Horft ofan frá á tvo nemendur ganga inn um anddyri Aðalbyggingar HÍ
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Viltu læra að koma upplýsingum á framfæri á fjölbreyttan hátt?
  • Hefur þú áhuga á menningu og menningararfi?
  • Langar þig að læra tvær námsgreinar?
  • Finnst þér gaman að skipuleggja?
  • Ertu skapandi og frumleg/ur?
  • Langar þig að vinna með krefjandi verkefni?

Námið er kennt sem aukagrein til 60 eininga sem taka má með annarri aðalgrein til 120 eininga og ljúka þannig 180e til að útskrifast með BA-próf.

Safnafræði er í eðli sínu þverfagleg þar sem hinar ýmsu fræðigreinar tengjast störfum safna.

Hér má nefna sagnfræði, fornleifafræði, listfræði, þjóðfræði, mannfræði, bókmenntafræði og málvísindi. Einnig raunvísindagreinar svo sem náttúrufræði og greinar líkt og forvörslu, kennslufræði og upplýsingatækni. Þá má nefna greinar sem tengjast stjórnun, tölvum, markaðs- og hagfræði og loks ferðamálafræðum, að ónefndum fjölda greina á sviði hönnunar og miðlunar.

Söfn (museum, gallery) fást við arfleifð og menningu og eru því meðal helstu menningarstofnana hvers samfélags. Erlendis og á Íslandi eru söfn fjölmörg og eru þau afar fjölbreyttar stofnanir.

Í stuttu máli má segja að fjögur meginstef safnastarfs séu:

  • söfnun
  • varðveisla
  • rannsóknir
  • miðlun

Viðfangsefni safna geta verið afar margbreytileg, sum söfn leggja til dæmis áherslu á sýningar eða safnkennslu á meðan önnur söfn sinna frekar varðveislu eða rannsóknum. Flest söfn eiga þó ákveðna þætti sameiginlega og þannig má segja að söfn séu í eðli sínu og starfi áþekk, nánast hvar sem er í heiminum.

Söfn starfa samkvæmt ákveðnum lögum, reglugerðum, siðareglum og hefðum. Í stuttu máli má segja að fjögur meginstef safnastarfs séu eftirfarandi; söfnun, varðveisla, rannsóknir og miðlun.

Uppfylla þarf inntökuskilyrði aðalgreinar (120e) sem sótt er um í. Aukagrein (60e) er að öllu jöfnu valin eftir að fyrsta ári í aðalgrein er lokið.

Ljúka þarf 60 ECTS einingum í aukagrein. Námið skiptist í eftirfarandi hluta: Skyldunámskeið 40 einingar og valnámskeið 20 einingar

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn (ÞJÓ205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

Óháð námsári | Haust
Söfn sem námsvettvangur (SAF501G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einn megintilgangur safna á Íslandi er að skila menningar- og náttúruarfi landsins til komandi kynslóða og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn. Ætlast er til þess (samkvæmt safnalögum) að söfn reyni að „auka lífsgæði manna“ með því að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista náttúru eða vísinda. Söfn og safnfræðsla geta því haft áhrif á samfélag, hópa og einstaklinga. Safnafræði getur komið hér að liði og er megin viðfangsefni námskeiðsins.

Kynntar verða fræðilegar kenningar sem hafa að markmiði að stuðla að fjölbreyttri og áhrifamikilli fræðslu tengdri fornleifum, list, náttúruvísindum, menningarlegri arfleifð og öðrum viðfangsefnum safna. Hugað verður að fjölbreyttum markhópum safnfræðslu, hlutverki safngesta innan safna, rými, textagerð, margmiðlun, gagnvirkni og fleira.

Þetta er fjarkennslunámskeið sem skiptist í þrjár lotur. Í hverri lotu eru ör-fyrirlestrar frá kennara með hugleiðingum um námsefnið, gesta-fyrirlestrar (stafrænir) og aukaefni. Þrjár stað- og/eða ZOOM-lotur eru yfir misserið, þar sem nemendur fá fyrirlestra frá starfsmönnum safna og vinna að fræðsluverkefni í samstarfi við safn í Reykjavík. Verkefnið verður þróað út frá fræðilegum áhuga nemenda undir handleiðslu kennara og með aðstoð starfsmanna safnsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Ómenning: Frá postulínshundum til pönkara (ÞJÓ445G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er rýnt í ýmis dæmi frá nítjándu öld til samtímans um „ómenningu“ allt frá áliti Jónasar Hallgrímssonar á rímum og Jónasar frá Hriflu á amerískum reyfurum og klessumálverkum til samtímaumræðna um graffítí, tölvuleiki og tónlistarmyndbönd. Fjallað er um hugmyndir, hegðun og menningarafurðir sem taldar eru hafa verið skaðvaldar í íslenskri menningu eða ógnað á einhvern hátt heilbrigðu menningarlífi. Þannig er meðal annars staðnæmst við andúðina á djassi, rokki og atómskáldskap og fjallað um eðli þeirrar ógnana sem talið var stafa af slíkum fyrirbærum. Samhengi samfélagslegs valds og menningar er tekið til rækilegrar skoðunar og spurt hverjir hafi skilgreint ómenningu, með hvaða aðferðum og í hvaða tilgangi.

Spurt er hvort ógnvaldarnir eigi eitthvað sameiginlegt og hvort skilgreining þeirra sé háð hagsmunum, hugsjónum og siðferðisviðmiðum sem tekið hafa breytingum í tímans rás. Skoðað er að hvaða leyti hugmyndir um ómenningu sem andhverfu íslenskrar menningar hafa átt þátt í að móta hana og skilgreina:

Hvaða þátt hafa hugmyndir um hið menningarlega og viðmið um siðmenningu átt í að marka viðteknar hugmyndir um íslenska menningu? Að hvaða leyti hefur íslensk menning mótast í viðnámi gegn erlendri fjöldamenningu sem meðal annars hefur verið álitin birtast í gervi danskrar kjólatísku og amerískra sápuópera?

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Menningartengd ferðaþjónusta (FER506M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður hugað að þýðingu og skilgreiningu hugtaksins menningar í menningartengdri ferðaþjónustu með sérstöku tilliti til framsetningar og miðlunar ímynda og menningar á mismunandi vettvangi. Velt verður upp pólitískum og siðferðilegum spurningum hvað varðar söfnun, framsetningu og miðlun menningar í mismunandi samhengi og á mismunandi vettvangi, erlendis og hérlendis. Einnig verða skoðuð tengsl ferðaþjónustu við skapandi greinar. Spurningum varðandi eignarhald á menningararfleifð verða íhugaðar svo og í höndum hvers það að skapa menningararfleifð er.

Vettvangstímar fara fram innan höfuðborgarsvæðisins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Einsögur um fátækt, tilfinningar og fötlun (SAG512M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að vera í fyrsta lagi mjög hagnýt yfirferð um helstu heimildaflokka opinberra heimilda sem eru varðveittar á skjalasöfnum og eru aðgengilegar á rafrænu formi.  Allir flokkarnir hafa sína kosti og galla. Heimildirnar urðu til innan einhvers konar stjórnsýslu og markmið þeirra var að safna saman upplýsingum um það „þýði“ (e. population) sem er undir, varðveita það og nýta upplýsingarnar til að styrkja stjórnsýsluna og „búa til“ þær staðreyndir, sem hún þurfti á að halda til að viðhalda sér.  Í öðru lagi er námskeiðið kynning á þeirri þróun sem hefur orðið í aðferðafræði einsögunnar í nýjum íslenskum rannsóknum í sagnfræði. Hér er um að ræða nýtt sjónarhorn á því sem hefur verið nefnt einvæðing sögunnar. Í þriðja lagi verður námskeiðið kynning á því hvernig hægt er að greina tilfinningar einstaklinga í fortíðinni í gegnum opinberar heimildir og hvernig hugmyndafræði sögu tilfinninganna nýtist í þeim greiningum og nýrri samþættingu á kenningum um fátækt og fötlun í fortíðinni með sérstakri áherslu á kynjafræðileg sjónarhorn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Mannfræði kynmenningar (MAN353G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða helstu hugtökin innan kynmenningar, kyn, kyngervi og kynhneigð, sett í samhengi við mannfræðilegar rannsóknir og þekkingu. Markmiðið er að nemendur öðlist góðan skilning á þessum hugtökum, hvernig þau eru í sífelldri endurmótun og hvernig þau móta samfélög og menningu hvarvetna. Fjallað verður um hvernig mannfræðirannsóknir á fyrri hluta 20. aldar voru mótaðar af ríkjandi kynjaviðmiðum og rýnt í áhrif femínískrar baráttu síðastliðinnar hálfrar aldar á tilurð og þróun fjölbreyttra mannfræðirannsókna. Áhersla verður lögð á að greina einkenni femínískra og hinsegin samtímarannsókna og nemendur kynnast efnistökunum í gegnum valdar etnógrafíur og aðra texta af vettvangi auk yfirlitsgreina um kynmenningu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Gagnrýnin hugsun (HSP105G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Menningararfur (ÞJÓ506M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Íslensk listasaga, söfn og menntun (LVG302G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áhersla er lögð á að veita nemendum innsýn í  íslenska listasögu og myndlistararfleið, list í opinberu rými ásamt list- og safnafræðslu. 

Markmiðið er að nemendur öðlast þekkingu á listasöfnum og kennslufræði þeirra gagnvart skólum og hæfni til að nýta sér þau sem fræðslustofnanir.  Skapaður er vettvangur þar sem áherslan er á samstarf og samtal skóla og safna á milli. Nemendum gefst kostur á að raungera og þróa hugmyndir sínar og vinna m.a. smiðju í tengslum við sýningu þar sem börn á grunnskólaaldri eru þáttakendur í skapandi starfi. 

Vinnulag:
Fyrirlestrar, lestur fræðigreina, gagnrýnin umræða  og safnaheimsóknir. 

Nemendum vinna m.a verkefni og setja upp smiðju ætlaða börnum í tengslum við sýningu.

Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Gripafræði (FOR303G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar annars vegar um almennan grundvöll gripafræðinnar, gerðfræði og efnisfræði, og hins vegar um helstu flokka gripa sem finnast á Íslandi, leirker, steináhöld og steinílát, skartgripi og vopn, tréílát, vefnað, gler, krítarpípur o.fl.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Þungur hnífur: Víkingar í samtímamenningu, kvikmyndum og tölvuleikjum (SAF301M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Víkingar eru meðal auðkennilegustu og þekktustu samfélagshópa fortíðar. Ímynd þeirra hefur gjarnan vera hatrömm og ofsafengin og gott dæmi þar um væri sturlaði berserkurinn sem með hyrndnan hjálm á höfði og stríðsöxi á lofti, ljóst hárið flaxandi í vindinum, herjar á grunlaus bæjarsamfélög við fjarlægar strendur. Þessi ímynd hefur fest rætur um víða veröld, hún er þver-menningarleg og áhugamannahópa sem endurskapa lifnaðarhætti víkinga má finna í löndum sem eiga sér jafnvel enga slíka sögu. Samtímafólk tengir sig stolt í bragði við arfleifð víkinga og innleiðir í eigin sjálfsmynd. Víkinga þungarokk er til og vörur af ýmsu tagi tengja sig með meðvituðum hætti við víkingasöguna. Menningarafurðir eru þar engin undantekning og hvíta tjaldið er gott dæmi um það hversu lífseig goðsögnin um víkinga er: Fyrsta víkingamyndin kom út árið 1907 og lifa þær góðu lífi enn þann dag í dag. Sama er að segja um sjónvarp og tölvuleiki þar sem ímyndum víkinga og sögu þeirra er miðlað með ýmsum hætti. Þetta hefur svo aftur áhrif á birtingarmyndir víkinga á öðrum sviðum, og mætti þar nefna ferðamannaiðnaðinn, safnamenningu og þjóðlega framsetningu af ýmsu tagi.

Í þessu námskeiði verða hinar ólíku framsetningarhefðir og birtingarmyndir víkinga í samtímanum skoðaðar. Hafist verður handa við að rekja sögu hinar nútímalegu víkingaímyndar og þróun hennar á tuttugustu öldinni – og verður þar í íslenska samhenginu sérstaklega horft til áranna í kringum Hrunið. Í kjölfarið verða ríkjandi birtingarmyndir víkingsins í samtímanum skoðaðar, með tillit til kvikmynda. Nemendur fá innsýn í sögu víkingakvikmynda um eða staðsettar á Íslandi, hvernig víkingar hafa verið túlkaðir af íslenskum og alþjóðlegum kvikmyndagerðamönnum og leikstjórum, birtingarmynd þeirra og tengingar við víkingavæðingu Íslands. Að lokum er fjallað um víkinga í tölvuleikjum, þar sem nemendur kynnast því hvernig fornnorrænn bókmenntaarfur hefur verið túlkaður og nýttur í tölvuleikjum og hvernig víkingar hafa tekið hamskiptum innan þess miðils.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Rannsóknarverkefni í safnafræði (SAF001G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið byggir á því að nemandi vinni að rannsóknarverkefni til að öðlast færni í að beita fræðilegum vinnubrögðum í safnastarfi. Fyrri hluti námskeiðs er fræðilegur og er þar fjallað um aðferðarfræði og fræðilega texta.  Rannsóknarverkefni felur í sér að nemandi vinnur rannsóknaráætlun undir leiðsögn kennara en vinnur síðan að sjálfstæðu verkefni. Í lok námskeiðs er skilað inn skýrslu um verkefnið og haldin kynning á því.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Söfn og bókmenntir: rithöfundar, fataskápar og ferðamenn (SAF503M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður sjónum beint að þrennskonar þáttum í safnastarfi sem tengist bókmenntum. Í fyrsta lagi verður skoðað hvernig rithöfundar hafa fjallað um söfn og safnastarf s.s. með því að gera söfn sem vettvang skáldsagna. Í öðru lagi verður skoðað hvernig safnastofnanir sem leggja megin áherslu á kynningu á rithöfundum hafa byggst upp og hvaða áherslur þær hafa lagt í framsetningu (s.s. sýningargerð) á ævi og verkum þeirra. Og í þriðja lagi verður sambandið milli rithöfundasafna, staðar og bókmennta skoðað og sett í safnakenningarlegt samhengi. Í þessu námskeiði verða lesnar bókmenntir sem fjalla um efni námskeiðsins, fræðilegar greinar. Sérstaklega verður litið til íslenskra rithöfundasafna á borð við Gljúfrastein, Þórbergsseturs, Davíðshúss, Nonnahúss, Reykholts og Skriðuklausturs svo dæmi séu nefnd. Einnig verður litið til "rithöfundasafna" sem byggja á þjóðsagnaarfi, þar sem höfundarnir eru nafnlausir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Óháð námsári | Vor
Safn og samfélag: Sirkus dauðans? (SAF201M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verða margþætt tengsl safna og þeirra samfélaga sem þau þjóna skoðuð. Kannað verður hvernig söfn eru ekki aðeins vörslumenn menningararfs heldur einnig virkir þátttakendur í mótun menningarlegra frásagna og samfélagslegra sjálfsmynda. Með því að skoða sögulegt samhengi, fræðilega umgjörð og hagnýtar dæmisögur fá nemendur innsýn í það mikilvæga hlutverk sem söfn gegna við að sýna og stundum ögra samfélagslegum gildum. Í námskeiðinu verður farið yfir efni eins og söfn sem hvati til samfélagsbreytinga, mikilvægi inngildingar og aðgengis, og áhrif stafrænnar tækni á samfélagsþátttöku. Með umræðum, dæmum og praktískum verkefnum munu nemendur kanna hvernig söfn geta á áhrifaríkan hátt virkjað fólk og stuðlað að réttlátara samfélagi. Í lok námskeiðsins munu nemendur hafa tileinkað sér góðan skilning á því hvernig söfn geta brugðist við þörfum og gildum fólks í þeim samfélögum sem þau þjóna.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Vor
Samfélagslegar áskoranir og söfn (SAF202M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skoðar á gagnrýninn hátt áhrif samtímans á söfn og starfshætti þeirra. Leitast verður við að gefa góðan skilning á því hvernig söfn standa frammi fyrir og leitast oft við að takast á við ýmsar samfélagslegar áskoranir, þar á meðal fjölbreytni, jöfnuð, þátttöku, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Í námskeiðinu verður fræðilegur grunnur samfélagsmála safna skoðaður og dæmi þar að lútandi. Áherslur verða meðal annars á að skoða hlutverk safna sem talsmenn jaðarsettra hópa, mikilvægi samvinnu og samsköpunar og aðferðir til að takast á við loftslagsbreytingar innan safnastarfs, svo eitthvað sé nefnt. Umræður og verkefni skora á nemendur að hugsa gagnrýnið um hlutverk safna í samfélaginu. Í lok námskeiðsins verða nemendur búnir góðri færni og þekkingu til að takast á við félagsleg hlutverk safna í ört breytilegum heimi. Námskeiðið verður kennt frá lokum febrúar til loka mars.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Vor
Rokkar og stokkar og reður í krús: Söfn og fræði (SAF201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er almennur inngangur að safnafræði. Fjallað verður um helstu þætti safnastarfs og fræðilegar og sögulegar forsendur þess. Skoðað verður hlutverk safna í fortíð og nútíð, uppbygging safnkosts, flokkun, skráning og varðveisla. Hugað verður að aðgengi, fræðslu, sýningagerð og gildi rannsókna fyrir safnastarf. Einnig verða skoðaðar mismunandi aðferðir við túlkun og framsetningu á sýningum. Íslensk söfn verða sett í samhengi við þjóðfræði, sem og erlent safnastarf og fræði. Námskeiðið skiptist í þrjár lotur, sem hver fyrir sig spannar um 4 vikna tímabil. Í hverjum hluta eru fyrirlestrar frá kennara auk skipulagðrar heimsóknar á tiltekið safn og umræður í kjölfarið. Áhersla verður lögð á umræður og verkefnavinnu innan safna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Safn og samfélag: Sirkus dauðans? (SAF603M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um samfélagslegt hlutverk safna út frá margvíslegum sjónarhornum: efnahagslegum, pólitískum, menningarlegum, félagslegum og síðast en ekki síst alþjóðlegum. Fjallað verður meðal annars um hlutverk safna í hugmyndinni um þjóð, lagalegt umhverfi safna, rekstrarform, staða og hlutverk þjóðarsafna, safna í eigu sveitarfélaga, félagasamtaka og einkafyrirtækja, fjármögnun safnastarfs, stefna yfirvalda í málefnum safna, söfn og mannréttindi, söfn og áföll (trauma), kynjahugmyndir og fleira. Í námskeiðinu er einnig hugað að möguleikum safna á að virkja fólk og samfélög til þátttöku í starfsemi þeirra eins og söfnun, heimildaöflun, sýningarstjórnun, sýningargerð og annarri miðlun. Skoðuð verða innlend og erlend dæmi. Eftir því sem því verður komið við, eru farnar ein til tvær vettvangsferðir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn (ÞJÓ205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Sameiningar safna: Forsendur, ferli og framtíðin (SAF302M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á undanförnum fjórum áratugum hafa menningarstofnanir eins og söfn orðið skotmark í breyttri menningarpólitík víða um heim. Söfnum hefur verið stillt upp í ríkari mæli sem lið í efnahagslegri endurskipulagningu og uppbyggingu, samfélagslegri og þjóðernislegri ímyndapólitík og sem vettvangi lýðræðislegrar þátttöku. Nýjar hugmyndir og nýtt tungutak fylgir þessum breytingum, þar á meðal að samvinna og sameining stofnana eigi að vinna aukinni samfélagslegri hagsæld brautargengi. Stafrænni tækni er gjarnan beitt í þessari deiglu sem afli til samlegðar og aukinnar framleiðni á sviði nýsköpunar.

Í þessu námskeiði verða þessi atriði skoðuð út frá áðurtöldum sjónarhornum. Við munum kanna fræðileg skrif og skoða raundæmi af vettvangi safna í Evrópu og á Íslandi, sem hafa verið í eldlínu breytinganna. Innlendir og erlendir fyrirlesarar munu vera með innlegg í námskeiðið. Námskeiðið er kennt í fjarnámi og byggist námsmat á verkefnum sem unnin eru jafnt yfir önnina.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Menning og andóf (MFR703M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um samspil pólitískrar róttækni, menningar, hefðar og valds. Sérstaklega er hugað að birtingarmyndum andófs í samtímanum, orðræðu lýðræðis og menningarlegs mismunar og viðbrögðum við gagnrýni og andófi innan hefðar nútímastjórnmála. Fjallað er um þátt menntamanna og rithöfunda og vægi listrænnar tjáningar og hönnunar við umbreytingu félagslegs og menningarlegs umhvefis. Þá er fjölmiðlaorðræða skoðuð og greind og fjallað um hin ólíku og oft andstæðu markmið sem sjá má í starfsemi stofnana samfélagsins. Valdir eru nokkrir átakapunktar menningar- og samfélagsorðræðu sem draga fram grundvallartogstreitu frjálslyndra lýðræðissamfélaga, svo sem spurningar um visku eða fávisku almennings, viðbrögð við loftslagsbreytingum, óöfnuð og ofsafátækt. Loks er fjallað um spillingu og vald, félagslega og menningarlega tjáningu, möguleika og takmarkanir tjáningarfrelsis, notkun og misnotkun upplýsinga, leynd, fals og falsfréttir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Handverk, handiðnaður og hugarfar á 18. og 19. öld – tíska, textílar og fatagerð á Íslandi (SAG417M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að taka fyrir fatagerð og tísku landsmanna á 18. og 19. öld og skoða í margvíslegu ljósi. Fléttað verður saman rannsóknum á handverki út frá fjölbreyttum heimildum við hugarfar og samfélagsgerð á 18. og 19. öld og skoðaðar þær breytingar sem voru að verða í samfélaginu á Íslandi og tengslunum við Danmörku. Lestrarefnið verður bæði fræðirit og frumheimildir, innlent og erlent. Leitast verður við að tengja nýjar rannsóknir við notkun bæði prentaðra frumheimilda og heimilda af skjalasöfnum og minjasöfnum. Vettvangsferðir verða mikilvægur hluti námskeiðsins og beinar rannsóknir á varðveittum fatnaði og greiningu á honum. Á undanförnum árum hefur aðgengi að gögnum stóraukist með aukinni heimildaútgáfu og vefbirtingu frumheimilda frá 18. öld. Snar þáttur er að nemendur verði sjálfbjarga í að rata um heimildaforða tímabilsins, geti afmarkað rannsókn á þessu sviði og leitað nýrrar þekkingar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Listhluturinn: Ævi og efni (LIS808M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þverfaglegum rannsóknum á efnismenningu (e. Material culture) hefur á síðustu áratugum vaxið fiskur um hrygg. Þrátt fyrir að efnisleiki, efnismenning, söfnun og eigendasaga hafi á vissan hátt alltaf verið hluti af rannsóknarsviði listfræðinga hefur listfræðin átt takmarkaðan hlut í umræðu innan efnismenningarfræða (e. Material culture studies) um tengsl manna við hluti. Í þessum áfanga gefst nemendum dýrmætt færi á beina ítarlegum sjónum að listgripum og „ævi“ þeirra innan og utan stofnana: sköpun þeirra, notkun, skiptum, sýningu, varðveislu, flokkun og skilgreiningu, sem og þeim gildum sem þeim hefur verið gefið og hugmyndum sem tengdar hafa verið við þá. Í hverri viku rýna nemendur í einn afmarkaðan hlut og fá innsýn í beitingu ólíkra aðferða við greiningu og túlkun listgripa, með myndgreiningu, greiningu á efni og gerð hluta, flokkun þeirra í skráningarkerfum safna og greiningu á eigenda- og sýningarsögu. Nemendur kynnast jafnframt kenningum efnismenningarfræða og skörun þeirra við viðfangsefni og kenningar listfræðinnar, svo sem stofnanagagnrýni (e. Institutional critique) og eigendasögu (e. Provenance). Námskeiðið er unnið í samstarfi við söfn á höfuðborgarsvæðinu og hentar nemendum í listfræði, myndlist, sagnfræði, fornleifafræði, þjóðfræði og safnafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Menningararfur (ÞJÓ447M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Menningararfur (ÞJÓ446G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Listir, náttúra og samfélag (LVG020G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Athugið að nemendur á kjörsviðinu Sjónlistir: Myndmennt ganga fyrir þegar hámarksfjölda er náð!

Í námskeiðinu er fjallað um tengsl listar, náttúru og samfélags með áherslu á samtímalist, sjálfbærni og menntun til sjálfbærrar þróunar. Nemendur kynnast hugmyndum listamanna sem vinna með náttúru og samfélag, rannsaka starfshætti þeirra og setja í fræðilegt samhengi. Unnið verður með hugmyndir samtímalistamanna í listrannsóknum og með ólíkar hefðir út frá reynslu og áhuga nemenda. Lögð er áhersla á tilraunir, skapandi ferli og endurnýtingu efna með umhverfisvernd að leiðarljósi.

Markmið og inntak
Nemendur:

  • tileinka sér hugmyndafræði námskrár sem byggir á samþættingu lista, náttúru og samfélags,
  • þróa eigin listræna tjáningu með fjölbreyttum efnivið og miðlum,
  • rökstyðja eigin verk í tengslum við fræðileg og skapandi markmið,
  • tengja verkefni sín við kennslu á grunnskólastigi með áherslu á grunnþætti menntunar: sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti og menningarlæsi.

Kennslan byggir á fyrirlestrum, umræðum, vettvangsheimsóknum og verkefnavinnu. Áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð, skapandi ferli og samstarf.

Vinnulag
Fyrirlestrar, gagnrýnin umræða, vettvangsheimsóknir og verkefnavinna. Nemendum gefst kostur á að vinna með fjölbreytt efnisval, mismunandi tækni og miðla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Rannsóknir og heimildaleit í skjalasöfnum (SAG206M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur læra og þjálfast í aðferðum skjalfræðilegra rannsókna, heimildaleit í skjalasöfnum og að meta heimildagildi skjala. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem tengjast námsefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR413G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR419G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ205G
    Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

    Kennslutungumál: Íslenska
  • SAF501G
    Söfn sem námsvettvangur
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Einn megintilgangur safna á Íslandi er að skila menningar- og náttúruarfi landsins til komandi kynslóða og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn. Ætlast er til þess (samkvæmt safnalögum) að söfn reyni að „auka lífsgæði manna“ með því að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista náttúru eða vísinda. Söfn og safnfræðsla geta því haft áhrif á samfélag, hópa og einstaklinga. Safnafræði getur komið hér að liði og er megin viðfangsefni námskeiðsins.

    Kynntar verða fræðilegar kenningar sem hafa að markmiði að stuðla að fjölbreyttri og áhrifamikilli fræðslu tengdri fornleifum, list, náttúruvísindum, menningarlegri arfleifð og öðrum viðfangsefnum safna. Hugað verður að fjölbreyttum markhópum safnfræðslu, hlutverki safngesta innan safna, rými, textagerð, margmiðlun, gagnvirkni og fleira.

    Þetta er fjarkennslunámskeið sem skiptist í þrjár lotur. Í hverri lotu eru ör-fyrirlestrar frá kennara með hugleiðingum um námsefnið, gesta-fyrirlestrar (stafrænir) og aukaefni. Þrjár stað- og/eða ZOOM-lotur eru yfir misserið, þar sem nemendur fá fyrirlestra frá starfsmönnum safna og vinna að fræðsluverkefni í samstarfi við safn í Reykjavík. Verkefnið verður þróað út frá fræðilegum áhuga nemenda undir handleiðslu kennara og með aðstoð starfsmanna safnsins.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ445G
    Ómenning: Frá postulínshundum til pönkara
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er rýnt í ýmis dæmi frá nítjándu öld til samtímans um „ómenningu“ allt frá áliti Jónasar Hallgrímssonar á rímum og Jónasar frá Hriflu á amerískum reyfurum og klessumálverkum til samtímaumræðna um graffítí, tölvuleiki og tónlistarmyndbönd. Fjallað er um hugmyndir, hegðun og menningarafurðir sem taldar eru hafa verið skaðvaldar í íslenskri menningu eða ógnað á einhvern hátt heilbrigðu menningarlífi. Þannig er meðal annars staðnæmst við andúðina á djassi, rokki og atómskáldskap og fjallað um eðli þeirrar ógnana sem talið var stafa af slíkum fyrirbærum. Samhengi samfélagslegs valds og menningar er tekið til rækilegrar skoðunar og spurt hverjir hafi skilgreint ómenningu, með hvaða aðferðum og í hvaða tilgangi.

    Spurt er hvort ógnvaldarnir eigi eitthvað sameiginlegt og hvort skilgreining þeirra sé háð hagsmunum, hugsjónum og siðferðisviðmiðum sem tekið hafa breytingum í tímans rás. Skoðað er að hvaða leyti hugmyndir um ómenningu sem andhverfu íslenskrar menningar hafa átt þátt í að móta hana og skilgreina:

    Hvaða þátt hafa hugmyndir um hið menningarlega og viðmið um siðmenningu átt í að marka viðteknar hugmyndir um íslenska menningu? Að hvaða leyti hefur íslensk menning mótast í viðnámi gegn erlendri fjöldamenningu sem meðal annars hefur verið álitin birtast í gervi danskrar kjólatísku og amerískra sápuópera?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER506M
    Menningartengd ferðaþjónusta
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður hugað að þýðingu og skilgreiningu hugtaksins menningar í menningartengdri ferðaþjónustu með sérstöku tilliti til framsetningar og miðlunar ímynda og menningar á mismunandi vettvangi. Velt verður upp pólitískum og siðferðilegum spurningum hvað varðar söfnun, framsetningu og miðlun menningar í mismunandi samhengi og á mismunandi vettvangi, erlendis og hérlendis. Einnig verða skoðuð tengsl ferðaþjónustu við skapandi greinar. Spurningum varðandi eignarhald á menningararfleifð verða íhugaðar svo og í höndum hvers það að skapa menningararfleifð er.

    Vettvangstímar fara fram innan höfuðborgarsvæðisins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG512M
    Einsögur um fátækt, tilfinningar og fötlun
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að vera í fyrsta lagi mjög hagnýt yfirferð um helstu heimildaflokka opinberra heimilda sem eru varðveittar á skjalasöfnum og eru aðgengilegar á rafrænu formi.  Allir flokkarnir hafa sína kosti og galla. Heimildirnar urðu til innan einhvers konar stjórnsýslu og markmið þeirra var að safna saman upplýsingum um það „þýði“ (e. population) sem er undir, varðveita það og nýta upplýsingarnar til að styrkja stjórnsýsluna og „búa til“ þær staðreyndir, sem hún þurfti á að halda til að viðhalda sér.  Í öðru lagi er námskeiðið kynning á þeirri þróun sem hefur orðið í aðferðafræði einsögunnar í nýjum íslenskum rannsóknum í sagnfræði. Hér er um að ræða nýtt sjónarhorn á því sem hefur verið nefnt einvæðing sögunnar. Í þriðja lagi verður námskeiðið kynning á því hvernig hægt er að greina tilfinningar einstaklinga í fortíðinni í gegnum opinberar heimildir og hvernig hugmyndafræði sögu tilfinninganna nýtist í þeim greiningum og nýrri samþættingu á kenningum um fátækt og fötlun í fortíðinni með sérstakri áherslu á kynjafræðileg sjónarhorn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN353G
    Mannfræði kynmenningar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða helstu hugtökin innan kynmenningar, kyn, kyngervi og kynhneigð, sett í samhengi við mannfræðilegar rannsóknir og þekkingu. Markmiðið er að nemendur öðlist góðan skilning á þessum hugtökum, hvernig þau eru í sífelldri endurmótun og hvernig þau móta samfélög og menningu hvarvetna. Fjallað verður um hvernig mannfræðirannsóknir á fyrri hluta 20. aldar voru mótaðar af ríkjandi kynjaviðmiðum og rýnt í áhrif femínískrar baráttu síðastliðinnar hálfrar aldar á tilurð og þróun fjölbreyttra mannfræðirannsókna. Áhersla verður lögð á að greina einkenni femínískra og hinsegin samtímarannsókna og nemendur kynnast efnistökunum í gegnum valdar etnógrafíur og aðra texta af vettvangi auk yfirlitsgreina um kynmenningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HSP105G
    Gagnrýnin hugsun
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ506M
    Menningararfur
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LVG302G
    Íslensk listasaga, söfn og menntun
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áhersla er lögð á að veita nemendum innsýn í  íslenska listasögu og myndlistararfleið, list í opinberu rými ásamt list- og safnafræðslu. 

    Markmiðið er að nemendur öðlast þekkingu á listasöfnum og kennslufræði þeirra gagnvart skólum og hæfni til að nýta sér þau sem fræðslustofnanir.  Skapaður er vettvangur þar sem áherslan er á samstarf og samtal skóla og safna á milli. Nemendum gefst kostur á að raungera og þróa hugmyndir sínar og vinna m.a. smiðju í tengslum við sýningu þar sem börn á grunnskólaaldri eru þáttakendur í skapandi starfi. 

    Vinnulag:
    Fyrirlestrar, lestur fræðigreina, gagnrýnin umræða  og safnaheimsóknir. 

    Nemendum vinna m.a verkefni og setja upp smiðju ætlaða börnum í tengslum við sýningu.

    Námskeiðið krefst sjálfstæðra vinnubragða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • FOR303G
    Gripafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar annars vegar um almennan grundvöll gripafræðinnar, gerðfræði og efnisfræði, og hins vegar um helstu flokka gripa sem finnast á Íslandi, leirker, steináhöld og steinílát, skartgripi og vopn, tréílát, vefnað, gler, krítarpípur o.fl.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAF301M
    Þungur hnífur: Víkingar í samtímamenningu, kvikmyndum og tölvuleikjum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Víkingar eru meðal auðkennilegustu og þekktustu samfélagshópa fortíðar. Ímynd þeirra hefur gjarnan vera hatrömm og ofsafengin og gott dæmi þar um væri sturlaði berserkurinn sem með hyrndnan hjálm á höfði og stríðsöxi á lofti, ljóst hárið flaxandi í vindinum, herjar á grunlaus bæjarsamfélög við fjarlægar strendur. Þessi ímynd hefur fest rætur um víða veröld, hún er þver-menningarleg og áhugamannahópa sem endurskapa lifnaðarhætti víkinga má finna í löndum sem eiga sér jafnvel enga slíka sögu. Samtímafólk tengir sig stolt í bragði við arfleifð víkinga og innleiðir í eigin sjálfsmynd. Víkinga þungarokk er til og vörur af ýmsu tagi tengja sig með meðvituðum hætti við víkingasöguna. Menningarafurðir eru þar engin undantekning og hvíta tjaldið er gott dæmi um það hversu lífseig goðsögnin um víkinga er: Fyrsta víkingamyndin kom út árið 1907 og lifa þær góðu lífi enn þann dag í dag. Sama er að segja um sjónvarp og tölvuleiki þar sem ímyndum víkinga og sögu þeirra er miðlað með ýmsum hætti. Þetta hefur svo aftur áhrif á birtingarmyndir víkinga á öðrum sviðum, og mætti þar nefna ferðamannaiðnaðinn, safnamenningu og þjóðlega framsetningu af ýmsu tagi.

    Í þessu námskeiði verða hinar ólíku framsetningarhefðir og birtingarmyndir víkinga í samtímanum skoðaðar. Hafist verður handa við að rekja sögu hinar nútímalegu víkingaímyndar og þróun hennar á tuttugustu öldinni – og verður þar í íslenska samhenginu sérstaklega horft til áranna í kringum Hrunið. Í kjölfarið verða ríkjandi birtingarmyndir víkingsins í samtímanum skoðaðar, með tillit til kvikmynda. Nemendur fá innsýn í sögu víkingakvikmynda um eða staðsettar á Íslandi, hvernig víkingar hafa verið túlkaðir af íslenskum og alþjóðlegum kvikmyndagerðamönnum og leikstjórum, birtingarmynd þeirra og tengingar við víkingavæðingu Íslands. Að lokum er fjallað um víkinga í tölvuleikjum, þar sem nemendur kynnast því hvernig fornnorrænn bókmenntaarfur hefur verið túlkaður og nýttur í tölvuleikjum og hvernig víkingar hafa tekið hamskiptum innan þess miðils.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAF001G
    Rannsóknarverkefni í safnafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið byggir á því að nemandi vinni að rannsóknarverkefni til að öðlast færni í að beita fræðilegum vinnubrögðum í safnastarfi. Fyrri hluti námskeiðs er fræðilegur og er þar fjallað um aðferðarfræði og fræðilega texta.  Rannsóknarverkefni felur í sér að nemandi vinnur rannsóknaráætlun undir leiðsögn kennara en vinnur síðan að sjálfstæðu verkefni. Í lok námskeiðs er skilað inn skýrslu um verkefnið og haldin kynning á því.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAF503M
    Söfn og bókmenntir: rithöfundar, fataskápar og ferðamenn
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður sjónum beint að þrennskonar þáttum í safnastarfi sem tengist bókmenntum. Í fyrsta lagi verður skoðað hvernig rithöfundar hafa fjallað um söfn og safnastarf s.s. með því að gera söfn sem vettvang skáldsagna. Í öðru lagi verður skoðað hvernig safnastofnanir sem leggja megin áherslu á kynningu á rithöfundum hafa byggst upp og hvaða áherslur þær hafa lagt í framsetningu (s.s. sýningargerð) á ævi og verkum þeirra. Og í þriðja lagi verður sambandið milli rithöfundasafna, staðar og bókmennta skoðað og sett í safnakenningarlegt samhengi. Í þessu námskeiði verða lesnar bókmenntir sem fjalla um efni námskeiðsins, fræðilegar greinar. Sérstaklega verður litið til íslenskra rithöfundasafna á borð við Gljúfrastein, Þórbergsseturs, Davíðshúss, Nonnahúss, Reykholts og Skriðuklausturs svo dæmi séu nefnd. Einnig verður litið til "rithöfundasafna" sem byggja á þjóðsagnaarfi, þar sem höfundarnir eru nafnlausir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • SAF201M
    Safn og samfélag: Sirkus dauðans?
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verða margþætt tengsl safna og þeirra samfélaga sem þau þjóna skoðuð. Kannað verður hvernig söfn eru ekki aðeins vörslumenn menningararfs heldur einnig virkir þátttakendur í mótun menningarlegra frásagna og samfélagslegra sjálfsmynda. Með því að skoða sögulegt samhengi, fræðilega umgjörð og hagnýtar dæmisögur fá nemendur innsýn í það mikilvæga hlutverk sem söfn gegna við að sýna og stundum ögra samfélagslegum gildum. Í námskeiðinu verður farið yfir efni eins og söfn sem hvati til samfélagsbreytinga, mikilvægi inngildingar og aðgengis, og áhrif stafrænnar tækni á samfélagsþátttöku. Með umræðum, dæmum og praktískum verkefnum munu nemendur kanna hvernig söfn geta á áhrifaríkan hátt virkjað fólk og stuðlað að réttlátara samfélagi. Í lok námskeiðsins munu nemendur hafa tileinkað sér góðan skilning á því hvernig söfn geta brugðist við þörfum og gildum fólks í þeim samfélögum sem þau þjóna.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SAF202M
    Samfélagslegar áskoranir og söfn
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið skoðar á gagnrýninn hátt áhrif samtímans á söfn og starfshætti þeirra. Leitast verður við að gefa góðan skilning á því hvernig söfn standa frammi fyrir og leitast oft við að takast á við ýmsar samfélagslegar áskoranir, þar á meðal fjölbreytni, jöfnuð, þátttöku, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Í námskeiðinu verður fræðilegur grunnur samfélagsmála safna skoðaður og dæmi þar að lútandi. Áherslur verða meðal annars á að skoða hlutverk safna sem talsmenn jaðarsettra hópa, mikilvægi samvinnu og samsköpunar og aðferðir til að takast á við loftslagsbreytingar innan safnastarfs, svo eitthvað sé nefnt. Umræður og verkefni skora á nemendur að hugsa gagnrýnið um hlutverk safna í samfélaginu. Í lok námskeiðsins verða nemendur búnir góðri færni og þekkingu til að takast á við félagsleg hlutverk safna í ört breytilegum heimi. Námskeiðið verður kennt frá lokum febrúar til loka mars.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SAF201G
    Rokkar og stokkar og reður í krús: Söfn og fræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er almennur inngangur að safnafræði. Fjallað verður um helstu þætti safnastarfs og fræðilegar og sögulegar forsendur þess. Skoðað verður hlutverk safna í fortíð og nútíð, uppbygging safnkosts, flokkun, skráning og varðveisla. Hugað verður að aðgengi, fræðslu, sýningagerð og gildi rannsókna fyrir safnastarf. Einnig verða skoðaðar mismunandi aðferðir við túlkun og framsetningu á sýningum. Íslensk söfn verða sett í samhengi við þjóðfræði, sem og erlent safnastarf og fræði. Námskeiðið skiptist í þrjár lotur, sem hver fyrir sig spannar um 4 vikna tímabil. Í hverjum hluta eru fyrirlestrar frá kennara auk skipulagðrar heimsóknar á tiltekið safn og umræður í kjölfarið. Áhersla verður lögð á umræður og verkefnavinnu innan safna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAF603M
    Safn og samfélag: Sirkus dauðans?
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um samfélagslegt hlutverk safna út frá margvíslegum sjónarhornum: efnahagslegum, pólitískum, menningarlegum, félagslegum og síðast en ekki síst alþjóðlegum. Fjallað verður meðal annars um hlutverk safna í hugmyndinni um þjóð, lagalegt umhverfi safna, rekstrarform, staða og hlutverk þjóðarsafna, safna í eigu sveitarfélaga, félagasamtaka og einkafyrirtækja, fjármögnun safnastarfs, stefna yfirvalda í málefnum safna, söfn og mannréttindi, söfn og áföll (trauma), kynjahugmyndir og fleira. Í námskeiðinu er einnig hugað að möguleikum safna á að virkja fólk og samfélög til þátttöku í starfsemi þeirra eins og söfnun, heimildaöflun, sýningarstjórnun, sýningargerð og annarri miðlun. Skoðuð verða innlend og erlend dæmi. Eftir því sem því verður komið við, eru farnar ein til tvær vettvangsferðir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ205G
    Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAF302M
    Sameiningar safna: Forsendur, ferli og framtíðin
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á undanförnum fjórum áratugum hafa menningarstofnanir eins og söfn orðið skotmark í breyttri menningarpólitík víða um heim. Söfnum hefur verið stillt upp í ríkari mæli sem lið í efnahagslegri endurskipulagningu og uppbyggingu, samfélagslegri og þjóðernislegri ímyndapólitík og sem vettvangi lýðræðislegrar þátttöku. Nýjar hugmyndir og nýtt tungutak fylgir þessum breytingum, þar á meðal að samvinna og sameining stofnana eigi að vinna aukinni samfélagslegri hagsæld brautargengi. Stafrænni tækni er gjarnan beitt í þessari deiglu sem afli til samlegðar og aukinnar framleiðni á sviði nýsköpunar.

    Í þessu námskeiði verða þessi atriði skoðuð út frá áðurtöldum sjónarhornum. Við munum kanna fræðileg skrif og skoða raundæmi af vettvangi safna í Evrópu og á Íslandi, sem hafa verið í eldlínu breytinganna. Innlendir og erlendir fyrirlesarar munu vera með innlegg í námskeiðið. Námskeiðið er kennt í fjarnámi og byggist námsmat á verkefnum sem unnin eru jafnt yfir önnina.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MFR703M
    Menning og andóf
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um samspil pólitískrar róttækni, menningar, hefðar og valds. Sérstaklega er hugað að birtingarmyndum andófs í samtímanum, orðræðu lýðræðis og menningarlegs mismunar og viðbrögðum við gagnrýni og andófi innan hefðar nútímastjórnmála. Fjallað er um þátt menntamanna og rithöfunda og vægi listrænnar tjáningar og hönnunar við umbreytingu félagslegs og menningarlegs umhvefis. Þá er fjölmiðlaorðræða skoðuð og greind og fjallað um hin ólíku og oft andstæðu markmið sem sjá má í starfsemi stofnana samfélagsins. Valdir eru nokkrir átakapunktar menningar- og samfélagsorðræðu sem draga fram grundvallartogstreitu frjálslyndra lýðræðissamfélaga, svo sem spurningar um visku eða fávisku almennings, viðbrögð við loftslagsbreytingum, óöfnuð og ofsafátækt. Loks er fjallað um spillingu og vald, félagslega og menningarlega tjáningu, möguleika og takmarkanir tjáningarfrelsis, notkun og misnotkun upplýsinga, leynd, fals og falsfréttir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAG417M
    Handverk, handiðnaður og hugarfar á 18. og 19. öld – tíska, textílar og fatagerð á Íslandi
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að taka fyrir fatagerð og tísku landsmanna á 18. og 19. öld og skoða í margvíslegu ljósi. Fléttað verður saman rannsóknum á handverki út frá fjölbreyttum heimildum við hugarfar og samfélagsgerð á 18. og 19. öld og skoðaðar þær breytingar sem voru að verða í samfélaginu á Íslandi og tengslunum við Danmörku. Lestrarefnið verður bæði fræðirit og frumheimildir, innlent og erlent. Leitast verður við að tengja nýjar rannsóknir við notkun bæði prentaðra frumheimilda og heimilda af skjalasöfnum og minjasöfnum. Vettvangsferðir verða mikilvægur hluti námskeiðsins og beinar rannsóknir á varðveittum fatnaði og greiningu á honum. Á undanförnum árum hefur aðgengi að gögnum stóraukist með aukinni heimildaútgáfu og vefbirtingu frumheimilda frá 18. öld. Snar þáttur er að nemendur verði sjálfbjarga í að rata um heimildaforða tímabilsins, geti afmarkað rannsókn á þessu sviði og leitað nýrrar þekkingar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LIS808M
    Listhluturinn: Ævi og efni
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þverfaglegum rannsóknum á efnismenningu (e. Material culture) hefur á síðustu áratugum vaxið fiskur um hrygg. Þrátt fyrir að efnisleiki, efnismenning, söfnun og eigendasaga hafi á vissan hátt alltaf verið hluti af rannsóknarsviði listfræðinga hefur listfræðin átt takmarkaðan hlut í umræðu innan efnismenningarfræða (e. Material culture studies) um tengsl manna við hluti. Í þessum áfanga gefst nemendum dýrmætt færi á beina ítarlegum sjónum að listgripum og „ævi“ þeirra innan og utan stofnana: sköpun þeirra, notkun, skiptum, sýningu, varðveislu, flokkun og skilgreiningu, sem og þeim gildum sem þeim hefur verið gefið og hugmyndum sem tengdar hafa verið við þá. Í hverri viku rýna nemendur í einn afmarkaðan hlut og fá innsýn í beitingu ólíkra aðferða við greiningu og túlkun listgripa, með myndgreiningu, greiningu á efni og gerð hluta, flokkun þeirra í skráningarkerfum safna og greiningu á eigenda- og sýningarsögu. Nemendur kynnast jafnframt kenningum efnismenningarfræða og skörun þeirra við viðfangsefni og kenningar listfræðinnar, svo sem stofnanagagnrýni (e. Institutional critique) og eigendasögu (e. Provenance). Námskeiðið er unnið í samstarfi við söfn á höfuðborgarsvæðinu og hentar nemendum í listfræði, myndlist, sagnfræði, fornleifafræði, þjóðfræði og safnafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ447M
    Menningararfur
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ446G

  • LVG020G
    Listir, náttúra og samfélag
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Athugið að nemendur á kjörsviðinu Sjónlistir: Myndmennt ganga fyrir þegar hámarksfjölda er náð!

    Í námskeiðinu er fjallað um tengsl listar, náttúru og samfélags með áherslu á samtímalist, sjálfbærni og menntun til sjálfbærrar þróunar. Nemendur kynnast hugmyndum listamanna sem vinna með náttúru og samfélag, rannsaka starfshætti þeirra og setja í fræðilegt samhengi. Unnið verður með hugmyndir samtímalistamanna í listrannsóknum og með ólíkar hefðir út frá reynslu og áhuga nemenda. Lögð er áhersla á tilraunir, skapandi ferli og endurnýtingu efna með umhverfisvernd að leiðarljósi.

    Markmið og inntak
    Nemendur:

    • tileinka sér hugmyndafræði námskrár sem byggir á samþættingu lista, náttúru og samfélags,
    • þróa eigin listræna tjáningu með fjölbreyttum efnivið og miðlum,
    • rökstyðja eigin verk í tengslum við fræðileg og skapandi markmið,
    • tengja verkefni sín við kennslu á grunnskólastigi með áherslu á grunnþætti menntunar: sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti og menningarlæsi.

    Kennslan byggir á fyrirlestrum, umræðum, vettvangsheimsóknum og verkefnavinnu. Áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð, skapandi ferli og samstarf.

    Vinnulag
    Fyrirlestrar, gagnrýnin umræða, vettvangsheimsóknir og verkefnavinna. Nemendum gefst kostur á að vinna með fjölbreytt efnisval, mismunandi tækni og miðla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SAG206M
    Rannsóknir og heimildaleit í skjalasöfnum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur læra og þjálfast í aðferðum skjalfræðilegra rannsókna, heimildaleit í skjalasöfnum og að meta heimildagildi skjala. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem tengjast námsefni.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Sumar
  • FOR413G
    Starfsreynsla við uppgröft eða safn
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR419G
    Starfsreynsla við uppgröft eða safn
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Mögulegur starfsvettvangur eru stjórnunarstörf við hvers kyns opinberar stofnanir og einkafyrirtæki sem koma að söfnun, varðveislu, rannsóknum, kennslu og miðlun menningararfs þar sem sérmenntun viðkomandi nýtist í starfi.

Einnig má nefna verkefnastjórnun á sviði mennta- og menningarmála auk starfa sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu. 

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Safnastarf
  • Rannsóknir
  • Kennslu
  • Stjórnun
  • Sýningargerð
  • Menningartengd ferðaþjónusta
  • Vefmiðlun

Listinn er ekki tæmandi.

Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil