- Starfar þú með börnum?
- Hefur þú áhuga á réttindum barna?
- Vilt þú fá hagnýta þekkingu á hinni nýju löggjöf um samþætta þjónustu við börn og innleiðingu hennar?
- Langar þig að öðlast sérhæfða þekkingu á málefnum barna?
Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi 1. janúar 2022.
Náminu er ætlað að styðja við innleiðingu hinnar nýju löggjafar með því að veita þekkingu á barnamiðaðri nálgun, samþættingu þjónustu, hlutverki tengiliða og málstjóra og mælingum á árangri. Þá verður lögð áhersla á færni í teymisvinnu og þverfaglegri samvinnu auk áherslu á mikilvægi fyrsta stigs þjónustu við börn.
Námið er ætlað öllum þeim sem hafa lokið BA/BED/BS prófi og starfa með börnum í heilbrigðis-, skóla- og velferðarþjónustu eða á öðrum vettvangi.
Námsleiðin er grundvölluð á samstarfssamningi Mennta- og barnamálaráðuneytis og Háskóla Íslands um stuðning HÍ við innleiðingu á hinni nýju löggjöf.
Uppbygging náms
Námið er eins árs 30 eininga fjarnám í rauntíma. Um er að ræða nám með starfi.
Námið samanstendur af þremur 10 eininga námskeiðum og er eitt námskeið kennt í einu:
- Börn og farsæld: Réttindi barna og þátttaka þeirra
- Kennt að hausti
- Samþætt þjónusta við börn: Löggjöf um farsæld
- Kennt fram yfir áramót
- Tengiliðir og þverfaglegt samstarf: Nýtt vinnulag í þágu barna
- Kennt fram að vori
Fyrirkomulag kennslu
- Fyrirlestrar og umræðutímar verða eingöngu í fjarnámi í rauntíma (ekki upptökur) einu sinni í viku.
- Mætingarskylda er í tvær tveggja daga staðlotur á hvoru misseri.
- Námið hefst með tveggja daga staðlotu á haustmisseri.
Umsjónarkennarar
- Ragnheiður Hergeirsdóttir lektor (ragher@hi.is)
- Herdís Steingrímsdóttir lektor (herdisst@hi.is)
Umsjónarkennararar veita nánari upplýsingar. Í námsnefnd sitja einnig fulltrúar Barna- og fjölskyldustofu.
Annað
Hægt er að fá námið metið inn í MA nám í félagsráðgjöf að uppfylltum inntökuskilyrðum.
Umsækjendur skulu hafa lokið grunnnámi á háskólastigi (BA-, BS-, eða B.Ed. gráðu) og starfa með börnum í heilbrigðis-, skóla- og velferðarþjónustu eða á öðrum vettvangi. Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar.
Með umsókn skal fylgja samþykki yfirmanns til að stunda námið samhliða starfi. Samþykki yfirmanns þarf að berast með tölvupósti á netfangið umsokn@hi.is
Tekið verður inn í örnám í Farsæld barna í síðasta sinn skólaárið 2026-2027.
Ljúka þarf 30 ECTS einingum. Námið er skipulagt sem tveggja missera hlutanám. Námið verður kennt í fjarnámi með staðlotum.
- Ferilskrá (CV)
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Heilsársnámskeið
- Samþætt þjónusta við börn: Löggjöf um farsæld
- Haust
- Börn og farsæld: Réttindi barna og þátttaka þeirra
- Vor
- Tengiliðir og þverfaglegt samstarf: Nýtt vinnulag í þágu barna
Samþætt þjónusta við börn: Löggjöf um farsæld (FRG240F)
Námskeiðið veitir grundvallarþekkingu á löggjöf sem varðar þjónustu við börn með sérstakri áherslu á lög um samþætta þjónustu við börn í þágu farsældar barna, Barnasáttmála SÞ og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði barnaréttar. Þá verður fjallað um hvernig löggjöfin leggur áherslu á fyrsta stigs þjónustu við börn og hvernig koma megi í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í fyrri hluta námskeiðsins er einblínt á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á löggjöfinni en í seinni hluta námskeiðs er lögð áhersla á beitingu þekkingar og vinnu með raunhæf dæmi af vettvangi (tilvik). Einnig verður fjallað um félagslegar fjárfestingar, rannsóknir og mælingar sem snúa að farsæld barna og hvernig meta megi hvort markmiðum löggjafar er náð, m.a. með áherslu á aðferðir kostnaðar- og nytjagreininga.
Börn og farsæld: Réttindi barna og þátttaka þeirra (FRG128F)
Í námskeiðinu er áhersla á að veita grundvallarþekkingu á bernskufræðum og í því samhengi rætt um barnamiðaða nálgun, með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu. Fjallað verður um hagsmuni barna, verndandi þætti og hættur sem ógna farsæld barna. Áhersla er lögð á að fjalla um hvernig fyrsta stigs þjónusta við börn skapar tækifæri til að grípa fyrr inn í aðstæður og koma í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í námskeiðinu er fjallað um ýmis álitamál og áskoranir sem geta komið upp í vinnu með börnum. Hagnýt dæmi verða rædd og nýtt til að beita gagnreyndu vinnulagi við ákvarðanatöku auk þess sem farið verður yfir hvernig hægt er að beita ígrundun í starfi.
Tengiliðir og þverfaglegt samstarf: Nýtt vinnulag í þágu barna (FRG238F)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á grundvallarþekkingu á samvinnu og þverfaglegri teymisvinnu innan og utan stofnana. Fjallað verður um hvað felst í samþættingu þjónustu og hlutverki tengiliða og málstjóra í því samhengi, auk þess sem áhersla verður á að kynna hagnýtar aðferðir í þágu farsældar barna. Nemendur fá tækifæri til að rýna og greina styrkleika sína og hindranir á þessu sviði. Auk þess er lögð áhersla á að nemendur læri að tileinka sér og nýta handleiðslu og endurgjöf til faglegs þroska í samvinnu og teymisvinnu. Þá verður fjallað um ýmsar áskoranir við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og um gagnreyndar aðferðir og nálgun í starfi með börnum með áherslu á snemmtæka þjónustu.
- Heilsársnámskeið
- FRG240FSamþætt þjónusta við börn: Löggjöf um farsældSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Námskeiðið veitir grundvallarþekkingu á löggjöf sem varðar þjónustu við börn með sérstakri áherslu á lög um samþætta þjónustu við börn í þágu farsældar barna, Barnasáttmála SÞ og alþjóðlegar skuldbindingar á sviði barnaréttar. Þá verður fjallað um hvernig löggjöfin leggur áherslu á fyrsta stigs þjónustu við börn og hvernig koma megi í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í fyrri hluta námskeiðsins er einblínt á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á löggjöfinni en í seinni hluta námskeiðs er lögð áhersla á beitingu þekkingar og vinnu með raunhæf dæmi af vettvangi (tilvik). Einnig verður fjallað um félagslegar fjárfestingar, rannsóknir og mælingar sem snúa að farsæld barna og hvernig meta megi hvort markmiðum löggjafar er náð, m.a. með áherslu á aðferðir kostnaðar- og nytjagreininga.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
FRG128FBörn og farsæld: Réttindi barna og þátttaka þeirraSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er áhersla á að veita grundvallarþekkingu á bernskufræðum og í því samhengi rætt um barnamiðaða nálgun, með sérstakri áherslu á börn í viðkvæmri stöðu. Fjallað verður um hagsmuni barna, verndandi þætti og hættur sem ógna farsæld barna. Áhersla er lögð á að fjalla um hvernig fyrsta stigs þjónusta við börn skapar tækifæri til að grípa fyrr inn í aðstæður og koma í veg fyrir aðstæður sem ógna farsæld barna. Í námskeiðinu er fjallað um ýmis álitamál og áskoranir sem geta komið upp í vinnu með börnum. Hagnýt dæmi verða rædd og nýtt til að beita gagnreyndu vinnulagi við ákvarðanatöku auk þess sem farið verður yfir hvernig hægt er að beita ígrundun í starfi.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
FRG238FTengiliðir og þverfaglegt samstarf: Nýtt vinnulag í þágu barnaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á grundvallarþekkingu á samvinnu og þverfaglegri teymisvinnu innan og utan stofnana. Fjallað verður um hvað felst í samþættingu þjónustu og hlutverki tengiliða og málstjóra í því samhengi, auk þess sem áhersla verður á að kynna hagnýtar aðferðir í þágu farsældar barna. Nemendur fá tækifæri til að rýna og greina styrkleika sína og hindranir á þessu sviði. Auk þess er lögð áhersla á að nemendur læri að tileinka sér og nýta handleiðslu og endurgjöf til faglegs þroska í samvinnu og teymisvinnu. Þá verður fjallað um ýmsar áskoranir við samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og um gagnreyndar aðferðir og nálgun í starfi með börnum með áherslu á snemmtæka þjónustu.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Þessi menntun gagnast fólki sem starfar með börnum og barnafjölskyldum, meðal annars:
- Félagsráðgjöfum
- Hjúkrunarfræðingum
- Sálfræðingum
- Lýðheilsufræðingum
- Iðjuþjálfum
- Guðfræðingum
- Læknum
- Sjúkraþjálfurum
- Fræðslu- og forvarnarfulltrúum
Listinn er ekki tæmandi
Faró er nemendafélag félagsráðgjafarnema við Háskóla Íslands.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Nemenda- og kennsluþjónusta FVS
Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu.