""
Rannsóknatengt nám

Verkfræði- og náttúruvísindasvið býður uppá fjölbreytt rannsóknatengt doktorsnám. Námið er 180 einingar. Miðað er við að doktorsnám sé þriggja ára nám hið minnsta í fullu starfi.

Tekið er við umsóknum allt árið og sótt er um nám í umsóknargátt skólans.

Umsækjendur í doktorsnám þurfa að vera komnir með leiðbeinanda og hugmynd að verkefni áður en sótt er um nám. Sjá nánar um umsóknarferlið.

Með umsókn í doktorsnám þarf að skila staðfestum afritum af öllum prófskírteinum á pappír til Háskóla Íslands eigi síðar en tveimur vikum eftir að umsókn er skilað inn.

Vinsamlegast hafið samband við verkefnisstjóra framhaldsnáms phdsens@hi.is ef rafrænt umsóknarblað er ekki aðgengilegt.

Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

Jarðvísindadeild

Líf- og umhverfisvísindadeild

Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

Raunvísindadeild

Umhverfis- og byggingaverkfræðideild

Þverfaglegt nám

Upplýsingar fyrir umsækjendur

Lestu allar upplýsingar vel áður en þú hefur umsókn um doktorsnám.

Til að finna leiðbeinanda getur þú notað starfsmannleit HÍ og þrengt leitina með því að slá inn fræðasvið, deild eða sérsvið

Einnig er hægt að leita að leiðbeinanda í Rannsóknargátt Háskólans.

Þú getur sótt um nám við Háskóla Íslands í gegnum umsóknagátt skólans. Þar getur þú fylgst með stöðu umsóknarinnar.

Eftirfarandi upplýsingar þarf að gefa upp á rafræna umsóknareyðublaðinu:

  • Val á námsleið
  • Persónuupplýsingar
  • Fyrra nám (prófgráður, námsgreinar og útskriftarár)
  • Meðmæli/umsagnir
    • Nafn, símanúmer og netfang umsagnaraðila
    • Umsagnir eiga að berast beint til Háskóla Íslands, nema annað sé tekið fram

Vinsamlegast passaðu að öll umbeðin fylgigögn berist sem fyrst. Þú getur fundið upplýsingar um námið, aðgangskröfur o.fl. í kennsluskrá.

Eftir að umsókn er samþykkt getur þú greitt skrásetningargjaldið með greiðslukorti í umsóknagátt Háskólans

Vinsamlegast athugið að þegar sótt er um doktorsnám á Verkfræði- og náttúruvísindasviði verður umsókn ekki samþykkt nema þú sért með leiðbeinanda. Hafðu samband við kennara á viðkomandi rannsóknarsviði áður en þú sækir um og gefðu upp nafn og netfang leiðbeinanda í greinargerðinni sem þú skilar inn með umsókninni.

  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð
  • Prófskírteini og námsferill
    • Hlaða þarf upp skönnuðu eintaki með umsókn
    • Einnig er nauðsynlegt að skila staðfestu pappírseintaki
  • Ef drög að umsókn um fjárstuðning til sjóða liggja fyrir, eiga þau fylgja með umsókninni
  • Rannsóknarverkefni utan deildar
    • Ef verkefnið er unnið utan deildar eða tengdra stofnana þarf að fylgja yfirlýsing og staðfesting frá viðkomandi stofnun eða fyrirtæki um þátttöku í verkefninu.

Auk persónuupplýsinga, starfsreynslu og menntunar (sem skarast að nokkru leyti við rafræna umsóknareyðublaðið), skalt þú einnig að setja eftirfarandi upplýsingar í ferilskrána.

  • áhugamál
  • tölvu- og tungumálakunnáttu
  • aðra kunnáttu t.d. reynslu af kennslu, þátttöku í ráðstefnum, ritaskrá og viðurkenningar.

Vinsamlegast hafðu ferilskrána í PDF formi og hengdu við rafrænu umsóknina. Settu nafn og lýsingu í titil skjalsins, til dæmis:Gudrun_Jonsdottir_Ferilskra.pdf

Þú þarft að skila inn greinargerð (hámark 1 A4 blaðsíða) um markmið þín og væntingar þínar til námsins þar sem meðal annars kemur fram hvers vegna þú velur framhaldsnám hjá viðkomandi deild og hvernig þú hefur hugsað þér að nýta þér það.

Vinsamlegast tilgreindu nafn og netfang leiðbeinanda í greinargerðinni.

Nemandi þarf frá upphafi náms að vera með samþykkt um leiðbeiningu úr hópi fastra kennara við viðkomandi deild.

Vinsamlegast hafðu skjalið í PDF formi og hengdu við rafrænu umsóknina. Settu nafn og lýsingu í titil skjalsins, til dæmis: Gudrun_Jonsdottir_Greinargerd.pdf

Nauðsynlegt er að skila inn prófskírteini, námsferilsyfirliti og skírteinisviðauka með rafrænni umsókn. Skila þarf námsferli með lista allra lokinna námskeiða þar sem fram koma einingar og einkunnir hvers námskeiðs. Frumrit eða staðfest afrit á pappír þarf að vera gefið út af viðkomandi skóla og með bæði undirskrift og stimpli.

Einnig þarf að skila inn frumriti prófskírteinis eða staðfestu afriti á pappír (þarf ekki hjá umsækjendum sem hafa lokið fyrra námi sínu hjá Háskóla Íslands eftir 1981).

Skila þarf prófskírteini og námsferli á eftirfarandi hátt:
Skannað afrit í PDF formati.
Afritið þarf að vera vel læsilegt, svarthvítt eða í lit og á það að fylgja með rafrænni umsókn..
Settu inn nafn og lýsingu á viðkomandi skjali í titil þess, til dæmis: Gudrun_Jonsdottir_Profskirteini.pdf

Frumrit eða staðfest afrit á pappír skal senda á eftirfarandi heimilisfang:

Háskóli Íslands
Nemendaskrá
Sæmundargata 4
102 Reykjavík

Mikilvægt: Með umsókn í framhaldsnám þarf að skila staðfestum afritum af öllum prófskírteinum á pappír til Háskóla Íslands eigi síðar en tveimur vikum eftir að umsókn er skilað.

Í rafrænni umsókn þarf að tilgreina nöfn, símanúmer og netföng tveggja umsagnaraðila.

  • Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands, nema að annað sé tekið fram.
  • Gott er að umsagnaraðilar séu t.d. háskólakennarar eða aðrir sem geta dæmt um námsgetu þína.
  • Umsagnaraðilar skulu skrifa stutta greinargerð og senda beint til Háskóla Íslands, en hún á ekki að fylgja gögnum umsækjanda.

Umsagnir er hægt að senda annað hvort:

  • Í tölvupósti (PDF-skjal í viðhengi) á umsokn@hi.is merkt í efni pósts: Doktorsnám í þeirri deild sem sótt er um ásamt nafni umsækjanda. Verður að vera sent úr netfangi umsagnaraðila.
  • Í pósti á neðangreint heimilisfang:
    Háskóli Íslands
    Nemendaskrá
    Sæmundargata 4
    102 Reykjavík

Umsækjendur sem hafa lokið meistaranámi sínu hjá sömu deild og sótt er um í doktorsnámi hjá Verkfræði-og náttúruvísindasviði HÍ þurfa ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.

Nemendur þurfa að skila verkefnaáætlun fyrir lok fyrsta misseris, unnin í samstarfi við leiðbeinanda.

Samþykkta verkefnaáætlun skal senda á netfangið phdsens@hi.is

Nemendur sem fresta upphafi náms um eitt misseri þurfa að endurnýja umsókn sína áður en umsóknarfrestur rennur út, ef þeir skráðu sig ekki á samþykktarári.

  • Fylla þarf út rafræna umsókn.
  • Ekki þarf að skila fylgigögnum að nýju.
  • Taka skal fram í umsókninni að upphafi náms hafi verið frestað.

Námshlé

Ef þú ert í námshléi og ætlar að hefja nám á ný sendu póst á netfangið phdsens@hi.is

Þetta á við ef þú ætlar að sækja um:

  • mat á námskeiði eða námskeiðum
  • framlengingu námstíma
  • eða annað sambærilegt
Gott að vita
1920__KRI2504_2.jpg
""
Hafðu samband
Nemendaþjónusta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Virka daga 09:00 - 15:30
Mynd af Tæknigarði

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil