MS-gráða frá deildinni eða sambærileg. Umsækjendur í doktorsnám þurfa að vera komnir með leiðbeinanda og hugmynd að verkefni áður en sótt er um nám. Nemendum er bent á að hafa samband við námsbrautarformann og/eða deildarforseta á því fagsviði sem þeir hafa hug á í sínu framhaldsnámi.
Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.
Þriggja ára fræðilegt og verklegt framhaldsnám (rannsóknatengt framhaldsnám) við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild. Námið er 180 einingar í doktorsverkefni. Þó getur doktorsnefnd gert kröfu um að nemandi í doktorsnámi ljúki einnig námskeiðum. Einingar fyrir námskeið bætast þá ofan á þær einingar sem gefnar eru fyrir doktorsverkefnið. Inntökuskilyrði er rannsóknatengd MS-gráða eða sambærileg gráða í verkfræði. Nemendur af skyldum sviðum geta fengið inngöngu að fullnægðum tilteknum forkröfum.
- CV
- Statement of purpose
- Research proposal
- Study plan
- Research project
- Reference 1, Name and email
- Reference 2, Name and email
- Supervisor/supervising teacher at the University of Iceland
- Certified copies of diplomas and transcripts
- Copy of grant or scholarship application and/or confirmation, if applicable
- Proof of English proficiency
Further information on supporting documents can be found here.
- Grunnnám: nemvon@hi.is
- Meistaranám: mssens@hi.is
- Doktorsnám: phdsens@hi.is
- Umhverfis- og auðlindafræði: umhverfi@hi.is