Fólk á gangi
Tungumál kennslu
Íslenska/enska
Lengd náms
Hlutanám í tvö misseri
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vilt þú sjá daglegt líf í nýju ljósi?
  • Hefur þú gaman af orðlist og alþýðutónlist fyrr og nú, allt frá norrænum goðsögum til flökkusagna samtímans?
  • Getur þú hugsað þér að fara í stutt fræðilegt og hagnýtt nám?
  • Hefur þú áhuga á fólki?

Þjóðfræðin er kynnt sem fræðigrein á íslenska og alþjóðlega vísu, nemendur tileinka sér sjónarhorn þjóðfræðinnar á samfélagið og læra að beita aðferðum hennar til sjálfstæðra rannsókna. Enn fremur fá þeir trausta undirstöðu í sögu fagsins. 

Áhersla er lögð á hvernig fólk mótar líf sitt og umhverfi undir kringumstæðum sem það hefur ekki mótað sjálft.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og hægt er að ljúka því á einu misseri ef lagt er stund á fullt nám eða á einu ári í hlutanámi.

Nemendur velja 30 einingar í bundnu vali úr þeim námskeiðum í þjóðfræði sem í boði eru ár hvert á framhaldsstigi.

Meðal viðfangsefna

Meðal viðfangsefna þjóðfræðinnar má nefna:

  • Daglegt líf og daglegt brauð
  • Sögur og sagnir
  • Heimilis- og atvinnuhætti
  • Trú og tónlist
  • Siði og venjur
  • Hátíðir og leiki
  • Föt, tísku og matarhætti um heim allan

Fyrirkomulag kennslu

Unnt er að taka flest öll námskeið í þjóðfræði í fjarnámi. Fyrirlestrar eru teknir upp og eru aðgengilegir á lokuðu vefsvæði þar sem fjarnemar geta sótt þá tímabundið.

Námið er kennt á íslensku en flestar bækur eru á ensku eða öðru erlendu tungumáli.

Meginmarkmið

Miðað er að því að veita nemendum fræðilega og hagnýta menntun á fræðasviðinu með möguleika á sérhæfingu.

Annað

Örnámi sem er lokið með fyrstu einkunn getur veitt aðgang að meistaranámi.

BA-, BS-, B.Ed.-gráða eða sambærileg gráða.

Ljúka þarf 30 einingum. Námið er skipulagt sem 30 einingar í bundnu vali og samanstendur af námskeiðum í þjóðfræði á framhaldsstigi (M- og F-námskeið).

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Ómenning: Frá postulínshundum til pönkara (ÞJÓ605M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er rýnt í ýmis dæmi frá nítjándu öld til samtímans um „ómenningu“ allt frá áliti Jónasar Hallgrímssonar á rímum og Jónasar frá Hriflu á amerískum reyfurum og klessumálverkum til samtímaumræðna um graffítí, tölvuleiki og tónlistarmyndbönd. Fjallað er um hugmyndir, hegðun og menningarafurðir sem taldar eru hafa verið skaðvaldar í íslenskri menningu eða ógnað á einhvern hátt heilbrigðu menningarlífi. Þannig er meðal annars staðnæmst við andúðina á djassi, rokki og atómskáldskap og fjallað um eðli þeirrar ógnana sem talið var stafa af slíkum fyrirbærum. Samhengi samfélagslegs valds og menningar er tekið til rækilegrar skoðunar og spurt hverjir hafi skilgreint ómenningu, með hvaða aðferðum og í hvaða tilgangi.

Spurt er hvort ógnvaldarnir eigi eitthvað sameiginlegt og hvort skilgreining þeirra sé háð hagsmunum, hugsjónum og siðferðisviðmiðum sem tekið hafa breytingum í tímans rás. Skoðað er að hvaða leyti hugmyndir um ómenningu sem andhverfu íslenskrar menningar hafa átt þátt í að móta hana og skilgreina:

Hvaða þátt hafa hugmyndir um hið menningarlega og viðmið um siðmenningu átt í að marka viðteknar hugmyndir um íslenska menningu? Að hvaða leyti hefur íslensk menning mótast í viðnámi gegn erlendri fjöldamenningu sem meðal annars hefur verið álitin birtast í gervi danskrar kjólatísku og amerískra sápuópera?

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Menning framtíðar: Öfgafullar umhverfisaðstæður (ÞJÓ311F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skoðar efnisleg, menningarleg og umhverfisleg samskipti, lausnir, nýsköpun og aðlaganir manneskjunnar að öfgafullum umverfisaðstæðum á yfirborði jarðar, til sjávar og í geimnum. Við könnum áskoranir, viðbrögð, ráðagerðir og lausnir sem upp hafa komið og hvaða þýðingu þau kunna að hafa fyrir framtíð mannskyns í örum loftslagsbreytingum á hlýnandi plánetu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Sviðslistafræði (Performance Studies): Frá sagnaflutningi til uppistands, kjötkveðjuhátíða og stjórnmálamanna (ÞJÓ107F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sviðslistafræði (Performance Studies) fjallar um það hvernig fólk í öllum samfélögum, bæði fyrr og nú, tekur þátt í ymis konar sviðslist (performances) í daglegu lífi, á mismunandi "leiksviðum", allt frá helgisiðum til kirkjupredikana, leiksýninga, kvikmyndasýninga, útvarpsþátta, uppistands, sagnaflutnings, gjörningalistar, hátíða, útskriftasiða, matarboða, dulbúningasiða og málflutnings stjórnmálamanna heima og erlendis. Á námskeiðinu munu nemendur kynnast þeim margslungnu táknmálsformum sem beitt er í mismunandi tegundum sviðslista, frá talmáli til búninga, útlits, svipbrigða, kyns, samhengis, hljóðs, "timing" og nytsemi rýmis og viðtöku áhorfenda.

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, umræðum um fyrirlestra og farið í heimsóknir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Kenningar í félags- og mannvísindum (FMÞ102F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um nýleg verk og stefnur sem valdið hafa, eða eru líkleg til að valda, straumhvörfum í félags- og mannvísindalegri hugsun. Áhersla er lögð á samfélagslegt og sögulegt samhengi kenninganna. Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum. Skyldumæting er í umræðutíma einu sinni í viku í 40 mínútur. Fjarnemar geta mætt í kennslustofu eða tekið þátt í gegnum Internetið (með Zoom). 

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Samfélög manna og örvera: Örverur, menning, heilsa, og umhverfi (MON002M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðslýsing

Hvað segir skyrgerð okkur um þróun íslensks samfélags? Hver eru áhrif þarmaflórunnar á heilsu okkar? Hvernig losum við okkur við úrgang í þéttbýli á umhverfisvænan hátt og hvaða þögli meirihluti jarðarbúa er þar að verki? Lykillinn að öllum þessum spurningum er sá sami:  Samfélög örvera hafa mótað jörðina og íbúa hennar frá upphafi lífs eða í milljarða ára. Til að skilja og takast á við áskoranir 21. aldar varðandi umhverfi, heilsu og samfélag, þurfum við að skilja hlutverk þessara fyrstu lífvera betur og hvernig það tvinnast saman við líf okkar sjálfra og nágranna okkar í lífríkinu. Nýlegar rannsóknir sýna að meirihluti frumanna í og á mannslíkamanum tilheyrir fjölbreyttum tegundum örvera. Þýðir það að menn séu örverur? Eða “bara” að samlífið við örverur sé nánasta og mikilvægasta sambandið sem við eigum í? Námskeiðið býður nemendum að kanna samlífi örvera og manna út frá ýmsum sjónarhornum, sem eru m.a. ættuð úr örverufræði og þjóðfræði, matvælafræði, næringarfræði og mannfræði. Litið verður til þess hvernig örverur koma að þróun og varðveislu matvæla í samfélögum manna, hlutverk þeirra í meltingunni og tengsl við andlega og líkamlega heilsu. Einnig hvernig örverur viðhalda lífsnauðsynlegum hringrásum lífrænna efna  og geta umbreytt rusli og úrgangi í endurnýjanlegt form eins og heilbrigðan jarðveg.

Námskeiðið vinnur út frá hugmyndinni um „eina heilsu“ sem mótast hefur síðustu áratugi og vísar til þess að heilbrigði umhverfis, manna og annarra dýra, og samfélaga, er samtengt á þann hátt að niðurbrot á einhverju þessara sviða leiðir til niðurbrots á öðrum. Efnið verður skoðað út frá einstökum dæmum um samlífi örvera og manna, eins og áhrifum örvera á bragð og samsetningu matvæla, áhrifum mataræðis á þarmaflóru, hlutverki gerjunar í mótun mannlegra tengsla og hvernig losunarkerfi í þéttbýli rjúfa hringrás næringarefna í umhverfi mannsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Mannskepnur og önnur dýr (ÞJÓ110F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðu, rafrænum fyrirlestrum og vettvangsferðum í náttúru og á söfn.

Samskipti manneskjunnar við önnur dýr er viðfangsefni þessa námskeiðs sem við nálgumst frá bæði fræðilegum og listrænum sjónarhornum. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni, um dýr að eigin vali, þar sem áhersla er einnig lögð á sjónræna framsetningu - t.d. teikningar eða ljósmyndir.  Í fyrirlestrum verður m.a. fjallað um hvítabirni, hvali, geirfugla og lunda og nýlegar rannsóknir á þeim.  Fjallað verður um áhrifavald og ólíkar birtingarmyndir dýra í margvíslegu listrænu og menningarlegu samhengi, til dæmis í fornbókmenntum, þjóðsögum, munnmælum, kvikmyndum, fréttum, efnismenningu og ferðamennsku. Þá verður til dæmis hugað að „framhaldslífi“ dýra í formi listmuna, safngripa og minjagripa. Við munum skoða gripi í einkaeigu og á opinberum vettvangi og spyrja spurninga á borð við: hvað gerist þegar lifandi dýri er breytt í safngrip? Hvernig þróast og breytist merking dýrsins í ólíku samhengi? Hvernig mótast hugmyndir okkar um dýr? Tekist verður á við hlutverk ólíkra dýra í þekkingasköpun og mótun orðræðu um loftslagsmál og málefni norðurslóða, tengsl við ákveðin landsvæði og menningarhópa og hlutverk þeirra í ímynda- og sjálfsmyndasköpun bæði fortíðar og samtíma.  Stigið verður út fyrir hefðbundna ramma sem snúa að aðgreiningu manna/dýra og annarra lífvera um leið og við könnum samtvinnaða hugmynda- og vistheima þeirra.

Markmið

Markmið námskeiðs er að velta upp áríðandi spurningum og málefnum er snúa að sambúð fólks og dýra, loftlagsbreytingum, útrýmingu dýrategunda og sjálfbærni. Við munum íhuga hvernig listamenn, rannsakendur, aðgerðasinnar og söfn hafa tekið þátt í umræðu um þessi málefni og hvernig hægt sé að þróa umræðuna áfram. Við munum skoða hvernig mismunandi lista- og menningarminjasöfn miðla hugmyndum og upplýsingum um samband manna og dýra í gegnum safneign sína og sýningar. Nemendur eru hvattir til að nálgast, með gagnrýnum hætti, sjónrænt efni, muni, gripi og texta, bæði rafrænt en einnig með heimsóknum á söfn og sýningar. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Hagnýt þjóðfræði (ÞJÓ304M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar og hvernig aðferðir og vinnubrögð þjóðfræðinnar geta komið að notum til að breikka og dýpka umræðu og opnað leiðir til að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Fjallað verður um tengsl þjóðfræði við ferðaþjónustu, safnastarf, listir og margvíslega miðlun þjóðfræðiefnis. Rætt verður um gagnasöfn tengd þjóðfræði á Íslandi og möguleika á hagnýtingu þeirra. Skoðað hvernig nýta má sögulegt efni, viðtöl og vettvangsrannsóknir, og setja niðurstöður fram, svo sem með sýningum, hátíðum og viðburðum, blaðaskrifum, bókaútgáfu, vefútgáfu, útvarpsþáttagerð og gerð  heimildamynda. Ólíkar aðferðir til að ná til ólíkra markhópa verða ræddar og hvernig miðla má efni til breiðra hópa gesta, lesenda, hlustenda eða áhorfenda. Siðferðileg, efnahagsleg, menningarleg og pólitísk álitamál við hagnýta þjóðfræði tekin til umfjöllunar.

Námskeiðið verður að hluta lotukennt, 3 daga í þriðju kennsluviku í Reykjavík og 4 daga í verkefnavikunni á Hólmavík á Ströndum. Nemendur vinna verkefni tengd hagnýtri þjóðfræði, en ekkert lokapróf er í áfanganum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Menningararfur (ÞJÓ506M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Matur og menning: (NÆR613M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.

Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.

Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.

Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Kyngervi, sögur og siðir (ÞJÓ021M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

The field of Folklore, emerging out of the phenomena collectively referred to as  Modernity, has a complicated and problematic relationship with gender, both in the material that circulates and the subsequent academic treatment of that material. This seminar combines theoretical perspectives from Gender Studies and Folkloristics to better understand the interconnectedness of popular cultural forms, analyses, and the operations of power, specifically gender relations. Beginning with a feminist critique of Folkloristics from within (a historical reference point), we will examine more recent work on the relationship between gender and genre, between the empowering acts of ordinary rituals (so-called women‘s genres), and how the old, debunked Nature/Culture divide, in which women‘s genres were debased and denigrated, may, looked at from a different perspective, suggest alternate approaches to some contemporary global issues.

Teacher of the course: JoAnn Conrad

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Norræn trú (ÞJÓ203F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Hagnýt þjóðfræði (ÞJÓ445M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar og hvernig aðferðir og vinnubrögð þjóðfræðinnar geta komið að notum til að breikka og dýpka umræðu og opnað leiðir til að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Fjallað verður um tengsl þjóðfræði við ferðaþjónustu, safnastarf, listir og margvíslega miðlun þjóðfræðiefnis. Rætt verður um gagnasöfn tengd þjóðfræði á Íslandi og möguleika á hagnýtingu þeirra. Skoðað hvernig nýta má sögulegt efni, viðtöl og vettvangsrannsóknir, og setja niðurstöður fram, svo sem með sýningum, hátíðum og viðburðum, blaðaskrifum, bókaútgáfu, vefútgáfu, útvarpsþáttagerð og gerð  heimildamynda. Ólíkar aðferðir til að ná til ólíkra markhópa verða ræddar og hvernig miðla má efni til breiðra hópa gesta, lesenda, hlustenda eða áhorfenda. Siðferðileg, efnahagsleg, menningarleg og pólitísk álitamál við hagnýta þjóðfræði tekin til umfjöllunar.

Námskeiðið verður að hluta lotukennt, 3 daga í þriðju kennsluviku í Reykjavík og 4 daga í verkefnavikunni á Hólmavík á Ströndum. Nemendur vinna verkefni tengd hagnýtri þjóðfræði, en ekkert lokapróf er í áfanganum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Menningararfur (ÞJÓ447M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Munnleg hefð og íslenskar fornsögur og kvæði (ÞJÓ109F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lögð verður til grundvallar kenning Alberts B. Lord um munnlegan kvæðaflutning (munnlega kenningin) í bókinni The Singer of Tales. Þá verða raktar þær rannsóknir sem fram hafa komið í kjölfar hennar og reynt að meta hvaða áhrif kenningin hefur á rannsóknir miðaldabókmennta sem byggja að hluta á munnlegri hefð. Í seinni hluta námskeiðsins verður tekið mið af eddukvæðum og nokkrar Íslendingasögur lesnar vandlega með hliðsjón af kenningum um sagnfestu- bókfestu- og nýsagnfestu. Kennslan fer fram með fyrirlestrum kennara og umræðum. Nemendum er ætlað að vinna sjálfstæð verkefni og skila greinargerðum um efni nokkurra bóka og greina.

Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum í bland við sjálfstæð nemendaverkefni um rannsóknaviðfangsefni námskeiðsins.

Athugið, námskeiðið er kennt annað hvert ár.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri alda (ÍSB814M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Með hliðsjón af þjóðsögum, bókmenntatextum og öðrum heimildum fjallar námskeiðið um birtingarmyndir náttúru og yfirnáttúru í frásagnarmenningu á Íslandi í gegnum aldirnar. Nemendur læra um þýðingu, snertifleti og óljós mörk þessara fyrirbæra og hvernig þau hafa mótað samfélag og umhverfi. Nemendur kynnast þannig ólíkum hugmyndum um stöðu fólks og (annarra) dýra innan, yfir eða utan við náttúruna. Í fjölbreyttum fyrirlestrum og verkefnavinnu verður fjallað með gagnrýnum hætti um mennsku og dýrsleika, lífheima og handanheima, efnisleika og hið yfirskilvitlega.  Kannað verður hvaða hlutverk og form landslag, lífverur, líkamar, veður og náttúrufyrirbrigði taka í frásögnunum.  Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þessu breiða sviði, svo sem á framsetningu jarðhræringa og himingeima, bjarndýra, hvala, sela og húsdýra, og á náttúrvættum og öðrum þjóðsagnaverum á borð við álfa, drauga, tröll og berserki.  Nemendur læra hvernig sagnaheimar og þjóðtrú hafa sett mark sitt á náttúruskynjun, alþýðuhefðir, þjóðhætti og samfélagsleg rými svo sem álagabletti, helga staði og staði sem eru þekktir fyrir reimleika. Einnig spyrjum við hvernig þessar frásagnir birtast í alþýðulist og myndlist, allt frá fyrri öldum til nútímans. Að lokum munum við kanna hvaða þýðingu frásagnir af náttúru og yfirnáttúru hafa í samhengi mannaldar, mannmiðaðra sjónarhorna, loftslagsbreytinga og ólíkrar stöðu samfélagshópa og tegunda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Ráðstefnumálstofa (ÞJÓ209M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Alþjóðlegar þjóðfræðiráðstefnur þar sem nýjustu rannsóknir í faginu eru kynntar eru haldnar reglulega. Þar koma þjóðfræðingar víða að úr heiminum til að segja frá eigin verkefnum, takast á um hugmyndir, víkka sjóndeildarhringinn, njóta félagsskapar við fólk sem slær um sig með sömu hugtökunum og leggja drög að mögulegu samstarfi.

Í júní 2026 fer fram ráðstefna Alþjóðasamtaka þjóðsagnafræðinga (International Society for Folk Narrative Research) í Reykjavík. Í þessari málstofu förum við í saumana á alþjóðlegum fræðiráðstefnum og leggjum áherslu á þessa. Við kynnum okkur lykilfyrirlesara, köfum ofan í einstakar málstofur eftir áhugasviði þátttakenda, rýnum í þemu, veltum fyrir okkur samtökunum sem að ráðstefnunni standa og kortleggjum ólíkar hefðir og áherslur í þjóðfræði um heim allan. Um leið undirbýr málstofan þátttakendur undir að taka þátt í slíkri ráðstefnu. Málstofan hittist einu sinni í viku í tvo tíma í senn.

Nemendur eru hvattir til að fara á ráðstefnuna og geta fengið fyrir það 5 einingar til viðbótar, sjá Ráðstefnuþátttaka ÞJÓ210M.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Ráðstefnuþátttaka (ÞJÓ210M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Alþjóðlegar þjóðfræðiráðstefnur, þar sem nýjustu rannsóknir í faginu eru kynntar, eru haldnar reglulega. Þar koma þjóðfræðingar víða að úr heiminum til að segja frá eigin verkefnum, takast á um hugmyndir, víkka sjóndeildarhringinn, njóta félagsskapar við fólk sem slær um sig með sömu hugtökunum og leggja drög að mögulegu samstarfi.

Í júní 2026 fer fram ráðstefna Alþjóðasamtaka þjóðsagnafræðinga (International Society for Folk Narrative Research) í Reykjavík. Í kjölfar málstofu, þar sem farið er ofan í í saumana á alþjóðlegum fræðiráðstefnum (sjá ÞJÓ209M Ráðstefnumálstofa), tekur nemandi þátt í ráðstefnunni og skilar skýrslu að henni lokinni (5 einingar). 

Nemendur þurfa sjálfir að standa straum af kostnaði við ferðina á ráðstefnuna en við bendum á að Félag þjóðfræðinga á Íslandi auglýsir stundum ferðasjóð í tengslum við ráðstefnur af þessu tagi. Oft er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttarfélagi og doktorsnemar geta sótt í ferðasjóð doktorsnema.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Að sá ennþá fleiri fræjum: Miðlun í þjóðfræði (ÞJÓ215F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er framhald námskeiðsins ÞJÓ605G Að sá fræjum: Miðlun og starfsþróun. Hér er aukin áhersla lögð á miðlun þjóðfræðilegrar þekkingar. Nemendur læra að kynna bæði sig og fag sitt á opinberum vettvangi, í rituðu og töluðu máli, í persónu og á netinu. Námskeiðið er verkefnamiðað en unnið er að litlum verkefnum jafnt og þétt yfir önnina.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Alþýðumenning og fagurfræði hversdagsins (ÞJÓ212F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
15 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu rannsökum við sjónarhorn þjóðfræðinnar á menningu og samfélag með sérstakri áherslu á daglegt líf og daglegt brauð - það sem kalla mætti prósa heimsins. Við tökum sögu þjóðfræðinnar til skoðunar með gagnrýnu hugarfari og setjum í samhengi við sögu grannfaganna og við könnum í sameiningu strauma og stefnur við upphaf 21. aldar. Þá förum við í saumana á helstu hugtökum, þ.á m. menningarmun og margbreytileika, þjóðerni, kyngervi, alþýðu, hefð, hópi, höfundi, hnattvæðingu, fjölhyggju, elleftu stundinni, menningarlegu forræði, menningararfi og eignarhaldi á menningu.

Markmiðið er að skilja hvernig mennirnir skapa hversdaginn og fylla daglegt umhverfi sitt merkingu, hvernig þeir móta líf sitt við aðstæður sem þeir hafa ekki sjálfir kosið sér, hvort heldur sem er í bændasamfélagi fyrri tíðar eða borgarsamfélagi 21. aldarinnar. Námskeiðið er ætlað meistaranemum, en er einnig opið nemendum á þriðja ári í BA-námi.

Markmið:

Í lok námskeiðsins er ætlast til að nemandinn:

  • Hafi lesið ýmis grundvallarrit í þjóðfræði
  • Kunni skil á straumum og stefnum á 20. og 21. öld
  • Þekki þær breytingar sem fagið hefur gengið í gegnum og þá sjálfsgagnrýnu umræðu sem fer nú fram innan fagsins
  • Hafi vald á lykilhugtökum í greiningu á alþýðumenningu og fagurfræði hversdagsins
  • Geti rökrætt um menningu hópa og menningarmun með tilvísun til kenninga og fræðilegra hugtaka

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Ráðstefnumálstofa í þjóðfræði: Norræna þjóðfræðingið í Reykjavík 2022 (ÞJÓ061F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Dagana 14.-16. júní 2022 fer Norræna þjóðfræðiþingið fram við Háskóla Íslands. Þangað safnast þjóðfræðingar frá öllum Norðurlöndunum og víðar að, prófessorar, rannsakendur, ritstjórar, framhaldsnemar og safnafólk, og kynna nýjustu rannsóknir í faginu, takast á um hugmyndir, víkka sjóndeildarhringinn og njóta félagsskapar við fólk sem slær um sig með sömu hugtökunum.

Norræna þjóðfræðiþingið er deigla nýrrar þekkingar og leiðir saman á þriggja ári fresti sænska, norska, danska, finnska, færeyska og íslenska þjóðfræðinga. Þangað sækja þeir innblástur og segja frá eigin verkefnum, deila með kollegunum og deila við kollegana, leggja drög að samstarfi og rækta vináttuna.

Í þessari málstofu förum við í saumana á dagskrá ráðstefnunnar, kynnum okkur lykilfyrirlesara, köfum ofan í einstakar málstofur eftir áhugasviði þátttakenda, rýnum í þema ráðstefnunnar, kortleggjum ólíkar hefðir og áherslur í þjóðfræði á Norðurlöndum og tökum púlsinn á því sem helst er að gerast í faginu akkúrat núna. Um leið undirbýr málstofan nemendur undir að taka þátt í ráðstefnunni í júní.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári
  • Haust
  • ÞJÓ605M
    Ómenning: Frá postulínshundum til pönkara
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er rýnt í ýmis dæmi frá nítjándu öld til samtímans um „ómenningu“ allt frá áliti Jónasar Hallgrímssonar á rímum og Jónasar frá Hriflu á amerískum reyfurum og klessumálverkum til samtímaumræðna um graffítí, tölvuleiki og tónlistarmyndbönd. Fjallað er um hugmyndir, hegðun og menningarafurðir sem taldar eru hafa verið skaðvaldar í íslenskri menningu eða ógnað á einhvern hátt heilbrigðu menningarlífi. Þannig er meðal annars staðnæmst við andúðina á djassi, rokki og atómskáldskap og fjallað um eðli þeirrar ógnana sem talið var stafa af slíkum fyrirbærum. Samhengi samfélagslegs valds og menningar er tekið til rækilegrar skoðunar og spurt hverjir hafi skilgreint ómenningu, með hvaða aðferðum og í hvaða tilgangi.

    Spurt er hvort ógnvaldarnir eigi eitthvað sameiginlegt og hvort skilgreining þeirra sé háð hagsmunum, hugsjónum og siðferðisviðmiðum sem tekið hafa breytingum í tímans rás. Skoðað er að hvaða leyti hugmyndir um ómenningu sem andhverfu íslenskrar menningar hafa átt þátt í að móta hana og skilgreina:

    Hvaða þátt hafa hugmyndir um hið menningarlega og viðmið um siðmenningu átt í að marka viðteknar hugmyndir um íslenska menningu? Að hvaða leyti hefur íslensk menning mótast í viðnámi gegn erlendri fjöldamenningu sem meðal annars hefur verið álitin birtast í gervi danskrar kjólatísku og amerískra sápuópera?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ311F
    Menning framtíðar: Öfgafullar umhverfisaðstæður
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið skoðar efnisleg, menningarleg og umhverfisleg samskipti, lausnir, nýsköpun og aðlaganir manneskjunnar að öfgafullum umverfisaðstæðum á yfirborði jarðar, til sjávar og í geimnum. Við könnum áskoranir, viðbrögð, ráðagerðir og lausnir sem upp hafa komið og hvaða þýðingu þau kunna að hafa fyrir framtíð mannskyns í örum loftslagsbreytingum á hlýnandi plánetu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ107F
    Sviðslistafræði (Performance Studies): Frá sagnaflutningi til uppistands, kjötkveðjuhátíða og stjórnmálamanna
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sviðslistafræði (Performance Studies) fjallar um það hvernig fólk í öllum samfélögum, bæði fyrr og nú, tekur þátt í ymis konar sviðslist (performances) í daglegu lífi, á mismunandi "leiksviðum", allt frá helgisiðum til kirkjupredikana, leiksýninga, kvikmyndasýninga, útvarpsþátta, uppistands, sagnaflutnings, gjörningalistar, hátíða, útskriftasiða, matarboða, dulbúningasiða og málflutnings stjórnmálamanna heima og erlendis. Á námskeiðinu munu nemendur kynnast þeim margslungnu táknmálsformum sem beitt er í mismunandi tegundum sviðslista, frá talmáli til búninga, útlits, svipbrigða, kyns, samhengis, hljóðs, "timing" og nytsemi rýmis og viðtöku áhorfenda.

    Vinnulag

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, umræðum um fyrirlestra og farið í heimsóknir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FMÞ102F
    Kenningar í félags- og mannvísindum
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um nýleg verk og stefnur sem valdið hafa, eða eru líkleg til að valda, straumhvörfum í félags- og mannvísindalegri hugsun. Áhersla er lögð á samfélagslegt og sögulegt samhengi kenninganna. Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum. Skyldumæting er í umræðutíma einu sinni í viku í 40 mínútur. Fjarnemar geta mætt í kennslustofu eða tekið þátt í gegnum Internetið (með Zoom). 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MON002M
    Samfélög manna og örvera: Örverur, menning, heilsa, og umhverfi
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðslýsing

    Hvað segir skyrgerð okkur um þróun íslensks samfélags? Hver eru áhrif þarmaflórunnar á heilsu okkar? Hvernig losum við okkur við úrgang í þéttbýli á umhverfisvænan hátt og hvaða þögli meirihluti jarðarbúa er þar að verki? Lykillinn að öllum þessum spurningum er sá sami:  Samfélög örvera hafa mótað jörðina og íbúa hennar frá upphafi lífs eða í milljarða ára. Til að skilja og takast á við áskoranir 21. aldar varðandi umhverfi, heilsu og samfélag, þurfum við að skilja hlutverk þessara fyrstu lífvera betur og hvernig það tvinnast saman við líf okkar sjálfra og nágranna okkar í lífríkinu. Nýlegar rannsóknir sýna að meirihluti frumanna í og á mannslíkamanum tilheyrir fjölbreyttum tegundum örvera. Þýðir það að menn séu örverur? Eða “bara” að samlífið við örverur sé nánasta og mikilvægasta sambandið sem við eigum í? Námskeiðið býður nemendum að kanna samlífi örvera og manna út frá ýmsum sjónarhornum, sem eru m.a. ættuð úr örverufræði og þjóðfræði, matvælafræði, næringarfræði og mannfræði. Litið verður til þess hvernig örverur koma að þróun og varðveislu matvæla í samfélögum manna, hlutverk þeirra í meltingunni og tengsl við andlega og líkamlega heilsu. Einnig hvernig örverur viðhalda lífsnauðsynlegum hringrásum lífrænna efna  og geta umbreytt rusli og úrgangi í endurnýjanlegt form eins og heilbrigðan jarðveg.

    Námskeiðið vinnur út frá hugmyndinni um „eina heilsu“ sem mótast hefur síðustu áratugi og vísar til þess að heilbrigði umhverfis, manna og annarra dýra, og samfélaga, er samtengt á þann hátt að niðurbrot á einhverju þessara sviða leiðir til niðurbrots á öðrum. Efnið verður skoðað út frá einstökum dæmum um samlífi örvera og manna, eins og áhrifum örvera á bragð og samsetningu matvæla, áhrifum mataræðis á þarmaflóru, hlutverki gerjunar í mótun mannlegra tengsla og hvernig losunarkerfi í þéttbýli rjúfa hringrás næringarefna í umhverfi mannsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ110F
    Mannskepnur og önnur dýr
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðu, rafrænum fyrirlestrum og vettvangsferðum í náttúru og á söfn.

    Samskipti manneskjunnar við önnur dýr er viðfangsefni þessa námskeiðs sem við nálgumst frá bæði fræðilegum og listrænum sjónarhornum. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni, um dýr að eigin vali, þar sem áhersla er einnig lögð á sjónræna framsetningu - t.d. teikningar eða ljósmyndir.  Í fyrirlestrum verður m.a. fjallað um hvítabirni, hvali, geirfugla og lunda og nýlegar rannsóknir á þeim.  Fjallað verður um áhrifavald og ólíkar birtingarmyndir dýra í margvíslegu listrænu og menningarlegu samhengi, til dæmis í fornbókmenntum, þjóðsögum, munnmælum, kvikmyndum, fréttum, efnismenningu og ferðamennsku. Þá verður til dæmis hugað að „framhaldslífi“ dýra í formi listmuna, safngripa og minjagripa. Við munum skoða gripi í einkaeigu og á opinberum vettvangi og spyrja spurninga á borð við: hvað gerist þegar lifandi dýri er breytt í safngrip? Hvernig þróast og breytist merking dýrsins í ólíku samhengi? Hvernig mótast hugmyndir okkar um dýr? Tekist verður á við hlutverk ólíkra dýra í þekkingasköpun og mótun orðræðu um loftslagsmál og málefni norðurslóða, tengsl við ákveðin landsvæði og menningarhópa og hlutverk þeirra í ímynda- og sjálfsmyndasköpun bæði fortíðar og samtíma.  Stigið verður út fyrir hefðbundna ramma sem snúa að aðgreiningu manna/dýra og annarra lífvera um leið og við könnum samtvinnaða hugmynda- og vistheima þeirra.

    Markmið

    Markmið námskeiðs er að velta upp áríðandi spurningum og málefnum er snúa að sambúð fólks og dýra, loftlagsbreytingum, útrýmingu dýrategunda og sjálfbærni. Við munum íhuga hvernig listamenn, rannsakendur, aðgerðasinnar og söfn hafa tekið þátt í umræðu um þessi málefni og hvernig hægt sé að þróa umræðuna áfram. Við munum skoða hvernig mismunandi lista- og menningarminjasöfn miðla hugmyndum og upplýsingum um samband manna og dýra í gegnum safneign sína og sýningar. Nemendur eru hvattir til að nálgast, með gagnrýnum hætti, sjónrænt efni, muni, gripi og texta, bæði rafrænt en einnig með heimsóknum á söfn og sýningar. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ304M
    Hagnýt þjóðfræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar og hvernig aðferðir og vinnubrögð þjóðfræðinnar geta komið að notum til að breikka og dýpka umræðu og opnað leiðir til að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Fjallað verður um tengsl þjóðfræði við ferðaþjónustu, safnastarf, listir og margvíslega miðlun þjóðfræðiefnis. Rætt verður um gagnasöfn tengd þjóðfræði á Íslandi og möguleika á hagnýtingu þeirra. Skoðað hvernig nýta má sögulegt efni, viðtöl og vettvangsrannsóknir, og setja niðurstöður fram, svo sem með sýningum, hátíðum og viðburðum, blaðaskrifum, bókaútgáfu, vefútgáfu, útvarpsþáttagerð og gerð  heimildamynda. Ólíkar aðferðir til að ná til ólíkra markhópa verða ræddar og hvernig miðla má efni til breiðra hópa gesta, lesenda, hlustenda eða áhorfenda. Siðferðileg, efnahagsleg, menningarleg og pólitísk álitamál við hagnýta þjóðfræði tekin til umfjöllunar.

    Námskeiðið verður að hluta lotukennt, 3 daga í þriðju kennsluviku í Reykjavík og 4 daga í verkefnavikunni á Hólmavík á Ströndum. Nemendur vinna verkefni tengd hagnýtri þjóðfræði, en ekkert lokapróf er í áfanganum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ506M
    Menningararfur
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • NÆR613M
    Matur og menning:
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.

    Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.

    Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.

    Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ021M
    Kyngervi, sögur og siðir
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    The field of Folklore, emerging out of the phenomena collectively referred to as  Modernity, has a complicated and problematic relationship with gender, both in the material that circulates and the subsequent academic treatment of that material. This seminar combines theoretical perspectives from Gender Studies and Folkloristics to better understand the interconnectedness of popular cultural forms, analyses, and the operations of power, specifically gender relations. Beginning with a feminist critique of Folkloristics from within (a historical reference point), we will examine more recent work on the relationship between gender and genre, between the empowering acts of ordinary rituals (so-called women‘s genres), and how the old, debunked Nature/Culture divide, in which women‘s genres were debased and denigrated, may, looked at from a different perspective, suggest alternate approaches to some contemporary global issues.

    Teacher of the course: JoAnn Conrad

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ203F
    Norræn trú
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Vinnulag

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ445M
    Hagnýt þjóðfræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar og hvernig aðferðir og vinnubrögð þjóðfræðinnar geta komið að notum til að breikka og dýpka umræðu og opnað leiðir til að hafa jákvæð samfélagsleg áhrif. Fjallað verður um tengsl þjóðfræði við ferðaþjónustu, safnastarf, listir og margvíslega miðlun þjóðfræðiefnis. Rætt verður um gagnasöfn tengd þjóðfræði á Íslandi og möguleika á hagnýtingu þeirra. Skoðað hvernig nýta má sögulegt efni, viðtöl og vettvangsrannsóknir, og setja niðurstöður fram, svo sem með sýningum, hátíðum og viðburðum, blaðaskrifum, bókaútgáfu, vefútgáfu, útvarpsþáttagerð og gerð  heimildamynda. Ólíkar aðferðir til að ná til ólíkra markhópa verða ræddar og hvernig miðla má efni til breiðra hópa gesta, lesenda, hlustenda eða áhorfenda. Siðferðileg, efnahagsleg, menningarleg og pólitísk álitamál við hagnýta þjóðfræði tekin til umfjöllunar.

    Námskeiðið verður að hluta lotukennt, 3 daga í þriðju kennsluviku í Reykjavík og 4 daga í verkefnavikunni á Hólmavík á Ströndum. Nemendur vinna verkefni tengd hagnýtri þjóðfræði, en ekkert lokapróf er í áfanganum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ447M
    Menningararfur
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ109F
    Munnleg hefð og íslenskar fornsögur og kvæði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð verður til grundvallar kenning Alberts B. Lord um munnlegan kvæðaflutning (munnlega kenningin) í bókinni The Singer of Tales. Þá verða raktar þær rannsóknir sem fram hafa komið í kjölfar hennar og reynt að meta hvaða áhrif kenningin hefur á rannsóknir miðaldabókmennta sem byggja að hluta á munnlegri hefð. Í seinni hluta námskeiðsins verður tekið mið af eddukvæðum og nokkrar Íslendingasögur lesnar vandlega með hliðsjón af kenningum um sagnfestu- bókfestu- og nýsagnfestu. Kennslan fer fram með fyrirlestrum kennara og umræðum. Nemendum er ætlað að vinna sjálfstæð verkefni og skila greinargerðum um efni nokkurra bóka og greina.

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum í bland við sjálfstæð nemendaverkefni um rannsóknaviðfangsefni námskeiðsins.

    Athugið, námskeiðið er kennt annað hvert ár.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSB814M
    Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri alda
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Með hliðsjón af þjóðsögum, bókmenntatextum og öðrum heimildum fjallar námskeiðið um birtingarmyndir náttúru og yfirnáttúru í frásagnarmenningu á Íslandi í gegnum aldirnar. Nemendur læra um þýðingu, snertifleti og óljós mörk þessara fyrirbæra og hvernig þau hafa mótað samfélag og umhverfi. Nemendur kynnast þannig ólíkum hugmyndum um stöðu fólks og (annarra) dýra innan, yfir eða utan við náttúruna. Í fjölbreyttum fyrirlestrum og verkefnavinnu verður fjallað með gagnrýnum hætti um mennsku og dýrsleika, lífheima og handanheima, efnisleika og hið yfirskilvitlega.  Kannað verður hvaða hlutverk og form landslag, lífverur, líkamar, veður og náttúrufyrirbrigði taka í frásögnunum.  Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þessu breiða sviði, svo sem á framsetningu jarðhræringa og himingeima, bjarndýra, hvala, sela og húsdýra, og á náttúrvættum og öðrum þjóðsagnaverum á borð við álfa, drauga, tröll og berserki.  Nemendur læra hvernig sagnaheimar og þjóðtrú hafa sett mark sitt á náttúruskynjun, alþýðuhefðir, þjóðhætti og samfélagsleg rými svo sem álagabletti, helga staði og staði sem eru þekktir fyrir reimleika. Einnig spyrjum við hvernig þessar frásagnir birtast í alþýðulist og myndlist, allt frá fyrri öldum til nútímans. Að lokum munum við kanna hvaða þýðingu frásagnir af náttúru og yfirnáttúru hafa í samhengi mannaldar, mannmiðaðra sjónarhorna, loftslagsbreytinga og ólíkrar stöðu samfélagshópa og tegunda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ209M
    Ráðstefnumálstofa
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Alþjóðlegar þjóðfræðiráðstefnur þar sem nýjustu rannsóknir í faginu eru kynntar eru haldnar reglulega. Þar koma þjóðfræðingar víða að úr heiminum til að segja frá eigin verkefnum, takast á um hugmyndir, víkka sjóndeildarhringinn, njóta félagsskapar við fólk sem slær um sig með sömu hugtökunum og leggja drög að mögulegu samstarfi.

    Í júní 2026 fer fram ráðstefna Alþjóðasamtaka þjóðsagnafræðinga (International Society for Folk Narrative Research) í Reykjavík. Í þessari málstofu förum við í saumana á alþjóðlegum fræðiráðstefnum og leggjum áherslu á þessa. Við kynnum okkur lykilfyrirlesara, köfum ofan í einstakar málstofur eftir áhugasviði þátttakenda, rýnum í þemu, veltum fyrir okkur samtökunum sem að ráðstefnunni standa og kortleggjum ólíkar hefðir og áherslur í þjóðfræði um heim allan. Um leið undirbýr málstofan þátttakendur undir að taka þátt í slíkri ráðstefnu. Málstofan hittist einu sinni í viku í tvo tíma í senn.

    Nemendur eru hvattir til að fara á ráðstefnuna og geta fengið fyrir það 5 einingar til viðbótar, sjá Ráðstefnuþátttaka ÞJÓ210M.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ210M
    Ráðstefnuþátttaka
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Alþjóðlegar þjóðfræðiráðstefnur, þar sem nýjustu rannsóknir í faginu eru kynntar, eru haldnar reglulega. Þar koma þjóðfræðingar víða að úr heiminum til að segja frá eigin verkefnum, takast á um hugmyndir, víkka sjóndeildarhringinn, njóta félagsskapar við fólk sem slær um sig með sömu hugtökunum og leggja drög að mögulegu samstarfi.

    Í júní 2026 fer fram ráðstefna Alþjóðasamtaka þjóðsagnafræðinga (International Society for Folk Narrative Research) í Reykjavík. Í kjölfar málstofu, þar sem farið er ofan í í saumana á alþjóðlegum fræðiráðstefnum (sjá ÞJÓ209M Ráðstefnumálstofa), tekur nemandi þátt í ráðstefnunni og skilar skýrslu að henni lokinni (5 einingar). 

    Nemendur þurfa sjálfir að standa straum af kostnaði við ferðina á ráðstefnuna en við bendum á að Félag þjóðfræðinga á Íslandi auglýsir stundum ferðasjóð í tengslum við ráðstefnur af þessu tagi. Oft er hægt að fá endurgreiðslu frá stéttarfélagi og doktorsnemar geta sótt í ferðasjóð doktorsnema.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ215F
    Að sá ennþá fleiri fræjum: Miðlun í þjóðfræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er framhald námskeiðsins ÞJÓ605G Að sá fræjum: Miðlun og starfsþróun. Hér er aukin áhersla lögð á miðlun þjóðfræðilegrar þekkingar. Nemendur læra að kynna bæði sig og fag sitt á opinberum vettvangi, í rituðu og töluðu máli, í persónu og á netinu. Námskeiðið er verkefnamiðað en unnið er að litlum verkefnum jafnt og þétt yfir önnina.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÞJÓ212F
    Alþýðumenning og fagurfræði hversdagsins
    Bundið valnámskeið
    15
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    15 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu rannsökum við sjónarhorn þjóðfræðinnar á menningu og samfélag með sérstakri áherslu á daglegt líf og daglegt brauð - það sem kalla mætti prósa heimsins. Við tökum sögu þjóðfræðinnar til skoðunar með gagnrýnu hugarfari og setjum í samhengi við sögu grannfaganna og við könnum í sameiningu strauma og stefnur við upphaf 21. aldar. Þá förum við í saumana á helstu hugtökum, þ.á m. menningarmun og margbreytileika, þjóðerni, kyngervi, alþýðu, hefð, hópi, höfundi, hnattvæðingu, fjölhyggju, elleftu stundinni, menningarlegu forræði, menningararfi og eignarhaldi á menningu.

    Markmiðið er að skilja hvernig mennirnir skapa hversdaginn og fylla daglegt umhverfi sitt merkingu, hvernig þeir móta líf sitt við aðstæður sem þeir hafa ekki sjálfir kosið sér, hvort heldur sem er í bændasamfélagi fyrri tíðar eða borgarsamfélagi 21. aldarinnar. Námskeiðið er ætlað meistaranemum, en er einnig opið nemendum á þriðja ári í BA-námi.

    Markmið:

    Í lok námskeiðsins er ætlast til að nemandinn:

    • Hafi lesið ýmis grundvallarrit í þjóðfræði
    • Kunni skil á straumum og stefnum á 20. og 21. öld
    • Þekki þær breytingar sem fagið hefur gengið í gegnum og þá sjálfsgagnrýnu umræðu sem fer nú fram innan fagsins
    • Hafi vald á lykilhugtökum í greiningu á alþýðumenningu og fagurfræði hversdagsins
    • Geti rökrætt um menningu hópa og menningarmun með tilvísun til kenninga og fræðilegra hugtaka

    Vinnulag

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ061F
    Ráðstefnumálstofa í þjóðfræði: Norræna þjóðfræðingið í Reykjavík 2022
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Dagana 14.-16. júní 2022 fer Norræna þjóðfræðiþingið fram við Háskóla Íslands. Þangað safnast þjóðfræðingar frá öllum Norðurlöndunum og víðar að, prófessorar, rannsakendur, ritstjórar, framhaldsnemar og safnafólk, og kynna nýjustu rannsóknir í faginu, takast á um hugmyndir, víkka sjóndeildarhringinn og njóta félagsskapar við fólk sem slær um sig með sömu hugtökunum.

    Norræna þjóðfræðiþingið er deigla nýrrar þekkingar og leiðir saman á þriggja ári fresti sænska, norska, danska, finnska, færeyska og íslenska þjóðfræðinga. Þangað sækja þeir innblástur og segja frá eigin verkefnum, deila með kollegunum og deila við kollegana, leggja drög að samstarfi og rækta vináttuna.

    Í þessari málstofu förum við í saumana á dagskrá ráðstefnunnar, kynnum okkur lykilfyrirlesara, köfum ofan í einstakar málstofur eftir áhugasviði þátttakenda, rýnum í þema ráðstefnunnar, kortleggjum ólíkar hefðir og áherslur í þjóðfræði á Norðurlöndum og tökum púlsinn á því sem helst er að gerast í faginu akkúrat núna. Um leið undirbýr málstofan nemendur undir að taka þátt í ráðstefnunni í júní.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

  • Blaðamennska
  • Kennsla
  • Fararstjórn
  • Stjórn safna og menningarmiðstöðva
  • Kvikmyndagerð
  • Minjavarsla
  • Ritstjórn
  • Vefstjórn

Listinn er ekki tæmandi

Nemendafélagi þjóðfræðinema heitir Þjóðbrók. Fylgja Þjóðbrók á Facebook.

Félagið sér um að skipuleggja frábæra viðburði sem auka samheldni námsmanna innan þjóðfræðinnar.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil