""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt og hálft ár - 90 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Finnst þér góð þjónusta skipta máli?
  • Vilt þú stuðla að bættri þjónustu í samfélaginu?
  • Langar þig að læra að meta gæði þjónustu sem upplifun?
  • Hefur þú áhuga á að mæta kröfum neytenda um sífellt bætta þjónustu?

Meistaranámi í þjónustustjórnun er ætlað að svara eftirspurn atvinnulífsins eftir aukinni þekkingu á þjónustustjórnun. Stór hluti atvinnulífsins er byggður á þjónustu hvort sem um er að ræða einkageirann eða opinbera geirann og krafa um aukna fagmennsku fer vaxandi.

Uppbygging náms

Námið skiptist í:

  • 60 einingar í námskeiðum
  • 30 eininga lokaverkefni

Viðfangsefni ritgerðarinnar er eitthvert af þeim fjöldamörgu stjórnunarviðfangsefnum sem telja má sértæk, þegar þjónusta er annars vegar.

Kennslan miðar að því að nemandinn geti sýnt fram á þekkingu, leikni og hæfni er tengist fjölbreyttum aðferðum og kenningum þjónustustjórnunar.

Meðal viðfangsefna

  • Þjónustukenningar og þjónustuhagkerfið
  • Fólk, form og ferlar
  • Þjónustugæði og þjónustumat

Fyrirkomulag kennslu

Í meistaranámi í þjónustustjórnun er gengið út frá því að nemendur sýni strax í upphafi náms sjálfstæði í vinnubrögðum, skipuleggi vinnu sína og tíma og standi við þær tímaáætlanir sem námið setur þeim.

Námið er kennt í 7 vikna lotum, sem þýðir 2 lotur á misseri eða 4 lotur á ári. Nemendur fá þannig meiri dýpt og fókus á hvert námskeið.

Námið er kennt á íslensku.

    Meginmarkmið

    Námið miðar að því að nemandinn öðlist góðan skilning og tileinki sér færni, bæði við rannsóknir og hagnýtingu á fræðunum á sviði þjónustustjórnunar.

    Annað

    Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

    Forkröfur í námið er BA, B.Ed eða BS gráða úr háskóla. almenna reglan er að umsækjendur hafi lokið grunnnámi með 1. einkunn (7,25). Nemendur eru valdir inn í námið með hliðsjón af fyrra námi og starfsreynslu. Nemendum sem ekki hafa lokið námskeiðum er tengjast þjónustustjórnun í grunnnámi verður leiðbeint um lesefni til undirbúnings í upphafi náms

    Ljúka þarf 90 ECTS einingum, þar af eru 60 einingar í námskeiðum, auk 30 eininga ritgerðar.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit
    • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Fyrsta ár | Haust
    Stjórnun þjónustu (VIÐ174F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Með námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að afla og tileinka sér góða og hagnýta þekkingu á stjórnun þjónustu. Í námskeiðinu er farið yfir lykilatriði kenninga um stjórnun þjónustu, ekki síst varðandi hönnun og veitingu þjónustu. Mikil áhersla er á að vinna með dæmi í samhengi við hagnýt úrlausnarefni. Kennslan er umræðumiðuð með áherslu á vendikennslu og yfirferð raundæma. Árangur og ánægja nemenda veltur á undirbúningi fyrir tímana og virkni í umræðu sem tekur mið af lesefni, dæmisögum og raunverkefnum. Nemendur vinna bæði viðamikið hópverkefni og einstaklingsverkefni þar sem áhersla er lögð á bæði fræðilega og hagnýta nálgun í tengslum við atvinnulífið. Verkefnin eru kynnt í tíma á bæði vinnslustigi og lokastigi. Lögð er rík áhersla á virkni og þátttöku nemenda í námskeiðinu.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu I
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Haust
    Fólk, form og ferlar (VIÐ1A8F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Útgangspunktur námskeiðsins er Servuction líkanið en það fjallar um þá þætti, jafnt áþreifanlega sem óáþreifanlega, sem hafa áhrif á upplifun og reynslu viðskiptavina af veittri þjónustu. Óáþreifanlegir þættir eru þau kerfi, stefna og fyrirkomulag sem tengjast þjónustunni á meðan að áþreifanlegir þættir snúa að umgjörðinni, þjónustuvettvanginum og því fólki sem að framkvæmd þjónustunnar kemur.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu II
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Haust
    Eigindleg aðferðafræði (VIÐ184F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu II
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Vor
    Þjónustugæði og þjónustumat (VIÐ284M)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur hafi fræðilegar forsendur til að vinna með aðferðir þjónustumælinga hvort sem er út frá fræðilegu sjónarhorni eða hagnýtu. Nemendur vinna að framkvæmd þjónustumælinga í samráði við fyrirtæki eða stofnun og vinna skýrslu þar sem fram kemur rökstudd tillaga um með hvaða hætti á að forgangsraða úrbótaþáttum. Samhliða þessu verkefni vinna nemendur að fræðilegu yfirliti um eitthvert það viðfangsefni er tengist þjónustugæðum og þjónustumælingum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
    Fyrsta ár | Vor
    Stefnumiðuð stjórnun (VIÐ265F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og umræðu um kennsluefnið að nemendur tileinki sér þekkingu á stefnumótun og stefnumiðaðri stjórnun af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda á þessu sviði. Í námskeiðinu er horft á stefnumiðaða stjórnun út frá nokkrum sjónarhólum og út frá mismunandi gerðum fyrirtækja. Farið er vel í stöðumat og greiningu á ytra og innra umhverfi, rýnt í mótun stefnu og framvindu stefnumiðaðs starfs í reynd. Kafað er í stefnu út frá m.a. nýsköpun, samrunum, samstarfi, völdum og hagsmunabaráttu. Kennslan tekur mið af því að nám er ferli til að bæta kunnáttu þar sem saman fer inntak námskeiðsins, samhengi þess og framvinda lærdóms. Allt starf í námskeiðinu miðast að því að nemendur nái sem bestum árangri – en námsárangurinn veltur að sjálfsögðu á virkni og ástundun nemandans.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu III
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Vor
    Hönnun þjónustu og viðskiptaráðgjöf (VIÐ298F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið gerir nemendum kleift að afla og tileinka sér góða og hagnýta þekkingu á aðferðum við hönnun þjónustu og færni til að veita viðskiptatengda ráðgjöf við hönnun og þróun þjónustu. Meginmarkmiðið er að nemandi nái góðum tökum á þróun þjónustu með aðferðum hönnunar og viðskiptaráðgjafar. Í námskeiðinu er farið yfir lykilatriði kenninga og aðferða á sviði hönnunar þjónustu (service design thinking) og á sviði viðskiptaráðgjafar (business consulting). Mikil áhersla er á að vinna með hagnýt úrlausnarefni gegnum aðgerðamiðað vinnuferli. Kennslan er umræðumiðuð með áherslu á sýnidæmi og yfirferð raundæma. Árangur og ánægja nemenda veltur á undirbúningi fyrir tímana og gegnum þátttöku í tímum. Nemendur vinna bæði viðamikið hópverkefni og einstaklingsverkefni þar sem áhersla er lögð á bæði fræðilega og hagnýta nálgun í tengslum við atvinnulífið. Verkefnin er kynnt í tíma á bæði vinnslustigi og lokastigi. Lögð er rík áhersla á virkni og þátttöku nemenda í námskeiðinu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu IV
    Fyrsta ár | Sumar
    MS ritgerð (ÞST401L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    30 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar. Meistaranemar skulu kynna rannsóknir sínar. Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

    Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
    Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

    Umsókn um lokun meistararitgerða

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Fyrsta ár
    • Haust
    • VIÐ174F
      Stjórnun þjónustu
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Með námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að afla og tileinka sér góða og hagnýta þekkingu á stjórnun þjónustu. Í námskeiðinu er farið yfir lykilatriði kenninga um stjórnun þjónustu, ekki síst varðandi hönnun og veitingu þjónustu. Mikil áhersla er á að vinna með dæmi í samhengi við hagnýt úrlausnarefni. Kennslan er umræðumiðuð með áherslu á vendikennslu og yfirferð raundæma. Árangur og ánægja nemenda veltur á undirbúningi fyrir tímana og virkni í umræðu sem tekur mið af lesefni, dæmisögum og raunverkefnum. Nemendur vinna bæði viðamikið hópverkefni og einstaklingsverkefni þar sem áhersla er lögð á bæði fræðilega og hagnýta nálgun í tengslum við atvinnulífið. Verkefnin eru kynnt í tíma á bæði vinnslustigi og lokastigi. Lögð er rík áhersla á virkni og þátttöku nemenda í námskeiðinu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • Ekki kennt á misserinu
      VIÐ1A8F
      Fólk, form og ferlar
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Útgangspunktur námskeiðsins er Servuction líkanið en það fjallar um þá þætti, jafnt áþreifanlega sem óáþreifanlega, sem hafa áhrif á upplifun og reynslu viðskiptavina af veittri þjónustu. Óáþreifanlegir þættir eru þau kerfi, stefna og fyrirkomulag sem tengjast þjónustunni á meðan að áþreifanlegir þættir snúa að umgjörðinni, þjónustuvettvanginum og því fólki sem að framkvæmd þjónustunnar kemur.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • Ekki kennt á misserinu
      VIÐ184F
      Eigindleg aðferðafræði
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • Vor
    • Ekki kennt á misserinu
      VIÐ284M
      Þjónustugæði og þjónustumat
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur hafi fræðilegar forsendur til að vinna með aðferðir þjónustumælinga hvort sem er út frá fræðilegu sjónarhorni eða hagnýtu. Nemendur vinna að framkvæmd þjónustumælinga í samráði við fyrirtæki eða stofnun og vinna skýrslu þar sem fram kemur rökstudd tillaga um með hvaða hætti á að forgangsraða úrbótaþáttum. Samhliða þessu verkefni vinna nemendur að fræðilegu yfirliti um eitthvert það viðfangsefni er tengist þjónustugæðum og þjónustumælingum.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • VIÐ265F
      Stefnumiðuð stjórnun
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og umræðu um kennsluefnið að nemendur tileinki sér þekkingu á stefnumótun og stefnumiðaðri stjórnun af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda á þessu sviði. Í námskeiðinu er horft á stefnumiðaða stjórnun út frá nokkrum sjónarhólum og út frá mismunandi gerðum fyrirtækja. Farið er vel í stöðumat og greiningu á ytra og innra umhverfi, rýnt í mótun stefnu og framvindu stefnumiðaðs starfs í reynd. Kafað er í stefnu út frá m.a. nýsköpun, samrunum, samstarfi, völdum og hagsmunabaráttu. Kennslan tekur mið af því að nám er ferli til að bæta kunnáttu þar sem saman fer inntak námskeiðsins, samhengi þess og framvinda lærdóms. Allt starf í námskeiðinu miðast að því að nemendur nái sem bestum árangri – en námsárangurinn veltur að sjálfsögðu á virkni og ástundun nemandans.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • Ekki kennt á misserinu
      VIÐ298F
      Hönnun þjónustu og viðskiptaráðgjöf
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið gerir nemendum kleift að afla og tileinka sér góða og hagnýta þekkingu á aðferðum við hönnun þjónustu og færni til að veita viðskiptatengda ráðgjöf við hönnun og þróun þjónustu. Meginmarkmiðið er að nemandi nái góðum tökum á þróun þjónustu með aðferðum hönnunar og viðskiptaráðgjafar. Í námskeiðinu er farið yfir lykilatriði kenninga og aðferða á sviði hönnunar þjónustu (service design thinking) og á sviði viðskiptaráðgjafar (business consulting). Mikil áhersla er á að vinna með hagnýt úrlausnarefni gegnum aðgerðamiðað vinnuferli. Kennslan er umræðumiðuð með áherslu á sýnidæmi og yfirferð raundæma. Árangur og ánægja nemenda veltur á undirbúningi fyrir tímana og gegnum þátttöku í tímum. Nemendur vinna bæði viðamikið hópverkefni og einstaklingsverkefni þar sem áhersla er lögð á bæði fræðilega og hagnýta nálgun í tengslum við atvinnulífið. Verkefnin er kynnt í tíma á bæði vinnslustigi og lokastigi. Lögð er rík áhersla á virkni og þátttöku nemenda í námskeiðinu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu IV
    • Sumar
    • ÞST401L
      MS ritgerð
      Skyldunámskeið
      30
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      30 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar. Meistaranemar skulu kynna rannsóknir sínar. Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

      Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
      Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

      Umsókn um lokun meistararitgerða

      Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Atvinnutækifæri að námi loknu eru fjölbreytt og tengjast öllum helstu atvinnugreinum landsins.

    • Ferðaþjónustu
    • Fjármálaþjónustu
    • Velferðarþjónustu
    • Smásölu

    Listinn er ekki tæmandi.

    • MAESTRO er félag meistaranema við viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands.
    • Hlutverk og tilgangur félagsins er að vera umhverfisvænt hagsmunafélag með það að meginmarkmiði að gera nám félagsmanna ánægjulegra og árangursríkara. Er það gert með því að vernda hagsmuni félagsmanna, veita gagnlegar upplýsingar, vera í góðu samstarfi við skólann og heimadeildir ásamt því að stuðla að og efla tengsl milli nemenda.
    • Facebook síða MAESTRO

    Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

    Umsagnir nemenda
    Ljósmynd af Lísu Björg Invarsdóttur
    Ég hóf nám í mannauðsstjórnun haustið 2015 með vinnu, en skipti svo yfir í þjónustustjórnun þegar boðið var fyrst upp á þá námsleið árið 2017 og útskrifaðist úr þjónustustjórnun á mannauðslínu í febrúar 2019. Ég valdi að læra við Háskóla Íslands, þar sem ég hafði bakgrunn þaðan og ég vissi að hjá skólanum starfa mjög færir fræðimenn og kennarar sem kunna sitt fag. Mér fannst námið mjög vel skipulagt og alveg frábær grunnur fyrir stjórnendur og starfsfólk sem vinnur í þjónustufyrirtækjum, sem og í annars konar rekstri. Námið er faglega uppsett, skemmtilegt og eru stór verkefni unnin með fyrirtækjum í atvinnulífinu sem er mjög praktískt og lærdómsríkt. Ég hlakka til að taka þá þekkingu sem ég aflaði mér í náminu og nýta hana í atvinnulífinu.
    Ljósmynd af Maríu Jónu Samúelsdóttur
    Ég valdi Háskóla Íslands því námið er mikils metið á vinnumarkaði, góðir kennarar og fræðimenn starfa við skólann. Námið er skemmtilegt og fjölbreytt og mikið er unnið með raundæmi úr atvinnulífinu. Námsleiðirnar eru spennandi og ný námsleið, meistaranám í Þjónustustjórnun vakti sérstakan áhuga minn. Ég er viðskiptafræðingur í grunninn og hef allan minn starfsferil starfað við sölu, markaðsmál og vörumerkjastjórnun. Mikilvægi þjónustu vegur sífellt þyngra í starfsemi fyrirtækja og því finnst mér þessi námsleið góður valkostur fyrir mig, þar sem grunnur minn og starfsreynsla nýtast gríðarlega vel sem undirstaða fyrir þetta nám. Með náminu mun ég útvíkka sérhæfni mína og mögulegur starfsvettvangur mun stækka verulega.
    Ljósmynd af Heiði Ýr Guðjónsdóttur
    Ég valdi þjónustustjórnun því að ég vissi að það væri nám sem gæti komið mér að góðum notum þar sem þjónustumál fyrirtækja og stofnana hafa rými til að vaxa hér á landi. Námið er nýtt og því spennandi að sjá hvernig það þróast áfram. Mikill lærdómur er fólginn í því að hlusta á kennara, aðra nemendur og þá einstaklinga sem nemendur fá tækifæri til að hitta á vinnumarkaðnum út frá verkefnavinnu. Kennslan er fjölbreytt og skemmtileg og í nokkrum fögum er unnið með raundæmi sem kenna nemendum hvernig hægt er að samtvinna akademíuna og atvinnulífið sem ég tel mjög mikilvægt.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil