""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vilt þú fara í sveigjanlegt nám með fáum skyldunámskeiðum?
  • Hefur þú trausta undistöðuþekkingu úr fjármálum eða samsvarandi kunnáttu?
  • Getur þú hugsað þér nám sem er kennt í lotum og því einungis lögð áhersla á tvö námskeið í einu hverju sinni?
  • Langar þig að leggja áherslu á fjármál fyrirtækja, reikningshald eða fjármálamarkaði?

Í meistaranámi í fjármálum fyrirækja er stefnt að því að undirbúa nemendur undir störf og rannsóknir á sviði fjármálastjórnunar, fjármálaráðgjafar og markaðsviðskipta og ýmissar sérfræðivinnu á sviði fjármála í fyrirtækjum og fjármálastofnunum.

Námsleiðin er mjög sveigjanleg, með tiltölulega litlum kjarna, en gert er ráð fyrir að nemendur hafi þegar aflað sér traustrar undirstöðuþekkingar í greininni.

Uppbygging náms

Námið er 90 einingar og sett upp sem fullt nám í eitt og hálft ár.

Námið skiptist í:

  • Námskeið, 60 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Meðal viðfangsefna

Úr mörgum valáföngum er að velja og því áherslur hjá hverjum nemanda mismunandi. Eftirfarandi eru dæmi um möguleg viðfangsefni námsleiðarinnar:

  • Fjármögnun fyrirtækja
  • Fjármálatölfræði
  • Fjárfestingar
  • Reikningshald
  • Fjármál
  • Almenn viðskiptafræði
  • Hagfræði
  • Viðskiptasiðfræði
  • Fjármálamarkaðir

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt í 7 vikna lotum, sem þýðir 2 lotur á misseri eða 4 lotur á ári. Nemendur taka því einungis tvö námskeið samtímis og fá þannig meiri dýpt og fókus á hvert námskeið.

Nemendum er gefinn kostur á því að velja sér námsáherslu með því að velja úr miklum fjölda námskeiða sem eru í boði á öðrum sérsviðum meistaranáms innan deildarinnar. Í þessari námsleið eru fá skyldunámskeið, en hin námskeiðin velja nemendur sér sjálfir úr því sem er í boði.

Námið er kennt á íslensku en flestar bækur eru á ensku.

Meginmarkmið

Miðað er að því að nemendur tileinki sér djúpa þekkingu og færni á breiðum grundvelli fjármála.

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

BS-gráða í fjármálum með fyrstu einkunn (7,25) eða önnur BS- eða BA-gráða með fyrstu einkunn og kunnátta sem samsvarar efni eftirfarandi námskeiða á BS-stigi: Fjármál I; Fjármálagerningar, Fjármálamarkaðir; Fjármál II; Lögfræði B; Stýring fjármálasafna. Umsækjandi með verðbréfaréttindapróf telst hafa kunnáttu sem samsvarar efni ofangreindra námskeiða. 

Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Námsleiðin samanstendur af 90 einingum í námskeiðum og 30 eininga MS-ritgerð.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Félaga- og skuldaskilaréttur (VIÐ121F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um viðfangsefni og réttarheimildir félagaréttar. Farið verður yfir mismunandi flokka félaga og mismunandi sjónarmið við úrlausn álitaefna. Gerð verður grein fyrir einkennum helstu tegunda fjárhagslegra félaga. Til umfjöllunar verður m.a. fjárhagslegur grundvöllur þeirra og reglur sem lúta að stöðu viðsemjenda þeirra, stjórnkerfi, ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda og réttarstöðu félagsmanna. Meginefni námskeiðsins snertir einkahlutafélög og hlutafélög og þau grundvallaratriði sem leiða af takmarkaðri ábyrgð eigenda þeirra, þ.e. um vernd fjármuna þessara félaga. Er þar um að ræða reglur um innborgun hlutafjár, skráningu hlutafjár, hækkun og lækkun hlutafjár, eigin hluti og reglur um útgreiðslu fjár með arði eða við slit félaga. Rætt verður um samruna og skiptingu hlutafélaga og þær reglur sem uppfylla þarf í því sambandi. Þá verður rætt um greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrotaskipti félaga. Einnig verður fjallað um hlutverk endurskoðenda í tengslum við störf þeirra fyrir félög.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Haust
Hagnýt tölfræði (VIÐ1ADF)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Haust
Gangvirðisreikningsskil (VIÐ304F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið með námskeiðinu er að nemendur öðlist betri þekkingu og skilning á helstu atriðum er varða greiningu á ársreikningum sem gerðir eru í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Sérstök áhersla verður lögð á gangvirðisreikningsskil og þá helst færslu fjármálagerninga, ss. hlutabréfa, skuldabréfa og afleiðusamninga. Þá verður farið yfir reglur um  virðisrýrnun fjáreigna og annarra eigna. Þá verður einnig gerð grein fyrir helstu kröfum IFRS staðla er varðar færslu rekstrarfjármuna á gangvirði, ss. varanlegra rekstrarfjármuna og fjárfestingareigna sem og vikið að uppreikningi leiguskuldbindinga í ársreikningum. 

Sérstök áhersla á eftirfarandi reikningsskilastaðla;
IFRS 9: Financial Instruments,
IFRS 7: Financial Instruments: Disclosures
IFRS 13: Fair value measurement
IFRS 16: Leases 
IFRS 2: Share-based Payment 
IAS 32: Financial Instruments: Presentation 
IAS 40: Investment Property 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Haust
Viðskiptasiðfræði (VIÐ191F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um siðferðilegar áskoranir í rekstri fyrirtækja og hvernig þær birtast innan fyrirtækja og í samskiptum þeirra við hagsmunaaðila, stjórnvöld og samfélagið í heild. Áhersla er lögð á að nemendur greini, beiti, meti, rökstyðji og móti siðferðilegar lausnir á raunveruleg viðfangsefni viðskipta með hliðsjón af kenningum viðskiptasiðfræðinnar.

Kennsluefni og verkefni byggja á raunhæfum dæmisögum, fræðilegum textum og samvinnu við aðila úr atvinnulífi. Nemendur vinna markvisst að því að greina siðferðileg álitamál, beita fræðilegum nálgunum, meta ólíkar leiðir fyrirtækja, rökstyðja eigin siðferðilega afstöðu og móta hagnýtar tillögur að ferlum og/eða stefnum í flóknu samfélagslegu samhengi.

Námskeiðið leggur jafnframt áherslu á að nemendur þrói meðvitaða og ábyrgða afstöðu til eigin hlutverks sem sérfræðingar og stjórnendur, í takt við gildi Háskóla Íslands um samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, sjálfbærni og nýsköpun, með gott siðferði að leiðarljósi.

Nemendur velja umfang námskeiðsins út frá ECTS einingum. Námskeiðið er hægt að taka sem 7,5 ECTS einingar, 6 ECTS einingar (nemendur úr heimspeki), 3 ECTS einingar og 1,5 ECTS einingar.

Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í fyrstu lotu haustannar, samkvæmt lotukerfi meistaranáms Viðskiptafræðideildar. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Haust
Fjármálastærðfræði I (Fjármálatölfræði) (HAG122F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna fyrir nemendum notkun tölfræði- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa í störfum sínum á fjármálamarkaði.

Í tölfræðihluta námskeiðsins verður meðal annars farið yfir hugmyndir um samfelldar og strjálar líkindadreifingar, væntigildi, dreifni og staðalfrávik, öryggisbil, núlltilgátur og línulegar aðhvarfsgreiningar, bæði einfaldar og margvíðar. Einnig verður farið yfir grunnhugmyndir líkansins um verðlagningu eigna (e. Capital Asset Pricing Model, CAPM).

Í verðlagningarhluta námskeiðsins verður farið í verðlagningu á framvirkum samningum á hlutabréf, skuldabréf og gjaldeyri og vaxtaskiptasamningum, byggingu vaxtaferla, auk tegunda og eiginleika valrétta.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Haust
Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða) (HAG122M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna nemendum fyrir notkun töl- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa á vinnustað.

Í tölfræðihluta námskeiðsins verður farið yfir tímaraðagreiningu. Þar verða líkön á borð við sjálfsaðhverf líkön (e. Auto regressive model, AR model) og líkön með hlaupandi meðaltöl (e. Moving-average model, MA model) kynnt til leiks. Einnig samsetning þeirra ARMA, ARIMA og SARIMA líkön. Að lokum verður farið yfir líkön með skilyrða misdreifni eða ARCH og GARCH líkön.

Í verðlagningahluta verður farið í tvíliðutré, Wiener-ferli, hjálparsetningu Ito, líkan Black-Scoles-Merton og verðlagningu á valréttum á hlutabréf og gjaldeyri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Haust
Fjármögnun fyrirtækja (VIÐ181F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið með námskeiðinu er að nemendur tileinki sér þá tækni, sem hefur reynst gagnleg við fjármögnun og fjármálastjórnun fyrirtækja  og öðlist þá innsýn, sem fjármálafræðin veitir, þegar leitað skal lausna á viðfangsefnum fyrirtækja varðandi fjármögnun. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa þekkingu og skilning á grunnkenningum fræðimanna í fjármálum, þekkingu á bestu faglegri nálgun á alþjóðavettvangi og tæknilega getu til að leysa raunhæf verkefni hvað varðar mat og val fjármögnunarkosta til langs tíma og skamms tíma, arðgreiðslur og arðgreiðslustefnu fyrirtækja, útgáfu hlutafjár, útgáfu skuldabréfa og fjármagnsskipan.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Haust
Virðismat fyrirtækja (VIÐ187F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verðmat á fyrirtækjum og mat á fjárfestingum. Fjallað er um innihald ársreikninga og greiningu þeirra í tengslum við verðmat og mat á fjárfestingum. Farið er yfir aðferðir sem henta við verðmat á mismunandi fyrirtækjum s.s. rekstrarfélögum, fasteignafélögum, bönkum, tryggingafélögum o.s.frv.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Vor
Alþjóðlegur skattaréttur og milliverðlagning (VIÐ296F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir reglur innlendra laga og alþjóða samninga um gerð og túlkun tvísköttunarsamninga. Fjallað verður um fulla skattskyldu manna og fyrirtækja vegna heimilisfestar í ríki og upphafningu hennar í öðru hvoru aðildarríkja tvísköttunarsamnings ef maður eða fyrirtæki er samtímis heimilisfast í tveimur eða fleiri löndum. Gerð verður grein fyrir reglum um takmarkaða skattskyldu og skiptingu skattlagningarréttar milli aðildarríkja tvísköttunarsamnings. Rætt verður um aðferðir til að milda tvískattlagningu samkvæmt innlendum rétti og tvísköttunarsamningi þegar tekjur eru skattlagðar í tveimur eða fleiri löndum. Farið verður yfir það hvernig unnt er að nota tvísköttunarsamninga við skattaskipulagningu með stofnun fyrirtækja í ólíkum löndum. Upplýst verður um áhrif EBE- eða ESS-samningsins á skattalög einstakra ríkja, skaðlega skattasamkeppni og hvað gert hefur verið til að uppræta hana. Nemendur verða þjálfaðir í notkun tvísköttunarsamninga með úrlausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi góða innsýn í það flókna kerfi sem innlendur réttur og tvísköttunarsamningar geta spunnið um fjárhagsráðstafanir manna og fyrirtækja í nútíma þjóðfélagi.

Aðferðir við milliverðlagningu (Transfer-Pricing Methods) ráð oft því hvað hagnaðurinn og kostnaðurinn lendir. MVL er mikilvægur þáttur í alþjóðavæðingu, en um MVL gilda reglur heimalands og einnig útgefnar reglur OECD. MVL er nátengt skattalögum í viðkomandi landi. Reglur vegna MVL eru skoðaðar og áhrif þeirra eru greind.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt í lotu III
Fyrsta ár | Vor
Sjálfvirkni, fjártækni og stjórnunarreikningsskil (VIÐ293F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er í grunnhugtökin og kenningarnar um sjálfvirknivæðingu og RPA (Robotic Process Automation Projects). Sérstaklega er skoðað hvernig eigi að bera kennsl á ferla/verkefni í rekstri, bókhaldi og endurskoðun sem hægt er að gera sjálfvirk með RPA 
Farið í hugtök og grunnatriði er varða fjártækni (Fin. tech.). Þróun og aðstæður á markaði kynntar sem og rafmyntir. Endurskoðunar áhætta skoðuð sérstaklega m.t.t. fjártækni.

Farið verður í hugtök er tengjast stjórnunarreikningsskilum (Management Cost Accounting). Mikilvægi stjórnunarreikningsskila hefur aukist vegna aukins flækjustigs við kostnaðarúthlutun og áreiðanleika kostnaðar. Fjárhagslegar skýrslur byggja á kostnaðarbókhaldi og er því grunnur fyrir áreiðanlegum reikningsskilum, t.d. ársreikningi. Samhliða þessu eru stjórnunar- og eftirlitskerfi skoðuð í samhengi við stjórnunarreikningsskil.   

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt í lotu IV
Fyrsta ár | Vor
Skuldabréf (HAG230F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu tegundir skuldabréfa og skuldabréfaafleiða. Áhersla verður lögð á að fjalla um skuldabréf bæði í alþjóðlegu samhengi og þau atriði sem sérstök eru á innlendum markaði. Meðal efnisatriða eru: hefðbundin, vísitölutengd, innkallanleg, og breytanleg skuldabréf, skulda- og skuldabréfavafningar, skuldaraafleiður og gjaldþrotatryggingar, og skuldabréfa- og vaxtaafleiður. Mismunandi gerðir skuldabréfa og afleiða verða skoðaðar með tilliti til verðlagningar, eignastýringar og áhættustýringar. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góða undirstöðu í grunnatriðum fjármála, sér í lagi skuldabréfa og afleiða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Námskeið kennt í lotu III
Fyrsta ár | Vor
Bankar og fjármálamarkaðir (HAG231F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um hlutverk fjármálastofnana og virkni fjármálamarkaða hérlendis. Farið verður yfir helstu einkenni íslenskra fjármálamarkaða með hlutabréf, skuldabréf, fasteignir og peninga, auk þess að stikla á stóru í sögu fjármagnsviðskipta og gera grein fyrir leiðni hagstjórnar í gegnum gengi og vexti. Þá er fjallað um helstu fjárfesta á markaði, s.s. lífeyrissjóði, stefnu þeirra og ákvarðanatöku. Ennfremur er farið yfir starfsemi banka, vöxt þeirra og viðgang, og áhrif þeirra á markaði og efnahagslíf. Einnig verður fjallað um hlutverk seðlabanka í hagstjórn, stjórntæki peningamála, miðlun aðgerða hans um fjármálamarkaðina og áhrif á hagkerfið. Loks er fjallað um hlutverk fjármálaeftirlitsins, nýjar reglur um eiginfjárbindingu kenndar við Basel II.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Námskeið kennt í lotu IV
Fyrsta ár | Vor
Tölvutækni í fjármálum (VIÐ267F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum að beita kenningum fjármálafræðinnar á raunhæf verkefni með aðstoð Excel og Visual Basic. Þannig verða helstu líkön fjármálafræðinnar greind með raungögnum. Í lok námskeiðs eiga nemendur að geta unnið með verðlagningu skuldabréfa, hlutabréfa og afleiða og einnig að geta metið ýmis konar áhættu. Farið verður yfir aðferðir við stjórnun og mat verðbréfasafna, notkun Monte Carlo aðferða við verðlagningu valréttarsamninga, mat á flökti (GARCH), vaxtarófi o.s.frv. Þannig mun námskeiðið kenna nemendum að nota ýmsar aðferðir við beitingu fjármálafræða við úrlausn hagnýtra verkefna.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu III
Fyrsta ár | Vor
Hagnýt verkefni í fjármálum (VIÐ272F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum tækifæri til að beita fjármálakenningum, aðferðum og verkfærum sem þeir hafa tileinkað sér í fyrri námskeiðum við lausn raunhæfra og flókinna verkefna í fjármálum. Áhersla er lögð á að nemendur greini vandamál, móti viðeigandi nálgun og rökstyðji val á fræðilegum líkönum og aðferðum sem notaðar eru við úrlausn verkefna.

Verkefnin byggja á raunverulegum eða raunhæfum aðstæðum, þar sem sjaldnast er eitt „rétt“ svar. Þess í stað er lögð áhersla á gæði greiningar, forsendur, rökstuðning og faglega framsetningu niðurstaðna. Nemendur vinna með margbreytileg gögn og takast á við óvissu, takmarkanir og ólíkar mögulegar lausnir.

Sérstök áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér tæknilega og greinandi færni, svo sem að setja fjármálaleg vandamál fram á skipulegan hátt, beita viðeigandi reiknireglum og greiningaraðferðum og miðla niðurstöðum á skýran, gagnrýninn og faglegan hátt í ræðu og riti.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt í lotu IV
Annað ár | Óháð misseri
MS ritgerð (FMF431L, FMF431L, FMF431L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0/0/0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistaraprófsritgerð skal valin í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara Viðskiptafræðideildar.

Ritgerðin skal vera 30 einingar og kynna nemendur niðurstöður rannsókna sinna.

Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Kennari og prófdómari skulu meta meistaraprófsritgerð til einkunnar samkvæmt almennum prófreglum Háskóla Íslands.

Ath.! Skv. reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir eiga að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað til Háskólabókasafns.
Æski stúdent þess að MS ritgerð hans verði lokuð í tiltekinn tíma, að lokinni brautskráningu, ber honum að senda rökstudda beiðni til sviðsstjóra Kennslusviðs HÍ og fá skriflegt samþykki hans. Æskilegt er að sótt sé um heimildina áður en ritgerðaskrif hefjast.

Umsókn um lokun meistararitgerða.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

Fyrsta ár
  • Haust
  • VIÐ121F
    Félaga- og skuldaskilaréttur
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um viðfangsefni og réttarheimildir félagaréttar. Farið verður yfir mismunandi flokka félaga og mismunandi sjónarmið við úrlausn álitaefna. Gerð verður grein fyrir einkennum helstu tegunda fjárhagslegra félaga. Til umfjöllunar verður m.a. fjárhagslegur grundvöllur þeirra og reglur sem lúta að stöðu viðsemjenda þeirra, stjórnkerfi, ábyrgð stjórnenda og endurskoðenda og réttarstöðu félagsmanna. Meginefni námskeiðsins snertir einkahlutafélög og hlutafélög og þau grundvallaratriði sem leiða af takmarkaðri ábyrgð eigenda þeirra, þ.e. um vernd fjármuna þessara félaga. Er þar um að ræða reglur um innborgun hlutafjár, skráningu hlutafjár, hækkun og lækkun hlutafjár, eigin hluti og reglur um útgreiðslu fjár með arði eða við slit félaga. Rætt verður um samruna og skiptingu hlutafélaga og þær reglur sem uppfylla þarf í því sambandi. Þá verður rætt um greiðslustöðvun, nauðasamninga og gjaldþrotaskipti félaga. Einnig verður fjallað um hlutverk endurskoðenda í tengslum við störf þeirra fyrir félög.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
  • VIÐ1ADF
    Hagnýt tölfræði
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að styrkja tölfræði og aðferðafræði þekkingu nemenda og gera þeim betur kleift að tileinka sér rannsóknaraðferðir og rannsóknarniðurstöður. Farið verður yfir vandaðar rannsóknir og fjallað um þá tölfræði og aðferðafræði sem er nauðsynleg til að framkvæma þær.  Einnig er ætlast til að nemendur framkvæmi sitt eigið rannsóknarverkefni sem undirbúning undir greiningarvinnu í atvinnulífinu og lokaverkefni til mastersgráðu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • VIÐ304F
    Gangvirðisreikningsskil
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið með námskeiðinu er að nemendur öðlist betri þekkingu og skilning á helstu atriðum er varða greiningu á ársreikningum sem gerðir eru í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Sérstök áhersla verður lögð á gangvirðisreikningsskil og þá helst færslu fjármálagerninga, ss. hlutabréfa, skuldabréfa og afleiðusamninga. Þá verður farið yfir reglur um  virðisrýrnun fjáreigna og annarra eigna. Þá verður einnig gerð grein fyrir helstu kröfum IFRS staðla er varðar færslu rekstrarfjármuna á gangvirði, ss. varanlegra rekstrarfjármuna og fjárfestingareigna sem og vikið að uppreikningi leiguskuldbindinga í ársreikningum. 

    Sérstök áhersla á eftirfarandi reikningsskilastaðla;
    IFRS 9: Financial Instruments,
    IFRS 7: Financial Instruments: Disclosures
    IFRS 13: Fair value measurement
    IFRS 16: Leases 
    IFRS 2: Share-based Payment 
    IAS 32: Financial Instruments: Presentation 
    IAS 40: Investment Property 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • VIÐ191F
    Viðskiptasiðfræði
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um siðferðilegar áskoranir í rekstri fyrirtækja og hvernig þær birtast innan fyrirtækja og í samskiptum þeirra við hagsmunaaðila, stjórnvöld og samfélagið í heild. Áhersla er lögð á að nemendur greini, beiti, meti, rökstyðji og móti siðferðilegar lausnir á raunveruleg viðfangsefni viðskipta með hliðsjón af kenningum viðskiptasiðfræðinnar.

    Kennsluefni og verkefni byggja á raunhæfum dæmisögum, fræðilegum textum og samvinnu við aðila úr atvinnulífi. Nemendur vinna markvisst að því að greina siðferðileg álitamál, beita fræðilegum nálgunum, meta ólíkar leiðir fyrirtækja, rökstyðja eigin siðferðilega afstöðu og móta hagnýtar tillögur að ferlum og/eða stefnum í flóknu samfélagslegu samhengi.

    Námskeiðið leggur jafnframt áherslu á að nemendur þrói meðvitaða og ábyrgða afstöðu til eigin hlutverks sem sérfræðingar og stjórnendur, í takt við gildi Háskóla Íslands um samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, sjálfbærni og nýsköpun, með gott siðferði að leiðarljósi.

    Nemendur velja umfang námskeiðsins út frá ECTS einingum. Námskeiðið er hægt að taka sem 7,5 ECTS einingar, 6 ECTS einingar (nemendur úr heimspeki), 3 ECTS einingar og 1,5 ECTS einingar.

    Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í fyrstu lotu haustannar, samkvæmt lotukerfi meistaranáms Viðskiptafræðideildar. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
  • HAG122F
    Fjármálastærðfræði I (Fjármálatölfræði)
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna fyrir nemendum notkun tölfræði- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa í störfum sínum á fjármálamarkaði.

    Í tölfræðihluta námskeiðsins verður meðal annars farið yfir hugmyndir um samfelldar og strjálar líkindadreifingar, væntigildi, dreifni og staðalfrávik, öryggisbil, núlltilgátur og línulegar aðhvarfsgreiningar, bæði einfaldar og margvíðar. Einnig verður farið yfir grunnhugmyndir líkansins um verðlagningu eigna (e. Capital Asset Pricing Model, CAPM).

    Í verðlagningarhluta námskeiðsins verður farið í verðlagningu á framvirkum samningum á hlutabréf, skuldabréf og gjaldeyri og vaxtaskiptasamningum, byggingu vaxtaferla, auk tegunda og eiginleika valrétta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
  • HAG122M
    Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða)
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna nemendum fyrir notkun töl- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa á vinnustað.

    Í tölfræðihluta námskeiðsins verður farið yfir tímaraðagreiningu. Þar verða líkön á borð við sjálfsaðhverf líkön (e. Auto regressive model, AR model) og líkön með hlaupandi meðaltöl (e. Moving-average model, MA model) kynnt til leiks. Einnig samsetning þeirra ARMA, ARIMA og SARIMA líkön. Að lokum verður farið yfir líkön með skilyrða misdreifni eða ARCH og GARCH líkön.

    Í verðlagningahluta verður farið í tvíliðutré, Wiener-ferli, hjálparsetningu Ito, líkan Black-Scoles-Merton og verðlagningu á valréttum á hlutabréf og gjaldeyri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • VIÐ181F
    Fjármögnun fyrirtækja
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið með námskeiðinu er að nemendur tileinki sér þá tækni, sem hefur reynst gagnleg við fjármögnun og fjármálastjórnun fyrirtækja  og öðlist þá innsýn, sem fjármálafræðin veitir, þegar leitað skal lausna á viðfangsefnum fyrirtækja varðandi fjármögnun. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa þekkingu og skilning á grunnkenningum fræðimanna í fjármálum, þekkingu á bestu faglegri nálgun á alþjóðavettvangi og tæknilega getu til að leysa raunhæf verkefni hvað varðar mat og val fjármögnunarkosta til langs tíma og skamms tíma, arðgreiðslur og arðgreiðslustefnu fyrirtækja, útgáfu hlutafjár, útgáfu skuldabréfa og fjármagnsskipan.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
  • VIÐ187F
    Virðismat fyrirtækja
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verðmat á fyrirtækjum og mat á fjárfestingum. Fjallað er um innihald ársreikninga og greiningu þeirra í tengslum við verðmat og mat á fjárfestingum. Farið er yfir aðferðir sem henta við verðmat á mismunandi fyrirtækjum s.s. rekstrarfélögum, fasteignafélögum, bönkum, tryggingafélögum o.s.frv.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • Vor
  • VIÐ296F
    Alþjóðlegur skattaréttur og milliverðlagning
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verður farið ítarlega yfir reglur innlendra laga og alþjóða samninga um gerð og túlkun tvísköttunarsamninga. Fjallað verður um fulla skattskyldu manna og fyrirtækja vegna heimilisfestar í ríki og upphafningu hennar í öðru hvoru aðildarríkja tvísköttunarsamnings ef maður eða fyrirtæki er samtímis heimilisfast í tveimur eða fleiri löndum. Gerð verður grein fyrir reglum um takmarkaða skattskyldu og skiptingu skattlagningarréttar milli aðildarríkja tvísköttunarsamnings. Rætt verður um aðferðir til að milda tvískattlagningu samkvæmt innlendum rétti og tvísköttunarsamningi þegar tekjur eru skattlagðar í tveimur eða fleiri löndum. Farið verður yfir það hvernig unnt er að nota tvísköttunarsamninga við skattaskipulagningu með stofnun fyrirtækja í ólíkum löndum. Upplýst verður um áhrif EBE- eða ESS-samningsins á skattalög einstakra ríkja, skaðlega skattasamkeppni og hvað gert hefur verið til að uppræta hana. Nemendur verða þjálfaðir í notkun tvísköttunarsamninga með úrlausnum dæma og raunhæfra verkefna. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður hafi góða innsýn í það flókna kerfi sem innlendur réttur og tvísköttunarsamningar geta spunnið um fjárhagsráðstafanir manna og fyrirtækja í nútíma þjóðfélagi.

    Aðferðir við milliverðlagningu (Transfer-Pricing Methods) ráð oft því hvað hagnaðurinn og kostnaðurinn lendir. MVL er mikilvægur þáttur í alþjóðavæðingu, en um MVL gilda reglur heimalands og einnig útgefnar reglur OECD. MVL er nátengt skattalögum í viðkomandi landi. Reglur vegna MVL eru skoðaðar og áhrif þeirra eru greind.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
  • VIÐ293F
    Sjálfvirkni, fjártækni og stjórnunarreikningsskil
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í grunnhugtökin og kenningarnar um sjálfvirknivæðingu og RPA (Robotic Process Automation Projects). Sérstaklega er skoðað hvernig eigi að bera kennsl á ferla/verkefni í rekstri, bókhaldi og endurskoðun sem hægt er að gera sjálfvirk með RPA 
    Farið í hugtök og grunnatriði er varða fjártækni (Fin. tech.). Þróun og aðstæður á markaði kynntar sem og rafmyntir. Endurskoðunar áhætta skoðuð sérstaklega m.t.t. fjártækni.

    Farið verður í hugtök er tengjast stjórnunarreikningsskilum (Management Cost Accounting). Mikilvægi stjórnunarreikningsskila hefur aukist vegna aukins flækjustigs við kostnaðarúthlutun og áreiðanleika kostnaðar. Fjárhagslegar skýrslur byggja á kostnaðarbókhaldi og er því grunnur fyrir áreiðanlegum reikningsskilum, t.d. ársreikningi. Samhliða þessu eru stjórnunar- og eftirlitskerfi skoðuð í samhengi við stjórnunarreikningsskil.   

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
  • HAG230F
    Skuldabréf
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um allar helstu tegundir skuldabréfa og skuldabréfaafleiða. Áhersla verður lögð á að fjalla um skuldabréf bæði í alþjóðlegu samhengi og þau atriði sem sérstök eru á innlendum markaði. Meðal efnisatriða eru: hefðbundin, vísitölutengd, innkallanleg, og breytanleg skuldabréf, skulda- og skuldabréfavafningar, skuldaraafleiður og gjaldþrotatryggingar, og skuldabréfa- og vaxtaafleiður. Mismunandi gerðir skuldabréfa og afleiða verða skoðaðar með tilliti til verðlagningar, eignastýringar og áhættustýringar. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi góða undirstöðu í grunnatriðum fjármála, sér í lagi skuldabréfa og afleiða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
  • HAG231F
    Bankar og fjármálamarkaðir
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um hlutverk fjármálastofnana og virkni fjármálamarkaða hérlendis. Farið verður yfir helstu einkenni íslenskra fjármálamarkaða með hlutabréf, skuldabréf, fasteignir og peninga, auk þess að stikla á stóru í sögu fjármagnsviðskipta og gera grein fyrir leiðni hagstjórnar í gegnum gengi og vexti. Þá er fjallað um helstu fjárfesta á markaði, s.s. lífeyrissjóði, stefnu þeirra og ákvarðanatöku. Ennfremur er farið yfir starfsemi banka, vöxt þeirra og viðgang, og áhrif þeirra á markaði og efnahagslíf. Einnig verður fjallað um hlutverk seðlabanka í hagstjórn, stjórntæki peningamála, miðlun aðgerða hans um fjármálamarkaðina og áhrif á hagkerfið. Loks er fjallað um hlutverk fjármálaeftirlitsins, nýjar reglur um eiginfjárbindingu kenndar við Basel II.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
  • VIÐ267F
    Tölvutækni í fjármálum
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum að beita kenningum fjármálafræðinnar á raunhæf verkefni með aðstoð Excel og Visual Basic. Þannig verða helstu líkön fjármálafræðinnar greind með raungögnum. Í lok námskeiðs eiga nemendur að geta unnið með verðlagningu skuldabréfa, hlutabréfa og afleiða og einnig að geta metið ýmis konar áhættu. Farið verður yfir aðferðir við stjórnun og mat verðbréfasafna, notkun Monte Carlo aðferða við verðlagningu valréttarsamninga, mat á flökti (GARCH), vaxtarófi o.s.frv. Þannig mun námskeiðið kenna nemendum að nota ýmsar aðferðir við beitingu fjármálafræða við úrlausn hagnýtra verkefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu III
  • VIÐ272F
    Hagnýt verkefni í fjármálum
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum tækifæri til að beita fjármálakenningum, aðferðum og verkfærum sem þeir hafa tileinkað sér í fyrri námskeiðum við lausn raunhæfra og flókinna verkefna í fjármálum. Áhersla er lögð á að nemendur greini vandamál, móti viðeigandi nálgun og rökstyðji val á fræðilegum líkönum og aðferðum sem notaðar eru við úrlausn verkefna.

    Verkefnin byggja á raunverulegum eða raunhæfum aðstæðum, þar sem sjaldnast er eitt „rétt“ svar. Þess í stað er lögð áhersla á gæði greiningar, forsendur, rökstuðning og faglega framsetningu niðurstaðna. Nemendur vinna með margbreytileg gögn og takast á við óvissu, takmarkanir og ólíkar mögulegar lausnir.

    Sérstök áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér tæknilega og greinandi færni, svo sem að setja fjármálaleg vandamál fram á skipulegan hátt, beita viðeigandi reiknireglum og greiningaraðferðum og miðla niðurstöðum á skýran, gagnrýninn og faglegan hátt í ræðu og riti.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
  • Óháð misseri
  • FMF431L, FMF431L, FMF431L
    MS ritgerð
    Skyldunámskeið
    0/0/0

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar gjarnan við fjármálastjórn og sérfræðivinnu á fjármálasviðum fyrirtækja og stofnana, svosem hjá:

  • Bönkum
  • Sparisjóðum
  • Verðbréfafyrirtækjum
  • Tryggingafélögum
  • Lífeyrissjóðum

Listinn er ekki tæmandi

  • MAESTRO er félag meistaranema við viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands.
  • Hlutverk og tilgangur félagsins er að vera umhverfisvænt hagsmunafélag með það að meginmarkmiði að gera nám félagsmanna ánægjulegra og árangursríkara. Er það gert með því að vernda hagsmuni félagsmanna, veita gagnlegar upplýsingar, vera í góðu samstarfi við skólann og heimadeildir ásamt því að stuðla að og efla tengsl milli nemenda.
  • Facebook síða MAESTRO

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil