónustumiðjuna HÍ
Þjónustumiðjan er upplýsingavefur sem inniheldur mikið magn efnis þar sem notendur geta fundið svör við flestum spurningum er varða starfsemi og þjónustu Háskólans.