""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vilt þú fara í nám sem er bæði fræðilegt og verklegt?
  • Getur þú hugsað þér nám sem byggir á þverfaglegum þekkingargrunni sálfræði, menntunarfræði, félagsfræði og hagfræði?
  • Hefur þú áhuga á því að aðstoða fólk við að láta drauma sína rætast?
  • Vilt þú læra að fræða fólk um nám og störf?

Í meistaranámi í náms- og starfsráðgjöf fá nemendur fræðilega og verklega menntun og að námi loknu geta nemendur sótt um lögverndað starfsheiti. 

Náms- og starfsráðgjöf á við um þá þjónustu og starfsemi sem beinist að því að aðstoða fólk á öllum aldri við að taka ákvörðun um nám og störf. Mikilvægi náms- og starfsráðgjafar hefur aukist með flóknari náms- og starfsferli fólks, fjölbreyttara námsframboði og auknum kröfum um endurmenntun á síbreytilegum vinnumarkaði nútímans. Þessar aðstæður kalla á að hver og einn öðlist hæfni til að stjórna framvindu á náms- og starfsferli sínum. 

Flest námskeið eru kennd í staðnámi en nemendur utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um að taka þátt í kennslustundum í streymi samkvæmt stundaskrá (rauntími). Stöku námskeið eru kennd í fjarnámi. Tvisvar á misseri er skyldumæting í staðlotur þvert á námskeið. Sjá nánar um námsform undir hverju námskeiði.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að dreifa náminu á lengri tíma.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 72 einingar
  • Bundið val, 10 einingar 
  • Frjálst val, 8 einingar (alla jafna tekið á fyrsta misseri).
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Athugið! Megindleg aðferðarfræði er forkrafa fyrir þá sem hafa minna en 10 einingar í megindlegri aðferðafræði úr grunnnámi og hægt að nýta sem val í MA–námi í náms- og starfsráðgjöf. Nemendur sem hafa lokið að minnsta kosti 10 einingum í megindlegri aðferðafræði í grunnnámi taka önnur valnámskeið 8-10 einingar.

Nemendur sem hafa lokið diplómaprófi í náms- og starfsráðgjöf fá 60 einingar metnar inn í meistaranámið.

Meðal viðfangsefna

  • Ráðgjafarsamskipti einstaklinga og hópa
  • Fjölmenning og félagsleg réttindi
  • Upplýsinga- og samskiptatækni í ráðgjöf
  • Kenningar um starfsþróun
  • Náms- og starfsfræðsla
  • Persónulegar og félagslegar áskoranir

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku en flestar bækur eru á ensku.

Vegna fjöldatakmarkana eru einungis 40 nemendur teknir inn í námið.

Meginmarkmið

Meginmarkmið námsins er að búa nemendur sem best undir að starfa sem náms- og starfsráðgjafar á fjölbreyttum starfsvettvangi.

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

BA-, B.Ed- eða BS-gráðu eða sambærilega gráðu með fyrstu einkunn. Umsækjendur sem lokið hafa námi, sem ekki er á einu af eftirtöldum þekkingarsviðum: Sálfræði, menntun og menntakerfi, tengsl einstaklings og samfélags eða hafa ekki lokið a.m.k. 10 ECTS einingum í megindlegri aðferðafræði, gætu þurft að ljúka einu til þremur námskeiðum (hámark 30 ECTS) á fyrrgreindum sviðum. Ef nemandi þarf að bæta við sig námskeiðum, þarf það að fara fram samhliða náminu. Það telst ekki vera hluti af eiginlegu meistaranámi. Undantekning: FMÞ001F Megindleg aðferðafræði er hægt er að nýta sem val. Hámark 40 nemendur geta hafið nám að hausti.

Ef þeir sem sækja um að hefja MA nám í náms- og starfsráðgjöf, og uppfylla inntöku­skilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn skal val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónar­miðum:

  1. Einkunnum í háskóla.
  2. Starfsreynslu.
  3. Meðmælum frá vinnuveitanda ef umsækjandi hefur starfsreynslu, annars frá kennara umsækjanda í háskóla.
  4. Persónulegum greinargerðum um forsendur og áhugasvið.
  5. Viðtölum ef þurfa þykir.

Flest námskeið eru kennd í staðnámi en nemendur utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um að taka þátt í kennslustundum í streymi. Tvisvar á misseri eru staðlotur með skyldumætingu.

Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Námið samanstendur af fræðilegum námskeiðum, vettvangsnámi og lokaverkefni. Námið er skipulagt sem tveggja ára fullt nám, en hægt er að ljúka því á lengri tíma.

Skyldunámskeið eru 72e (nemendur sem lokið hafa minna en 10e í megindlegri aðferðafræði úr grunnnámi ljúka 82e í skyldu).
Bundið val er 10e í aðferðafræði.
Frjálst val er 8e.
Náminu lýkur með 30e meistaraverkefni.

Nemendur sem hafa lokið diplómaprófi í náms- og starfsráðgjöf fá 60e metnar inn í meistaranámið.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Megindleg aðferðafræði (FMÞ001F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Ráðgjafarkenningar (NSR108F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er farið yfir helstu ráðgjafarkenningar og hvernig hægt er að nýta þær til  að greina samskipti og viðfangsefni í ráðgjöf. Hugmyndasaga ráðgjafarkenninga er rakin frá sálgreiningu til síðnútíma. Einnig er fjallað um sögu náms- og starfsráðgjafar á Íslandi. Rýnt verður í áhrif fjölmenningar og kynferðis á kenningasmíð og ráðgjöf.  Nemendur vinna verkefni sem miða að því að móta og greina eigin ráðgjafarstíl.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Náms- og starfsferill, inngrip og mat (NSR109F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginviðfangsefnin eru íslenska menntakerfið, náms- og starfsferill, náms- og starfsfræðsla, atvinnuhæfni og íslenskur vinnumarkaður. Áhersla er á margbreytileika samfélagsins. Kynnt eru fræði og nýlegar rannsóknir um námsferil og brotthvarf frá námi. Fjallað er um áætlanagerð í náms- og starfsráðgjöf sem tæki til að skipuleggja starf náms- og starfsráðgjafa. Áhersla er á framkvæmd náms- og starfsfræðslu hér á landi og horft er til framkvæmdar hennar í nágrannalöndunum. Nemendur kynnast upplýsingaveitum um nám og störf og mati á skilvirkni náms- og starfsráðgjafar. Auk þess er umfjöllun um mikilvægi atvinnuhæfni, og stöðu og þróun íslensks vinnumarkaðar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Vettvangur I: Samhengi (NSR107F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur fá innsýn í störf og hlutverk náms- og starfsráðgjafa á fjölbreyttum vettvangi í fjölmenningarsamfélagi. Sömuleiðis inn í samhengi ólíkra stofnana og samvinnu við aðrar fagstéttir, lagaramma og siðaviðmið. Helstu verkþættir starfs náms- og starfsráðgjafa eru kynntir og innsýn gefin í vinnulag og aðferðir á vettvangi. Grunnur er lagður að starfsþróun nemenda með faglegri ígrundun sem byggir á viðhorfum, persónulegri reynslu, gildismati og menningarlegum uppruna þeirra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Valnámskeið (NSR035F)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur velji námskeið sem tengist inn náms- og starfsráðgjöf, í víðum skilningi,  á meistarastigi, t.d. á Félagsvísindasviði, Menntavísindasviði, Hugsvísindasviði eða á öðrum sviðum skólans.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár | Vor
Persónulegir og félagslegir erfiðleikar (NSR203F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginviðfangsefni námskeiðsins eru persónulegir og félagslegir erfiðleikar barna og ungmenna og horfur á fullorðinsárum. Kynntar eru helstu skilgreiningar á og algengi hegðunar-,  tilfinninga- og námserfiðleika með tilliti til fræða og alþjóðlegra flokkunarkerfa. Jafnframt er fjallað um áhættu- og vernandi þætti, seiglu og forvarnir. Áhersla er lögð á margbreytileika hópa. Nemendur kynnast viðeigandi úrræðum með áherslu á gagnreyndar aðferðir og samráð fagstétta.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Vettvangur II: Samskipti (NSR210F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast starfi og hlutverki náms- og starfsráðgjafa á vettvangi, helstu verkþætti náms- og starfsráðgjafa, skipulag þjónustunnar og aðferðir sem beitt er í námsog starfsráðgjöf. Fjallað er um einkenni upplýsingasamfélagsins, færni og aðferðir við öflun og miðlun upplýsinga um nám og störf. Nemendur kynnast kenningum um áhugahvöt, sjálfsmynd, markmið og vinnubrögðum í námi. Ítarlega er farið í virka hlustun, samband ráðgjafa og ráðþega, samskiptalíkön kynnt og grunnatriði tengd samskiptum í ráðgjöf æfð. Hlutverk náms- og starfsráðgjafar í fjölmenningarsamfélagi er samþætt í alla efnisþætti.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Starfsferilskenningar (NSR212F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kenningar um þróun og sköpun starfsferils eru þungamiðja þessa námskeiðs, með sérstakri áherslu á nýjustu hræringar á fræðasviðinu. Farið er ítarlega í fræðilegar undirstöður kenninga um starfsferilinn Áhersla er lögð á hagnýtingu kenninga um þróun starfsferils, og helstu verkfæri kynnt. Rannsóknir tengdar kenningum og hagnýtingu þeirra eru kynntar ásamt helstu álitamálum á fræðasviðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Málstofa um meistararitgerð I (NSR213F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofa

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf (NSR441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf.  

Mælst er til þess að nemendur taki námskeiðið málstofu um meistararitgerð í náms- og starfsráðgjöf.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Haust
Megindlegar rannsóknaraðferðir I (MVS302F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið

Að nemendur þekki og geti beitt algengustu tölfræðiaðferðum við úrvinnslu gagna og geti metið tölfræðilegar niðurstöður. Að nemandi hafi kunnáttu og þekkingu til þess að greina og miðla tölulegum upplýsingum samkvæmt APA-7 útgáfustaðlinum (t.d. í vísindatímaritsgrein eða lokaritgerð) og geti sýnt frumkvæði við tölfræðilega úrvinnslu gagna. Einnig að nemendur kynnist helstu rannsóknarsniðum í megindlegri aðferðafræði.

Inntak og viðfangsefni

Fjallað verður um megindlegar rannsóknaraðferðir og ólík rannsóknarsnið. Í tölfræðihlutanum verður mest áhersla lögð á uppbyggingu og túlkun almenna línulega líkansins (e. general linear model) sem nær yfir fjölda sígildra tölfræðiaðferða s.s. fylgni, aðhvarfsgreiningu og dreifigreiningu. Einnig læra nemendur að beita aðferðum leitandi og staðfestandi þáttagreiningar. Að lokum verða nemendur kynntir fyrir einliðasniðnum, grunnhugsun bayesískrar tölfræði og mati á heildarvillu (e. total survey error). Nemendur læra að vinna greiningar með tölfræðiforriti. Mikil áhersla verður á skýra túlkun og miðlun megindlegra niðurstaðna samkvæmt APA-7 útgáfustaðlinum.

Vinnulag

Námskeiðið er kennt vikulega á fjarfundum að undanskyldum tveimur staðlotum (sjá vikuáætlun) þar sem gert er ráð fyrir að nemendur og kennarar mæti í eigin persónu. Hægt er að sækja um undanþágu frá því að mæta í eigin persónu ef nemandi á um mjög langan veg að fara (t.d. búsettir erlendis). Viðkomandi nemandi tekur þá þátt í staðlotunni um fjarfund. Nemendur verða að hafa nýjustu stöðugu (e. solid) útgáfu af jamovi (sjá jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Eigindlegar rannsóknaraðferðir I (FMÞ103F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Annað ár | Haust
Málstofa um meistararitgerð II (NSR308F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofa

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf (NSR441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf.  

Mælst er til þess að nemendur taki námskeiðið málstofu um meistararitgerð í náms- og starfsráðgjöf.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor

Vettvangur III: Samfélag (NSR411F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um samskipti við ráðþega og uppbyggingu samtala. Farið er ítarlega í hugtök sem lögð eru til grundvallar við greiningu á ráðgjafarviðtölum og viðbrögðum ráðþega og þau æfð með markvissum hætti ásamt fjölmenningarlegum nálgunum. Ráðgjafarferlið er nánar kynnt og nemendum kennt að meta eigin frammistöðu í samskiptum við ráðþega og aðra. Fjölbeyttar aðferðir við mat á vanda ráðþega eru kynntar ásamt markmiðssetningu í ráðgjöf. Fjallað er um aðferðir og leiðir í rafrænni ráðgjöf ásamt siðferðilegum álitamálum. Nemendur kynnast hópráðgjöf og ráðgjafarsamskiptum í rafrænum samfélögum Áfram er haldið vinnu nemenda að eigin starfsþróun sem sérfræðingur á sviði náms- og starfsráðgjafar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Vettvangur IV: Handleiðsla (NSR412F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
16 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginviðfangsefni námskeiðsins eru tengsl kenninga og fræða við aðferðir í ráðgjöf. Fjallað er um hópráðgjöf, notkun matstækja, siðferðilega fleti starfsins sem og starfsþróun nemenda í faglegu tilliti í fjölmenningarsamfélagi. Að auki verður fjallað um þær stofnanlegu og samfélagslegu hindranir sem verða á vegi fólks við þróun og sköpun starfsferils. Nemendur starfa undir handleiðslu náms- og starfsráðgjafa á vettvangi (grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla, vinnumarkaði) í 200 stundir.

Nemendur sem eru starfandi ráðgjafar á meðan á vettvangsnámi stendur eiga þess kost að uppfylla allt að 50% námsins á eigin vinnustað, að því gefnu að handleiðari fallist á að hafa umsjón með verkefnum sem unnin eru þar. Heildartímafjöldi viðveru á starfsstöð handleiðara skal þó aldrei fara undir 100 Klukkustundir.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Sumar
MA ritgerð í Náms- og starfsráðgjöf (NSR441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf. 

Mælst er til þess að nemendur taki námskeiðið málstofu um meistararitgerð í náms- og starfsráðgjöf.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • FMÞ001F
    Megindleg aðferðafræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR108F
    Ráðgjafarkenningar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er farið yfir helstu ráðgjafarkenningar og hvernig hægt er að nýta þær til  að greina samskipti og viðfangsefni í ráðgjöf. Hugmyndasaga ráðgjafarkenninga er rakin frá sálgreiningu til síðnútíma. Einnig er fjallað um sögu náms- og starfsráðgjafar á Íslandi. Rýnt verður í áhrif fjölmenningar og kynferðis á kenningasmíð og ráðgjöf.  Nemendur vinna verkefni sem miða að því að móta og greina eigin ráðgjafarstíl.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR109F
    Náms- og starfsferill, inngrip og mat
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefnin eru íslenska menntakerfið, náms- og starfsferill, náms- og starfsfræðsla, atvinnuhæfni og íslenskur vinnumarkaður. Áhersla er á margbreytileika samfélagsins. Kynnt eru fræði og nýlegar rannsóknir um námsferil og brotthvarf frá námi. Fjallað er um áætlanagerð í náms- og starfsráðgjöf sem tæki til að skipuleggja starf náms- og starfsráðgjafa. Áhersla er á framkvæmd náms- og starfsfræðslu hér á landi og horft er til framkvæmdar hennar í nágrannalöndunum. Nemendur kynnast upplýsingaveitum um nám og störf og mati á skilvirkni náms- og starfsráðgjafar. Auk þess er umfjöllun um mikilvægi atvinnuhæfni, og stöðu og þróun íslensks vinnumarkaðar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR107F
    Vettvangur I: Samhengi
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur fá innsýn í störf og hlutverk náms- og starfsráðgjafa á fjölbreyttum vettvangi í fjölmenningarsamfélagi. Sömuleiðis inn í samhengi ólíkra stofnana og samvinnu við aðrar fagstéttir, lagaramma og siðaviðmið. Helstu verkþættir starfs náms- og starfsráðgjafa eru kynntir og innsýn gefin í vinnulag og aðferðir á vettvangi. Grunnur er lagður að starfsþróun nemenda með faglegri ígrundun sem byggir á viðhorfum, persónulegri reynslu, gildismati og menningarlegum uppruna þeirra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • NSR035F
    Valnámskeið
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur velji námskeið sem tengist inn náms- og starfsráðgjöf, í víðum skilningi,  á meistarastigi, t.d. á Félagsvísindasviði, Menntavísindasviði, Hugsvísindasviði eða á öðrum sviðum skólans.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • NSR203F
    Persónulegir og félagslegir erfiðleikar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins eru persónulegir og félagslegir erfiðleikar barna og ungmenna og horfur á fullorðinsárum. Kynntar eru helstu skilgreiningar á og algengi hegðunar-,  tilfinninga- og námserfiðleika með tilliti til fræða og alþjóðlegra flokkunarkerfa. Jafnframt er fjallað um áhættu- og vernandi þætti, seiglu og forvarnir. Áhersla er lögð á margbreytileika hópa. Nemendur kynnast viðeigandi úrræðum með áherslu á gagnreyndar aðferðir og samráð fagstétta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR210F
    Vettvangur II: Samskipti
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast starfi og hlutverki náms- og starfsráðgjafa á vettvangi, helstu verkþætti náms- og starfsráðgjafa, skipulag þjónustunnar og aðferðir sem beitt er í námsog starfsráðgjöf. Fjallað er um einkenni upplýsingasamfélagsins, færni og aðferðir við öflun og miðlun upplýsinga um nám og störf. Nemendur kynnast kenningum um áhugahvöt, sjálfsmynd, markmið og vinnubrögðum í námi. Ítarlega er farið í virka hlustun, samband ráðgjafa og ráðþega, samskiptalíkön kynnt og grunnatriði tengd samskiptum í ráðgjöf æfð. Hlutverk náms- og starfsráðgjafar í fjölmenningarsamfélagi er samþætt í alla efnisþætti.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • NSR212F
    Starfsferilskenningar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kenningar um þróun og sköpun starfsferils eru þungamiðja þessa námskeiðs, með sérstakri áherslu á nýjustu hræringar á fræðasviðinu. Farið er ítarlega í fræðilegar undirstöður kenninga um starfsferilinn Áhersla er lögð á hagnýtingu kenninga um þróun starfsferils, og helstu verkfæri kynnt. Rannsóknir tengdar kenningum og hagnýtingu þeirra eru kynntar ásamt helstu álitamálum á fræðasviðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR213F
    Málstofa um meistararitgerð I
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofa

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR441L
    MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    MA-ritgerð í náms- og starfsráðgjöf.  

    Mælst er til þess að nemendur taki námskeiðið málstofu um meistararitgerð í náms- og starfsráðgjöf.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Haust
  • MVS302F
    Megindlegar rannsóknaraðferðir I
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið

    Að nemendur þekki og geti beitt algengustu tölfræðiaðferðum við úrvinnslu gagna og geti metið tölfræðilegar niðurstöður. Að nemandi hafi kunnáttu og þekkingu til þess að greina og miðla tölulegum upplýsingum samkvæmt APA-7 útgáfustaðlinum (t.d. í vísindatímaritsgrein eða lokaritgerð) og geti sýnt frumkvæði við tölfræðilega úrvinnslu gagna. Einnig að nemendur kynnist helstu rannsóknarsniðum í megindlegri aðferðafræði.

    Inntak og viðfangsefni

    Fjallað verður um megindlegar rannsóknaraðferðir og ólík rannsóknarsnið. Í tölfræðihlutanum verður mest áhersla lögð á uppbyggingu og túlkun almenna línulega líkansins (e. general linear model) sem nær yfir fjölda sígildra tölfræðiaðferða s.s. fylgni, aðhvarfsgreiningu og dreifigreiningu. Einnig læra nemendur að beita aðferðum leitandi og staðfestandi þáttagreiningar. Að lokum verða nemendur kynntir fyrir einliðasniðnum, grunnhugsun bayesískrar tölfræði og mati á heildarvillu (e. total survey error). Nemendur læra að vinna greiningar með tölfræðiforriti. Mikil áhersla verður á skýra túlkun og miðlun megindlegra niðurstaðna samkvæmt APA-7 útgáfustaðlinum.

    Vinnulag

    Námskeiðið er kennt vikulega á fjarfundum að undanskyldum tveimur staðlotum (sjá vikuáætlun) þar sem gert er ráð fyrir að nemendur og kennarar mæti í eigin persónu. Hægt er að sækja um undanþágu frá því að mæta í eigin persónu ef nemandi á um mjög langan veg að fara (t.d. búsettir erlendis). Viðkomandi nemandi tekur þá þátt í staðlotunni um fjarfund. Nemendur verða að hafa nýjustu stöðugu (e. solid) útgáfu af jamovi (sjá jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • FMÞ103F
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir I
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NSR308F
    Málstofa um meistararitgerð II

  • NSR411F
    Vettvangur III: Samfélag
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um samskipti við ráðþega og uppbyggingu samtala. Farið er ítarlega í hugtök sem lögð eru til grundvallar við greiningu á ráðgjafarviðtölum og viðbrögðum ráðþega og þau æfð með markvissum hætti ásamt fjölmenningarlegum nálgunum. Ráðgjafarferlið er nánar kynnt og nemendum kennt að meta eigin frammistöðu í samskiptum við ráðþega og aðra. Fjölbeyttar aðferðir við mat á vanda ráðþega eru kynntar ásamt markmiðssetningu í ráðgjöf. Fjallað er um aðferðir og leiðir í rafrænni ráðgjöf ásamt siðferðilegum álitamálum. Nemendur kynnast hópráðgjöf og ráðgjafarsamskiptum í rafrænum samfélögum Áfram er haldið vinnu nemenda að eigin starfsþróun sem sérfræðingur á sviði náms- og starfsráðgjafar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • NSR412F
    Vettvangur IV: Handleiðsla
    Skyldunámskeið
    16
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    16 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins eru tengsl kenninga og fræða við aðferðir í ráðgjöf. Fjallað er um hópráðgjöf, notkun matstækja, siðferðilega fleti starfsins sem og starfsþróun nemenda í faglegu tilliti í fjölmenningarsamfélagi. Að auki verður fjallað um þær stofnanlegu og samfélagslegu hindranir sem verða á vegi fólks við þróun og sköpun starfsferils. Nemendur starfa undir handleiðslu náms- og starfsráðgjafa á vettvangi (grunnskóla, framhaldsskóla, háskóla, vinnumarkaði) í 200 stundir.

    Nemendur sem eru starfandi ráðgjafar á meðan á vettvangsnámi stendur eiga þess kost að uppfylla allt að 50% námsins á eigin vinnustað, að því gefnu að handleiðari fallist á að hafa umsjón með verkefnum sem unnin eru þar. Heildartímafjöldi viðveru á starfsstöð handleiðara skal þó aldrei fara undir 100 Klukkustundir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Sumar
  • NSR441L
    MA ritgerð í Náms- og starfsráðgjöf

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

  • Menntakerfið
  • Vinnumiðlanir
  • Starfsendurhæfing
  • Símenntunarstöðvar
  • Opinberar stofnanir

Listinn er ekki tæmandi.

Félag nema í náms- og starfsráðgjöf heitir Filia. Hlutverk félagsins er að hafa forgöngu í félagslífi nema í náms- og starfsráðgjöf, gæta hagsmuna þeirra í hvívetna og vera fulltrúi þeirra innan Háskólans sem utan.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Önnu Lóu Ólafsdóttur
Ég útskrifaðist úr náms- og starfsráðgjöf vorið 2008 og hef aðallega unnið við að aðstoða fólk í atvinnuleit, við val á námi og að vera stuðningur þegar einstaklingar eru að takast á við miklar breytingar. Námið reyndist góður undirbúningur varðandi starfsþróun og áhugasvið einstaklinga og þegar kemur að algengum hindrunum í atvinnuleit. Elska starfið mitt og lít oft á það sem forréttindi að fá að vera til staðar fyrir einstaklinga sem eru að taka þessi mikilvægu skref í lífi sínu.
Ketill Jósefsson
Fyrir mér er náms- og starfsráðgjöf nauðsynleg í skóla og starfi. Hún er samofin því starfi sem við sinnum eftir bestu getu hjá vinnumálastofnunum um allt land. Við erum að vinna með heill og velferð fólks á aldrinum 18 ára til sjötugs þar sem fagþekkingin skiptir miklu máli.
Inga Berg Gísladóttir
Námið í náms- og starfsráðgjöf var bæði áhugavert og skemmtilegt en um leið krefjandi. Námið er góð blanda af fræðilegum kenningagrunni og þjálfun á vettvangi. Það er mikilvægt í námi sem þessu að fá tækifæri til vettvangsnáms og að fá að stíga sín fyrstu skref inn í starfið undir handleiðslu sérfræðinga. Námið hefur nýst mér mjög vel í fjölbreyttu starfi mínu með háskólanemendum þar sem ég aðstoða meðal annars nemendur við vinnubrögð í námi, námsval og ákvarðanatöku um nám, undirbúning fyrir atvinnulíf og margt margt fleira. Námið getur einnig nýst einstaklingum í störfum á mjög fjölbreyttum starfsvettvangi sem ég tel mikinn kost fyrir þróun á mínum eigin starfsferli.
Jóhann Aðalsteinn Árnason
Námið var mjög skemmtilegt og krefjandi á sama tíma. Það undirbjó mig vel fyrir fagmennsku í núverandi starfi. Lærði mjög margt í þessu námi bæði fræðilega og um sjálfan mig persónulega. Námið, kennarar og samnemendur hjálpuðu mikið til með hvort tveggja. Eftir námið fannst mér ég vel undirbúinn að hefja störf sem náms- og starfsráðgjafi. Góð blanda af bóklegu námi og svo vettvangsnámi sem var gífurlega mikilvægt. Samheldinn hópur og maður eignaðist vini fyrir lífstíð.
Regína Bergdís Erlingsdóttir
Námið hefur verið skemmtilegt og áhugavert. Kennslan hefur verið mjög góð og haldið er vel utan um nemendur. Frábær reynsla úti á vettvangi fylgir náminu og býður það upp á fjölbreytta atvinnumöguleika sem og skemmtilegan starfsvettvang í framtíðinni.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil