Félagsvísindasvið býður upp á fjölbreytt doktorsnám við allar deildir fræðasviðsins
Markmið námsins er að veita doktorsnemum vísindalega þjálfun og búa þá undir vísindastörf, meðal annars háskólakennslu eða sérfræðingsstörf við rannsóknastofnanir sem og önnur ábyrgðarmikil störf í samfélaginu. Doktorsnám við Félagsvísindasvið er að lágmarki þriggja ára fullt nám. Doktorsritgerðir við sviðið eru ýmist eitt heildstætt verk (monographia) eða greinasafn. Náminu lýkur með doktorsvörn í heyranda hljóði þar sem doktorsefnið hlýtur lærdómstitilinn Philosophiae Doctor (Ph.D.) frá Háskóla Íslands.
Umsóknarfrestur fyrir umsækjendur utan Norðurlandanna er 1. febrúar.
Umsóknarfrestur fyrir umsækjendur með íslenska kennitölu eða norrænt ríkisfang er til 15. apríl vegna haustmisseris og til 15. október vegna vormisseris.
Umsjónarmenn náms
Kolbrún Eggertsdóttir, gæðastjóri Félagsvísindasviðs
Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz, verkefnisstjóri