Umsækjandi skal hafa lokið meistaraprófi (kandídatsprófi) eða sambærilegu prófi með fyrstu einkunn.
Doktorsnám í félagsfræði samanstendur af 180 eininga ritgerð og 30 einingum í námskeiðum á fræðasviði doktorsverkefnis. Námsbrautin getur, þar að auki, gert kröfu um að doktorsnemandi taki allt að 60 einingar í námskeiðum, í samráði við leiðbeinanda, sé talin þörf á að bæta við undirstöðuþekkingu hans í aðferðafræði rannsókna eða á fræðasviði doktorsverkefnis. Nemendur í doktorsnámi er skylt að taka þátt í málstofum doktorsnámsins í samráði við leiðbeinanda. Nemendur í doktorsnámi sem hafa lokið bæði grunn- og framhaldsnámi við íslenska háskóla skulu að jafnaði taka a.m.k. eitt misseri af doktorsnámi sínu við erlenda háskóla.
Kolbrún Eggertsdóttir,
Gæðastjóri
Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz
Verkefnisstjóri