""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á reiknishaldi, fjármálum eða innri endurskoðun?
  • Vilt þú fara í nám sem gefur góða atvinnumöguleika?
  • Hefur þú áhuga á að öðlast hagnýta starfsþekkingu?

Meistaranám í reikningsskilum og endurskoðun er afar hagnýtt nám og lýkur með prófgráðunni  MS í reikningsskilum og endurskoðun (MS in Accounting and Auditing).

Uppbygging námsins miðar að því að búa nemendur undir að sinna krefjandi og flóknum störfum á sviði reikningsskila og endurskoðunar en krafan um slíka menntun hefur aukist mikið hjá fyrirtækjum sem meðal annars hafa skráð hlutabréf og/eða skuldabréf á verðbréfamarkaði. Einnig má nefna störf við innri endurskoðun, áætlanadeild, áhættustýring, innra eftirlit og fleira.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

90 einingar í skyldunámskeiðum, samtals 12 námskeið sem skiptast á eftirfarandi hátt:

  • námskeið tengd endurskoðun
  • námskeið tengd reikningsskilum
  • námskeið tengd lagaumhverfi

30 eininga lokaverkefni, unnið í samvinnu tveggja nemenda.

Meðal viðfangsefna

  • Sjálfvirkni og gervigreind í endurskoðun
  • Endurskoðun og umhverfi
  • Endurskoðunarferli
  • Gangvirðisreikningsskil
  • Félaga- og skuldaskilaréttur
  • Stjórnsýsluendurskoðun og opinber fjármál
  • Virðisgreining, fjármögnun og rekstrarhæfi

Fyrirkomulag kennslu

Kennt er samkvæmt lotukerfi og er hver lota sjö vikur. Kennd eru tvö námskeið samhliða. Almennt lokapróf er í áttundu viku.

Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.

Námið er skipulagt sem staðnám en nemendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta óskað eftir því að sækja fyrirlestra í beinu streymi á Zoom.

    Meginmarkmið

    Markmið með náminu er að auka þekkingu og færni nemenda á sviði reikningsskila og endurskoðunar og er náminu ætlað að mæta mikilli þörf á sérþekkingu á þessu sviði.

    Annað

    Einnig er boðið upp á  90 eininga meistaranám án ritgerðar. Nemendur á þessari námsleið útskrifast með M.Acc gráðu. 

    Að námi loknu fá nemendur starfsréttindi sem endurskoðunarnemi á endurskoðunarskrifstofu. Meistaranámið í reikningsskilum og endurskoðun ásamt tilskilinni starfsreynslu veitir rétt til þess að þreyta próf til löggildingar í endurskoðun, en það próf er í umsjón Endurskoðendaráðs.

    Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

    Til að fá inngöngu í námið þurfa umsækjendur hafa lokið BS gráðu í viðskiptafræði með fyrstu einkunn (7,25) og lokið ákveðnum BS námskeiðum í faginu.   Meistaranám í Reikningskilum og endurskoðun byggir á því að umsækjendur hafi lokið reikningshaldslínu í BS námi og þannig öðlast ákveðna undirstöðu í faginu og grunn að sérhæfingu, eða búi yfir víðtækri starfsreynslu á sviði reikningshalds, skattskila og fjármála, sem fylgja þarf umsókn. Umsækjendur með BS gráðu í viðskiptafræði bera sjálf ábyrgð á því að grunnhæfni sé til staðar þegar námið hefst en verða að hafa lokið að lágmarki VIÐ401G Reikningsskilum.

    Þau sem hafa háskólagráðu úr öðrum greinum geta sótt um  námið en gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið til viðbótar eftirfarandi BS námskeiðum í viðskiptafræði: 

    • VIÐ103G Inngangur að fjárhagsbókhaldi 
    • VIÐ302G Lögfræði A
    • VIÐ 301G Fjármál I

    Möguleiki er fyrir umsækjendur með víðtæka starfsreynslu í bókhaldi að fá metið námskeiðið VIÐ103G Inngang að fjárhagsbókhaldi.

    Umsækjendur sem ekki hafa lokið VIÐ505M Ársreikningagerð A, VIÐ604M Ársreikningagerð B eða VIÐ403M Fyrirtækjaskattarétt í grunnnámi þurfa að taka þau námskeið sem bundin valnámskeið.

    Í boði eru valnámskeið þar sem nemendum gefst tækifæri á að  velja meistaranámskeið eftir áhugasviði, bæði innan Viðskiptafræðideildar eða öðrum deildum háskólans með samþykki umsjónarmanns. Nemendum sem stefna á löggildingu til endurskoðunar er sérstaklega bent á að velja sér eftirfarandi valnámskeið: Stjórnsýsluendurskoðun og opinber fjármál , Árangur verkefna og eftirlit og Virðismat fyrirtækja.

    Ljúka þarf 120 ECTS einingum og þurfa nemendur að hafa staðist 12 námskeið sem eru 7,5 ECTS einingar hvert og ljúka við 30 ECTS eininga meistararitgerð. Námið tekur tvö ár eða fjögur misseri.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit
    • Kynningarbréf/hvers vegna velur þú þetta nám
    • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Fyrsta ár | Haust
    Ársreikningagerð A (VIÐ505M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fjármála- eða reikningshaldskjörsviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á atriðum sem stjórnendur fyrirtækja þurfa að tileinka sér til að geta lagt fram ársreikning samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur í reikningshaldi sem gilda samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og ákvæðum íslenskra laga. Farið verður yfir: formkröfur reikningsskila, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Meðferð tekna og kostnaðar, meðhöndlun birgða, viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, óefnislegar eignir, tekjuskatt, virðisrýrnunarpróf, bókun áhættufjármuna og skulda, skammtímaskuldir, langtímalán og eiginfjárliði. Verkefni verða lögð fyrir.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Haust
    Félaga- og skuldaskilaréttur (VIÐ121F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um viðfangsefni og réttarheimildir félagaréttar. Farið verður yfir mismunandi flokka félaga og mismunandi sjónarmið við úrlausn álitaefna. Gerð verður grein fyrir einkennum helstu tegunda fjárhagslegra félaga. Til umfjöllunar verður m.a. fjárhagslegur grundvöllur þeirra og reglur sem lúta að stöðu viðsemjenda þeirra, stjórnkerfi, ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda og réttarstöðu félagsmanna. Meginefni námskeiðsins snertir einkahlutafélög og hlutafélög og þau grundvallaratriði sem leiða af takmarkaðri ábyrgð eigenda þeirra, þ.e. um vernd fjármuna þessara félaga. Er þar um að ræða reglur um innborgun hlutafjár, skráningu hlutafjár, hækkun og lækkun hlutafjár, eigin hluti og reglur um útgreiðslu fjár með arði eða við slit félaga. Rætt verður um samruna og skiptingu hlutafélaga og þær reglur sem uppfylla þarf í því sambandi. Þá verður rætt um greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrotaskipti félaga. Einnig verður fjallað um hlutverk endurskoðenda í tengslum við störf þeirra fyrir félög.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu I
    Fyrsta ár | Haust
    Endurskoðunarferli I (VIÐ1A4F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynntar verða aðferðir við gagnaöflun endurskoðenda og hvernig endurskoðun tekur mið af áhættugreiningu og hagkvæmni. Fjallað verður sérstaklega um notkun tölvukerfa við endurskoðun. Við yfirferð námsefnis verða alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafðir til hliðsjónar, og rætt um gildi þeirra fyrir íslenskt umhverfi. Námsefni verður bókin Auditing & Assurance Services höfundar Aasmund Eilifsen o.fl, alþjóðlegir staðlar um endurskoðun, greinar og önnur gögn sem kynnt verða á námskeiðinu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
    Fyrsta ár | Haust
    Endurskoðun og úttekt á upplýsingakerfum (VIÐ1A3F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið í grundvallarhugtök fjárhagsupplýsingakerfa (AIS). Farið er yfir viðskiptaferla, uppbyggingu og hlutverk fjárhagsupplýsingakerfa. Farið verður í kerfisþróun og skjölunaraðferðir. Fjallað verður um tölvusvik og misnotkun upplýsingakerfa. Farið verður yfir upplýsingaöryggi, vinnureglur og alþjóðlega staðla, aðgengi, stýringar og aðgerðir til að stuðla að auknu öryggi viðkvæmra upplýsinga. Farið verður yfir eðli endurskoðunar og endurskoðunarkerfi kynnt. Farið verður yfir helstu ferli fyrirtækja s.s. tekju,-gjalda,-og framleiðsluferli og þau sýnd í gagnaflæðiskorti. Farið verður yfir kerfisþróunarferlið og aðferðir í kerfisþróun. Endurskoðun með notkun tölvukerfa (IT audit) hefur aukist mikið sl. áratug og mörg tölvukerfi hafa litið dagsins ljós,
    t.d. Standadfusion og Adaptive GRC. Farið verður yfir hvernig notkun upplýsingakerfa hefur áhrif á verklag í endurskoðun og fjallað verður um hvernig notkun gervigreindar getur haft áhrif á áhættumat og mat á virkni eftirlitsaðgerða í samtíma. Að lokum verður fjallað um kerfishönnun, innleiðingu og rekstur upplýsingakerfa. Nemendur skila einu skylduhópverkefni. Leitast verður eftir að kynna fyrir nemendum helstu fjárhagsupplýsingakerfi sem í notkun eru á markaðnum. Verkefnið byggist bæði á kennsluefni og því efni er fram kemur í fyrirlestrunum.
     
    Farið er í grunnhugtökin og kenningarnar varðandi ADA (Audit Data Analytics). Einnig verða ADA-staðlar kynntir (Audit Data Standards). Skoðað hvernig hægt er að nota gagnagreiningar til að gera sjálfvirka úttektaraðgerðir sem venjulega eru gerðar handvirkt. Kynning á ISO PC 295 Audit Data Collection m.t.t. endurskoðunar. 

    Farið verður í fræðilega uppbyggingu fyrirtækja er snertir stjórnunarkerfi (Management Systems) og eftirlitskerfi (Control Systems). Einnig mismunandi tegundir af ábyrgðareiningum (deildum, sviðum, rekstrareiningum.) 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu I
    Fyrsta ár | Vor
    Fyrirtækjaskattaréttur (VIÐ403M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir helstu lög sem snerta atvinnurekstur í landinu. Gerð verður grein fyrir skattlagningu hinna ólíku rekstrarforma, hvaða reglur gilda um skattlagningu við stofnun fyrirtækis, meðan á rekstri stendur og við lok starfsemi. Fjallað verður um skattfrjálsa umbreytingu einstakra fyrirtækjaforma, samsköttun fyrirtækja í rekstri og uppgjör til skatts í erlendum gjaldeyri. Rætt verður um helstu auðkenni skattasniðgöngu og muninn á henni og skattaskipulagningu. Þá verður ítarlega farið yfir lög um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Reynt verður að efla sjálfstæði nemanda með úrslausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi staðgóða þekkingu á meginreglum íslenskra laga um skattlagningu fyrirtækja.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Vor
    Ársreikningagerð B (VIÐ604M)
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu Ársreikningagerð A, sem kennt er á haustmisseri. Reiknað er með að nemendum þessa námskeiðs sé fullkunnugt efni fyrra námskeiðsins.
    Í námskeiðinu verður fjallað um gildandi reglur í reikningshaldi samkvæmt IFRS og ákvæðum íslenskra laga. Umfjöllunarefni:  sjóðstreymi, tekjuskattur, hagnaður á hlut, fjármálagerningar, tekjuskráning, skuldbindingar, fjármögnunarleigusamningar, fastafjármunir til sölu og aflagður rekstur, fjárfestingaeignir, skuldbindingar, upplýsingar í ársreikningi og tengdir aðilar.

    Verkefni verða lögð fyrir og er skilaskylda á þeim.
    Áskilinn réttur til breytingar á námskeiðslýsingu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Vor
    Alþjóðlegur skattaréttur og milliverðlagning (VIÐ296F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir reglur innlendra laga og alþjóða samninga um gerð og túlkun tvísköttunarsamninga. Fjallað verður um fulla skattskyldu manna og fyrirtækja vegna heimilisfestar í ríki og upphafningu hennar í öðru hvoru aðildarríkja tvísköttunarsamnings ef maður eða fyrirtæki er samtímis heimilisfast í tveimur eða fleiri löndum. Gerð verður grein fyrir reglum um takmarkaða skattskyldu og skiptingu skattlagningarréttar milli aðildarríkja tvísköttunarsamnings. Rætt verður um aðferðir til að milda tvískattlagningu samkvæmt innlendum rétti og tvísköttunarsamningi þegar tekjur eru skattlagðar í tveimur eða fleiri löndum. Farið verður yfir það hvernig unnt er að nota tvísköttunarsamninga við skattaskipulagningu með stofnun fyrirtækja í ólíkum löndum. Upplýst verður um áhrif EBE- eða ESS-samningsins á skattalög einstakra ríkja, skaðlega skattasamkeppni og hvað gert hefur verið til að uppræta hana. Nemendur verða þjálfaðir í notkun tvísköttunarsamninga með úrlausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi góða innsýn í það flókna kerfi sem innlendur réttur og tvísköttunarsamningar geta spunnið um fjárhagsráðstafanir manna og fyrirtækja í nútíma þjóðfélagi.

    Aðferðir við milliverðlagningu (Transfer-Pricing Methods) ráð oft því hvað hagnaðurinn og kostnaðurinn lendir. MVL er mikilvægur þáttur í alþjóðavæðingu, en um MVL gilda reglur heimalands og einnig útgefnar reglur OECD. MVL er nátengt skattalögum í viðkomandi landi. Reglur vegna MVL eru skoðaðar og áhrif þeirra eru greind.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu III
    Fyrsta ár | Vor
    Sjálfvirkni, fjártækni og stjórnunarreikningsskil (VIÐ293F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í grunnhugtökin og kenningarnar um sjálfvirknivæðingu og RPA (Robotic Process Automation Projects). Sérstaklega er skoðað hvernig eigi að bera kennsl á ferla/verkefni í rekstri, bókhaldi og endurskoðun sem hægt er að gera sjálfvirk með RPA 
    Farið í hugtök og grunnatriði er varða fjártækni (Fin. tech.). Þróun og aðstæður á markaði kynntar sem og rafmyntir. Endurskoðunar áhætta skoðuð sérstaklega m.t.t. fjártækni.

    Farið verður í hugtök er tengjast stjórnunarreikningsskilum (Management Cost Accounting). Mikilvægi stjórnunarreikningsskila hefur aukist vegna aukins flækjustigs við kostnaðarúthlutun og áreiðanleika kostnaðar. Fjárhagslegar skýrslur byggja á kostnaðarbókhaldi og er því grunnur fyrir áreiðanlegum reikningsskilum, t.d. ársreikningi. Samhliða þessu eru stjórnunar- og eftirlitskerfi skoðuð í samhengi við stjórnunarreikningsskil.   

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu IV
    Annað ár | Haust
    Sjálfbærni og endurskoðunarstaðlar (VIÐ303F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um reikningsskilafræði, aðferðafræði og siðfræði. 
    Reikningsskilafræði, verður m.a. fjallað um: 1) staðlagerð í ársreikningagerð, 2) hugtakakerfi fyrir reikningshald, 3) þróun reikningsskila, 4) afkomuhugtök reikningshalds, 5) alþjóðleg reikningsskil, og 6) ýmis sérstök vandamál við gerð reikningsskila.
     
    Aðferðafræði, verður m.a. fjallað um: eigindlegar aðferðafræði, meginlega aðferðafræði, þýði, gagnaöflun, kví kvaðrat, framsetning og uppbygging ritgerða o.fl.
    Siðfræði og heiðarleiki er tengist vinnu við lokaritgerð og grunnhugtökum þess.  

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu I
    Annað ár | Haust
    Samstæðureikningsskil (VIÐ177F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er fyrst og fremst fjallað um gerð samstæðureikningsskila og reikningshaldslegar hliðar á sameiningu og samruna fyrirtækja. Auk þess er fjallað um eftirtalin viðfangsefni reikningshalds: uppgjör sameignarfélaga, vörubirgðir, viðskipakröfur, viðskiptavild, bókun umboðsviðskipta, bókun erlendra viðskipta og umbreytingu ársreikninga úr einum gjaldmiðli í annan, gjaldþrotauppgjör, og reikningsskil sveitarfélaga og annarra aðila, sem ekki eru reknir í hagnaðarskyni. Verkefni. Skilaskylda. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
    Annað ár | Haust
    Endurskoðunarferli II (VIÐ305F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er í beinu framhaldi af Endurskoðunarferli I. Fjallað verður sérstaklega um notkun tölvukerfa við endurskoðun. Við yfirferð námsefnis verða alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafðir til hliðsjónar og rætt um gildi þeirra fyrir íslenskt umhverfi. Kynntar verða aðferðir við gagnaöflun endurskoðenda og hvernig endurskoðun tekur mið af áhættugreiningu. Fjallað verður sérstaklega um notkun tölvukerfa við endurskoðun. Fjallað verður um hlutverk endurskoðenda og störf þeirra í samræmi við ákvæði laga og alþjóðlegra endurskoðunarstaðla sem og mikilvægi endurskoðunar fyrir samfélagið.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu I
    Annað ár | Haust
    Gangvirðisreikningsskil (VIÐ304F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið með námskeiðinu er að nemendur öðlist betri þekkingu og skilning á helstu atriðum er varða greiningu á ársreikningum sem gerðir eru í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Sérstök áhersla verður lögð á gangvirðisreikningsskil og þá helst færslu fjármálagerninga, ss. hlutabréfa, skuldabréfa og afleiðusamninga. Þá verður farið yfir reglur um  virðisrýrnun fjáreigna og annarra eigna. Þá verður einnig gerð grein fyrir helstu kröfum IFRS staðla er varðar færslu rekstrarfjármuna á gangvirði, ss. varanlegra rekstrarfjármuna og fjárfestingareigna sem og vikið að uppreikningi leiguskuldbindinga í ársreikningum. 

    Sérstök áhersla á eftirfarandi reikningsskilastaðla;
    IFRS 9: Financial Instruments,
    IFRS 7: Financial Instruments: Disclosures
    IFRS 13: Fair value measurement
    IFRS 16: Leases 
    IFRS 2: Share-based Payment 
    IAS 32: Financial Instruments: Presentation 
    IAS 40: Investment Property 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Námskeið kennt í lotu II
    Annað ár | Vor
    MS ritgerð (RES442L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    30 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar í samræmi við gildandi reglur Rannsóknanámssjóðs. Meistaranemar skulu kynna rannsóknir sínar.  Ritgerð skal skilað rafrænt  í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

    Samkvæmt reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.. Ef nemandi óskar eftir að ritgerð verði lokuð þarf til þess samþykki leiðbeinanda og deildarforseta. Hámark lokunar sé 5 ár.
    Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, verður að sækja um það á meðfylgjandi eyðublaði.
    Umsókn um lokun meistararitgerða.  

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Fyrsta ár
    • Haust
    • VIÐ505M
      Ársreikningagerð A
      Bundið valnámskeið
      6
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið er ætlað nemendum á fjármála- eða reikningshaldskjörsviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á atriðum sem stjórnendur fyrirtækja þurfa að tileinka sér til að geta lagt fram ársreikning samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur í reikningshaldi sem gilda samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og ákvæðum íslenskra laga. Farið verður yfir: formkröfur reikningsskila, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Meðferð tekna og kostnaðar, meðhöndlun birgða, viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, óefnislegar eignir, tekjuskatt, virðisrýrnunarpróf, bókun áhættufjármuna og skulda, skammtímaskuldir, langtímalán og eiginfjárliði. Verkefni verða lögð fyrir.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • VIÐ121F
      Félaga- og skuldaskilaréttur
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Fjallað verður um viðfangsefni og réttarheimildir félagaréttar. Farið verður yfir mismunandi flokka félaga og mismunandi sjónarmið við úrlausn álitaefna. Gerð verður grein fyrir einkennum helstu tegunda fjárhagslegra félaga. Til umfjöllunar verður m.a. fjárhagslegur grundvöllur þeirra og reglur sem lúta að stöðu viðsemjenda þeirra, stjórnkerfi, ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda og réttarstöðu félagsmanna. Meginefni námskeiðsins snertir einkahlutafélög og hlutafélög og þau grundvallaratriði sem leiða af takmarkaðri ábyrgð eigenda þeirra, þ.e. um vernd fjármuna þessara félaga. Er þar um að ræða reglur um innborgun hlutafjár, skráningu hlutafjár, hækkun og lækkun hlutafjár, eigin hluti og reglur um útgreiðslu fjár með arði eða við slit félaga. Rætt verður um samruna og skiptingu hlutafélaga og þær reglur sem uppfylla þarf í því sambandi. Þá verður rætt um greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrotaskipti félaga. Einnig verður fjallað um hlutverk endurskoðenda í tengslum við störf þeirra fyrir félög.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • VIÐ1A4F
      Endurskoðunarferli I
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Kynntar verða aðferðir við gagnaöflun endurskoðenda og hvernig endurskoðun tekur mið af áhættugreiningu og hagkvæmni. Fjallað verður sérstaklega um notkun tölvukerfa við endurskoðun. Við yfirferð námsefnis verða alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafðir til hliðsjónar, og rætt um gildi þeirra fyrir íslenskt umhverfi. Námsefni verður bókin Auditing & Assurance Services höfundar Aasmund Eilifsen o.fl, alþjóðlegir staðlar um endurskoðun, greinar og önnur gögn sem kynnt verða á námskeiðinu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • VIÐ1A3F
      Endurskoðun og úttekt á upplýsingakerfum
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu verður farið í grundvallarhugtök fjárhagsupplýsingakerfa (AIS). Farið er yfir viðskiptaferla, uppbyggingu og hlutverk fjárhagsupplýsingakerfa. Farið verður í kerfisþróun og skjölunaraðferðir. Fjallað verður um tölvusvik og misnotkun upplýsingakerfa. Farið verður yfir upplýsingaöryggi, vinnureglur og alþjóðlega staðla, aðgengi, stýringar og aðgerðir til að stuðla að auknu öryggi viðkvæmra upplýsinga. Farið verður yfir eðli endurskoðunar og endurskoðunarkerfi kynnt. Farið verður yfir helstu ferli fyrirtækja s.s. tekju,-gjalda,-og framleiðsluferli og þau sýnd í gagnaflæðiskorti. Farið verður yfir kerfisþróunarferlið og aðferðir í kerfisþróun. Endurskoðun með notkun tölvukerfa (IT audit) hefur aukist mikið sl. áratug og mörg tölvukerfi hafa litið dagsins ljós,
      t.d. Standadfusion og Adaptive GRC. Farið verður yfir hvernig notkun upplýsingakerfa hefur áhrif á verklag í endurskoðun og fjallað verður um hvernig notkun gervigreindar getur haft áhrif á áhættumat og mat á virkni eftirlitsaðgerða í samtíma. Að lokum verður fjallað um kerfishönnun, innleiðingu og rekstur upplýsingakerfa. Nemendur skila einu skylduhópverkefni. Leitast verður eftir að kynna fyrir nemendum helstu fjárhagsupplýsingakerfi sem í notkun eru á markaðnum. Verkefnið byggist bæði á kennsluefni og því efni er fram kemur í fyrirlestrunum.
       
      Farið er í grunnhugtökin og kenningarnar varðandi ADA (Audit Data Analytics). Einnig verða ADA-staðlar kynntir (Audit Data Standards). Skoðað hvernig hægt er að nota gagnagreiningar til að gera sjálfvirka úttektaraðgerðir sem venjulega eru gerðar handvirkt. Kynning á ISO PC 295 Audit Data Collection m.t.t. endurskoðunar. 

      Farið verður í fræðilega uppbyggingu fyrirtækja er snertir stjórnunarkerfi (Management Systems) og eftirlitskerfi (Control Systems). Einnig mismunandi tegundir af ábyrgðareiningum (deildum, sviðum, rekstrareiningum.) 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • Vor
    • VIÐ403M
      Fyrirtækjaskattaréttur
      Bundið valnámskeið
      6
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir helstu lög sem snerta atvinnurekstur í landinu. Gerð verður grein fyrir skattlagningu hinna ólíku rekstrarforma, hvaða reglur gilda um skattlagningu við stofnun fyrirtækis, meðan á rekstri stendur og við lok starfsemi. Fjallað verður um skattfrjálsa umbreytingu einstakra fyrirtækjaforma, samsköttun fyrirtækja í rekstri og uppgjör til skatts í erlendum gjaldeyri. Rætt verður um helstu auðkenni skattasniðgöngu og muninn á henni og skattaskipulagningu. Þá verður ítarlega farið yfir lög um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Reynt verður að efla sjálfstæði nemanda með úrslausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi staðgóða þekkingu á meginreglum íslenskra laga um skattlagningu fyrirtækja.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • VIÐ604M
      Ársreikningagerð B
      Bundið valnámskeið
      6
      Bundið valnámskeið háð skilyrðum
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu Ársreikningagerð A, sem kennt er á haustmisseri. Reiknað er með að nemendum þessa námskeiðs sé fullkunnugt efni fyrra námskeiðsins.
      Í námskeiðinu verður fjallað um gildandi reglur í reikningshaldi samkvæmt IFRS og ákvæðum íslenskra laga. Umfjöllunarefni:  sjóðstreymi, tekjuskattur, hagnaður á hlut, fjármálagerningar, tekjuskráning, skuldbindingar, fjármögnunarleigusamningar, fastafjármunir til sölu og aflagður rekstur, fjárfestingaeignir, skuldbindingar, upplýsingar í ársreikningi og tengdir aðilar.

      Verkefni verða lögð fyrir og er skilaskylda á þeim.
      Áskilinn réttur til breytingar á námskeiðslýsingu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • VIÐ296F
      Alþjóðlegur skattaréttur og milliverðlagning
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir reglur innlendra laga og alþjóða samninga um gerð og túlkun tvísköttunarsamninga. Fjallað verður um fulla skattskyldu manna og fyrirtækja vegna heimilisfestar í ríki og upphafningu hennar í öðru hvoru aðildarríkja tvísköttunarsamnings ef maður eða fyrirtæki er samtímis heimilisfast í tveimur eða fleiri löndum. Gerð verður grein fyrir reglum um takmarkaða skattskyldu og skiptingu skattlagningarréttar milli aðildarríkja tvísköttunarsamnings. Rætt verður um aðferðir til að milda tvískattlagningu samkvæmt innlendum rétti og tvísköttunarsamningi þegar tekjur eru skattlagðar í tveimur eða fleiri löndum. Farið verður yfir það hvernig unnt er að nota tvísköttunarsamninga við skattaskipulagningu með stofnun fyrirtækja í ólíkum löndum. Upplýst verður um áhrif EBE- eða ESS-samningsins á skattalög einstakra ríkja, skaðlega skattasamkeppni og hvað gert hefur verið til að uppræta hana. Nemendur verða þjálfaðir í notkun tvísköttunarsamninga með úrlausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi góða innsýn í það flókna kerfi sem innlendur réttur og tvísköttunarsamningar geta spunnið um fjárhagsráðstafanir manna og fyrirtækja í nútíma þjóðfélagi.

      Aðferðir við milliverðlagningu (Transfer-Pricing Methods) ráð oft því hvað hagnaðurinn og kostnaðurinn lendir. MVL er mikilvægur þáttur í alþjóðavæðingu, en um MVL gilda reglur heimalands og einnig útgefnar reglur OECD. MVL er nátengt skattalögum í viðkomandi landi. Reglur vegna MVL eru skoðaðar og áhrif þeirra eru greind.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • VIÐ293F
      Sjálfvirkni, fjártækni og stjórnunarreikningsskil
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Farið er í grunnhugtökin og kenningarnar um sjálfvirknivæðingu og RPA (Robotic Process Automation Projects). Sérstaklega er skoðað hvernig eigi að bera kennsl á ferla/verkefni í rekstri, bókhaldi og endurskoðun sem hægt er að gera sjálfvirk með RPA 
      Farið í hugtök og grunnatriði er varða fjártækni (Fin. tech.). Þróun og aðstæður á markaði kynntar sem og rafmyntir. Endurskoðunar áhætta skoðuð sérstaklega m.t.t. fjártækni.

      Farið verður í hugtök er tengjast stjórnunarreikningsskilum (Management Cost Accounting). Mikilvægi stjórnunarreikningsskila hefur aukist vegna aukins flækjustigs við kostnaðarúthlutun og áreiðanleika kostnaðar. Fjárhagslegar skýrslur byggja á kostnaðarbókhaldi og er því grunnur fyrir áreiðanlegum reikningsskilum, t.d. ársreikningi. Samhliða þessu eru stjórnunar- og eftirlitskerfi skoðuð í samhengi við stjórnunarreikningsskil.   

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu IV
    • Haust
    • VIÐ303F
      Sjálfbærni og endurskoðunarstaðlar
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu er fjallað um reikningsskilafræði, aðferðafræði og siðfræði. 
      Reikningsskilafræði, verður m.a. fjallað um: 1) staðlagerð í ársreikningagerð, 2) hugtakakerfi fyrir reikningshald, 3) þróun reikningsskila, 4) afkomuhugtök reikningshalds, 5) alþjóðleg reikningsskil, og 6) ýmis sérstök vandamál við gerð reikningsskila.
       
      Aðferðafræði, verður m.a. fjallað um: eigindlegar aðferðafræði, meginlega aðferðafræði, þýði, gagnaöflun, kví kvaðrat, framsetning og uppbygging ritgerða o.fl.
      Siðfræði og heiðarleiki er tengist vinnu við lokaritgerð og grunnhugtökum þess.  

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • VIÐ177F
      Samstæðureikningsskil
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í þessu námskeiði er fyrst og fremst fjallað um gerð samstæðureikningsskila og reikningshaldslegar hliðar á sameiningu og samruna fyrirtækja. Auk þess er fjallað um eftirtalin viðfangsefni reikningshalds: uppgjör sameignarfélaga, vörubirgðir, viðskipakröfur, viðskiptavild, bókun umboðsviðskipta, bókun erlendra viðskipta og umbreytingu ársreikninga úr einum gjaldmiðli í annan, gjaldþrotauppgjör, og reikningsskil sveitarfélaga og annarra aðila, sem ekki eru reknir í hagnaðarskyni. Verkefni. Skilaskylda. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • VIÐ305F
      Endurskoðunarferli II
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið er í beinu framhaldi af Endurskoðunarferli I. Fjallað verður sérstaklega um notkun tölvukerfa við endurskoðun. Við yfirferð námsefnis verða alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafðir til hliðsjónar og rætt um gildi þeirra fyrir íslenskt umhverfi. Kynntar verða aðferðir við gagnaöflun endurskoðenda og hvernig endurskoðun tekur mið af áhættugreiningu. Fjallað verður sérstaklega um notkun tölvukerfa við endurskoðun. Fjallað verður um hlutverk endurskoðenda og störf þeirra í samræmi við ákvæði laga og alþjóðlegra endurskoðunarstaðla sem og mikilvægi endurskoðunar fyrir samfélagið.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • VIÐ304F
      Gangvirðisreikningsskil

    • RES442L
      MS ritgerð
      Skyldunámskeið
      30

    Annað ár

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Þetta nám gæti opnað á tækifæri á sviði:

    • Endurskoðunar
    • Innri endurskoðunar
    • Reikningsskila/reikningshalds
    • Innra eftirlits
    • Fjármála

    Listinn er ekki tæmandi.

    MAESTRO er félag meistaranema við viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands.

    Hlutverk og tilgangur félagsins er að vera umhverfisvænt hagsmunafélag með það að meginmarkmiði að gera nám félagsmanna ánægjulegra og árangursríkara. Er það gert með því að vernda hagsmuni félagsmanna, veita gagnlegar upplýsingar, vera í góðu samstarfi við skólann og heimadeildir ásamt því að stuðla að og efla tengsl milli nemenda.

    Umsagnir nemenda
    Júlía Kristjánsdóttir
    Ég útskrifaðist af fjármála- og reikninshaldslínu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og fór í beinu framhaldi af því í meistaranámið í reikninsskilum og endurskoðun. Ég er að vinna með náminu á endurskoðunarskrifstofu og er frábært hvað námið tengir vel saman starf og fræði. Meiri hlutinn af okkur sem erum saman í náminu vinnum á endurskoðunarskrifstofum en einnig eru nemendur sem starfa við annað. Nemendahópurinn er þéttur þar sem við tengjumst bæði í gegnum nám og starf. Námið býður upp á marga möguleika fyrir framtíðina en í endurskoðun og reikninsskilum eru kenndar ýmsar hliðar fjármála enda mikilvægt að hafa góða þekkingu á fjármálum og ársreikningum við endurskoðun. Námið er fjölbreytt og hentar öllum þeim sem stefna á að starfa við fjármálastörf í framtíðinni. Námið er krefjandi og fer kennsla fram á kvöldin og því möguleiki að stunda vinnu samhliða náminu. Umfram allt skerpir námið gagnrýna hugsun og veitir tækifæri á að kynnast fjölbreyttum hliðum fjármála.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil