Ágæti umsækjandi
Þakka þér fyrir að sækja um framhaldsnám við Háskóla Íslands.
Við bendum á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ í umsóknagátt HÍ, þar sem þú sóttir um námið. Til að skrá þig inn í umsóknagátt Háskóla Íslands notar þú rafræn skilríki eða netfangið og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú stofnaðir fyrst aðgang.
Svar við umsókn mun einungis birtast í umsóknagáttinni undir „Yfirlit umsókna“.
Áríðandi er að skoða vel innihald felliglugganna hér að neðan. Í þeim er að finna mikilvægar upplýsingar svo unnt sé að afgreiða umsókn þína.