Manneskja gengur yfir ganginn á milli Gimli og Odda
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Langar þig að taka tvær námsleiðir?
  • Hefur þú áhuga á fjölmiðlun og samfélagsmiðlum?
  • Finnst þér gaman af því fylgjast með þjóðfélaginu og málefnum heimsins?
  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í fjölmiðlafræði?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

Fjölmiðlafræði er kennd sem 60 eininga aukagrein. Það má taka námið með annarri 120 eininga aðalgrein.

Dægurmenningarlegar afurðir eins og dægurtónlist (popp og rokk), kvikmyndir, sjónvarp og tölvuleikir eru einnig undir hatti aukagreinarinnar og þá er kennt sérstakt rannsóknarnámskeið þar sem nemendum gefst kostur á að glíma við fjölmiðlafræðileg álitamál upp á eigin spýtur undir handleiðslu kennara.

Helstu áherslur eru á:

  • Fjölmiðlafræði
  • Samfélags- og nýmiðla
  • ​Fjölmiðlarannsóknir: Álita- og ágreiningsmál
  • Rannsóknaraðferðir
  • Félagsfræði

Fjölmiðlafræðinámið á BA stigi nýtist öllum þeim sem áhuga hafa á samfélagslegum áhrifum fjölmiðla í samtímanum.

Einnig veitir það góðan undirbúning fyrir nemendur, sem hyggja á meistaranám í félagsfræði eða stjórnmálafræði.

Námið er góður undirbúningur fyrir meistaranám í fjölmiðlafræði eða blaða- og fréttamennsku.

Uppfylla þarf inntökuskilyrði aðalgreinar (120e) sem sótt er um í. Aukagrein (60e) er að öllu jöfnu valin eftir að fyrsta ári í aðalgrein er lokið.

Ljúka þarf 60 ECTS einingum í aukagrein. Skyldunámskeið 32e, bundið val 16e og frjálst val 12e. Valnámskeið sem ekki eru talin upp í kennsluskrá eru valin í samráði við umsjónarkennara námsins. 

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Suðupottur fræðanna: Efst á baugi í kynjafræðum (KYN304G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á fræðasviðinu, fá innsýn í þá breidd sem kynjafræðileg viðfangsefni endurspegla og skilji mikilvægi fræðilegrar umræðu innan kynjafræða.

Námskeiðið byggist á verkefnavinnu í tengslum við ráðstefnur, málþing, málstofur, fyrirlestra og valda viðburði á sviði jafnréttis- og kynjafræða innan og utan Háskóla Íslands í eitt misseri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Falsfréttir, upplýsingaóreiða og stjórnmál (STJ355G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður kastljósinu beint að upplýsingaóreiðu og falsfréttum í tengslum við umræðu um stjórnmál. Fjallað verður um mismunandi skilgreiningar á hugtakinu falsfrétt og það rætt í sögulegu samhengi. Skoðuð verða möguleg áhrif og afleiðingar falsfrétta og einnig hvernig hugtakinu er beitt í pólitískri baráttu.

Fjallað verður um hvernig röngum og misvísandi upplýsingum er dreift og sérstaklega skoðaður þáttur samfélagsmiðla í dreifingunni. Þá verður farið í hverjir dreifa falsfréttum og í hvaða tilgangi. Einnig verður fjallað um hvernig stjórnvöld á Vesturlöndum hafa brugðist við auknu umfangi falsfrétta og tilraunum utanaðkomandi aðila til að hafa áhrif á lýðræðislega umræðu og kosningar.

Þá verður vikið að því breytta fjölmiðlaumhverfi sem stjórnmálafólk býr við, þar sem upplýsingar dreifast á ógnarhraða og tími til umhugsunar og viðbragða því oft lítill. Einnig hafa skilin milli einkalífs og opinbers lífs orðið óljósari og fréttir af því sem stjórnmálafólk segir og gerir geta náð til mjög margra á örskömmum tíma.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Popular Culture (FÉL027G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Að nota hið félagsfræðilega sjónarhorn á dægurmenningu getur hjálpað til við að skilja og skýra hina ýmsu þætti félagsgerðar, félagslegra samskipta og athafna sem og félagslegra breytinga. Í námskeiðinu verður farið í greiningu á afþreyingarefni eins og kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og dægurtónlist með það að markmiði að nemendur fái þjálfun í því að beita sjónarhorni félagsfræðinnar og félagsfræðilegum kenningum á mismunandi félagslegar kringumstæður.

Sérstök áhersla er þá á íslenska dægurmenningu, í alþjóðlegu ljósi.

ATH: Námskeiðið er kennt á ensku. Verkefnum má skila hvort heldur á ensku eða íslensku. Námskeiðið virkar því einnig sem fyrirtaks undirbúningur fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám í sínum fræðum á alþjóðavettvangi, þar sem nám og samskipti fara gjarnan fram á ensku.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Félagsfræði dægurmenningar: Kvikmyndir, tónlist og annað afþreyingarefni (FÉL328G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Að nota hið félagsfræðilega sjónarhorn á dægurmenningu getur hjálpað til við að skilja og skýra hina ýmsu þætti félagsgerðar, félagslegra samskipta og athafna sem og félagslegra breytinga. Í námskeiðinu verður farið í greiningu á afþreyingarefni eins og kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og dægurtónlist með það að markmiði að nemendur fái þjálfun í því að beita sjónarhorni félagsfræðinnar og félagsfræðilegum kenningum á mismunandi félagslegar kringumstæður.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Stjórnmál í fjölmiðlum: Fréttir, samfélagsmiðlar og markaðssetning (STJ360G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um hvernig upplýsingar um stjórnmál dreifast í gegnum fjölmiðla og hvernig þessi upplýsingamiðlun hefur áhrif á skilning okkar á stjórnmálum nú á dögum. Námskeiðið blandar saman kenningum og rannsóknum úr fjölmiðlafræði, stjórnmálafræði og blaðamennsku. Nemendur læra meðal annars um stafræn stjórnmál og samskipti, samfélagsmiðlanotkun stjórnmálafólks og stjórnmálaflokka, krísu hefðbundinna stjórnmála og fjölmiðla í lýðræðisríkjum, hvernig fréttir um stjórnmál verða til, pólitíska markaðssetningu, kosningabaráttu og stjórnmál sem skemmtiefni. Í tengslum við þessi viðfangsefni fræðast nemendur til dæmis um rannsóknir sem snúa að hvernig stríðsátök birtast okkur á samfélagsmiðlum, hvernig Donald Trump hefur beitt samfélagsmiðlum í samskiptum sínum við umheiminn, hvernig frægt fólk reynir að hafa áhrif á stjórnmál, samfélagsmiðlanotkun ungra kjósenda og nýlegum dæmum frá íslenskum stjórnmálum. Þar sem efni námskeiðsins tengist málefnum líðandi stundar eru nemendur hvattir til að fylgjast vel með fréttum um stjórnmál í fjölbreyttum miðlum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Almenn félagsfræði (FÉL102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um hið félagsfræðilega sjónarhorn; helstu kenningar og beitingu þeirra á viðfangsefni í fortíð og samtíma. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist yfirsýn um þekkingu helstu viðfangsefnum félagsfræðinnar. Áhersla er lögð á að tengja saman kenningar og niðurstöður rannsókna. Auk umfjöllunar um klassískar kenningar, nútímavæðingu og um miðlæg hugtök á borð við félagsgerð (social structure) og menningu (culture), kynnast nemendur rannsóknum á veigamiklum viðfangsefnum, t.d. lagskiptingu, fjöldahreyfingum, skipulagsheildum, hnattvæðingu, frávikum og sjúkdómum, kynjafræði, börnum og unglingum, innflytjendamálum og lífshlaupinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Fjölmiðla- og boðskiptafræði (var: Inngangur að fjölmiðlafræði) (FÉL323G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum þekkingu á þeim félags- og menningarlega heimi sem umlykur fólk í nútímasamfélagi út frá fjölmiðlum og öðrum boðskiptaháttum.

Fjallað er um klassíska fjölmiðla (eins og dagblöð, útvarp og sjónvarp) sem og um stafræna miðla (eins og samfélagsmiðla og gervigreind). Auk þess er umfjöllun um hvers kyns boðskipti sem miðlað er á almennum vettvangi, eins og á veltiskiltum, veggjakroti, í klæðaburði og tísku. Með öðrum orðum þá leitast námskeiðið við að skoða og greina innihald og áhrif fjölmiðla og boðskipta í víðu samhengi. Hvaðan fólk fær upplýsingar, hvernig það á samskipti, og hvernig menningarlegir þættir móta innihald, uppifun og merkingu boðskipta, eru meðal umfjöllunarefnis námskeiðsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Mannfræði kynmenningar (MAN353G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða helstu hugtökin innan kynmenningar, kyn, kyngervi og kynhneigð, sett í samhengi við mannfræðilegar rannsóknir og þekkingu. Markmiðið er að nemendur öðlist góðan skilning á þessum hugtökum, hvernig þau eru í sífelldri endurmótun og hvernig þau móta samfélög og menningu hvarvetna. Fjallað verður um hvernig mannfræðirannsóknir á fyrri hluta 20. aldar voru mótaðar af ríkjandi kynjaviðmiðum og rýnt í áhrif femínískrar baráttu síðastliðinnar hálfrar aldar á tilurð og þróun fjölbreyttra mannfræðirannsókna. Áhersla verður lögð á að greina einkenni femínískra og hinsegin samtímarannsókna og nemendur kynnast efnistökunum í gegnum valdar etnógrafíur og aðra texta af vettvangi auk yfirlitsgreina um kynmenningu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Líkaminn og kynverundin: Frelsi og fjötrar (FÉL326G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður sjónum beint að nokkrum þáttum kynverundar (sexualities), breytingum og þróun frá upphafi 20. aldar og íslensk þróun sérstaklega skoðuð. Við fjöllum um rannsóknir sem gerðar hafa verið á kynverund og kynhegðun allt frá bók Richard von Krafft-Ebing, Psychopathia Sexualis (1886) og til nýlegra rannsókna í nágrannalöndum okkar. Sérstaklega verður litið til breytinga á stöðu sam- og tvíkynhneigðra og fjallað um BDSM-fólk og blæti ýmiskonar. Kynlíf sem verslunarvara verður skoðað, allt frá auglýsingum og íþróttum til kláms og vændis. Áhrif trúarbragða, menntakerfis, fjölskyldna og vinnustaða á kynlíf og kynlífshegðun fær umfjöllun, sem og barneignir og kynferðisleg heilsa. Loks verður fjallað um kynferðislegt ofbeldi, nauðganir, þvinganir og áreitni ýmiss konar og þá þróun síðustu ára að krafa kvenna  um kynjajafnrétti hefur í æ ríkari mæli beinst að stöðu líkama þeirra eins og sjá má í hreyfingum á borð við #freethenipple og #metoo.

Námsmat verður í formi verkefnis / ritgerðar og skriflegs lokaprófs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Afbrotafræði (FÉL309G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður afbrotafræðin og helstu viðfangsefni hennar kynnt. Í grófum dráttum skiptist námskeiðið í tvennt. Í fyrri hlutanum verður farið í helstu kenningar og rannsóknir til að varpa ljósi á eðli afbrota og samfélagslegra viðbragða við þeim. Í þessu skyni verður klassísk og pósitívísk afbrotafræði skoðuð. Sérstök áhersla verður lögð á ýmsar félagsfræðilegar kenningar og rannsóknir á afbrotum, s.s. framlag formgerðarhyggju, samskiptaskólans og átakakenninga. Í síðari hluta námskeiðsins verða fjórar tegundir afbrota teknar fyrir (ofbeldisglæpir, kynferðisbrot, fíkniefnabrot og viðskiptaglæpir) og þær metnar í ljósi kenninga úr fyrri hluta og opinberrar stefnumörkunar í þessum málaflokkum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Karlar og karlmennska (FÉL209G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum helstu áherslur þeirra sem rannsaka karla sem samfélagslegt kyn (gender). Gerð verður grein fyrir þeim þremur meginaðferðum sem beitt hefur verið við karlarannsóknir á þessari öld; sálgreiningu, félagssálfræði (kyn"hlutverk") og nýrri þróun í félagsvísindum sem leggur áherslu á "sköpun" eða "byggingu" karlmennsku. Fjallað verður um mismunandi gerðir karlmennsku og hvernig tilurð þeirra, niðurrif og uppbygging tengist öðrum formgerðum samfélagsins. Þáttur karla í uppeldis- og umönnunarstörfum innan og utan heimilis verður skoðaður og fjallað um íslenska rannsókn um karlmennsku og fjölskyldutengsl.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Ójöfnuður: Efnahagur, kyn og minnihlutahópar (FÉL264G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ójöfnuður hefur löngum verið eitt meginhugtak félagsfræðinnar, enda hefur hún mikið fjallað um hvernig gæðum í samfélaginu er skipt og með hvaða afleiðingum. Lengi var talið að Ísland væri tiltölulega jafnt samfélag, en endurskoðun á fortíðinni hefur leitt í ljós að ójöfnuður hefur verið meiri en við höfum viljað viðurkenna í gegnum tíðina. Það sem er kannski mikilvægara er að efnahagslegur ójöfnuður hefur verið breytilegur til lengri tíma og frá tíunda áratugnum til allra síðustu ára hafa orðið miklar sveiflur í skiptingu tekna, eigna og fjárhagsþrenginga. Félagsfræðin hefur víða nálgun á birtingarform ójafnaðar í samfélaginu, til dæmis út frá kyni, aldri, þjóðerni, kynþætti og kynhneigð. 

Í þessu námskeiði munum við skoða helstu kenningar og rannsóknir félagsfræðinnar um ójöfnuð og setja þær í íslenskt samhengi. Við munum velta fyrir okkur hvers konar ójöfnuður er til staðar í samfélaginu og hvort ákveðnar tegundir ójöfnuðar eigi eftir að skipta meira máli í framtíðinni, meðal annars út frá breytingum í samfélagsumhverfinu og í samsetningu mannfjöldans. Að auki munum við skoða afleiðingar ójöfnuðar á líf einstaklinga, til dæmis varðandi heilsu þeirra, völd, afkomu og þátttöku í samfélaginu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Fjölmiðlarannsóknir: Álita- og ágreiningsmál (FÉL441G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Um er að ræða námskeið þar sem nemendum gefst færi á að stíga úr stólnum og prufa sig áfram með rannsóknir/verkefni gagnvart því sem það hefur lært í haustnámskeiðunum. Um símatsnámskeið er að ræða, nokkurs konar tilraunastofu, þar sem nemendur leysa verkefni í hópum undir handleiðslu kennara í bland við lestur um sígildar og nýlegar fjölmiðlafræðirannsóknir.

Lagt er upp með virkni nemenda og samstarfskunnáttu, og verða verkefnin smá sem stór, sum með hefðbundnu formi en önnur lúta meira frjálsræði. Viðföngin verða fjölmiðlar í allri sinni dýrð, hvort heldur dagblöð, sjónvarp, samfélagsmiðlar eða hljómplötur. Hér er klifrað niður úr fílabeinsturninum og lagt af stað í skotgrafir raunheima.

Nemendur fá innsýn í það hvernig akademískar rannsóknir virka, eitthvað sem getur hjálpað upp á BA vinnu og er gaman og gott – og eiginlega nauðsynlegt - fyrir framtíðarfræðimenn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Aðferðafræði: Rannsóknaraðferðir félagsvísinda (FÉL204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kunni skil á undirstöðuatriðum í aðferðafræði félagsvísinda og geti gert grein fyrir helstu rannsóknaraðferðum. Fjallað verður um helstu þætti rannsóknarferlisins og grundvallaratriði aðferðafræðinnar. Þá er veitt yfirlit um helstu rannsóknaraðferðir félagsvísinda, þ.á m. tilraunir, spurningalistakannanir, athuganir á skráðum gögnum, innihaldsgreiningu, viðtalsrannsóknir og þátttökuathuganir. Rætt verður um styrkleika og takmarkanir mismunandi aðferða með hliðsjón af fjölbreytilegum markmiðum félagsvísindarannsókna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Samfélags- og nýmiðlar (FÉL443G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er helgað hinum svofelldu samfélagsmiðlum (Facebook, Twitter, Snapchat o.s.frv) sem hafa á umliðnum árum, og það á fremur stuttu tímabili, markað djúp spor í sögu fjölmiðla og á margan hátt breytt eðli og eigindum fjölmiðlunar (og margir vilja líta svo á þessi fyrirbæri séu ekki eiginlegir fjölmiðlar). Sérstaklega verður litið til þeirra rullu sem þessir gagnvirku samfélagsmiðlar spila í nútímanum, bæði á makróstigi (stofnanir, eignarhald) og míkróstigi (samskipti einstaklinga og hópa). Áhrif þessara miðla á daglegt líf; samskipti, menningarneyslu, pólitík o.fl eru óumdeild og litið verður til nýjustu rannsókna á þessu sviði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Tækni og samfélag: Frelsi og fjötrar upplýsingasamfélagsins (FÉL263G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Eftirlitsþjóðfélagið (surveillance society) og áhættuþjóðfélagið (risk society) eru hugtök sem verða æ meira áberandi í félagsfræði. Að auki er vaxandi áhugi á að skilja hvernig ný tækni hefur mótandi áhrif á þjóðfélagið, fyrirkomulag vinnu, samskipti fólks, félagsauð (social capital) og lagskiptingu samfélagsins (social sorting). Kenningar og skrif fræðimanna á borð við Manuel Castells, Bruno Latour,  Ursula Huws, David Lyon, Juliet Webster, Kristie Ball og  Kevin Haggerty verða kynntar til sögunnar.  Hryðjuverkin 11. september 2001 mörkuðu ákveðin vatnaskil varðandi eftirlitsþjóðfélagið. Miklum fjármunum er nú varið  í tækni sem hægt er að nota til að fylgjast með fólki í leik og í starfi og hugmyndir um meinta óvini ríkisins og ýmissa skipulagsheilda taka á sig nýjar myndir. Krafan um aukin afköst og harðari samkeppni milli fyrirtækja hefur leitt til þess að sams konar tækni er í æ ríkari mæli notuð til að fylgjast með starfsmönnum, afköstum þeirra og vinnuhegðun. Áhrifin á persónuvernd eru margbreytileg og benda bæði í átt til aukins frelsis og fjötra. Samspil fjölskyldu og atvinnulífs verður í óljósara, sem og mörkin á milli hins efnislega og hugræna. Rýmið hefur fengið nýja merkingu, sem og líkaminn. Þá hafa nýjar tegundir samfélagsmiðla og netsamfélaga einnig kallað fram ákveðið form eftirlits sem fræðunum er kallað social surveillance – eða félagslegt eftirlit.  

Markmið námskeiðsins er að greina rannsóknir og kenningar um þau margvíslegu og mótsagnarkenndu áhrif sem upplýsinga- og tölvutæknin hefur á einstaklinga og samfélög.  Nemendur kryfja valda texta sem fást við ofannefnda umræðu og kynna sér erlendar og innlendar rannsóknir á sviðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Geðheilsufélagsfræði (FÉL439G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Raktar eru félagslegar skýringar á geðrænum vandamálum og þeim beitt til að útskýra samsetningu og útbreiðslu geðrænna vandamála meðal aldurshópa, kynja, hjúskaparhópa og stétta. Fjallað er um aðstæður geðsjúkra og samskipti þeirra við fjölskyldumeðlimi og geðheilbrigðisstéttir. Munur á notkun geðheilbrigðisþjónustu milli kynja, hjúskaparhópa og stétta er rakinn og skýrður. Loks er greint frá skipan og árangri geðheilbrigðisþjónustunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Fjöldahreyfingar: Andóf, mótmæli og byltingar (FÉL444G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Eitt af viðfangsefnum félagsfræðinnar er að skoða tilurð, framgang og áhrif félagslegra hreyfinga (e. social movements). Félagslegar hreyfingar má skilgreina sem aðgerðir hópa sem leitast við að hafa áhrif á þróun samfélagsins eða afmörkuð svið þess, oft á grundvelli hugmynda um sameiginlega stöðu, hagsmuni eða lífsviðhorf. Um er að ræða samstarf og aðgerðir af margvíslegu tagi, allt frá staðbundnu grasrótarstarfi til starfsemi alþjóðlegra samtaka. Félagslegrar hreyfingar geta leitt til fjöldamótmæla og uppþota og jafnvel til borgarastríða og stjórnarfarsbyltinga. Í námskeiðinu er fjallað um kenningar og rannsóknir á þessu sviði og valin dæmi skoðuð. Til að mynda verður fjallað um sögulegar byltingar (t.d. frönsku byltinguna), stéttarfélög, kvennahreyfingar, trúarhreyfingar, friðarhreyfingar og umhverfisverndarsamtök. Sérstaklega verður fjallað um mótmælabylgjuna sem alþjóðlega bankakreppan leiddi af sér, þar á meðal „Búsáhaldabyltinguna” íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári
  • Haust
  • KYN304G
    Suðupottur fræðanna: Efst á baugi í kynjafræðum
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á fræðasviðinu, fá innsýn í þá breidd sem kynjafræðileg viðfangsefni endurspegla og skilji mikilvægi fræðilegrar umræðu innan kynjafræða.

    Námskeiðið byggist á verkefnavinnu í tengslum við ráðstefnur, málþing, málstofur, fyrirlestra og valda viðburði á sviði jafnréttis- og kynjafræða innan og utan Háskóla Íslands í eitt misseri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    STJ355G
    Falsfréttir, upplýsingaóreiða og stjórnmál
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður kastljósinu beint að upplýsingaóreiðu og falsfréttum í tengslum við umræðu um stjórnmál. Fjallað verður um mismunandi skilgreiningar á hugtakinu falsfrétt og það rætt í sögulegu samhengi. Skoðuð verða möguleg áhrif og afleiðingar falsfrétta og einnig hvernig hugtakinu er beitt í pólitískri baráttu.

    Fjallað verður um hvernig röngum og misvísandi upplýsingum er dreift og sérstaklega skoðaður þáttur samfélagsmiðla í dreifingunni. Þá verður farið í hverjir dreifa falsfréttum og í hvaða tilgangi. Einnig verður fjallað um hvernig stjórnvöld á Vesturlöndum hafa brugðist við auknu umfangi falsfrétta og tilraunum utanaðkomandi aðila til að hafa áhrif á lýðræðislega umræðu og kosningar.

    Þá verður vikið að því breytta fjölmiðlaumhverfi sem stjórnmálafólk býr við, þar sem upplýsingar dreifast á ógnarhraða og tími til umhugsunar og viðbragða því oft lítill. Einnig hafa skilin milli einkalífs og opinbers lífs orðið óljósari og fréttir af því sem stjórnmálafólk segir og gerir geta náð til mjög margra á örskömmum tíma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL027G
    Popular Culture
    Bundið valnámskeið
    8
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Að nota hið félagsfræðilega sjónarhorn á dægurmenningu getur hjálpað til við að skilja og skýra hina ýmsu þætti félagsgerðar, félagslegra samskipta og athafna sem og félagslegra breytinga. Í námskeiðinu verður farið í greiningu á afþreyingarefni eins og kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og dægurtónlist með það að markmiði að nemendur fái þjálfun í því að beita sjónarhorni félagsfræðinnar og félagsfræðilegum kenningum á mismunandi félagslegar kringumstæður.

    Sérstök áhersla er þá á íslenska dægurmenningu, í alþjóðlegu ljósi.

    ATH: Námskeiðið er kennt á ensku. Verkefnum má skila hvort heldur á ensku eða íslensku. Námskeiðið virkar því einnig sem fyrirtaks undirbúningur fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám í sínum fræðum á alþjóðavettvangi, þar sem nám og samskipti fara gjarnan fram á ensku.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL328G
    Félagsfræði dægurmenningar: Kvikmyndir, tónlist og annað afþreyingarefni
    Bundið valnámskeið
    8
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Að nota hið félagsfræðilega sjónarhorn á dægurmenningu getur hjálpað til við að skilja og skýra hina ýmsu þætti félagsgerðar, félagslegra samskipta og athafna sem og félagslegra breytinga. Í námskeiðinu verður farið í greiningu á afþreyingarefni eins og kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og dægurtónlist með það að markmiði að nemendur fái þjálfun í því að beita sjónarhorni félagsfræðinnar og félagsfræðilegum kenningum á mismunandi félagslegar kringumstæður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • STJ360G
    Stjórnmál í fjölmiðlum: Fréttir, samfélagsmiðlar og markaðssetning
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um hvernig upplýsingar um stjórnmál dreifast í gegnum fjölmiðla og hvernig þessi upplýsingamiðlun hefur áhrif á skilning okkar á stjórnmálum nú á dögum. Námskeiðið blandar saman kenningum og rannsóknum úr fjölmiðlafræði, stjórnmálafræði og blaðamennsku. Nemendur læra meðal annars um stafræn stjórnmál og samskipti, samfélagsmiðlanotkun stjórnmálafólks og stjórnmálaflokka, krísu hefðbundinna stjórnmála og fjölmiðla í lýðræðisríkjum, hvernig fréttir um stjórnmál verða til, pólitíska markaðssetningu, kosningabaráttu og stjórnmál sem skemmtiefni. Í tengslum við þessi viðfangsefni fræðast nemendur til dæmis um rannsóknir sem snúa að hvernig stríðsátök birtast okkur á samfélagsmiðlum, hvernig Donald Trump hefur beitt samfélagsmiðlum í samskiptum sínum við umheiminn, hvernig frægt fólk reynir að hafa áhrif á stjórnmál, samfélagsmiðlanotkun ungra kjósenda og nýlegum dæmum frá íslenskum stjórnmálum. Þar sem efni námskeiðsins tengist málefnum líðandi stundar eru nemendur hvattir til að fylgjast vel með fréttum um stjórnmál í fjölbreyttum miðlum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL102G
    Almenn félagsfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um hið félagsfræðilega sjónarhorn; helstu kenningar og beitingu þeirra á viðfangsefni í fortíð og samtíma. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist yfirsýn um þekkingu helstu viðfangsefnum félagsfræðinnar. Áhersla er lögð á að tengja saman kenningar og niðurstöður rannsókna. Auk umfjöllunar um klassískar kenningar, nútímavæðingu og um miðlæg hugtök á borð við félagsgerð (social structure) og menningu (culture), kynnast nemendur rannsóknum á veigamiklum viðfangsefnum, t.d. lagskiptingu, fjöldahreyfingum, skipulagsheildum, hnattvæðingu, frávikum og sjúkdómum, kynjafræði, börnum og unglingum, innflytjendamálum og lífshlaupinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL323G
    Fjölmiðla- og boðskiptafræði (var: Inngangur að fjölmiðlafræði)
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum þekkingu á þeim félags- og menningarlega heimi sem umlykur fólk í nútímasamfélagi út frá fjölmiðlum og öðrum boðskiptaháttum.

    Fjallað er um klassíska fjölmiðla (eins og dagblöð, útvarp og sjónvarp) sem og um stafræna miðla (eins og samfélagsmiðla og gervigreind). Auk þess er umfjöllun um hvers kyns boðskipti sem miðlað er á almennum vettvangi, eins og á veltiskiltum, veggjakroti, í klæðaburði og tísku. Með öðrum orðum þá leitast námskeiðið við að skoða og greina innihald og áhrif fjölmiðla og boðskipta í víðu samhengi. Hvaðan fólk fær upplýsingar, hvernig það á samskipti, og hvernig menningarlegir þættir móta innihald, uppifun og merkingu boðskipta, eru meðal umfjöllunarefnis námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN353G
    Mannfræði kynmenningar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða helstu hugtökin innan kynmenningar, kyn, kyngervi og kynhneigð, sett í samhengi við mannfræðilegar rannsóknir og þekkingu. Markmiðið er að nemendur öðlist góðan skilning á þessum hugtökum, hvernig þau eru í sífelldri endurmótun og hvernig þau móta samfélög og menningu hvarvetna. Fjallað verður um hvernig mannfræðirannsóknir á fyrri hluta 20. aldar voru mótaðar af ríkjandi kynjaviðmiðum og rýnt í áhrif femínískrar baráttu síðastliðinnar hálfrar aldar á tilurð og þróun fjölbreyttra mannfræðirannsókna. Áhersla verður lögð á að greina einkenni femínískra og hinsegin samtímarannsókna og nemendur kynnast efnistökunum í gegnum valdar etnógrafíur og aðra texta af vettvangi auk yfirlitsgreina um kynmenningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL326G
    Líkaminn og kynverundin: Frelsi og fjötrar
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður sjónum beint að nokkrum þáttum kynverundar (sexualities), breytingum og þróun frá upphafi 20. aldar og íslensk þróun sérstaklega skoðuð. Við fjöllum um rannsóknir sem gerðar hafa verið á kynverund og kynhegðun allt frá bók Richard von Krafft-Ebing, Psychopathia Sexualis (1886) og til nýlegra rannsókna í nágrannalöndum okkar. Sérstaklega verður litið til breytinga á stöðu sam- og tvíkynhneigðra og fjallað um BDSM-fólk og blæti ýmiskonar. Kynlíf sem verslunarvara verður skoðað, allt frá auglýsingum og íþróttum til kláms og vændis. Áhrif trúarbragða, menntakerfis, fjölskyldna og vinnustaða á kynlíf og kynlífshegðun fær umfjöllun, sem og barneignir og kynferðisleg heilsa. Loks verður fjallað um kynferðislegt ofbeldi, nauðganir, þvinganir og áreitni ýmiss konar og þá þróun síðustu ára að krafa kvenna  um kynjajafnrétti hefur í æ ríkari mæli beinst að stöðu líkama þeirra eins og sjá má í hreyfingum á borð við #freethenipple og #metoo.

    Námsmat verður í formi verkefnis / ritgerðar og skriflegs lokaprófs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL309G
    Afbrotafræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður afbrotafræðin og helstu viðfangsefni hennar kynnt. Í grófum dráttum skiptist námskeiðið í tvennt. Í fyrri hlutanum verður farið í helstu kenningar og rannsóknir til að varpa ljósi á eðli afbrota og samfélagslegra viðbragða við þeim. Í þessu skyni verður klassísk og pósitívísk afbrotafræði skoðuð. Sérstök áhersla verður lögð á ýmsar félagsfræðilegar kenningar og rannsóknir á afbrotum, s.s. framlag formgerðarhyggju, samskiptaskólans og átakakenninga. Í síðari hluta námskeiðsins verða fjórar tegundir afbrota teknar fyrir (ofbeldisglæpir, kynferðisbrot, fíkniefnabrot og viðskiptaglæpir) og þær metnar í ljósi kenninga úr fyrri hluta og opinberrar stefnumörkunar í þessum málaflokkum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL209G
    Karlar og karlmennska
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum helstu áherslur þeirra sem rannsaka karla sem samfélagslegt kyn (gender). Gerð verður grein fyrir þeim þremur meginaðferðum sem beitt hefur verið við karlarannsóknir á þessari öld; sálgreiningu, félagssálfræði (kyn"hlutverk") og nýrri þróun í félagsvísindum sem leggur áherslu á "sköpun" eða "byggingu" karlmennsku. Fjallað verður um mismunandi gerðir karlmennsku og hvernig tilurð þeirra, niðurrif og uppbygging tengist öðrum formgerðum samfélagsins. Þáttur karla í uppeldis- og umönnunarstörfum innan og utan heimilis verður skoðaður og fjallað um íslenska rannsókn um karlmennsku og fjölskyldutengsl.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • FÉL264G
    Ójöfnuður: Efnahagur, kyn og minnihlutahópar
    Bundið valnámskeið
    8
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ójöfnuður hefur löngum verið eitt meginhugtak félagsfræðinnar, enda hefur hún mikið fjallað um hvernig gæðum í samfélaginu er skipt og með hvaða afleiðingum. Lengi var talið að Ísland væri tiltölulega jafnt samfélag, en endurskoðun á fortíðinni hefur leitt í ljós að ójöfnuður hefur verið meiri en við höfum viljað viðurkenna í gegnum tíðina. Það sem er kannski mikilvægara er að efnahagslegur ójöfnuður hefur verið breytilegur til lengri tíma og frá tíunda áratugnum til allra síðustu ára hafa orðið miklar sveiflur í skiptingu tekna, eigna og fjárhagsþrenginga. Félagsfræðin hefur víða nálgun á birtingarform ójafnaðar í samfélaginu, til dæmis út frá kyni, aldri, þjóðerni, kynþætti og kynhneigð. 

    Í þessu námskeiði munum við skoða helstu kenningar og rannsóknir félagsfræðinnar um ójöfnuð og setja þær í íslenskt samhengi. Við munum velta fyrir okkur hvers konar ójöfnuður er til staðar í samfélaginu og hvort ákveðnar tegundir ójöfnuðar eigi eftir að skipta meira máli í framtíðinni, meðal annars út frá breytingum í samfélagsumhverfinu og í samsetningu mannfjöldans. Að auki munum við skoða afleiðingar ójöfnuðar á líf einstaklinga, til dæmis varðandi heilsu þeirra, völd, afkomu og þátttöku í samfélaginu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL441G
    Fjölmiðlarannsóknir: Álita- og ágreiningsmál
    Bundið valnámskeið
    8
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Um er að ræða námskeið þar sem nemendum gefst færi á að stíga úr stólnum og prufa sig áfram með rannsóknir/verkefni gagnvart því sem það hefur lært í haustnámskeiðunum. Um símatsnámskeið er að ræða, nokkurs konar tilraunastofu, þar sem nemendur leysa verkefni í hópum undir handleiðslu kennara í bland við lestur um sígildar og nýlegar fjölmiðlafræðirannsóknir.

    Lagt er upp með virkni nemenda og samstarfskunnáttu, og verða verkefnin smá sem stór, sum með hefðbundnu formi en önnur lúta meira frjálsræði. Viðföngin verða fjölmiðlar í allri sinni dýrð, hvort heldur dagblöð, sjónvarp, samfélagsmiðlar eða hljómplötur. Hér er klifrað niður úr fílabeinsturninum og lagt af stað í skotgrafir raunheima.

    Nemendur fá innsýn í það hvernig akademískar rannsóknir virka, eitthvað sem getur hjálpað upp á BA vinnu og er gaman og gott – og eiginlega nauðsynlegt - fyrir framtíðarfræðimenn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL204G
    Aðferðafræði: Rannsóknaraðferðir félagsvísinda
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kunni skil á undirstöðuatriðum í aðferðafræði félagsvísinda og geti gert grein fyrir helstu rannsóknaraðferðum. Fjallað verður um helstu þætti rannsóknarferlisins og grundvallaratriði aðferðafræðinnar. Þá er veitt yfirlit um helstu rannsóknaraðferðir félagsvísinda, þ.á m. tilraunir, spurningalistakannanir, athuganir á skráðum gögnum, innihaldsgreiningu, viðtalsrannsóknir og þátttökuathuganir. Rætt verður um styrkleika og takmarkanir mismunandi aðferða með hliðsjón af fjölbreytilegum markmiðum félagsvísindarannsókna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL443G
    Samfélags- og nýmiðlar
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er helgað hinum svofelldu samfélagsmiðlum (Facebook, Twitter, Snapchat o.s.frv) sem hafa á umliðnum árum, og það á fremur stuttu tímabili, markað djúp spor í sögu fjölmiðla og á margan hátt breytt eðli og eigindum fjölmiðlunar (og margir vilja líta svo á þessi fyrirbæri séu ekki eiginlegir fjölmiðlar). Sérstaklega verður litið til þeirra rullu sem þessir gagnvirku samfélagsmiðlar spila í nútímanum, bæði á makróstigi (stofnanir, eignarhald) og míkróstigi (samskipti einstaklinga og hópa). Áhrif þessara miðla á daglegt líf; samskipti, menningarneyslu, pólitík o.fl eru óumdeild og litið verður til nýjustu rannsókna á þessu sviði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL263G
    Tækni og samfélag: Frelsi og fjötrar upplýsingasamfélagsins
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Eftirlitsþjóðfélagið (surveillance society) og áhættuþjóðfélagið (risk society) eru hugtök sem verða æ meira áberandi í félagsfræði. Að auki er vaxandi áhugi á að skilja hvernig ný tækni hefur mótandi áhrif á þjóðfélagið, fyrirkomulag vinnu, samskipti fólks, félagsauð (social capital) og lagskiptingu samfélagsins (social sorting). Kenningar og skrif fræðimanna á borð við Manuel Castells, Bruno Latour,  Ursula Huws, David Lyon, Juliet Webster, Kristie Ball og  Kevin Haggerty verða kynntar til sögunnar.  Hryðjuverkin 11. september 2001 mörkuðu ákveðin vatnaskil varðandi eftirlitsþjóðfélagið. Miklum fjármunum er nú varið  í tækni sem hægt er að nota til að fylgjast með fólki í leik og í starfi og hugmyndir um meinta óvini ríkisins og ýmissa skipulagsheilda taka á sig nýjar myndir. Krafan um aukin afköst og harðari samkeppni milli fyrirtækja hefur leitt til þess að sams konar tækni er í æ ríkari mæli notuð til að fylgjast með starfsmönnum, afköstum þeirra og vinnuhegðun. Áhrifin á persónuvernd eru margbreytileg og benda bæði í átt til aukins frelsis og fjötra. Samspil fjölskyldu og atvinnulífs verður í óljósara, sem og mörkin á milli hins efnislega og hugræna. Rýmið hefur fengið nýja merkingu, sem og líkaminn. Þá hafa nýjar tegundir samfélagsmiðla og netsamfélaga einnig kallað fram ákveðið form eftirlits sem fræðunum er kallað social surveillance – eða félagslegt eftirlit.  

    Markmið námskeiðsins er að greina rannsóknir og kenningar um þau margvíslegu og mótsagnarkenndu áhrif sem upplýsinga- og tölvutæknin hefur á einstaklinga og samfélög.  Nemendur kryfja valda texta sem fást við ofannefnda umræðu og kynna sér erlendar og innlendar rannsóknir á sviðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL439G
    Geðheilsufélagsfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Raktar eru félagslegar skýringar á geðrænum vandamálum og þeim beitt til að útskýra samsetningu og útbreiðslu geðrænna vandamála meðal aldurshópa, kynja, hjúskaparhópa og stétta. Fjallað er um aðstæður geðsjúkra og samskipti þeirra við fjölskyldumeðlimi og geðheilbrigðisstéttir. Munur á notkun geðheilbrigðisþjónustu milli kynja, hjúskaparhópa og stétta er rakinn og skýrður. Loks er greint frá skipan og árangri geðheilbrigðisþjónustunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL444G
    Fjöldahreyfingar: Andóf, mótmæli og byltingar
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Eitt af viðfangsefnum félagsfræðinnar er að skoða tilurð, framgang og áhrif félagslegra hreyfinga (e. social movements). Félagslegar hreyfingar má skilgreina sem aðgerðir hópa sem leitast við að hafa áhrif á þróun samfélagsins eða afmörkuð svið þess, oft á grundvelli hugmynda um sameiginlega stöðu, hagsmuni eða lífsviðhorf. Um er að ræða samstarf og aðgerðir af margvíslegu tagi, allt frá staðbundnu grasrótarstarfi til starfsemi alþjóðlegra samtaka. Félagslegrar hreyfingar geta leitt til fjöldamótmæla og uppþota og jafnvel til borgarastríða og stjórnarfarsbyltinga. Í námskeiðinu er fjallað um kenningar og rannsóknir á þessu sviði og valin dæmi skoðuð. Til að mynda verður fjallað um sögulegar byltingar (t.d. frönsku byltinguna), stéttarfélög, kvennahreyfingar, trúarhreyfingar, friðarhreyfingar og umhverfisverndarsamtök. Sérstaklega verður fjallað um mótmælabylgjuna sem alþjóðlega bankakreppan leiddi af sér, þar á meðal „Búsáhaldabyltinguna” íslensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Með þessa menntun getur þú meðal annars starfað við:

  • Fjölmiðla
  • Almannatengsl
  • Net- og tækniiðnað
  • Vefmál
  • Fræðimennsku
  • Sprotastarfsemi og nýsköpun
  • Pólitík og stefnumótun

Listinn er ekki tæmandi. 

  • Aukagreinin heyrir undir námsbraut í félagsfræði. Nemendafélagið þar kallast Norm og stendur fyrir blómlegu félagslífi.
  • Vefsíða Norm

Stúdentakjallarinn er veitingastaður, kaffihús og skemmtistaður. Hann er staðsettur á neðstu hæð Háskólatorgs. Þar er aðstaða fyrir tónleika, fundi og annað félagslíf nemenda og er opið frá morgni til kvölds alla daga vikunnar

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Lena H. F. Fleckinger Örvarsdóttir
Fjölmiðlafræðin er gríðarlega skemmtileg og fróðleg aukagrein, en hún hefur opnað augu mín varðandi gagnverkandi samspil milli fjölmiðla og samfélags. Að mínu mati er helsti kosturinn við að taka fjölmiðlafræðina sem aukagrein að víkka hæfni mína og auka möguleika á vinnumarkaðnum að námi loknu. Kennararnir gera greinina afskaplega skemmtilega, bæði með góðri leiðsögn, lifandi umræðum í tímum og skemmtilegum verkefnum.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil