""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Ert þú með grunn í stjórnmálafræði?
  • Hefur þú áhuga á að sérhæfa þig í einhverjum af þeim megingreinum stjórnmálafræðinnar?
  • Vilt þú fara í sveigjanlegt nám sem þú getur aðlagað að þínu áhugasviði?
  • Er fræðilegt nám eitthvað fyrir þig?

MA-nám í stjórnmálafræði er fræðilegt nám sem miðar að því að þjálfa nemendur í úrlausn rannsóknarverkefna með frekara nám eða fjölbreytt úrval starfa á vinnumarkaðnum í huga. Nemendur geta lagað námið töluvert að hugðarefnum en sameiginlegur kjarni miðast við að allir nemendur fái vissa grunnþjálfun í aðferðafræði félagsvísinda.

Stjórnmálafræðinámið við Háskóla Íslands er fjölbreytt og veitir útskrifuðum nemendum því ótal möguleika á að velja sér starf að námi loknu. Stjórnmálafræðingar hafa haslað sér völl víðs vegar í atvinnulífinu á undanförnum árum og fyrir utan kennslu og rannsóknir vinna stjórnmálafræðingar við margvísleg störf.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Samsetning námsins er sveigjanleg með það í huga að laga megi áherslurnar að áhugasviði einstakra nemenda. Sameiginlegur kjarni miðar að því að nemendur fái vissa grunnþjálfun í aðferðafræði félagsvísinda, en að öðru leiti velja nemendur námskeið í tengslum við væntanlegt lokaverkefni.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku og flestar kennslubækur eru á ensku.

Mögulegt er að ljúka námsleiðinni í staðnámi eða fjarnámi. Námsfyrirkomulagið fer eftir vali nemanda og leiðbeinanda á námskeiðum.

    Meginmarkmið

    Meðal annars er miðað er að því að nemendur:

    • breikki og dýpki þekkingu sína á völdu fræðasviði innan stjórnmálafræði.
    • geti með sjálfstæðum og faglegum hætti skilgreint rannsóknaviðfangsefni, sett fram rannsóknaspurningar og tilgátur.
    • geti greint á skýran og ótvíræðan hátt frá flóknum fræðilegum viðfangsefnum og eða fræðilega rökstuddum niðurstöðum, einn eða í samstarfi við aðra, bæði meðal sérfræðinga og leikmanna.

    Annað

    Nemendur eru hvattir til að skoða möguleika á að taka hluta námi sínu við einn af samstarfsskólum HÍ. Stjórnmálafræðideild er með skiptinema samninga við háskóla víða um heim.

    Námið veitir aðgang að doktorsnámi

    BA-gráða í stjórnmálafræði með fyrstu einkunn eða sambærilegt nám.

    Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Nemendur geta lagað námið töluvert að eigin áhugasviði, en sameiginlegur kjarni, 30 einingar, miðast við að allir nemendur fái vissa grunnþjálfun í aðferðafræði félagsvísinda. Vægi MA-ritgerðar er að að jafnaði 40-60 einingar. Námskeið eru valin í samráði við leiðbeinanda. Nemendur geta tekið misseri við erlenda háskóla og fengið nám sitt metið inn í námið við Háskóla Íslands.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Rannsóknaáætlun
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit
    • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Óháð námsári | Óháð misseri
    MA-ritgerð í stjórnmálafræði (STJ441L, STJ441L, STJ441L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0/0/0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaverkefni í MA-námi er sjálfstætt rannsóknarverkefni sem nemandi vinnur undir leiðsögn umsjónarkennara. Í verkefninu er tekist á við fræðilega krefjandi viðfangsefni og kenningum beitt á frumlegan hátt.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

    Óháð námsári
    • Óháð misseri
    • STJ441L, STJ441L, STJ441L
      MA-ritgerð í stjórnmálafræði
      Skyldunámskeið
      0/0/0

      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    • Fjölmiðla- og upplýsingastörf
    • Hjá ráðgjafarfyrirtækjum
    • Við alþjóðasamskipti og hjá alþjóðastofnunum
    • Stjórnsýslustörf, bæði hjá ríki, sveitarfélögum og hjá einkafyrirtækjum
    • Hjá hagsmunasamtökum og þrýstihópum

    Listinn er ekki tæmandi.

    Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

    Umsagnir nemenda
    ""
    Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil