Nemendur við HÍ
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú góðan grunn í stærðfræði og tölfræði?
  • Vilt þú fara í hagnýtt nám?
  • Sérðu fyrir þér að starfa á fjármálamarkaði?
  • Finnst þér spennandi að fara í nám sem tengir saman efnahagslíf, fjármál, viðskipti og samfélagsmálefni?

Meistaranám í Fjármálahagfræði leggur áherslu á samspil fjármála og hagfræði. Námið byggir bæði á fræðilegri þekkingu á mörkuðum, sem og hagnýtri tölfræðigreiningu, sem er ætlað að undirbúa nemendur undir raunveruleg verkefni á fjármálamarkaði.

Í náminu er lögð sérstök áhersla á hagnýta beitingu aðferða og kenninga í hagfræði og fjármálum og að nemendur geti, á grundvelli þeirra, unnið raunveruleg verkefni í faginu.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góðan stærðfræðilegan bakgrunn.

Uppbygging náms

Námið er 90 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára

Fyrirkomulag kennslu

Kunnátta í hagfræði er ekki skilyrði fyrir inntöku. Hins vegar er þeim nemendum, sem ekki hafa að lágmarki lokið tveimur námskeiðum í heildahagfræði og tveimur námskeiðum í  eindahagfræði í sínu fyrra námi, gert að taka undirbúningsnámskeið í hagfræði á fyrstu námslotu að hausti.

Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur er á ensku.

    Meginmarkmið

    Stefnt að því að nemendur öðlist staðgóða þekkingu á efnahagsmálum og fjármálum sem býr þau undir margvísleg störf þar sem tæknileg þekking á mörkuðum og efnahagslífi kemur að notum.

    Annað

    Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

    Meistaranám í fjármálahagfræði er einkum ætlað nemendum sem hafa sterka undirstöðu í stærðfræði og tölfræði úr BS/BA-námi sínu. Kunnátta í hagfræði er ekki skilyrði fyrir inntöku. Hins vegar er þeim nemendum, sem ekki hafa að lágmarki lokið tveimur námskeiðum í heildahagfræði (þjóðhagfræði) (macroeconomics) og tveimur námskeiðum í  eindahagfræði (rekstrarhagfræði) (microeconomics) í sínu fyrra námi, gert að taka undirbúningsnámskeið í hagfræði á fyrstu námslotu að hausti. Almennt er krafist fyrstu einkunnar (7,25) úr fyrstu háskólagráðu, til þess að fá inngöngu í meistaranám. Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að nemendur sem uppfylla ekki ofangreindar kröfur sæki um inngöngu í viðbótardiplómanám í fjármálahagfræði, en góður námsárangur á þeirri námslínu getur opnað leið að inntöku í fjármálahagfræði, en lesa má um það frekar hér. Hagfræðigrunnur nemenda er metinn við inntöku og kemur fram í samþykktarbréfi.

    Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Þar af 90 einingar í námskeiðum og MS-ritgerð sem er 30 einingar. Til að útskrifast frá Hagfræðideild þarf stúdent að ná meðaleinkunninni 6,0.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Fyrsta ár | Haust
    Eindahagfræði í meistaranámi (HAG125F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum grundvallaratriði í fræðilegri og hagnýttri rekstrarhagfræði (microeconomics) og hvernig unnt er að beita henni við hagræna greiningu ákvarðanatöku, hvort heldur neytenda eða við rekstur fyrirtækja og stofnana, bæði á  markaði og á sviðum hins opinbera. Fjallað er um neyslumarkaði og framleiðslu, skipulag og uppbyggingu markaða, velferðaráhrif markaðsskipulags, markaðsbreytinga og inngripa hins opinbera. Auk fræðilegrar undirstöðu greiningar, er leitast við að fjalla um og leggja hagnýt verkefni fyrir nemendur.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fyrsta ár | Haust
    Fjármálastærðfræði I (Fjármálatölfræði) (HAG122F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna fyrir nemendum notkun tölfræði- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa í störfum sínum á fjármálamarkaði.

    Í tölfræðihluta námskeiðsins verður meðal annars farið yfir hugmyndir um samfelldar og strjálar líkindadreifingar, væntigildi, dreifni og staðalfrávik, öryggisbil, núlltilgátur og línulegar aðhvarfsgreiningar, bæði einfaldar og margvíðar. Einnig verður farið yfir grunnhugmyndir líkansins um verðlagningu eigna (e. Capital Asset Pricing Model, CAPM).

    Í verðlagningarhluta námskeiðsins verður farið í verðlagningu á framvirkum samningum á hlutabréf, skuldabréf og gjaldeyri og vaxtaskiptasamningum, byggingu vaxtaferla, auk tegunda og eiginleika valrétta.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Námskeið kennt í lotu I
    Fyrsta ár | Vor
    Heildahagfræði í meistaranámi (HAG229F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna aðferðir og aðferðafræði þjóðhagfræðinnar og beita þeim við greiningu ýmissa þjóðhagslegra fyrirbæra. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist getu til sjálfstæðrar hugsunar og greiningar á hinum ýmsu vandamálum. Helstu viðfangsefni: Hagvöxtur til langs tíma, kjörsparnaður og tímatengd hagkvæmni, orsakir tregbreytileika verðlags, skömmtun fjármagns og markaðsbrestir á fjármagnsmörkuðum, atvinnuleysi til lengri tíma og náttúrulegt atvinnuleysi, skammtíma- og langtímasveiflur atvinnu og framleiðslu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fyrsta ár | Vor
    Bankar og fjármálamarkaðir (HAG231F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um hlutverk fjármálastofnana og virkni fjármálamarkaða hérlendis. Farið verður yfir helstu einkenni íslenskra fjármálamarkaða með hlutabréf, skuldabréf, fasteignir og peninga, auk þess að stikla á stóru í sögu fjármagnsviðskipta og gera grein fyrir leiðni hagstjórnar í gegnum gengi og vexti. Þá er fjallað um helstu fjárfesta á markaði, s.s. lífeyrissjóði, stefnu þeirra og ákvarðanatöku. Ennfremur er farið yfir starfsemi banka, vöxt þeirra og viðgang, og áhrif þeirra á markaði og efnahagslíf. Einnig verður fjallað um hlutverk seðlabanka í hagstjórn, stjórntæki peningamála, miðlun aðgerða hans um fjármálamarkaðina og áhrif á hagkerfið. Loks er fjallað um hlutverk fjármálaeftirlitsins, nýjar reglur um eiginfjárbindingu kenndar við Basel II.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Námskeið kennt í lotu IV
    Fyrsta ár | Vor
    Skuldabréf (HAG230F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu tegundir skuldabréfa og skuldabréfaafleiða. Áhersla verður lögð á að fjalla um skuldabréf bæði í alþjóðlegu samhengi og þau atriði sem sérstök eru á innlendum markaði. Meðal efnisatriða eru: hefðbundin, vísitölutengd, innkallanleg, og breytanleg skuldabréf, skulda- og skuldabréfavafningar, skuldaraafleiður og gjaldþrotatryggingar, og skuldabréfa- og vaxtaafleiður. Mismunandi gerðir skuldabréfa og afleiða verða skoðaðar með tilliti til verðlagningar, eignastýringar og áhættustýringar. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góða undirstöðu í grunnatriðum fjármála, sér í lagi skuldabréfa og afleiða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Námskeið kennt í lotu III
    Óháð námsári | Haust
    MS ritgerð í fjármálahagfræði (HAG433L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Allar upplýsingar um lokaritgerðir má finn í Uglu undir Lokaritgerðir:

    https://ugla.hi.is/cms/milli.php?sid=4221

    Efni ritgerðar skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Hagfræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar.
    Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaranámsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands. Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar meistararitgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
    Æski stúdent þess að ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans.
    Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Óháð námsári | Haust
    Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða) (HAG122M)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna nemendum fyrir notkun töl- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa á vinnustað.

    Í tölfræðihluta námskeiðsins verður farið yfir tímaraðagreiningu. Þar verða líkön á borð við sjálfsaðhverf líkön (e. Auto regressive model, AR model) og líkön með hlaupandi meðaltöl (e. Moving-average model, MA model) kynnt til leiks. Einnig samsetning þeirra ARMA, ARIMA og SARIMA líkön. Að lokum verður farið yfir líkön með skilyrða misdreifni eða ARCH og GARCH líkön.

    Í verðlagningahluta verður farið í tvíliðutré, Wiener-ferli, hjálparsetningu Ito, líkan Black-Scoles-Merton og verðlagningu á valréttum á hlutabréf og gjaldeyri.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
    Óháð námsári | Haust
    Fjármögnun fyrirtækja (VIÐ181F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið með námskeiðinu er að nemendur tileinki sér þá tækni, sem hefur reynst gagnleg við fjármögnun og fjármálastjórnun fyrirtækja  og öðlist þá innsýn, sem fjármálafræðin veitir, þegar leitað skal lausna á viðfangsefnum fyrirtækja varðandi fjármögnun. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa þekkingu og skilning á grunnkenningum fræðimanna í fjármálum, þekkingu á bestu faglegri nálgun á alþjóðavettvangi og tæknilega getu til að leysa raunhæf verkefni hvað varðar mat og val fjármögnunarkosta til langs tíma og skamms tíma, arðgreiðslur og arðgreiðslustefnu fyrirtækja, útgáfu hlutafjár, útgáfu skuldabréfa og fjármagnsskipan.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu I
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Óháð námsári | Haust
    Kostnaðar- og nytjagreining (HAG101F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur kostnaðar-nytjagreiningar er að auðvelda töku ákvarðana sem snerta marga þjóðfélagsþegna með beinum eða óbeinum hætti. Markmið námskeiðsins í kostnaðar-nytjagreiningu er að kynna nemendum fræðilega undirstöður aðferðarinnar jafnt sem hagnýtingu hennar. Umfjöllunarefnin eru m.a.: Rekstrarhagfræðilegur grundvöllur kostnaðar-nytjagreiningar, mat á neytendaábata, framleiðendaábata og samfélagslegum ábata. Þjóðhagsleg og rekstrarhagfræðileg áhrif framkvæmda. Afvöxtun, ávöxtun og opinberir reiknivextir. Áhrif óvissu á mat á þjóðhagslegum áhrifum og verðmæti upplýsinga. Tilvistarvirði (existence value). Skilyrt verðmætamat. Verðmat á tíma, mannslífum, hávaða.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Haust
    Vinnumarkaðshagfræði (HAG514M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vinnumarkaðshagfræði leitast við að skilja virkni og gangverk markaðar fyrir launavinnu. Framboð og eftirspurn eftir vinnuafli, launamyndun og atvinna eru grundvallaratriði innan vinnumarkaðshagfræðinnar. Í faginu er einnig fjallað um hvað ákvarðar launadreifingu og áhrif stofnana vinnumarkaðar á laun og atvinnu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Haust
    Virðismat fyrirtækja (VIÐ187F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verðmat á fyrirtækjum og mat á fjárfestingum. Fjallað er um innihald ársreikninga og greiningu þeirra í tengslum við verðmat og mat á fjárfestingum. Farið er yfir aðferðir sem henta við verðmat á mismunandi fyrirtækjum s.s. rekstrarfélögum, fasteignafélögum, bönkum, tryggingafélögum o.s.frv.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu II
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Óháð námsári | Haust
    Eignir, atferli og áhætta (VIÐ179F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið snýst um eðli og virkni alþjóðlegra fjármálamarkaða, einkum frá sjónarhóli eignastýringar. M.a. er fjallað um Helstu kenningar um verðmyndun verðbréfa og skilvirkni markaða, kvika bestun eignasafna, árangurs- og áhættumælingar, fjármálakrísur, atferlisfjármál og siðferðileg álitamál. Áhersla er bæði lögð á að nemendur tileinki sér hina tæknilegu hlið námsefnisins, þ.e. séu færir  um að setja fram þau vandamál sem glímt er við með skipulegum hætti og geti notað þær reiknireglur sem til þarf við lausn þeirra og að þeir öðlist góðan skilning á eðli og virkni fjármálamarkaða. Námskeiðið byggir að nokkru á BS námskeiðinu Stýring fjármálasafna og ætlast er til að nemendur hafi annað hvort tekið það eða sambærilegt námskeið áður eða tileinki sér námsefni þess samhliða námsefni þessa námskeiðs.

    Námskeiðið er kennt annað hvert ár.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Óháð námsári | Haust
    Atvinnuvegahagfræði (HAG512M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Atvinnuvegahagfræði (industrial organization) er oft lýst sem anga af rekstrarhagfræði, sumir vilja segja hagnýt rekstrarhagfræði (applied microeconomics), og fjallar um ýmsa þætti í skipulagi og atferli fyrirtækja. Hér er byggt verður ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í fyrri námskeiðum og er áhersla á að auka skilning nemenda á grunnhugtökum og kenningum um verðmyndun á mörkuðum. Önnur og fleiri kenningarleg sjónarmið, svo sem kvik samkeppni, skapandi eyðilegging, einstígur, og kenningar um þróun fyrirtækja og markaða eru kynntar og áhersla er á að nemendur fái víðari sýn á atvinnuvegi en fyrri námskeið hafa sýnt.

    Helstu viðfangsefni: Áhrif starfsskilyrða og samkeppni á tekju- og þróunarmöguleika fyrirtækis. Áhrif fjölda samkeppnisaðila, markaðsþróunar, verðaðgreiningar, vöruaðgreiningar, ófullkominna upplýsinga, auglýsinga, rannsókna og vöruþróunar á hagkvæmustu stefnu fyrirtækis og á markaði. Áhrif stefnu eins fyrirtækis á þróun annarra fyrirtækja í atvinnugreininni. Aðgerðir fyrirtækja til að gera öðrum erfiðari aðgang að atvinnugreininni. Áhrif aðgerða einstakra fyrirtækja í atvinnugrein á þróun greinarinnar. Einnig er hagfræðinni beitt til að útskýra tilhögun viðskipta á markaði og skipulag fyrirtækja, svo sem lóðréttra hamla, lóðréttrar samþættingar, og samruna. Þá eru afleiðingar af ýmsum höftum sem lögð eru á fyrirtæki og markaði greindar.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Haust
    Hagnýttar hagmælingar (HAG104M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið Hagnýtar hagmælingar miðar að því að auka færni nemenda í lestri, greiningu og mati á vísindalegum rannsóknum á sviði hagfræði. Nemendur munu lesa fræðigreinar, flytja fyrirlestra um þær og taka þátt í umræðum um rannsóknir. Einnig munu nemendur fá þjálfun í að draga saman upplýsingar um stöðu þekkingar á tilteknu sviði hagfræðinnar á skipulegan hátt. Námskeiðið leggur grunn að betri skilningi á rannsóknaraðferðum í hagfræði og undirbýr nemendur fyrir skrif lokaritgerðar og frekara nám eða starf þar sem greining og túlkun rannsókna er lykilatriði.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Vor
    MS ritgerð í fjármálahagfræði (HAG433L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Allar upplýsingar um lokaritgerðir má finn í Uglu undir Lokaritgerðir:

    https://ugla.hi.is/cms/milli.php?sid=4221

    Efni ritgerðar skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Hagfræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar.
    Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaranámsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands. Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar meistararitgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
    Æski stúdent þess að ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans.
    Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Óháð námsári | Vor
    Hagnýt verkefni í fjármálum (VIÐ272F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum tækifæri til að beita fjármálakenningum, aðferðum og verkfærum sem þeir hafa tileinkað sér í fyrri námskeiðum við lausn raunhæfra og flókinna verkefna í fjármálum. Áhersla er lögð á að nemendur greini vandamál, móti viðeigandi nálgun og rökstyðji val á fræðilegum líkönum og aðferðum sem notaðar eru við úrlausn verkefna.

    Verkefnin byggja á raunverulegum eða raunhæfum aðstæðum, þar sem sjaldnast er eitt „rétt“ svar. Þess í stað er lögð áhersla á gæði greiningar, forsendur, rökstuðning og faglega framsetningu niðurstaðna. Nemendur vinna með margbreytileg gögn og takast á við óvissu, takmarkanir og ólíkar mögulegar lausnir.

    Sérstök áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér tæknilega og greinandi færni, svo sem að setja fjármálaleg vandamál fram á skipulegan hátt, beita viðeigandi reiknireglum og greiningaraðferðum og miðla niðurstöðum á skýran, gagnrýninn og faglegan hátt í ræðu og riti.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
    Óháð námsári | Vor
    Inngangur að réttarhagfræði (HAG617M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í réttarhagfræði, sem fjallar um hvernig setning og framkvæmd laga hefur áhrif á hagkerfið. Fjallað verður um helstu hugtök rekstrarhagfræðinnar, sem lögð eru til grundvallar í réttarhagfræðinni eins og verðmyndunarkerfið, mælikvarða á skilvirkni laga (Pareto og Kaldor-Hicks) og Coase kenninguna. Þá verður umfjöllun um helstu undirsvið réttarhagfræðinnar eins og eignarréttarhagfræði, bótaréttarhagfræði, samningaréttarhagfræði, samkeppnisréttarhagfræði og réttarfar og refsiréttarhagfræði. Eftirfarandi eru dæmi um viðfangsefni: Hvaða reglur vernda best réttindi? Hvaða aðstæður réttlæta inngrip ríkisins? Hefur úthlutun réttinda áhrif á skilvirkni framleiðslu í þjóðfélaginu eða getur framsal réttinda með frjálsum samningum aukið hana? Hver er kostnaðurinn og ábatinn, sem fylgir lagasetningu og athöfnum manna? Hvaða reglur lágmarka samfélagslegan kostnað á bótaskyldu tjóni? Hver er skilvirkni samningsbóta og riftunarreglna samninga? Er unnt að skipta ábata af samrunum á milli framleiðenda og neytenda? Er til þjóðhagslega hagkvæm brotatíðni? Hvenær eiga aðilar að leita sátta og hvenær sækja mál fyrir dómstólum? Ef tími leyfir verður einnig umfjöllun um atferlisréttarhagfræði, leikjafræði lögfræðinnar og hugmyndir manna um skilvirkni laga á þjóðveldisöld. Þrátt fyrir að hafa þróast innan lögfræðinnar, hafa margar af helstu kenningum réttarhagfræðinnar verið settar fram af hagfræðingum, eins og t.d. Nóbelsverðlaunahöfundunum Gary Becker, Ronald Coase, Oliver Hart, Elinor Ostrom og Oliver Williamson. Áhersla verður jöfnum höndum á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins. Ætti námskeiðið að vekja áhuga allra, sem hafa áhuga á áhrifum laga og reglna á athafnir fólks og þjóðhagslegri hagkvæmni laga, og sérstaklega þeirra á sviði lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði og stjórnmálafræði. Einungis er gert ráð fyrir þekkingu á stærðfræði, sem allir nemendur, sem skráðir eru í Háskóla Íslands ættu að uppfylla.  Kennsla verður á íslensku.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Óháð námsári | Vor
    Samningafærni (VIÐ284F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um samningagerð og samningafærni. Markmið þess er að undirbúa nemendur og veita þeim þjálfun í að takast á við greiningu tækifæra til verðmætasköpunar, lausn ágreinings, samningaviðræður, setja upp samning og útfæra ákvæði hans. Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og raunhæf verkefni og æfingar. Í fyrirlestrum eru kynntar fræðikenningar á þessu sviði, og uppbygging og algeng ákvæði samninga eru skoðuð. Verkefnin felast aðallega í samningaæfingum sem taka mið af algengum úrlausnarefnum sem á reynir við samningagerð í viðskiptalífinu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu III
    Óháð námsári | Vor
    Hagkerfi (HAG601M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í öðrum námskeiðum hafa ýmis lögmál og kenningar hagfræðinnar verið kynntar án þess þó að rætt væri um þjóðfélagslegt umhverfi þeirra kenninga. Hér er þessu snúið við, umhverfi kenninganna er umræðuefnið. Áhersla er lögð á að sýna hverning ólík stofnanaumhverfi hafa áhrif á hagræna hegðun einstaklinga og einnig á það hvernig stofnanaumhverfið er tilkomið. Samanburður stofnanna og hagkerfa krefst stórra spurninga og svörin eru því oft almenn eðlis. Í námskeiðinu verður fyrst reynt að svara því hvers vegna markaðshagkerfi virðast hafa yfirburði yfir annarskonar hagkerfi, en um leið má jafnvel finna svar við því hvers vegna sovésku hagkerfin runnu sín skeið á enda. Megináherslan verður þó á að skýra tilkomu ýmissa stofnanna markaðshagkerfa og hvernig ólíkar stofnanir hafa mismunandi áhrif á virkni slíkra hagkerfa. Verður m.a. fjallað um viðskiptakostnað og skipan eignarréttar og sýnt hvernig bæði móta hegðun einstaklinga og árangur í viðskiptum. Starfsemi ríkisins og leikreglur stjórnmálanna verða einnig gerð að umræðuefni.

    Takið eftir að ætlast er til þess að nemendur komi lesnir í tíma og geti svarað spurningum og rætt efni dagsins.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Vor
    Hagfræðileg ákvarðanataka (HAG015F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    The course has three linked facets (taught in English)and is suitable for students of economics, business, finance and political science.

    • how the human species makes decisions
    • how the decision-weaknesses of others can be strategically exploited
    • insights and tools to improve students’ own decision-making now and in the future.

    “Decisions have consequences”. In addition to providing an increased understanding of the science of economic and financial decision-making, this course improves the decision-making of each participant. The ability to make better decisions conveys a life-long, and broad, competitive advantage.

    The instructor is an experimental game theorist and practicing strategist and strategic consultant. The course combines new trends in behavioral game theory and scientific strategy with application in business and geopolitics.

    The class is interactive. Attendance of at least 80% is required as part of the assessment. The course is thus not suitable for students who cannot attend much due to a conflicting schedule.

    Course topics include:

    • Controlling emotion
    • Neurological research on intuition, and leveraging one's own intuition.
    • Influencing the decisions of others.
    • Improving the decisions of groups and teams.
    • Bubbles and crashes in the financial markets: understanding and possibly profiting from cycles.
    • The science of risk versus how humans usually think about risk
    • Mass movements, mobs, violence and crowd control, and strategizing in such situations.
    • Politics behind the scenes.
    • How the human brain really makes decisions (as opposed to the standard economic model of optimization).
    • Identifying common errors and traps that prevent effective decisions.
    • Analyzing one's own decision-making processes and pinpointing problem areas.
    • Techniques to improve one’s judgments and decisions.
    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Námskeið kennt í lotu IV
    Óháð námsári | Vor
    Tölvutækni í fjármálum (VIÐ267F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum að beita kenningum fjármálafræðinnar á raunhæf verkefni með aðstoð Excel og Visual Basic. Þannig verða helstu líkön fjármálafræðinnar greind með raungögnum. Í lok námskeiðs eiga nemendur að geta unnið með verðlagningu skuldabréfa, hlutabréfa og afleiða og einnig að geta metið ýmis konar áhættu. Farið verður yfir aðferðir við stjórnun og mat verðbréfasafna, notkun Monte Carlo aðferða við verðlagningu valréttarsamninga, mat á flökti (GARCH), vaxtarófi o.s.frv. Þannig mun námskeiðið kenna nemendum að nota ýmsar aðferðir við beitingu fjármálafræða við úrlausn hagnýtra verkefna.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu III
    Óháð námsári | Vor
    Fyrirtækjaskattaréttur (VIÐ403M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir helstu lög sem snerta atvinnurekstur í landinu. Gerð verður grein fyrir skattlagningu hinna ólíku rekstrarforma, hvaða reglur gilda um skattlagningu við stofnun fyrirtækis, meðan á rekstri stendur og við lok starfsemi. Fjallað verður um skattfrjálsa umbreytingu einstakra fyrirtækjaforma, samsköttun fyrirtækja í rekstri og uppgjör til skatts í erlendum gjaldeyri. Rætt verður um helstu auðkenni skattasniðgöngu og muninn á henni og skattaskipulagningu. Þá verður ítarlega farið yfir lög um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Reynt verður að efla sjálfstæði nemanda með úrslausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi staðgóða þekkingu á meginreglum íslenskra laga um skattlagningu fyrirtækja.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Vor
    Náttúruauðlindir og fiskihagfræði (HAG031M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að kynna og útskýra hagræn grundvallarlögmál um nýtingu náttúruaðlinda. Hagkvæmasta nýting í kyrrstæðu og tímatengdu samhengi er leidd út. Ástæðurnar fyrir því að nýting náttúruauðlinda er iðulega ekki hagkvæm eru raktar og útskýrðar. Á þeim grundvelli er fjallað um hagkvæm stjórnkerfi fyrir nýtingu náttúruauðlinda. Hagfræði fiskveiða, orkulinda og umhverfisgæða er skoðuð sérstaklega. Beitt er greiningaraðferðum hagfræðinnar.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár
    • Haust
    • HAG125F
      Eindahagfræði í meistaranámi
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum grundvallaratriði í fræðilegri og hagnýttri rekstrarhagfræði (microeconomics) og hvernig unnt er að beita henni við hagræna greiningu ákvarðanatöku, hvort heldur neytenda eða við rekstur fyrirtækja og stofnana, bæði á  markaði og á sviðum hins opinbera. Fjallað er um neyslumarkaði og framleiðslu, skipulag og uppbyggingu markaða, velferðaráhrif markaðsskipulags, markaðsbreytinga og inngripa hins opinbera. Auk fræðilegrar undirstöðu greiningar, er leitast við að fjalla um og leggja hagnýt verkefni fyrir nemendur.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HAG122F
      Fjármálastærðfræði I (Fjármálatölfræði)
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna fyrir nemendum notkun tölfræði- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa í störfum sínum á fjármálamarkaði.

      Í tölfræðihluta námskeiðsins verður meðal annars farið yfir hugmyndir um samfelldar og strjálar líkindadreifingar, væntigildi, dreifni og staðalfrávik, öryggisbil, núlltilgátur og línulegar aðhvarfsgreiningar, bæði einfaldar og margvíðar. Einnig verður farið yfir grunnhugmyndir líkansins um verðlagningu eigna (e. Capital Asset Pricing Model, CAPM).

      Í verðlagningarhluta námskeiðsins verður farið í verðlagningu á framvirkum samningum á hlutabréf, skuldabréf og gjaldeyri og vaxtaskiptasamningum, byggingu vaxtaferla, auk tegunda og eiginleika valrétta.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • Vor
    • HAG229F
      Heildahagfræði í meistaranámi
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að kynna aðferðir og aðferðafræði þjóðhagfræðinnar og beita þeim við greiningu ýmissa þjóðhagslegra fyrirbæra. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist getu til sjálfstæðrar hugsunar og greiningar á hinum ýmsu vandamálum. Helstu viðfangsefni: Hagvöxtur til langs tíma, kjörsparnaður og tímatengd hagkvæmni, orsakir tregbreytileika verðlags, skömmtun fjármagns og markaðsbrestir á fjármagnsmörkuðum, atvinnuleysi til lengri tíma og náttúrulegt atvinnuleysi, skammtíma- og langtímasveiflur atvinnu og framleiðslu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HAG231F
      Bankar og fjármálamarkaðir
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið fjallar um hlutverk fjármálastofnana og virkni fjármálamarkaða hérlendis. Farið verður yfir helstu einkenni íslenskra fjármálamarkaða með hlutabréf, skuldabréf, fasteignir og peninga, auk þess að stikla á stóru í sögu fjármagnsviðskipta og gera grein fyrir leiðni hagstjórnar í gegnum gengi og vexti. Þá er fjallað um helstu fjárfesta á markaði, s.s. lífeyrissjóði, stefnu þeirra og ákvarðanatöku. Ennfremur er farið yfir starfsemi banka, vöxt þeirra og viðgang, og áhrif þeirra á markaði og efnahagslíf. Einnig verður fjallað um hlutverk seðlabanka í hagstjórn, stjórntæki peningamála, miðlun aðgerða hans um fjármálamarkaðina og áhrif á hagkerfið. Loks er fjallað um hlutverk fjármálaeftirlitsins, nýjar reglur um eiginfjárbindingu kenndar við Basel II.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu IV
    • HAG230F
      Skuldabréf
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu tegundir skuldabréfa og skuldabréfaafleiða. Áhersla verður lögð á að fjalla um skuldabréf bæði í alþjóðlegu samhengi og þau atriði sem sérstök eru á innlendum markaði. Meðal efnisatriða eru: hefðbundin, vísitölutengd, innkallanleg, og breytanleg skuldabréf, skulda- og skuldabréfavafningar, skuldaraafleiður og gjaldþrotatryggingar, og skuldabréfa- og vaxtaafleiður. Mismunandi gerðir skuldabréfa og afleiða verða skoðaðar með tilliti til verðlagningar, eignastýringar og áhættustýringar. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góða undirstöðu í grunnatriðum fjármála, sér í lagi skuldabréfa og afleiða.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • Haust
    • HAG433L
      MS ritgerð í fjármálahagfræði
      Skyldunámskeið
      0
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      0 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Allar upplýsingar um lokaritgerðir má finn í Uglu undir Lokaritgerðir:

      https://ugla.hi.is/cms/milli.php?sid=4221

      Efni ritgerðar skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Hagfræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar.
      Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaranámsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands. Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar meistararitgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
      Æski stúdent þess að ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans.
      Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

      Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    • HAG122M
      Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða)
      Skyldunámskeið
      7,5
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna nemendum fyrir notkun töl- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa á vinnustað.

      Í tölfræðihluta námskeiðsins verður farið yfir tímaraðagreiningu. Þar verða líkön á borð við sjálfsaðhverf líkön (e. Auto regressive model, AR model) og líkön með hlaupandi meðaltöl (e. Moving-average model, MA model) kynnt til leiks. Einnig samsetning þeirra ARMA, ARIMA og SARIMA líkön. Að lokum verður farið yfir líkön með skilyrða misdreifni eða ARCH og GARCH líkön.

      Í verðlagningahluta verður farið í tvíliðutré, Wiener-ferli, hjálparsetningu Ito, líkan Black-Scoles-Merton og verðlagningu á valréttum á hlutabréf og gjaldeyri.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • VIÐ181F
      Fjármögnun fyrirtækja
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið með námskeiðinu er að nemendur tileinki sér þá tækni, sem hefur reynst gagnleg við fjármögnun og fjármálastjórnun fyrirtækja  og öðlist þá innsýn, sem fjármálafræðin veitir, þegar leitað skal lausna á viðfangsefnum fyrirtækja varðandi fjármögnun. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa þekkingu og skilning á grunnkenningum fræðimanna í fjármálum, þekkingu á bestu faglegri nálgun á alþjóðavettvangi og tæknilega getu til að leysa raunhæf verkefni hvað varðar mat og val fjármögnunarkosta til langs tíma og skamms tíma, arðgreiðslur og arðgreiðslustefnu fyrirtækja, útgáfu hlutafjár, útgáfu skuldabréfa og fjármagnsskipan.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • Ekki kennt á misserinu
      HAG101F
      Kostnaðar- og nytjagreining
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Tilgangur kostnaðar-nytjagreiningar er að auðvelda töku ákvarðana sem snerta marga þjóðfélagsþegna með beinum eða óbeinum hætti. Markmið námskeiðsins í kostnaðar-nytjagreiningu er að kynna nemendum fræðilega undirstöður aðferðarinnar jafnt sem hagnýtingu hennar. Umfjöllunarefnin eru m.a.: Rekstrarhagfræðilegur grundvöllur kostnaðar-nytjagreiningar, mat á neytendaábata, framleiðendaábata og samfélagslegum ábata. Þjóðhagsleg og rekstrarhagfræðileg áhrif framkvæmda. Afvöxtun, ávöxtun og opinberir reiknivextir. Áhrif óvissu á mat á þjóðhagslegum áhrifum og verðmæti upplýsinga. Tilvistarvirði (existence value). Skilyrt verðmætamat. Verðmat á tíma, mannslífum, hávaða.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HAG514M
      Vinnumarkaðshagfræði
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Vinnumarkaðshagfræði leitast við að skilja virkni og gangverk markaðar fyrir launavinnu. Framboð og eftirspurn eftir vinnuafli, launamyndun og atvinna eru grundvallaratriði innan vinnumarkaðshagfræðinnar. Í faginu er einnig fjallað um hvað ákvarðar launadreifingu og áhrif stofnana vinnumarkaðar á laun og atvinnu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • VIÐ187F
      Virðismat fyrirtækja
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Verðmat á fyrirtækjum og mat á fjárfestingum. Fjallað er um innihald ársreikninga og greiningu þeirra í tengslum við verðmat og mat á fjárfestingum. Farið er yfir aðferðir sem henta við verðmat á mismunandi fyrirtækjum s.s. rekstrarfélögum, fasteignafélögum, bönkum, tryggingafélögum o.s.frv.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu II
    • Ekki kennt á misserinu
      VIÐ179F
      Eignir, atferli og áhætta
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið snýst um eðli og virkni alþjóðlegra fjármálamarkaða, einkum frá sjónarhóli eignastýringar. M.a. er fjallað um Helstu kenningar um verðmyndun verðbréfa og skilvirkni markaða, kvika bestun eignasafna, árangurs- og áhættumælingar, fjármálakrísur, atferlisfjármál og siðferðileg álitamál. Áhersla er bæði lögð á að nemendur tileinki sér hina tæknilegu hlið námsefnisins, þ.e. séu færir  um að setja fram þau vandamál sem glímt er við með skipulegum hætti og geti notað þær reiknireglur sem til þarf við lausn þeirra og að þeir öðlist góðan skilning á eðli og virkni fjármálamarkaða. Námskeiðið byggir að nokkru á BS námskeiðinu Stýring fjármálasafna og ætlast er til að nemendur hafi annað hvort tekið það eða sambærilegt námskeið áður eða tileinki sér námsefni þess samhliða námsefni þessa námskeiðs.

      Námskeiðið er kennt annað hvert ár.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • Ekki kennt á misserinu
      HAG512M
      Atvinnuvegahagfræði
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Atvinnuvegahagfræði (industrial organization) er oft lýst sem anga af rekstrarhagfræði, sumir vilja segja hagnýt rekstrarhagfræði (applied microeconomics), og fjallar um ýmsa þætti í skipulagi og atferli fyrirtækja. Hér er byggt verður ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í fyrri námskeiðum og er áhersla á að auka skilning nemenda á grunnhugtökum og kenningum um verðmyndun á mörkuðum. Önnur og fleiri kenningarleg sjónarmið, svo sem kvik samkeppni, skapandi eyðilegging, einstígur, og kenningar um þróun fyrirtækja og markaða eru kynntar og áhersla er á að nemendur fái víðari sýn á atvinnuvegi en fyrri námskeið hafa sýnt.

      Helstu viðfangsefni: Áhrif starfsskilyrða og samkeppni á tekju- og þróunarmöguleika fyrirtækis. Áhrif fjölda samkeppnisaðila, markaðsþróunar, verðaðgreiningar, vöruaðgreiningar, ófullkominna upplýsinga, auglýsinga, rannsókna og vöruþróunar á hagkvæmustu stefnu fyrirtækis og á markaði. Áhrif stefnu eins fyrirtækis á þróun annarra fyrirtækja í atvinnugreininni. Aðgerðir fyrirtækja til að gera öðrum erfiðari aðgang að atvinnugreininni. Áhrif aðgerða einstakra fyrirtækja í atvinnugrein á þróun greinarinnar. Einnig er hagfræðinni beitt til að útskýra tilhögun viðskipta á markaði og skipulag fyrirtækja, svo sem lóðréttra hamla, lóðréttrar samþættingar, og samruna. Þá eru afleiðingar af ýmsum höftum sem lögð eru á fyrirtæki og markaði greindar.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HAG104M
      Hagnýttar hagmælingar
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið Hagnýtar hagmælingar miðar að því að auka færni nemenda í lestri, greiningu og mati á vísindalegum rannsóknum á sviði hagfræði. Nemendur munu lesa fræðigreinar, flytja fyrirlestra um þær og taka þátt í umræðum um rannsóknir. Einnig munu nemendur fá þjálfun í að draga saman upplýsingar um stöðu þekkingar á tilteknu sviði hagfræðinnar á skipulegan hátt. Námskeiðið leggur grunn að betri skilningi á rannsóknaraðferðum í hagfræði og undirbýr nemendur fyrir skrif lokaritgerðar og frekara nám eða starf þar sem greining og túlkun rannsókna er lykilatriði.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Vor
    • HAG433L
      MS ritgerð í fjármálahagfræði
      Skyldunámskeið
      0
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      0 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Allar upplýsingar um lokaritgerðir má finn í Uglu undir Lokaritgerðir:

      https://ugla.hi.is/cms/milli.php?sid=4221

      Efni ritgerðar skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Hagfræðideildar. Ritgerðin skal vera 30 einingar.
      Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaranámsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands. Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar meistararitgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
      Æski stúdent þess að ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans.
      Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

      Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    • VIÐ272F
      Hagnýt verkefni í fjármálum
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að veita nemendum tækifæri til að beita fjármálakenningum, aðferðum og verkfærum sem þeir hafa tileinkað sér í fyrri námskeiðum við lausn raunhæfra og flókinna verkefna í fjármálum. Áhersla er lögð á að nemendur greini vandamál, móti viðeigandi nálgun og rökstyðji val á fræðilegum líkönum og aðferðum sem notaðar eru við úrlausn verkefna.

      Verkefnin byggja á raunverulegum eða raunhæfum aðstæðum, þar sem sjaldnast er eitt „rétt“ svar. Þess í stað er lögð áhersla á gæði greiningar, forsendur, rökstuðning og faglega framsetningu niðurstaðna. Nemendur vinna með margbreytileg gögn og takast á við óvissu, takmarkanir og ólíkar mögulegar lausnir.

      Sérstök áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér tæknilega og greinandi færni, svo sem að setja fjármálaleg vandamál fram á skipulegan hátt, beita viðeigandi reiknireglum og greiningaraðferðum og miðla niðurstöðum á skýran, gagnrýninn og faglegan hátt í ræðu og riti.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu IV
    • HAG617M
      Inngangur að réttarhagfræði
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í réttarhagfræði, sem fjallar um hvernig setning og framkvæmd laga hefur áhrif á hagkerfið. Fjallað verður um helstu hugtök rekstrarhagfræðinnar, sem lögð eru til grundvallar í réttarhagfræðinni eins og verðmyndunarkerfið, mælikvarða á skilvirkni laga (Pareto og Kaldor-Hicks) og Coase kenninguna. Þá verður umfjöllun um helstu undirsvið réttarhagfræðinnar eins og eignarréttarhagfræði, bótaréttarhagfræði, samningaréttarhagfræði, samkeppnisréttarhagfræði og réttarfar og refsiréttarhagfræði. Eftirfarandi eru dæmi um viðfangsefni: Hvaða reglur vernda best réttindi? Hvaða aðstæður réttlæta inngrip ríkisins? Hefur úthlutun réttinda áhrif á skilvirkni framleiðslu í þjóðfélaginu eða getur framsal réttinda með frjálsum samningum aukið hana? Hver er kostnaðurinn og ábatinn, sem fylgir lagasetningu og athöfnum manna? Hvaða reglur lágmarka samfélagslegan kostnað á bótaskyldu tjóni? Hver er skilvirkni samningsbóta og riftunarreglna samninga? Er unnt að skipta ábata af samrunum á milli framleiðenda og neytenda? Er til þjóðhagslega hagkvæm brotatíðni? Hvenær eiga aðilar að leita sátta og hvenær sækja mál fyrir dómstólum? Ef tími leyfir verður einnig umfjöllun um atferlisréttarhagfræði, leikjafræði lögfræðinnar og hugmyndir manna um skilvirkni laga á þjóðveldisöld. Þrátt fyrir að hafa þróast innan lögfræðinnar, hafa margar af helstu kenningum réttarhagfræðinnar verið settar fram af hagfræðingum, eins og t.d. Nóbelsverðlaunahöfundunum Gary Becker, Ronald Coase, Oliver Hart, Elinor Ostrom og Oliver Williamson. Áhersla verður jöfnum höndum á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins. Ætti námskeiðið að vekja áhuga allra, sem hafa áhuga á áhrifum laga og reglna á athafnir fólks og þjóðhagslegri hagkvæmni laga, og sérstaklega þeirra á sviði lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði og stjórnmálafræði. Einungis er gert ráð fyrir þekkingu á stærðfræði, sem allir nemendur, sem skráðir eru í Háskóla Íslands ættu að uppfylla.  Kennsla verður á íslensku.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Ekki kennt á misserinu
      VIÐ284F
      Samningafærni
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið fjallar um samningagerð og samningafærni. Markmið þess er að undirbúa nemendur og veita þeim þjálfun í að takast á við greiningu tækifæra til verðmætasköpunar, lausn ágreinings, samningaviðræður, setja upp samning og útfæra ákvæði hans. Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og raunhæf verkefni og æfingar. Í fyrirlestrum eru kynntar fræðikenningar á þessu sviði, og uppbygging og algeng ákvæði samninga eru skoðuð. Verkefnin felast aðallega í samningaæfingum sem taka mið af algengum úrlausnarefnum sem á reynir við samningagerð í viðskiptalífinu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • HAG601M
      Hagkerfi
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í öðrum námskeiðum hafa ýmis lögmál og kenningar hagfræðinnar verið kynntar án þess þó að rætt væri um þjóðfélagslegt umhverfi þeirra kenninga. Hér er þessu snúið við, umhverfi kenninganna er umræðuefnið. Áhersla er lögð á að sýna hverning ólík stofnanaumhverfi hafa áhrif á hagræna hegðun einstaklinga og einnig á það hvernig stofnanaumhverfið er tilkomið. Samanburður stofnanna og hagkerfa krefst stórra spurninga og svörin eru því oft almenn eðlis. Í námskeiðinu verður fyrst reynt að svara því hvers vegna markaðshagkerfi virðast hafa yfirburði yfir annarskonar hagkerfi, en um leið má jafnvel finna svar við því hvers vegna sovésku hagkerfin runnu sín skeið á enda. Megináherslan verður þó á að skýra tilkomu ýmissa stofnanna markaðshagkerfa og hvernig ólíkar stofnanir hafa mismunandi áhrif á virkni slíkra hagkerfa. Verður m.a. fjallað um viðskiptakostnað og skipan eignarréttar og sýnt hvernig bæði móta hegðun einstaklinga og árangur í viðskiptum. Starfsemi ríkisins og leikreglur stjórnmálanna verða einnig gerð að umræðuefni.

      Takið eftir að ætlast er til þess að nemendur komi lesnir í tíma og geti svarað spurningum og rætt efni dagsins.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HAG015F
      Hagfræðileg ákvarðanataka
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      The course has three linked facets (taught in English)and is suitable for students of economics, business, finance and political science.

      • how the human species makes decisions
      • how the decision-weaknesses of others can be strategically exploited
      • insights and tools to improve students’ own decision-making now and in the future.

      “Decisions have consequences”. In addition to providing an increased understanding of the science of economic and financial decision-making, this course improves the decision-making of each participant. The ability to make better decisions conveys a life-long, and broad, competitive advantage.

      The instructor is an experimental game theorist and practicing strategist and strategic consultant. The course combines new trends in behavioral game theory and scientific strategy with application in business and geopolitics.

      The class is interactive. Attendance of at least 80% is required as part of the assessment. The course is thus not suitable for students who cannot attend much due to a conflicting schedule.

      Course topics include:

      • Controlling emotion
      • Neurological research on intuition, and leveraging one's own intuition.
      • Influencing the decisions of others.
      • Improving the decisions of groups and teams.
      • Bubbles and crashes in the financial markets: understanding and possibly profiting from cycles.
      • The science of risk versus how humans usually think about risk
      • Mass movements, mobs, violence and crowd control, and strategizing in such situations.
      • Politics behind the scenes.
      • How the human brain really makes decisions (as opposed to the standard economic model of optimization).
      • Identifying common errors and traps that prevent effective decisions.
      • Analyzing one's own decision-making processes and pinpointing problem areas.
      • Techniques to improve one’s judgments and decisions.
      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu IV
    • VIÐ267F
      Tölvutækni í fjármálum
      Valnámskeið
      7,5
      Valnámskeið á námsleiðinni
      7,5 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum að beita kenningum fjármálafræðinnar á raunhæf verkefni með aðstoð Excel og Visual Basic. Þannig verða helstu líkön fjármálafræðinnar greind með raungögnum. Í lok námskeiðs eiga nemendur að geta unnið með verðlagningu skuldabréfa, hlutabréfa og afleiða og einnig að geta metið ýmis konar áhættu. Farið verður yfir aðferðir við stjórnun og mat verðbréfasafna, notkun Monte Carlo aðferða við verðlagningu valréttarsamninga, mat á flökti (GARCH), vaxtarófi o.s.frv. Þannig mun námskeiðið kenna nemendum að nota ýmsar aðferðir við beitingu fjármálafræða við úrlausn hagnýtra verkefna.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu III
    • VIÐ403M
      Fyrirtækjaskattaréttur
      Valnámskeið
      6
      Valnámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir helstu lög sem snerta atvinnurekstur í landinu. Gerð verður grein fyrir skattlagningu hinna ólíku rekstrarforma, hvaða reglur gilda um skattlagningu við stofnun fyrirtækis, meðan á rekstri stendur og við lok starfsemi. Fjallað verður um skattfrjálsa umbreytingu einstakra fyrirtækjaforma, samsköttun fyrirtækja í rekstri og uppgjör til skatts í erlendum gjaldeyri. Rætt verður um helstu auðkenni skattasniðgöngu og muninn á henni og skattaskipulagningu. Þá verður ítarlega farið yfir lög um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Reynt verður að efla sjálfstæði nemanda með úrslausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi staðgóða þekkingu á meginreglum íslenskra laga um skattlagningu fyrirtækja.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HAG031M
      Náttúruauðlindir og fiskihagfræði

    Óháð námsári

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Að námi loktu eru nemendur vel undirbúnir fyrir:

    • Rannsóknir og störf á sviði áhættu-, eigna-, skulda- og fjárstýringar,
    • Greiningarvinnu
    • Verðlagningar fjármálaafurða

    Listinn er ekki tæmandi

    Ökonomía, félag hagfræðinema við Háskóla Íslands, er þétt og virkt félag sem gerir allt í sínu valdi til að gera námsárin eftirminnilegt.

    Umsagnir nemenda
    Ljósmynd af Ásdísi Kristjánsdóttur
    Að loknu grunnnámi í verkfræði stóð valið á milli þess að halda áfram á sömu braut eða breyta um stefnu. Í ljósi þess að ég hafði áhuga á efnahagsmálum en skorti tengingu við fræðin varð hagfræðin fyrir valinu. Námið í hagfræði var bæði krefjandi og hagnýtt. Ég tel að námið hafi veitt mér góðan grunn fyrir þau verkefni sem ég er að takast á við og geri ráð fyrir að takast á við í framtíðinni.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil