""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum). Námsstig:
Lengd náms
Eitt ár - 30 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Liggur áhugi þinn á sviði fjölmenningarfræða?
  • Hefur þú reynslu af starfi með innflytjendum eða flóttafólki?
  • Vilt þú efla færni þína í starfi með fjölbreytilegum hópum flóttafólks og innflytjenda?
  • Langar þig að öðast sérhæfða þekkingu á málefninu?

Örnám í fjölmenningu, málefnum flóttafólks og innflytjenda er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu grunnnámi á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda.

Í náminu öðlast nemendur þekkingu á lykil kenningum, sjónarhornum og vinnuaðferðum í félagsráðgjöf í starfi með innflytjendum og flóttafólki. Nemendur öðlast þekkingu á helstu straumum og stefnum í rannsóknum, fræðilegri umræðu um málefni þessara tveggja hópa á sviði félagsráðgjafar. Áhersla í náminu er að skoða stöðu innflytjenda og flóttafólks út frá heildarsýn, þ.e. velferðarþjónustu, atvinnu- og menntamál, aðlögun og samfélagslega þátttöku auk stefnu ríkis og sveitarfélaga í málaflokknum.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er sett upp sem hluta nám til eins árs.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 14 einingar
  • Valnámskeið, 16 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku eða ensku en flestar kennslubækur eru á ensku.

Kennt er í lotukennslu sem ýmist er í rafrænu formi í beinu streymi á eða í staðbundinni kennslu í húsnæði HÍ.

    Meginmarkmið

    Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir aukna þekkingu fagfólks á málefnum fjölbreytilegra hópa innflytjenda og flóttafólks og efla færni þeirra í starfi.

    Annað

    Hægt er að fá námið metið inn í rannsóknartengt meistaranám í félagsráðgjöð að uppfylltum inntökuskilyrðum.

    BA., BS, B.Ed.- gráða í félags-, heilbrigðis- eða menntavísindum. Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar (7,25).

    Ljúka þarf 30 ECTS einingum. Námið er skipulagt sem tveggja missera nám, en hægt er að ljúka því á lengri tíma.

    Um er að ræða tvö skyldunámskeið, annað kennt við Félagsráðgjafardeild (10e) og hitt innan Lagadeildar (6e) í samstarfi við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, eitt lesnámskeið (4e) sem kennt er innan Félagsráðgjafardeildar og svo valnámskeið (10e) á sviði félags – og menntavísinda

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Prófskírteini/námsyfirlit

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Haust
    Lesnámskeið um sérsvið (FRG063F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi vinnur skrifleg verkefni eða ítarlega heimilda-ritgerð um tiltekinn þátt þess rannsóknasviðs sem hann hefur valið sér í samráði við umsjónarkennara.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Fyrsta ár | Vor
    Vinna með flóttafólki og innflytjendum á sviði velferðarþjónustu (FRG008F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að auka sérhæfða þekkingu og færni á sviði starfs með fjölbreytilegum hópum flóttafólks og innflytjendum á sviði félagsráðgjafar. Fjallað er um stöðu innflytjenda og flóttafólks og í samhengi við velferðarþjónustu, menntun og atvinnumál. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að dýpka þekkingu, skilning og hæfni nemenda í menningarlæsi í starfi (e. cultural competence). Einnig verður lögð áhersla á dýpka þekkingu nemenda á ríkjandi straumum og stefnum í fræðilegri umræðu,  rannsóknum og stefnumótun í málefnum flóttafólks og innflytjenda frá gagnrýnu sjónarhorni.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Almenn kynjafræði (KYN101F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

    Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Fyrsta ár
    • Haust
    • Ekki kennt á misserinu
      FRG063F
      Lesnámskeið um sérsvið
      Skyldunámskeið
      4
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      4 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Nemandi vinnur skrifleg verkefni eða ítarlega heimilda-ritgerð um tiltekinn þátt þess rannsóknasviðs sem hann hefur valið sér í samráði við umsjónarkennara.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Vor
    • Ekki kennt á misserinu
      FRG008F
      Vinna með flóttafólki og innflytjendum á sviði velferðarþjónustu
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að auka sérhæfða þekkingu og færni á sviði starfs með fjölbreytilegum hópum flóttafólks og innflytjendum á sviði félagsráðgjafar. Fjallað er um stöðu innflytjenda og flóttafólks og í samhengi við velferðarþjónustu, menntun og atvinnumál. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að dýpka þekkingu, skilning og hæfni nemenda í menningarlæsi í starfi (e. cultural competence). Einnig verður lögð áhersla á dýpka þekkingu nemenda á ríkjandi straumum og stefnum í fræðilegri umræðu,  rannsóknum og stefnumótun í málefnum flóttafólks og innflytjenda frá gagnrýnu sjónarhorni.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Haust
    • KYN101F
      Almenn kynjafræði
      Valnámskeið

    Óháð námsári

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Fólk með þessa menntun starfar gjarnan við:

    • Velferðarþjónustu
    • Félagsráðgjöf
    • Atvinnu- og menntamál
    • Hjá ríki og sveitafélagum

    Listinn er ekki tæmandi

    Umsagnir nemenda
    ""
    Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil