Hópur nemenda gengur í átt að ljósmyndaranum
Tungumál kennslu
Íslenska og enska. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á markaðsmálum?
  • Langar þig að læra að skilja neytendur betur?
  • Viltu læra hvernig á að byggja upp sterk vörumerki?
  • Getur þú hugsað þér að starfa við markaðssetningu hérlendis eða erlendis?
  • Vilt þú læra að kafa dýpra í markaðsrannsóknir?

Námið miðar að því að nemendur öðlist djúpa og samþætta þekkingu á lykilsviðum markaðsfræðinnar, fræðilegum grunni hennar og nýjustu rannsóknum. Þeir skilji hvernig stefnumótun, virðissköpun, atferli neytenda, markaðssamskipti og vörumerkjastjórnun tengjast í samkeppnisumhverfi, og hafi þekkingu á helstu kenningum, líkönum og rannsóknaraðferðum.

Nemendur þróa með sér hæfni til að greina markaði og neytendahegðun með gagnadrifinni nálgun, safna og túlka gögn og setja fram rökstuddar tillögur að markaðsstefnu og samhæfðum markaðssamskiptum. Þeir geta byggt upp vörumerki með áherslu á langtíma virðissköpun og beitt innsýn í atferli til að móta hegðun neytenda.

Að námi loknu geta nemendur starfað sjálfstætt við flóknar og stefnumarkandi ákvarðanir, samþætt fræði og framkvæmd og unnið faglega í teymum.

Uppbygging náms

Námið samanstendur af:

  • 60 einingar í námskeiðum

Meðal viðfangsefna

  • Atferli neytenda
  • Stjórnun markaðsmála
  • Tengslamarkaðssetning
  • Vörumerkjastjórnun
  • Samhæfð markaðssamskipti
  • Sköpun virðis í stafrænu umhverfi

Fyrirkomulag kennslu

Gengið er út frá því að nemendur sýni strax í upphafi náms sjálfstæði í vinnubrögðum, skipuleggi vinnu sína og tíma og standi við þær tímaáætlanir sem námið setur þeim. 

Kennt er samkvæmt lotukerfi og er hver lota sjö vikur. Kennd eru tvö námskeið samhliða en boðið er upp á eitt kjarnanámskeið í hverri lotu. Lokapróf er almennt í áttundu viku.

Námið er kennt á íslensku en flestar fræðigreinar og kennslubækur eru á ensku.

Meginmarkmið

Námið miðar að því að nemandinn öðlist skilning á markaðsfræði og tileinki sér færni við framkvæmd faglegs markaðsstarfs.

Annað

Að loknu námi geta nemendur sótt um í MS nám í markaðsfræði.

BA eða BS gráða úr háskóla með 1. einkunn (7,25) og nemandi hafi lokið amk 12 ECTS í markaðsfræðigreinum. Nemendur sem ekki hafa lokið tilskyldum einingum í markaðsfræði sitja undirbúningsnámskeiðið VIÐ0ALF Lykilþættir markaðsfræðinnar í upphafi náms. Einingar þess námskeiðs teljast ekki til gráðu.

Ljúka þarf 60 ECTS einingum. Námið er samansett úr námskeiðum. Ekki er um að ræða lokaritgerð. Aðrar almennar námskröfur deildar gilda fyrir þessa námsleið.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Hagnýt tölfræði (VIÐ1ADF)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Haust
Lykilþættir markaðsfræðinnar (VIÐ0ALF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað þeim sem uppfylla ekki forkröfur í markaðsfræði á meistarastigi, um að hafa lokið að minnsta kosti 12 ECTS einingum í markaðsfræði í grunnnámi. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grundvallarþekkingu á markaðsfræði. Í því felst meðal annars að skilja kjarnahugtök markaðsfræðinnar, öðlast þekkingu á markaðshugsun og fá innsýn í hvað felst í faglegu markaðsstarfi.

Námskeiðið nýtist ekki til eininga í náminu og er eingöngu ætlað nemendum í markaðsfræði sem ekki hafa tilhlýðilegan grunn.

Athugð að ljúka þarf námskeiðinu áður en nám hefst í Markaðsfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Stefnumiðuð markaðsfærsla, sköpun virðis og tengsla (VIÐ1ACF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum góða fræðilega undirstöðu í markaðsfræði með áherslu á að draga fram mikilvægi faglegs markaðsstarfs fyrir árangur skipulagsheilda. Áhersla er á stefnumiðaða markaðsfærslu sem í grundvallaratriðum felur í sér markaðsgreiningu, markhópagreiningu, sköpun virðis og umsýslu tengsla við notendur vöru eða þjónustu. Áherslan er á markaðsgreiningu, miðað markaðsstarf, virðissköpun og tengsl. Verkefni námskeiðsins (hóp- og einstaklingsverkefni) tengjast þessum grundvallaratriðum og geta ýmist verið nokkur stutt viðfangsefni eða eitt umfangsmikið raunverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Haust
Hegðun neytenda og markaðsaðgerðir (VIÐ1AEF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Skilningur á hegðun neytenda er grundvallarforsenda árangurs í markaðsstarfi. Þekking á þörfum, löngunum og ákvörðunarferlum neytenda, sem og skilningur á því hvernig og hvers vegna þeir hugsa og hegða sér með tilteknum hætti, er lykilatriði við mótun markaðsaðgerða sem byggja á fræðilegri og gagnreyndri þekkingu á neytendahegðun. Slík þekking styður við þróun vara og þjónustu sem samræmast þörfum markhópa, auðveldar greiningu og val á markhópum og er forsenda markaðssamskipta sem eru viðeigandi, trúverðug og ná athygli neytenda. Í námskeiðinu fá nemendur þjálfun í að beita atferlisfræðilegri innsýn, byggðri á fræðilegum grunni, til að greina og skilja hegðun neytenda í markaðslegu samhengi. Jafnframt öðlast nemendur þekkingu á hvernig er hægt að hanna umhverfi og nýta það til að hafa áhrif á hegðun í gegnum valarkitektur (choice architecture) og milda hegðnarstýringu (nudging). Áhersla er lögð á gagnrýna nálgun og siðferðileg álitamál sem tengjast beitingu atferlisvísinda í markaðsstarfi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Vor
Eigindleg aðferðafræði (VIÐ2A4F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt í lotu III
Fyrsta ár | Vor
Lykilþættir markaðsfræðinnar (VIÐ0ALF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað þeim sem uppfylla ekki forkröfur í markaðsfræði á meistarastigi, um að hafa lokið að minnsta kosti 12 ECTS einingum í markaðsfræði í grunnnámi. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grundvallarþekkingu á markaðsfræði. Í því felst meðal annars að skilja kjarnahugtök markaðsfræðinnar, öðlast þekkingu á markaðshugsun og fá innsýn í hvað felst í faglegu markaðsstarfi.

Námskeiðið nýtist ekki til eininga í náminu og er eingöngu ætlað nemendum í markaðsfræði sem ekki hafa tilhlýðilegan grunn.

Athugð að ljúka þarf námskeiðinu áður en nám hefst í Markaðsfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Vörumerkjastjórnun (VIÐ2A2F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vörumerkjastjórnun (e. branding) er einn af þeim þáttum markaðsfræða sem vex hvað hraðast. Fræðasviðið er ungt og lifandi og ekki eru allir endilega á eitt sáttir um vænlegustu aðferðir til að byggja upp gott vörumerki. Í námskeiðinu verða kennd grundvallaratriði vörumerkjastjórnunar; einnig verða kynntar nýjustu áherslur á fræðasviðinu. Veitt verður innsýn í áhrif vörumerkja á daglegt líf neytenda sem og á rekstur fyrirtækja. Þá mun námskeiðið hvetja nemendur til að beita gagnrýninni hugsun um stefnur, tæki, og tól sem gagnast geta við að byggja upp vörumerki, viðhalda þeim og verja þau.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu III
Fyrsta ár | Vor
Markaðssamskipti á stafrænum tímum (VIÐ2A3F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

 Í nútíma markaðssetningu er ekkert skilrúm á milli hefðbundinna (offline) og stafrænna (online) miðla. Það sem skiptir máli er ferðalag viðskiptavinarins og hvernig miðlar eru samhæfðir á því ferðalagi. Í þessu námskeiði læra nemendur að skapa virði fyrir viðskiptavininn í gegnum samhæfða miðla. Þeir vinna með gögn til að greina hindranir og tækifæri og byggja upp stefnu sem ætlað er að skapa samkeppnisforskot. Námskeiðið sem er verkefna- og gagnadrifið leggur áherslu á að nemandinn taki ákvarðanir sem byggja á rannsóknum og fyrirliggjandi gögnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu IV
Fyrsta ár
  • Haust
  • VIÐ1ADF
    Hagnýt tölfræði
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • VIÐ0ALF
    Lykilþættir markaðsfræðinnar
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað þeim sem uppfylla ekki forkröfur í markaðsfræði á meistarastigi, um að hafa lokið að minnsta kosti 12 ECTS einingum í markaðsfræði í grunnnámi. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grundvallarþekkingu á markaðsfræði. Í því felst meðal annars að skilja kjarnahugtök markaðsfræðinnar, öðlast þekkingu á markaðshugsun og fá innsýn í hvað felst í faglegu markaðsstarfi.

    Námskeiðið nýtist ekki til eininga í náminu og er eingöngu ætlað nemendum í markaðsfræði sem ekki hafa tilhlýðilegan grunn.

    Athugð að ljúka þarf námskeiðinu áður en nám hefst í Markaðsfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • VIÐ1ACF
    Stefnumiðuð markaðsfærsla, sköpun virðis og tengsla
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum góða fræðilega undirstöðu í markaðsfræði með áherslu á að draga fram mikilvægi faglegs markaðsstarfs fyrir árangur skipulagsheilda. Áhersla er á stefnumiðaða markaðsfærslu sem í grundvallaratriðum felur í sér markaðsgreiningu, markhópagreiningu, sköpun virðis og umsýslu tengsla við notendur vöru eða þjónustu. Áherslan er á markaðsgreiningu, miðað markaðsstarf, virðissköpun og tengsl. Verkefni námskeiðsins (hóp- og einstaklingsverkefni) tengjast þessum grundvallaratriðum og geta ýmist verið nokkur stutt viðfangsefni eða eitt umfangsmikið raunverkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • VIÐ1AEF
    Hegðun neytenda og markaðsaðgerðir
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Skilningur á hegðun neytenda er grundvallarforsenda árangurs í markaðsstarfi. Þekking á þörfum, löngunum og ákvörðunarferlum neytenda, sem og skilningur á því hvernig og hvers vegna þeir hugsa og hegða sér með tilteknum hætti, er lykilatriði við mótun markaðsaðgerða sem byggja á fræðilegri og gagnreyndri þekkingu á neytendahegðun. Slík þekking styður við þróun vara og þjónustu sem samræmast þörfum markhópa, auðveldar greiningu og val á markhópum og er forsenda markaðssamskipta sem eru viðeigandi, trúverðug og ná athygli neytenda. Í námskeiðinu fá nemendur þjálfun í að beita atferlisfræðilegri innsýn, byggðri á fræðilegum grunni, til að greina og skilja hegðun neytenda í markaðslegu samhengi. Jafnframt öðlast nemendur þekkingu á hvernig er hægt að hanna umhverfi og nýta það til að hafa áhrif á hegðun í gegnum valarkitektur (choice architecture) og milda hegðnarstýringu (nudging). Áhersla er lögð á gagnrýna nálgun og siðferðileg álitamál sem tengjast beitingu atferlisvísinda í markaðsstarfi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
  • Vor
  • VIÐ2A4F
    Eigindleg aðferðafræði
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
  • VIÐ0ALF
    Lykilþættir markaðsfræðinnar
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað þeim sem uppfylla ekki forkröfur í markaðsfræði á meistarastigi, um að hafa lokið að minnsta kosti 12 ECTS einingum í markaðsfræði í grunnnámi. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist grundvallarþekkingu á markaðsfræði. Í því felst meðal annars að skilja kjarnahugtök markaðsfræðinnar, öðlast þekkingu á markaðshugsun og fá innsýn í hvað felst í faglegu markaðsstarfi.

    Námskeiðið nýtist ekki til eininga í náminu og er eingöngu ætlað nemendum í markaðsfræði sem ekki hafa tilhlýðilegan grunn.

    Athugð að ljúka þarf námskeiðinu áður en nám hefst í Markaðsfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • VIÐ2A2F
    Vörumerkjastjórnun
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vörumerkjastjórnun (e. branding) er einn af þeim þáttum markaðsfræða sem vex hvað hraðast. Fræðasviðið er ungt og lifandi og ekki eru allir endilega á eitt sáttir um vænlegustu aðferðir til að byggja upp gott vörumerki. Í námskeiðinu verða kennd grundvallaratriði vörumerkjastjórnunar; einnig verða kynntar nýjustu áherslur á fræðasviðinu. Veitt verður innsýn í áhrif vörumerkja á daglegt líf neytenda sem og á rekstur fyrirtækja. Þá mun námskeiðið hvetja nemendur til að beita gagnrýninni hugsun um stefnur, tæki, og tól sem gagnast geta við að byggja upp vörumerki, viðhalda þeim og verja þau.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
  • VIÐ2A3F
    Markaðssamskipti á stafrænum tímum
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

     Í nútíma markaðssetningu er ekkert skilrúm á milli hefðbundinna (offline) og stafrænna (online) miðla. Það sem skiptir máli er ferðalag viðskiptavinarins og hvernig miðlar eru samhæfðir á því ferðalagi. Í þessu námskeiði læra nemendur að skapa virði fyrir viðskiptavininn í gegnum samhæfða miðla. Þeir vinna með gögn til að greina hindranir og tækifæri og byggja upp stefnu sem ætlað er að skapa samkeppnisforskot. Námskeiðið sem er verkefna- og gagnadrifið leggur áherslu á að nemandinn taki ákvarðanir sem byggja á rannsóknum og fyrirliggjandi gögnum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

  • Þátttaka í faglegu markaðsstarfi, innanlands sem erlendis
  • Sérfræðistörf innan markaðsdeilda
  • Stjórnunarstörf í stórum sem smáum fyrirtækjum
  • Markaðsrannsóknir
  • Stjórnun vörumerkja
  • Auglýsingastofur

Listinn er ekki tæmandi.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Katla Hrund Karlsdóttir
Ég kláraði BS gráðu í sálfræði frá HÍ árið 2016. Mig langaði að nota þann grunn sem ég hafði í bland við markaðsfræði og fannst því tilvalið að taka meistaranám í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Háskóli Íslands varð aftur fyrir valinu, vegna þess að einstaklingar í mínu nærumhverfi voru flestir í þeim skóla og ég hafði góða reynslu af honum. Mér fannst mikill kostur við námið að fá reglulegar heimsóknir frá stjórnendum fyrirtækja og fá innsýn í hvernig hægt væri að nýta fræðin í ólíku vinnuumhverfi. Í náminu fékk ég góðan fræðilegan grunn sem nýtist vel í starfi mínu sem viðskiptastjóri hjá auglýsingastofu. Starfið er mjög fjölbreytt en þar má helst nefna stefnumótun, markaðsráðgjöf og útfærslu á heildrænum, samhæfðum markaðsherferðum. Eftir námið er ég öruggari og betur í stakk búin til að takast á við fjölbreytt krefjandi verkefni, halda fyrirlestra og margt fleira.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil