Börn og skuggamyndir
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Starfar þú með börnum?
  • Viltu öðlast hagnýta og sérhæfða þekkingu á áföllum barna?
  • Viltu læra að mæta þörfum barna sem orðið hafa fyrir áföllum?
  • Langar þig að öðlast færni í áfallamiðuðu starfi með börnum?
  • Hefur þú yfir 3ja ára reynslu af starfi með börnum?

Námið skiptist í 30 einingar í farsæld barna og 30 einingar í áfallamiðaðri nálgun í starfi með börnum og er skipulagt sem nám samhliða starfi.

Í fyrri hlutanum, farsæld barna 30 einingar, er markmiðið að auka sérhæfða þekkingu á málefnum barna og þjónustu við þau í anda farsældarlaga. Áhersla lögð á þverfaglegt samstarf og teymisvinnu, mikilvægi snemmtækrar þjónustu og börn sem þátttakendur.

Í síðari hlutanum, áföll barna 30 einingar, er viðfangsefnið Viðfangsefnið er áföll barna, birtingarmyndir áfalla, mögulegar afleiðingar og leiðir til að mæta þörfum barna sem orðið hafa fyrir áföllum.

Markmið

Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði farsældar og áfalla barna. Náminu er ætlað að styðja við innleiðingu áfallamiðaðs starfs í þágu farsældar barna og samþættrar þjónustu þeim til handa.

Í samræmi við stöðu þekkingar á sviðinu er það sívaxandi áskorun fyrir fagfólk sem starfar með börnum í skóla og velferðarþjónustu að takast á við áföll og afleiðingar þeirra.

Fyrirkomulag kennslu

Fyrirlestrar (streymi/upptökur) og umræðutímar eingöngu í fjarnámi. Mætingaskylda er í tvær tveggja daga staðlotur (undir lok ágúst og í lok janúar/byrjun febrúar).

Annað

Hægt er að fá námið metið inn í MA nám í félagsráðgjöf að uppfylltum inntökuskilyrðum.

BA., B.Ed., eða BS-gráða með fyrstu einkunn (7,25 að lágmarki) eða sambærilegt háskólapróf og lögverndað starfsheiti ásamt 30 eininga viðbótardiplómu í farsæld barna.

Umsækjandi þarf að hafa a.m.k. 3ja ára reynslu af starfi með börnum/þjónustu við börn, vera í starfi, fá 10 tíma faglega handleiðslu á námstímanum greidda af vinnuveitanda og geti unnið verkefni sem tengist starfi umsækjanda. Faglega handleiðslu veitir einungis faglegur handleiðari sem hefur viðurkennda menntun og þjálfun. 

Haustið 2026 verða aðeins teknir inn nemendur sem uppfylla annað af eftirfarandi skilyrðum:

  1. Hafa lokið 30e viðbótardiplómu í farsæld barna
  2. Ætla að stunda fullt nám. Heimilt er að taka námskeið sem tilheyra farsældarhluta og áfallahluta samhliða, en óheimilt er að taka áfallahlutann á undan farsæld.

Þau sem hafa hug á að stunda hlutanám, er bent á að sækja um örnám í farsæld barna.

Athugið: Það eru ekki sömu inntökuskilyrði í örnám í farsæld barna og viðbótarnámið.

  • Athugið að framvegis er ráðgert að taka inn nemendur inn í námsleiðina annað hvert ár.

Ljúka þarf 60 einingum fyrir lokapróf. Námið skiptist í 30e í farsæld barna og 30e í áfallamiðuðu starfi með börnum.
Nemendur sem lokið hafa 30e viðbótarnámi í farsæld barna, geta sótt um að fá það metið.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Leyfisbréf

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Áföll barna og viðbragðsáætlanir skóla (FRG244F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á starfsaðferðum í áfallamiðaðri nálgun og þeim breytingum sem þurfa að eiga sér stað í skólum við innleiðingu og framkvæmd slíkrar nálgunar. Jafnframt verður lögð áhersla á að kynna helstu þætti sem þurfa að vera til staðar til að tryggja að skólinn geti mætt þörfum barna sem glíma við afleiðingar áfalla. Auk þess verður umfjöllun um samstarf foreldra og skóla út frá áherslum um samþætta þjónustu. Kynnt verða ýmis úrræði og mögulegt samstarf við aðrar stofnanir sem þjóna börnum og fjölskyldum í kjölfar áfalla. Þá verður áhersla lögð á að undirbúa nemendur undir samvinnu ólíkra faghópa við uppbyggingu og þróun forvarna í tengslum við áfallamiðaða nálgun í skólum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Heilsársnámskeið
Samþætt þjónusta við börn: Löggjöf um farsæld (FRG240F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir grundvallarþekkingu á löggjöf sem varðar þjónustu við börn með sérstakri áherslu á lög um samþætta þjónustu við börn í þágu farsældar barna, Barnasáttmála SÞ og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði barnaréttar. Þá verður fjallað um hvernig löggjöfin leggur áherslu á fyrsta stigs þjónustu við börn og hvernig koma megi í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í fyrri hluta námskeiðsins er einblínt á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á löggjöfinni en í seinni hluta námskeiðs er lögð áhersla á beitingu þekkingar og vinnu með raunhæf dæmi af vettvangi (tilvik). Einnig verður fjallað um félagslegar fjárfestingar, rannsóknir og mælingar sem snúa að farsæld barna og hvernig meta megi hvort markmiðum löggjafar er náð, m.a. með áherslu á aðferðir kostnaðar- og nytjagreininga.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Áföll barna (FRG130F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist dýpri þekkingu á afleiðingum áfalla af ólíkum toga hjá börnum og helstu birtingarmyndum þeirra í hegðun þeirra og líðan. Áhersla verður lögð á umfjöllun um áhrif áfalla í fjölskyldum á börn og afleiðingar þess að alast upp við skort á stöðugleika og flóknar fjölskylduaðstæður. Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þeim áhrifum sem áföll og streita geta haft á börn, s.s. á hegðun þeirra, vitsmunalegan-, félagslegan- og tilfinningalegan þroska. Að nemendur verði meðvitaðir um og þekki mikilvægi seiglu (e. resilience) og aðra verndandi þætti í umhverfi barna.

Námleiðin tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna nr. 3 (heilsa og vellíðan), nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10. (aukinn jöfnuður).

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Börn og farsæld: Réttindi barna og þátttaka þeirra (FRG128F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er áhersla á að veita grundvallarþekkingu á bernskufræðum og í því samhengi rætt um barnamiðaða nálgun, með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu. Fjallað verður um hagsmuni barna, verndandi þætti og hættur sem ógna farsæld barna. Áhersla er lögð á að fjalla um hvernig fyrsta stigs þjónusta við börn skapar tækifæri til að grípa fyrr inn í aðstæður og koma í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í námskeiðinu er fjallað um ýmis álitamál og áskoranir sem geta komið upp í vinnu með börnum. Hagnýt dæmi verða rædd og nýtt til að beita gagnreyndu vinnulagi við ákvarðanatöku auk þess sem farið verður yfir hvernig hægt er að beita ígrundun í starfi.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Áskoranir í starfi (FRG245F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um innleiðingu áfallamiðaðrar nálgunar í skólum og öðrum stofnunum sem sinna börnum. Auk þess verður fjallað um möguleg áhrif þess á starfsfólk að vinna með börn sem hafa upplifað áföll (e. compassion fatigue, vicarious trauma og burnout) og stuðningsúrræði þeim til handa. Megináhersla verður lögð á að starfsfólk þekki eigin varnarviðbrögð við álagi og merki um streitu og þrói með sér bjargráð til að hlúa að eigin fagsjálfi. Áhersla verður lögð á mikilvægi faglegrar handleiðslu fyrir fagfólk í skólum með það að markmiði að halda jafnvægi á milli fag- og einkasjálfs og koma í veg fyrir fagþreytu og kulnun í starfi.

Námleiðin tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna nr. 3 (heilsa og vellíðan), nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10. (aukinn jöfnuður).

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Tengiliðir og þverfaglegt samstarf: Nýtt vinnulag í þágu barna (FRG238F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á grundvallarþekkingu á samvinnu og þverfaglegri teymisvinnu innan og utan stofnana. Fjallað verður um hvað felst í samþættingu þjónustu og hlutverki tengiliða og málstjóra í því samhengi, auk þess sem áhersla verður á að kynna hagnýtar aðferðir í þágu farsældar barna. Nemendur fá tækifæri til að rýna og greina styrkleika sína og hindranir á þessu sviði. Auk þess er lögð áhersla á að nemendur læri að tileinka sér og nýta handleiðslu og endurgjöf til faglegs þroska í samvinnu og teymisvinnu. Þá verður fjallað um ýmsar áskoranir við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og um gagnreyndar aðferðir og nálgun í starfi með börnum með áherslu á snemmtæka þjónustu.  

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Heilsársnámskeið
  • FRG244F
    Áföll barna og viðbragðsáætlanir skóla
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á starfsaðferðum í áfallamiðaðri nálgun og þeim breytingum sem þurfa að eiga sér stað í skólum við innleiðingu og framkvæmd slíkrar nálgunar. Jafnframt verður lögð áhersla á að kynna helstu þætti sem þurfa að vera til staðar til að tryggja að skólinn geti mætt þörfum barna sem glíma við afleiðingar áfalla. Auk þess verður umfjöllun um samstarf foreldra og skóla út frá áherslum um samþætta þjónustu. Kynnt verða ýmis úrræði og mögulegt samstarf við aðrar stofnanir sem þjóna börnum og fjölskyldum í kjölfar áfalla. Þá verður áhersla lögð á að undirbúa nemendur undir samvinnu ólíkra faghópa við uppbyggingu og þróun forvarna í tengslum við áfallamiðaða nálgun í skólum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • FRG240F
    Samþætt þjónusta við börn: Löggjöf um farsæld
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir grundvallarþekkingu á löggjöf sem varðar þjónustu við börn með sérstakri áherslu á lög um samþætta þjónustu við börn í þágu farsældar barna, Barnasáttmála SÞ og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði barnaréttar. Þá verður fjallað um hvernig löggjöfin leggur áherslu á fyrsta stigs þjónustu við börn og hvernig koma megi í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í fyrri hluta námskeiðsins er einblínt á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á löggjöfinni en í seinni hluta námskeiðs er lögð áhersla á beitingu þekkingar og vinnu með raunhæf dæmi af vettvangi (tilvik). Einnig verður fjallað um félagslegar fjárfestingar, rannsóknir og mælingar sem snúa að farsæld barna og hvernig meta megi hvort markmiðum löggjafar er náð, m.a. með áherslu á aðferðir kostnaðar- og nytjagreininga.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • FRG130F
    Áföll barna
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist dýpri þekkingu á afleiðingum áfalla af ólíkum toga hjá börnum og helstu birtingarmyndum þeirra í hegðun þeirra og líðan. Áhersla verður lögð á umfjöllun um áhrif áfalla í fjölskyldum á börn og afleiðingar þess að alast upp við skort á stöðugleika og flóknar fjölskylduaðstæður. Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þeim áhrifum sem áföll og streita geta haft á börn, s.s. á hegðun þeirra, vitsmunalegan-, félagslegan- og tilfinningalegan þroska. Að nemendur verði meðvitaðir um og þekki mikilvægi seiglu (e. resilience) og aðra verndandi þætti í umhverfi barna.

    Námleiðin tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna nr. 3 (heilsa og vellíðan), nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10. (aukinn jöfnuður).

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • FRG128F
    Börn og farsæld: Réttindi barna og þátttaka þeirra
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er áhersla á að veita grundvallarþekkingu á bernskufræðum og í því samhengi rætt um barnamiðaða nálgun, með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu. Fjallað verður um hagsmuni barna, verndandi þætti og hættur sem ógna farsæld barna. Áhersla er lögð á að fjalla um hvernig fyrsta stigs þjónusta við börn skapar tækifæri til að grípa fyrr inn í aðstæður og koma í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í námskeiðinu er fjallað um ýmis álitamál og áskoranir sem geta komið upp í vinnu með börnum. Hagnýt dæmi verða rædd og nýtt til að beita gagnreyndu vinnulagi við ákvarðanatöku auk þess sem farið verður yfir hvernig hægt er að beita ígrundun í starfi.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • FRG245F
    Áskoranir í starfi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um innleiðingu áfallamiðaðrar nálgunar í skólum og öðrum stofnunum sem sinna börnum. Auk þess verður fjallað um möguleg áhrif þess á starfsfólk að vinna með börn sem hafa upplifað áföll (e. compassion fatigue, vicarious trauma og burnout) og stuðningsúrræði þeim til handa. Megináhersla verður lögð á að starfsfólk þekki eigin varnarviðbrögð við álagi og merki um streitu og þrói með sér bjargráð til að hlúa að eigin fagsjálfi. Áhersla verður lögð á mikilvægi faglegrar handleiðslu fyrir fagfólk í skólum með það að markmiði að halda jafnvægi á milli fag- og einkasjálfs og koma í veg fyrir fagþreytu og kulnun í starfi.

    Námleiðin tengist Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna nr. 3 (heilsa og vellíðan), nr. 4 (menntun fyrir alla) og nr. 10. (aukinn jöfnuður).

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • FRG238F
    Tengiliðir og þverfaglegt samstarf: Nýtt vinnulag í þágu barna
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á grundvallarþekkingu á samvinnu og þverfaglegri teymisvinnu innan og utan stofnana. Fjallað verður um hvað felst í samþættingu þjónustu og hlutverki tengiliða og málstjóra í því samhengi, auk þess sem áhersla verður á að kynna hagnýtar aðferðir í þágu farsældar barna. Nemendur fá tækifæri til að rýna og greina styrkleika sína og hindranir á þessu sviði. Auk þess er lögð áhersla á að nemendur læri að tileinka sér og nýta handleiðslu og endurgjöf til faglegs þroska í samvinnu og teymisvinnu. Þá verður fjallað um ýmsar áskoranir við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og um gagnreyndar aðferðir og nálgun í starfi með börnum með áherslu á snemmtæka þjónustu.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Þessi menntun gagnast fólki sem starfar með börnum og barnafjölskyldum, meðal annars:

  • Félagsráðgjöfum
  • Hjúkrunarfræðingum
  • Sálfræðingum
  • Lýðheilsufræðingum
  • Iðjuþjálfum
  • Guðfræðingum
  • Læknum
  • Sjúkraþjálfurum
  • Fræðslu- og forvarnarfulltrúum

Listinn er ekki tæmandi

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil