""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að styrkja forystu- og leiðtogafærni þína?
  • Finnst þér mikilvægt að stjórnendur séu vel að sér um nýjustu þekkingu á sviði forystu og stjórnunar?
  • Hefur þú áhuga á alþjóðlegu námi sem einnig hefur sterk tengsl við atvinnulífið?
  • Getur þú hugsað þér að sinna stjórnendastarfi?

Í meistaranámi í stjórnun og stefnumótun fara nemendur í gegnum helstu fræðilegar kenningar, hugtök og rannsóknir á sviði stefnumótunar, stjórnarhátta, forystu og breytingastjórnunar. Námið leggur áherslu á að nemendur skilji hvernig stefna, stjórnarhættir og breytingar tengjast frammistöðu, samkeppnishæfni og sjálfbærri þróun skipulagsheilda, og hvernig ytra og innra umhverfi, eignarhald, og skipulag móta stefnu og framkvæmd hennar. Einnig er fjallað um ólíkar aðstæður og nálganir í einkageira, opinberum geira og þriðja geira.

Áhersla er lögð á gagnrýna hugsun, gagnadrifna greiningu og hagnýtingu námsins. Nemendur læra að beita fræðilegum líkönum og greiningartólum við greiningar á skipulagsheildum, móta rökstudda valkosti að stefnu, stjórnarháttum og breytingum og miðla niðurstöðum á skýran og faglegan hátt í rituðu og mæltu máli. Aðferðafræðinámskeið veita markvissan undirbúning fyrir gagnaöflun, greiningu og upplýsta ákvarðanatöku, bæði við rannsóknir og í starfi.

Lagt er kapp á að námið sé góður undirbúningur fyrir hlutverk stjórnenda þar sem þarf að taka stefnumótandi ákvarðanir í flóknu og síbreytilegu umhverfi. Námið styrkir nemendur í sjálfstæðri, gagnrýninni dómgreind og býr þá undir að taka forystu í stefnumótun, innleiðingu stefnu og stjórnun breytinga í samstarfi við ólíka hagaðila.

Uppbygging náms

Námið skiptist í:

  • 60 einingar í námskeiðum
  • 30 eininga lokaverkefni

Kennslan miðar að því að nemendur öðlist bæði fræðilega dýpt og hagnýta færni: að geta greint stefnumótandi áskoranir með eigindlegum eða megindlegum gögnum, sett fram rökstudda valkosti og unnið markvisst að innleiðingu stefnu og breytinga.

Meðal viðfangsefna

  • Stefnumiðuð stjórnun
  • Stjórnarhættir
  • Forysta og breytingastjórnun
  • Skipulag skipulagsheilda
  • Nýsköpun
  • Þekkingastjórnun
  • Verkefnastjórnun
  • Árangursstjórnun

Fyrirkomulag kennslu

Gengið er út frá því að nemendur sýni sjálfstæði í vinnubrögðum, skipuleggi vinnu sína og standi við þær tímaáætlanir sem námið setur þeim.

Kennt er samkvæmt lotukerfi og er hver lota sjö vikur. Kennd eru tvö námskeið samhliða. Almennt er lokapróf er í áttundu viku.

Námið er kennt á íslensku en flest kennsluefni er á ensku.

    Meginmarkmið

    Námið miðar að því að nemendur:

    • byggi upp þekkingu á stefnumótun, stjórnarháttum, forystu og breytingastjórnun,
    • tileinki sér leikni í gagnrýninni, gagnadrifinni greiningu og mótun rökstuddrar stefnu,
    • þrói hæfni til að leiða stefnumótun og innleiðingu breytinga með faglegri ábyrgð og með hliðsjón af fjölbreytileika, inngildingu og samfélagslegri ábyrgð.

    Annað

    Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

    Forkröfur í námið er BA, B.Ed eða BS gráða úr háskóla. Almenna reglan er að umsækjendur hafi lokið grunnnámi með 1. einkunn (7,25). Nemendur eru valdir inn í námið með hliðsjón af fyrra námi og starfsreynslu. Nemendur sem ekki hafa lokið að lágmarki 36 einingum í viðskiptafræði eða skyldum greinum í grunnnámi þurfa við upphaf námsins að ljúka undirbúningsnámskeiðinu VIÐ155M Inngangur að rekstri, námskeiðið er ekki til gráðu. Af þessum 36 einingum skulu að lágmarki 24 einingar vera í eftirfarandi greinum eða sambærilegum: Fjármál, Inngangur að fjárhagsbókhaldi, Rekstrarhagfræði, Aðferðafræði, Inngang að mannauðsstjórnun, Inngang að stjórnun, Inngangur að markaðsfræði, Inngang að verkefnastjórnun, UI – Tölvunotkun og töflureiknir, Lögfræði.

    Ljúka þarf 120 ECTS einingum, þar af 90 einingar í námskeiðum, auk 30 eininga MS-ritgerðar.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit
    • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Fyrsta ár | Haust
    Hagnýt tölfræði (VIÐ1ADF)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu II
    Fyrsta ár | Haust
    Stjórnarhættir (VIÐ198F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir fræðilegan og hagnýtan skilning á stjórnarhætti og tengsl þeirra við frammistöðu fyrirtækja. Í námskeiðinu öðlast nemendur hæfni til að bera kennsl á, greina og túlka flókin álitaefni tengd stjórnarháttum, meta hvernig stjórnarhættir móta hegðun stjórna og æðstu stjórnenda og greina með gagnrýnum hætti hvernig ólíkt skipulag stjórnarhátta er líklegt til að hafa áhrif á frammistöðu þeirra og samkeppnisstöðu. Námskeiðið kynnir helstu fræðilegu kenningar og rannsóknir á sviði stjórnarhátta og leggur áherslu á greiningu á því hvernig ólík kerfi stjórnarhátta, þar á meðal ólíkt eignarhald, ólíkt skipulag fyrirtækja og starfshættir stjórna, lagalegt og stofnanalegt umhverfi, sem og hvata- og umbunarkerfi stjórnenda, geta stuðlað að lausn umboðsvanda. Tengsl eru mótuð við stefnumótun fyrirtækja, breytingastjórnun og innleiðingu stefnu. 

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu II
    Fyrsta ár | Haust
    Starf stjórnandans, forysta og samskipti (VIÐ182F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í forgrunni námskeiðsins er starf stjórnandans, á öllum stjórnstigum, eðli þess og áskoranir. Starfsmannamál sem og samskiptaþátturinn er í brennipunkti og rauður þráður í öllum viðfangsefnum eða þáttum námskeiðsins. Forystuhlutverk stjórnandans er sérstaklega til skoðunar. Það er sett í samhengi við stjórnun mannauðsmála almennt og tengt við að stjórna starfsfólki í umbótaverkefnum og róttækum breytingum. Forysta er einnig skoðuð í tengslum við árangursríka teymisvinnu og aðferðir við að leysa og höndla ágreining og erfið starfsmannamál.

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpa þekkingu á merkingu lykilhugtaka og góðan skilning á kenningarlegum viðmiðum, aðferðum og mögulegum leiðum stjórandans til að sinna starfinu með árangursríkum hætti. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir með það að markmiði að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku nemenda.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
    Fyrsta ár | Haust
    Inngangur að rekstri (VIÐ155M)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með námskeiðinu er að gefa nemendum breiða og haldgóða innsýn í þau fyrirbæri, lögmál og kenningar sem viðskiptafræðingum nauðsynlegt er að þekkja við rekstur bæði fyrirtækja og stofnana.

    Námskeiðið byggist upp af fimm efnisþáttum:
    • fjármál
    • lögfræði
    • rekstrarhagfræði
    • reikningshald
    • þjóðhagfræði

    Fyrirkomulag:
    Námskeiðið Inngangur að rekstri er í boði tvisvar á ári og eiga nemendur að ljúka því á fyrsta ári náms síns. Annars vegar í ágúst og hins vegar í janúar. Nemendur sem hefja nám að hausti gera best í því að ljúka námskeiðinu í ágúst, en hafa þó möguleika á að ljúka því í janúar. Nemendur sem hefja nám í janúar skulu ljúka námskeiðinu í janúar en geta þó einnig tekið það í ágúst.
    Námskeiðið opnar 1. hvors mánaðar og lokar þann 31. Allt námsefni verður aðgengilegt frá þeim 1. 

    Námskeiðið nýtist ekki til eininga í meistaranáminu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Vor
    Eigindleg aðferðafræði (VIÐ2A4F)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
    Fyrsta ár | Vor
    Breytingastjórnun og innleiðing stefnu (VIÐ2A5F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði breytingastjórnunar, s.s. innleiðingu breytinga, viðbrögð starfsmanna, helstu hindranir í vegi breytinga ásamt þeim hamlandi og hvetjandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu. Farið verður ítarlega í kenningar og aðferðir sem breytingastjórnun byggir á og ræddar verða algengustu lausnir og aðferðir í stjórnun breytinga. Rætt verður um hlutverk leiðtoga, stjórnenda almennt og milli stjórnenda í breytingum sem og krísustjórnun. Fjallað verður einnig um fyrirtækjamenningu og hvers vegna hún er mikilvægur þáttur í breytingaferlinu. Námskeiðið fjallar um breytingastjórnun sem lykilþátt í stefnumiðaðri stjórnun og stjórnarháttum fyrirtækja. Áhersla er lögð á helstu kenningar, líkön og aðferðir breytingastjórnunar og hvernig þau tengjast mótun stefnu, innleiðingu stefnu og eftirfylgni í skipulagsheildum. Nemendur öðlast hæfni til að greina og meta breytingaferli í ljósi skipulags, framkvæmdar og mannlegra þátta, þar á meðal viðbragða starfsmanna, fyrirtækjamenningar og hvetjandi og hamlandi krafta sem hafa áhrif á árangur breytinga. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk leiðtoga, stjórnenda og stjórna fyrirtækja, ábyrgð þeirra á stefnumótandi forystu, góðum stjórnarháttum og trúverðugri innleiðingu breytinga. Í námskeiðinu vinna nemendur með raunveruleg dæmi og tilfellarannsóknir, þar sem þeir beita viðurkenndum verkfærum breytingastjórnunar til að umbreyta stefnumótandi ákvörðunum í raunhæfar aðgerðir og skipulagslegar breytingar. Einnig er fjallað um krísustjórnun og hvernig bregðast megi við óvæntum áföllum á stefnumiðaðan og skipulagðan hátt. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, einstaklings- og hópverkefnum, og miðar að því að styðja gagnrýna hugsun, hagnýta færni og sjálfstæða greiningu. Námskeiðið gerir ráð fyrir virkri þátttöku nemenda og að þeir tengi fræðileg viðmið við raunverulegar áskoranir í stjórnun breytinga, með það að markmiði að móta heildstæða og raunhæfa nálgun að breytingastjórnun í flóknu og síbreytilegu rekstrarumhverfi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu IV

    Stefnumiðuð stjórnun (VIÐ265F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og umræðu um kennsluefnið að nemendur tileinki sér þekkingu á stefnumótun og stefnumiðaðri stjórnun af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda á þessu sviði. Í námskeiðinu er horft á stefnumiðaða stjórnun út frá nokkrum sjónarhólum og út frá mismunandi gerðum fyrirtækja. Farið er vel í stöðumat og greiningu á ytra og innra umhverfi, rýnt í mótun stefnu og framvindu stefnumiðaðs starfs í reynd. Kafað er í stefnu út frá m.a. nýsköpun, samrunum, samstarfi, völdum og hagsmunabaráttu. Kennslan tekur mið af því að nám er ferli til að bæta kunnáttu þar sem saman fer inntak námskeiðsins, samhengi þess og framvinda lærdóms. Allt starf í námskeiðinu miðast að því að nemendur nái sem bestum árangri – en námsárangurinn veltur að sjálfsögðu á virkni og ástundun nemandans.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu III
    Annað ár | Óháð misseri
    MS-ritgerð (SSM431L, SSM431L, SSM431L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0/0/0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar.

    Ritgerðin skal vera 30 einingar og kynna nemendur niðurstöður rannsókna sinna.

    Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

    Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
    Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

    Umsókn um lokun meistararitgerða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Annað ár | Óháð misseri
    MS ritgerð (SSM431L, SSM431L, SSM431L)

    Fyrsta ár
    • Haust
    • VIÐ1ADF
      Hagnýt tölfræði
      Bundið valnámskeið
      7,5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • VIÐ198F
      Stjórnarhættir
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið veitir fræðilegan og hagnýtan skilning á stjórnarhætti og tengsl þeirra við frammistöðu fyrirtækja. Í námskeiðinu öðlast nemendur hæfni til að bera kennsl á, greina og túlka flókin álitaefni tengd stjórnarháttum, meta hvernig stjórnarhættir móta hegðun stjórna og æðstu stjórnenda og greina með gagnrýnum hætti hvernig ólíkt skipulag stjórnarhátta er líklegt til að hafa áhrif á frammistöðu þeirra og samkeppnisstöðu. Námskeiðið kynnir helstu fræðilegu kenningar og rannsóknir á sviði stjórnarhátta og leggur áherslu á greiningu á því hvernig ólík kerfi stjórnarhátta, þar á meðal ólíkt eignarhald, ólíkt skipulag fyrirtækja og starfshættir stjórna, lagalegt og stofnanalegt umhverfi, sem og hvata- og umbunarkerfi stjórnenda, geta stuðlað að lausn umboðsvanda. Tengsl eru mótuð við stefnumótun fyrirtækja, breytingastjórnun og innleiðingu stefnu. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • VIÐ182F
      Starf stjórnandans, forysta og samskipti
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í forgrunni námskeiðsins er starf stjórnandans, á öllum stjórnstigum, eðli þess og áskoranir. Starfsmannamál sem og samskiptaþátturinn er í brennipunkti og rauður þráður í öllum viðfangsefnum eða þáttum námskeiðsins. Forystuhlutverk stjórnandans er sérstaklega til skoðunar. Það er sett í samhengi við stjórnun mannauðsmála almennt og tengt við að stjórna starfsfólki í umbótaverkefnum og róttækum breytingum. Forysta er einnig skoðuð í tengslum við árangursríka teymisvinnu og aðferðir við að leysa og höndla ágreining og erfið starfsmannamál.

      Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpa þekkingu á merkingu lykilhugtaka og góðan skilning á kenningarlegum viðmiðum, aðferðum og mögulegum leiðum stjórandans til að sinna starfinu með árangursríkum hætti. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir með það að markmiði að ýta undir áhuga, virkni og þátttöku nemenda.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • VIÐ155M
      Inngangur að rekstri
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmiðið með námskeiðinu er að gefa nemendum breiða og haldgóða innsýn í þau fyrirbæri, lögmál og kenningar sem viðskiptafræðingum nauðsynlegt er að þekkja við rekstur bæði fyrirtækja og stofnana.

      Námskeiðið byggist upp af fimm efnisþáttum:
      • fjármál
      • lögfræði
      • rekstrarhagfræði
      • reikningshald
      • þjóðhagfræði

      Fyrirkomulag:
      Námskeiðið Inngangur að rekstri er í boði tvisvar á ári og eiga nemendur að ljúka því á fyrsta ári náms síns. Annars vegar í ágúst og hins vegar í janúar. Nemendur sem hefja nám að hausti gera best í því að ljúka námskeiðinu í ágúst, en hafa þó möguleika á að ljúka því í janúar. Nemendur sem hefja nám í janúar skulu ljúka námskeiðinu í janúar en geta þó einnig tekið það í ágúst.
      Námskeiðið opnar 1. hvors mánaðar og lokar þann 31. Allt námsefni verður aðgengilegt frá þeim 1. 

      Námskeiðið nýtist ekki til eininga í meistaranáminu.

      Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Vor
    • VIÐ2A4F
      Eigindleg aðferðafræði
      Bundið valnámskeið
      7,5
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir eigindlegar aðferðir, sem notaðar eru til að safna og greina gögn um einstaklinga og skipulagsheildir. Nemendur munu fá þjálfun í að skilgreininga vandamál og semja rannsóknarspurningu. Þá munu nemendur skipuleggja og framkvæma gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og greina frá niðurstöðum skriflega. Nemendur munu kynnast veikum og sterkum hliðum  mismunandi aðferða innan eigindlegra rannsóknaraðferða, þannig að þeir geti valið þá aðferð, sem best hentar til að leysa tiltekið vandamál.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • VIÐ2A5F
      Breytingastjórnun og innleiðing stefnu

    • VIÐ265F
      Stefnumiðuð stjórnun
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið miðar að því gegnum fyrirlestra og umræðu um kennsluefnið að nemendur tileinki sér þekkingu á stefnumótun og stefnumiðaðri stjórnun af hinum fjölbreytta fræðilega grunni sem til er í faginu. Gegnum vinnu með dæmisögur og íslensk raundæmi er markvisst ýtt undir leikni og hæfni nemenda á þessu sviði. Í námskeiðinu er horft á stefnumiðaða stjórnun út frá nokkrum sjónarhólum og út frá mismunandi gerðum fyrirtækja. Farið er vel í stöðumat og greiningu á ytra og innra umhverfi, rýnt í mótun stefnu og framvindu stefnumiðaðs starfs í reynd. Kafað er í stefnu út frá m.a. nýsköpun, samrunum, samstarfi, völdum og hagsmunabaráttu. Kennslan tekur mið af því að nám er ferli til að bæta kunnáttu þar sem saman fer inntak námskeiðsins, samhengi þess og framvinda lærdóms. Allt starf í námskeiðinu miðast að því að nemendur nái sem bestum árangri – en námsárangurinn veltur að sjálfsögðu á virkni og ástundun nemandans.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • Óháð misseri
    • SSM431L, SSM431L, SSM431L
      MS-ritgerð
      Skyldunámskeið
      0/0/0

      MS ritgerð

    Annað ár

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Útskrifaðir nemendur geta leitt mótun og innleiðingu stefnu , ásamt breytingar í einkageira, opinberum geira og þriðja geira.

    Möguleg störf að námi loknu:

    • Stjórnendur
    • Sérfræðingar
    • Forstjórar
    • Framkvæmdastjórar
    • Stefnustjórar
    • Teymisstjórar
    • Rágjafar

    Listinn er ekki tæmandi.

    • MAESTRO er félag meistaranema við viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands.
    • Hlutverk og tilgangur félagsins er að vera umhverfisvænt hagsmunafélag með það að meginmarkmiði að gera nám félagsmanna ánægjulegra og árangursríkara. Er það gert með því að vernda hagsmuni félagsmanna, veita gagnlegar upplýsingar, vera í góðu samstarfi við skólann og heimadeildir ásamt því að stuðla að og efla tengsl milli nemenda.
    • Facebook síða MAESTRO

    Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

    Umsagnir nemenda
    Jana Katrín Knútsdóttir
    Það voru nokkrar ástæður fyrir því að ég valdi meistaranám við Háskóla Íslands. Í fyrsta lagi er nám úr HÍ mikils metið á vinnumarkaði. Námsleiðirnar sem eru í boði eru fjölbreyttar og áhugaverðar og höfðuðu til mín. Svo er Háskóli Íslands ríkisrekinn og námið er tiltölulega ódýrt. Kennslan var bæði fjölbreytt og skemmtileg, hún krafðist undirbúnings og þátttöku í tímum og það voru farnar nýjar leiðir í kennslunni til að höfða til sem flestra. Það komu oft gestafyrirlesarar til okkar út atvinnulífinu og sögðu okkur sína sögu og svo vorum við líka hvött til þess að fara út í atvinnulífið í verkefnavinnunni, út á vinnumarkaðinn og inn í fyrirtæki. Námið nýtist mér mjög vel í starfi í dag, ég fékk vinnu hjá draumafyrirtækinu mínu. Hér gegni ég stöðu sölu- og markaðsstjóra á heilbrigðissviði og viðskiptafræðimenntun mín og grunnmenntun í hjúkrunarfræði nýtast mér mjög vel.
    Ljósmynd af Vilborgu Einarsdóttur
    Námið hefur nýst mér mjög vel, ég fór í stjórnun og stefnumótun og það kemur beint inn í það verkefni sem ég hef verið að vinna að síðustu ár, sem er að byggja upp fyrirtæki á alþjóðlegum markaði á sviði menntatækni. Það er ekki bara að maður læri af kennurunum heldur snýst þetta líka um það að læra í verkefnavinnu. Við erum búin að halda sambandi ákveðinn kjarni síðan í náminu og hittumst reglulega og það er gríðarlegur styrkur og ég er enn að læra.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil