Hópur aldraðra í líkamsþjálfun
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Eitt ár - 30 einingar
Námsform
Blönduð námsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Starfar þú með öldruðum?
  • Hefur þú áhuga á að auka fræðilega og hagnýta þekkingu þína um málefni aldraðra?
  • Vilt þú kynnast því betur hvernig umhverfi, félagsleg tengsl og heilsufar hafa áhrif á vellíðan aldraðra?
  • Langar þig að öðlast hæfni til að vinna með öðrum starfsstéttum að velferðarmálum aldraðra?

Í örnámi í öldrunarþjónustu auka nemendur fræðilega og hagnýta þekkingu sína um málefni aldraðra og er námsleiðin einkum ætluð þeim sem starfa með öldruðum.

Umsækjendur skulu hafa lokið háskólanámi á heilbrigðis- eða félagsvísindasviði en einnig er litið á starfsreynslu þegar umsóknir eru metnar.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og sett upp sem hluta nám í eitt ár.

Námið skiptist í:

Skyldunámskeið:

  • Öldrunarfræði: Stefnumótun og þjónusta, 10 einingar 
  • Áhrifaþættir öldrunar: Umhverfi, félagstengsl og heilsufar, 10 einingar

Valnámskeið:

  • Valnámskeið valið í samráði við umsjónarmann námsleiðar, 10 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum, einkum Norðurlandamálum.

    Meginmarkmið

    Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði öldrunarþjónustu. Nemendur fá fræðilega og hagnýta þekkingu um málefni aldraðra og þá þætti sem hafa áhrif á stefnumörkun og stjórnun málaflokksins.

    Annað

    Námið er hægt að fá metið inn í meistaranám að uppfylltum inntökuskilyrðum.

    Umsækjendur skulu hafa lokið háskólanámi á heilbrigðis- eða félagsvísindasviði (BA, B.Ed., BS). Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar (7,25). Námsleiðin er ætluð þeim sem starfa með öldruðum, s.s. félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum, iðjuþjálfum, læknum og sjúkraþjálfurum.

    Einnig er litið á starfsreynslu þegar umsóknir eru metnar og því skal greinagerð umsækjenda um starfsreynslu fylgja með umsókn. 

    Ljúka þarf 30 ECTS einingum. Námið skiptist þannig að um er að ræða skyldunámskeið 20e og valnámskeið í samráði við umsjónarmann námsleiðar 10e

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit
    • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu 

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Fyrsta ár | Haust
    Öldrunarfræði: Stefnumótun og þjónusta (ÖLD102F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna öldrunarfræði sem þverfaglega fræðigrein með aðaláherslu á félagslega öldrunarfræði. Hugmyndafræði fræðigreinarinnar, helstu rannsóknir og rannsóknaraðferðir verða kynntar. Fjallað verður um félagslega, sálræna og líffræðilega öldrun og áhrif þess að eldast á einstaklinga og umhverfi þeirra. Kynntar verða helstu kenningar öldrunarfræðinnar og fjallað um áhrif þeirra á stefnumótun í öldrunarþjónustu. Áhersla verður lögð á að dýpka þekkingu þátttakenda um málefni aldraðra með það að markmiði að gera þá hæfari til að vinna með öðrum starfsstéttum að velferðarmálum aldraðra.

    Lotukennsla. Námskeiðið verður kennt í staðlotum. Skyldumæting er í staðlotur. 

    Námskeiðið verður kennt á ensku á haustmisseri 2027.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Vor
    Áhrifaþættir öldrunar: Umhverfi, félagstengsl og heilsufar (ÖLD201F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að dýpka þekkingu þátttakenda í öldrunarfræðum (gerontology) og öldrunarlækningum (geriatri). Fjallað verður um það hvernig umhverfi, félagsleg tengsl og heilsufar hafa áhrif á vellíðan aldraðra. Rætt verður um þjónustu við aldraða almennt og einnig hópa aldraðra með sérþarfir. Mismunandi kenningar öldrunarfræða verða til umræðu og hvernig þær hafa áhrif á viðhorf og þjónustu við aldraðra. Rannsóknir innlendar og erlendar á sviðinu verða kynntar svo og rannsóknaraðferðir öldrunarfræðinnar. Fjallað verður um teymisvinnu í öldrunarþjónustu og áhersla lögð á að kynna starfsaðferðir mismunandi starfsstétta sem vinna að málefnum aldraðra.

    Námskeiðið er kennt í staðlotum og fyrirlestrum. Mætingaskylda er í staðlotur. 

    Gestafyrirlesarar á sérsviðum öldrunarfræða og öldrunarlækninga.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár
    • Haust
    • ÖLD102F
      Öldrunarfræði: Stefnumótun og þjónusta
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að kynna öldrunarfræði sem þverfaglega fræðigrein með aðaláherslu á félagslega öldrunarfræði. Hugmyndafræði fræðigreinarinnar, helstu rannsóknir og rannsóknaraðferðir verða kynntar. Fjallað verður um félagslega, sálræna og líffræðilega öldrun og áhrif þess að eldast á einstaklinga og umhverfi þeirra. Kynntar verða helstu kenningar öldrunarfræðinnar og fjallað um áhrif þeirra á stefnumótun í öldrunarþjónustu. Áhersla verður lögð á að dýpka þekkingu þátttakenda um málefni aldraðra með það að markmiði að gera þá hæfari til að vinna með öðrum starfsstéttum að velferðarmálum aldraðra.

      Lotukennsla. Námskeiðið verður kennt í staðlotum. Skyldumæting er í staðlotur. 

      Námskeiðið verður kennt á ensku á haustmisseri 2027.

      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Vor
    • ÖLD201F
      Áhrifaþættir öldrunar: Umhverfi, félagstengsl og heilsufar
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að dýpka þekkingu þátttakenda í öldrunarfræðum (gerontology) og öldrunarlækningum (geriatri). Fjallað verður um það hvernig umhverfi, félagsleg tengsl og heilsufar hafa áhrif á vellíðan aldraðra. Rætt verður um þjónustu við aldraða almennt og einnig hópa aldraðra með sérþarfir. Mismunandi kenningar öldrunarfræða verða til umræðu og hvernig þær hafa áhrif á viðhorf og þjónustu við aldraðra. Rannsóknir innlendar og erlendar á sviðinu verða kynntar svo og rannsóknaraðferðir öldrunarfræðinnar. Fjallað verður um teymisvinnu í öldrunarþjónustu og áhersla lögð á að kynna starfsaðferðir mismunandi starfsstétta sem vinna að málefnum aldraðra.

      Námskeiðið er kennt í staðlotum og fyrirlestrum. Mætingaskylda er í staðlotur. 

      Gestafyrirlesarar á sérsviðum öldrunarfræða og öldrunarlækninga.

      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Námsleiðin er ætluð þeim sem starfa með öldruðum:

    • Félagsráðgjöfum
    • Hjúkrunarfræðingum
    • Iðjuþjálfum
    • Læknum
    • Sjúkraþjálfurum

    Listinn er ekki tæmandi

    Umsagnir nemenda
    Portrait of Edda Sólveig Þórarinsdóttir
    Sú ákvörðun að skrá mig í meistaranám í öldrunarfræði er ein sú besta sem ég hef tekið. Námið er fyrst og fremst mjög skemmtilegt og hagnýtt. Í náminu fékk ég innsýn í margar hliðar öldrunarfræðinnar, sem veitti mér góðan faglegan grunn. Á sama tíma gafst mér tækifæri til að kafa dýpra í þau viðfangsefni sem ég hef mestan áhuga á og langar að sérhæfa mig í. Það sem heillaði mig líka einna mest var hversu fjölbreyttir möguleikar í starfi opnast að námi loknu.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil