- Hefur þú áhuga á að vera hluti af upplýsingasamfélagi framtíðarinnar?
- Vilt þú fara í stutt nám en gagnlegt nám?
- Hefur þú áhuga á 4.iðnbyltingunni, strafrænu byltingunni og sjálfvirknivæðingunni?
- Langar þig að kynnast mismunandi kerfum sem nýtast við skipulagningu, varðveislu, stjórnun og miðlun ólíkra tegunda gagna?
Örnám í upplýsingafræði (e. micro-credential) byggir á þremur stoðum: fólki, upplýsingum og tækni. Námið er bæði fræðilegt og hagnýtt og veitir ekki aðeins sterkan fræðilegan grunn heldur einnig nauðsynlega færni til að gegna lykilhlutverki í fjölbreyttum atvinnugreinum sem knúnar eru áfram af upplýsingum og þekkingu. Í náminu er lögð áhersla á að þróa færni til að greina ólíkar upplýsingaþarfir, stjórna upplýsingum og gögnum í samræmi við þarfir vinnustaða, miðla efni á samfélagsmiðlum og vef, og móta framtíð bókasafna sem menningarstofnana sem styðja við félagslega þátttöku, lýðræði og borgaralega virkni.
Örnám er stutt nám sem auðveldar fólki að bæta við sig þekkingu á afmörkuðu sviði. Námið er byggt upp eins og annað háskólanám og lýtur sömu gæðakröfum. Örnámi lýkur ekki með prófgráðu heldur fá nemendur staðfest með vottorði að námi sé lokið. Örnám er metið til ECTS-eininga sem hægt er að nýta í meistaranámi í upplýsingafræði sem lýkur með prófgráðu.
Uppbygging náms
Námið er 30 einingar og skipulagt sem hlutanám til eins árs. Nemendur geta einnig valið að taka námið á lengri tíma.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku en flestar bækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum.
Námskeið í upplýsingafræði eru kennd í fjarnámi sem getur innifalið stuttar staðlotur og fyrirlestra í streymi. Námið er gjarnan stundað samhliða vinnu.
Annað
Mögulegt er að fá einingar úr náminu metnar upp í meistaranám:
- Sjá 120 eininga MIS námsleið fyrir þau sem ekki hafa grunn í upplýsingafræði
- Sjá 120 eininga MA námsleið fyrir þau sem hafa grunn í upplýsingafræði
BA-, BS-, B.Ed.-gráða eða sambærileg gráða.
Örnám í upplýsingafræði: Ljúka þarf 30 ECTS einingum í skyldunámskeiðum skv. kjörsviði. Hægt er að velja á milli eftirfarandi kjörsviða: upplýsingahegðun eða upplýsingastjórnun.
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Óháð námsári
- Haust
- Grunnþættir starfa innan bókasafna, skjalasafna og annarra upplýsingastofnana
- Upplýsingaleitir og stafræn miðlun
- Vor
- Upplýsingahegðun og upplýsingalæsi: Kenningar og rannsóknir
Grunnþættir starfa innan bókasafna, skjalasafna og annarra upplýsingastofnana (UPP114F)
Nútímasamfélög treysta á að upplýsingar séu áreiðanlegar, að skjöl séu unnin á gagnsæjan hátt og að fólk geti ratað um sífellt flóknara upplýsingalandslag. Námskeiðið fjallar um hvernig bókasöfn, skjalasöfn og aðrar þekkingarstofnanir gegna mikilvægu lýðræðislegu og samfélagslegu hlutverki, hvort sem það er í opinbera geiranum, í menningarstofnunum, innan stjórnsýslunnar eða í einkageiranum. Horft er sérstaklega á þessi hlutverk í ljósi stafrænnar umbreytingar, gervigreindar og aukinna rangupplýsinga/falsupplýsinga. Námskeiðið tengir saman stefnumótun, faglega vinnu og fræðilegar hugmyndir til að skoða hvernig bókasöfn, skjalasöfn og upplýsingastofnanir styðja fólk við að takast á við upplýsingar á ólíkum tímum og í mismunandi aðstæðum í lífinu. Rýnt er í hvernig reglur, stofnanamenning og fagleg hlutverk hafa áhrif á traust, þátttöku, ábyrgð og lýðræðislega ferla. Byggt er á þverfaglegum og norrænum rannsóknum til að skapa sameiginlegan hugmyndalegan grunn í bókasafns- og upplýsingafræði og skjala- og upplýsingaastjórnun. Markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir frekara nám og fagleg störf.
Upplýsingaleitir og stafræn miðlun (UPP215F)
Námskeiðið byggir á tveimur samofnum stoðum: upplýsingaleit og stafrænni miðlun. Annars vegar er fjallað um hvernig má nálgast, meta og nýta upplýsingar í síbreytilegu umhverfi, þar sem sérstök áhersla er lögð á hvernig nýta má gervigreind til að fínpússa leitir og vinna úr texta. Hins vegar er sjónum beint að stafrænum samskiptum og stefnumótun, þar sem notkun samfélagsmiðla við þekkingarmiðlun er í forgrunni. Markmiðið er að nemendur öðlist heildstæða færni í að finna áreiðanlegar upplýsingar og miðla þeim áfram til ólíkra hópa á skýran og ábyrgan hátt.
Upplýsingahegðun og upplýsingalæsi: Kenningar og rannsóknir (UPP109F)
Hvernig einstaklingar leita að, nota, miðla og skilja upplýsingar ræðst af því hverjir þeir eru, hvað þeir eru að gera og í hvaða aðstæðum þeir starfa. Kynntar eru helstu kenningar og rannsóknarhefðir í upplýsingafræði sem skýra upplýsingahegðun, upplýsingalæsi og stafrænt læsi, ásamt miðlun upplýsinga í fjölbreyttu félagslegu og tæknilegu samhengi. Námskeiðið veitir fræðilegan grunn til að skilja upplýsingavenjur í daglegu lífi, námi, starfi og samfélagsþátttöku. Fjallað er um hvernig upplýsingavenjur mótast af samfélaginu, tækninni sem við notum og þeim stofnunum sem við treystum og sérstök áhersla lögð á ójöfnuð, útilokun og stafræna gjá. Skoðað er hvernig mismunandi hópar mæta hindrunum í aðgangi að upplýsingum og notkun þeirra og hvernig stofnanir, tækni og milliliðir hafa áhrif á möguleika fólks til þátttöku og virkni. Námskeiðið styður nemendur í að túlka og beita fræðilegri þekkingu með því að byggja á klassískum og nýlegum rannsóknum í upplýsingafræði og gagnrýna nálgun á kenningar, líkön og rannsóknir.
- Haust
- UPP114FGrunnþættir starfa innan bókasafna, skjalasafna og annarra upplýsingastofnanaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Nútímasamfélög treysta á að upplýsingar séu áreiðanlegar, að skjöl séu unnin á gagnsæjan hátt og að fólk geti ratað um sífellt flóknara upplýsingalandslag. Námskeiðið fjallar um hvernig bókasöfn, skjalasöfn og aðrar þekkingarstofnanir gegna mikilvægu lýðræðislegu og samfélagslegu hlutverki, hvort sem það er í opinbera geiranum, í menningarstofnunum, innan stjórnsýslunnar eða í einkageiranum. Horft er sérstaklega á þessi hlutverk í ljósi stafrænnar umbreytingar, gervigreindar og aukinna rangupplýsinga/falsupplýsinga. Námskeiðið tengir saman stefnumótun, faglega vinnu og fræðilegar hugmyndir til að skoða hvernig bókasöfn, skjalasöfn og upplýsingastofnanir styðja fólk við að takast á við upplýsingar á ólíkum tímum og í mismunandi aðstæðum í lífinu. Rýnt er í hvernig reglur, stofnanamenning og fagleg hlutverk hafa áhrif á traust, þátttöku, ábyrgð og lýðræðislega ferla. Byggt er á þverfaglegum og norrænum rannsóknum til að skapa sameiginlegan hugmyndalegan grunn í bókasafns- og upplýsingafræði og skjala- og upplýsingaastjórnun. Markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir frekara nám og fagleg störf.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðUPP215FUpplýsingaleitir og stafræn miðlunSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið byggir á tveimur samofnum stoðum: upplýsingaleit og stafrænni miðlun. Annars vegar er fjallað um hvernig má nálgast, meta og nýta upplýsingar í síbreytilegu umhverfi, þar sem sérstök áhersla er lögð á hvernig nýta má gervigreind til að fínpússa leitir og vinna úr texta. Hins vegar er sjónum beint að stafrænum samskiptum og stefnumótun, þar sem notkun samfélagsmiðla við þekkingarmiðlun er í forgrunni. Markmiðið er að nemendur öðlist heildstæða færni í að finna áreiðanlegar upplýsingar og miðla þeim áfram til ólíkra hópa á skýran og ábyrgan hátt.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
UPP109FUpplýsingahegðun og upplýsingalæsi: Kenningar og rannsóknirSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingHvernig einstaklingar leita að, nota, miðla og skilja upplýsingar ræðst af því hverjir þeir eru, hvað þeir eru að gera og í hvaða aðstæðum þeir starfa. Kynntar eru helstu kenningar og rannsóknarhefðir í upplýsingafræði sem skýra upplýsingahegðun, upplýsingalæsi og stafrænt læsi, ásamt miðlun upplýsinga í fjölbreyttu félagslegu og tæknilegu samhengi. Námskeiðið veitir fræðilegan grunn til að skilja upplýsingavenjur í daglegu lífi, námi, starfi og samfélagsþátttöku. Fjallað er um hvernig upplýsingavenjur mótast af samfélaginu, tækninni sem við notum og þeim stofnunum sem við treystum og sérstök áhersla lögð á ójöfnuð, útilokun og stafræna gjá. Skoðað er hvernig mismunandi hópar mæta hindrunum í aðgangi að upplýsingum og notkun þeirra og hvernig stofnanir, tækni og milliliðir hafa áhrif á möguleika fólks til þátttöku og virkni. Námskeiðið styður nemendur í að túlka og beita fræðilegri þekkingu með því að byggja á klassískum og nýlegum rannsóknum í upplýsingafræði og gagnrýna nálgun á kenningar, líkön og rannsóknir.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
- forysta og stjórnun á ólíkum vinnustöðum
- gæða- og umbótaverkefni
- menningar- og bókmenntamiðlun
- skipulag og skráningu upplýsinga
- skipulagning opinna vísinda (opinn aðgangur og rannsóknargögn)
- stafræn upplýsingamiðlun
- stafvæðing gagna og upplýsinga
- upplýsingastjórnun á vinnustað
- vefstjórnun og upplýsingaarkitektúr
Listinn er ekki tæmandi
Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum sem er veitingastaður, kaffihús og skemmtistaður á neðstu hæð Háskólatorgs. Í stúdentakjallarnum er aðstaða fyrir tónleika, fundi og annað félagslíf nemenda og er opið frá morgni til kvölds alla daga vikunnar.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Nemenda- og kennsluþjónusta FVS
Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu.