- Starfar þú með áfengissjúkum?
- Vilt þú fá fræðilega og hagnýta þekkingu um málefni einstaklinga með áfengis- og vímefnaröskun?
- Hefur þú áhuga á forvörnum og meðferðarúrræðum?
- Vilt þú fræðast um áhrif áfengis- og vímefnaröskunar á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi?
Örnám um áfengis- og vímuefnamál er sjálfstætt þverfræðilegt nám. Námið er sniðið að fóki sem hefur lokið grunnnámi á heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísindasviði.
Nemendur fá fræðilega og hagnýta þekkingu um málefni einstaklinga með áfengis- og vímefnaröskun og áhrif þess á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi. Nemendur öðlast einnig fræðilega og hagnýta þekkingu á forvörnum, meðferðarúrræðum og þeim þáttum sem hafa áhrif á stefnumörkun og stjórnun málaflokksins.
Námið er ætlað þeim sem starfa með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun og fjölskyldum þeirra, svo sem félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, lýðheilsufræðingum, iðjuþjálfum, guðfræðingum, læknum og sjúkraþjálfurum.
Uppbygging náms
Námið er 30 einingar og er sett upp sem hluta nám til eins og hálfs árs sem hægt er að stunda samhliða vinnu.
Námið samanstendur af þremur 10 eininga skyldunámskeiðum.
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla fer fram þrjá samfellda daga í mánuði, miðvikudag, fimmtudag og föstudag, sem auðveldar nemendum að sinna náminu meðfram vinnu.
Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.
Meginmarkmið
Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði áfengis- og vímuefnamála.
Annað
Örnámi lýkur með vottorði. Hægt er að fá námið metið að fullu inn MA-nám í félagsráðgjöf, rannsóknartengt nám að uppfylltum inntökuskilyrðum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólanámi á heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísindasviði (BA, B.Ed., eða BS gráðu). Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar (7,25).
Ljúka þarf 30 ECTS einingum.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Haust
- Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar
- Vor
- Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun
- Aðferðir í fjölskyldumeðferðarvinnu einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun
Áfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningar (FRG119F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á félagslegum, sálfræðilegum og læknisfræðilegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu og þróun áfengis- og vímuefnaröskunar. Fjallað er um skimun, greiningarlíkön og einkenni vímuefnaröskunar, auk þess sem gerður er samanburður á samfélagslegum og menningarlegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu.
Jafnframt er fjallað um hlutverk stefnumótunar og löggjafar í tengslum við forvarnir og meðferðarúrræði, með áherslu á þverfaglegt samstarf og hvernig áfengis- og vímuefnaröskun getur þróast með ólíkum hætti hjá mismunandi hópum.
Námskeiðið er kennt í tveimur þriggja daga staðlotum. Skyldumæting er í lotur.
Áfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG228F)
Námskeiðið fjallar um áfengis- og vímuefnamál sem þverfaglegt fræðasvið og miðar að því að nemendur öðlist þekkingu á beitingu gagnreyndra aðferða í meðferð og þjónustu við ólíka hópa. Fjallað er um helstu einkenni vímuefnaröskunar, bataferli einstaklinga með vímuefnaröskun og fallþróun.
Áhersla er lögð á að dýpka skilning nemenda á málefnum fólks með vímuefnaröskun og efla hæfni þeirra til að vinna í þverfaglegu samstarfi að velferðarmálum þessa hóps.
Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum, þrjá daga í senn. Skyldumæting er í lotur.
Aðferðir í fjölskyldumeðferðarvinnu einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskun (FRG231F)
Námskeiðið fjallar um áhrif áfengis- og vímuefnaröskunar einstaklings á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi. Kynntar eru helstu rannsóknir, kenningar og meðferðarnálganir í fjölskyldumeðferð og í vinnu með einstaklingum og fjölskyldum sem búa við áfengis- og vímuefnaröskun.
Jafnframt er fjallað um tengsl áfengis- og vímuefnaneyslu við heimilisofbeldi, sem og streitutengda andlega og líkamlega heilsuvanda aðstandenda.
Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum á misseri, þrjá daga í senn. Skyldumæting er í lotur.
- Haust
- FRG119FÁfengis- og vímuefnamál I: Stefnumótun, þverfagleg nálgun og skilgreiningarSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á félagslegum, sálfræðilegum og læknisfræðilegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu og þróun áfengis- og vímuefnaröskunar. Fjallað er um skimun, greiningarlíkön og einkenni vímuefnaröskunar, auk þess sem gerður er samanburður á samfélagslegum og menningarlegum þáttum áfengis- og vímuefnaneyslu.
Jafnframt er fjallað um hlutverk stefnumótunar og löggjafar í tengslum við forvarnir og meðferðarúrræði, með áherslu á þverfaglegt samstarf og hvernig áfengis- og vímuefnaröskun getur þróast með ólíkum hætti hjá mismunandi hópum.
Námskeiðið er kennt í tveimur þriggja daga staðlotum. Skyldumæting er í lotur.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
FRG228FÁfengis- og vímuefnamál II: Meðferðarlíkön, forvarnir og vinnulag með einstaklingum með áfengis- og vímuefnaröskunSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um áfengis- og vímuefnamál sem þverfaglegt fræðasvið og miðar að því að nemendur öðlist þekkingu á beitingu gagnreyndra aðferða í meðferð og þjónustu við ólíka hópa. Fjallað er um helstu einkenni vímuefnaröskunar, bataferli einstaklinga með vímuefnaröskun og fallþróun.
Áhersla er lögð á að dýpka skilning nemenda á málefnum fólks með vímuefnaröskun og efla hæfni þeirra til að vinna í þverfaglegu samstarfi að velferðarmálum þessa hóps.
Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum, þrjá daga í senn. Skyldumæting er í lotur.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt fyrri hluta misserisFRG231FAðferðir í fjölskyldumeðferðarvinnu einstaklinga með áfengis- og vímuefnaröskunSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um áhrif áfengis- og vímuefnaröskunar einstaklings á aðra fjölskyldumeðlimi og fjölskyldukerfi. Kynntar eru helstu rannsóknir, kenningar og meðferðarnálganir í fjölskyldumeðferð og í vinnu með einstaklingum og fjölskyldum sem búa við áfengis- og vímuefnaröskun.
Jafnframt er fjallað um tengsl áfengis- og vímuefnaneyslu við heimilisofbeldi, sem og streitutengda andlega og líkamlega heilsuvanda aðstandenda.
Námskeiðið er kennt í tveimur staðlotum á misseri, þrjá daga í senn. Skyldumæting er í lotur.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Þessi menntun gagnast fólki sem starfar á sviði áfengis- og vímuefnamála, meðal annars:
- Félagsráðgjöfum
- Hjúkrunarfræðingum
- Sálfræðingum
- Lýðheilsufræðingum
- Iðjuþjálfum
- Guðfræðingum
- Læknum
- Sjúkraþjálfurum
- Fræðslu- og forvarnarfulltrúum
Listinn er ekki tæmandi
Faró er nemendafélag félagsráðgjafarnema við Háskóla Íslands.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Nemenda- og kennsluþjónusta FVS
Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu.