""
Tungumál kennslu
Kennt er á ensku fyrir utan nokkur valnámskeið sem kennd verða á íslensku. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum). Nemendur geta skilað inn verkefnum á íslensku eða ensku.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á málefnum nútímasamfélags?
  • Vilt þú efla fræðilega þekkingu og skilning á félagslegum stofnunum og aðstæðum fólks?
  • Langar þig í fræðilegt og hagnýtt nám?
  • Hefur þú gaman af því að fylgjast með þjóðfélaginu?

Í félagsfræði á framhaldsstigi eru nokkur kjörsvið í boði, eftir því hvort nemendur vilja takast á við fræðilegt eða hagnýtt nám. Allar MA námsleiðir eru afar góður undirbúningur fyrir doktorsnám á sviði félagsvísinda og tengdra sviða, ekki síst erlendis. Þá eru í boði styttri námsleiðir sem veita diplómagráðu á tilteknum sviðum.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í

  • Skyldunámskeið, 35 - 55 einingar
  • Bundin valnámskeið, 10 - 30 einingar
  • Frjáls valnámskeið, 5 - 25 einingar
  • Meistaraverkefni, 30 - 60 einingar

Kjörsvið

Val er á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • Félagsfræði
  • Aðferðafræði
  • Afbrot og samfélag
  • Heilsa og velferð

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á ensku og flestar kennslubækur eru einnig á ensku.

Meginmarkmið

Nám í félagsfræði felur í sér undirstöðuþjálfun í fræðilegri hugsun og fræðilegum vinnubrögðum. Jafnframt er lögð áhersla á sjálfstæði og frumkvæði nemenda.

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

BA-, B.Ed- BS- gráða með fyrstu einkunn eða sambærileg gráða. Erlendir umsækjendur, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, þurfa að sýna fram á góða þekkingu á enskri tungu (TOEFL 79, IELTS 6.5).

Hafi nemandi ekki grunn í félagsfræði eða lokið sambærilegum námskeiðum er gerð forkrafa um að nemandi taki eftirfarandi námskeið aukalega samhliða MA námi: FÉL204G Aðferðarfræði: Rannsóknaraðferðir félagsvísinda, FÉL306G Tölfræði I auk námskeiðs í kenningum. 

ATH. Þann 4. desember 2025 samþykkti háskólaráð að háskólaárið 2026-2027 væri fjöldi nýrra nemenda utan EES að undanskildu Sviss, Grænlandi og Færeyjum að hámarki 20. 

Ef þeir sem sækja um að hefja nám og uppfylla inntökuskilyrði, eru fleiri en unnt er að taka inn skal val nemenda byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum:

  1. Einkunnum úr háskóla, ásamt röðun (e. ranking).
  2. Fullnægjandi færni í ensku. skv. inntökuskilyrðum.
  3. Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1-2 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, bakgrunn sinn og þekkingu á þessum málaflokki, markmið með náminu og framtíðaráform, og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð, ef við á.
  4. Viðtölum ef þurfa þykir.

Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Námið skiptist í eftirfarandi hluta: skyldunámskeið 30e, námskeið í bundnu vali 40e, námskeið í frjálsu vali 20e innan Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideildar eða innan annarra deilda Háskóla Íslands eftir samkomulagi. Náminu lýkur almennt með 30e meistararitgerð en nemendur geta sótt um að skrifa 60e ritgerð, og fækkar þá einingum í bundnu/frjálsu vali um 30e.
Nemendur sem þess óska geta valið milli kjörsviðanna Heilsa og velferð, Afbrot og samfélag og Aðferðafræði félagsvísinda. Þá eru skyldunámskeið 50e, bundið val 20e og frjálst val 20e.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Fyrsta ár | Haust
Afbrot og frávikshegðun (FÉL0A1F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið ítarlega í helstu kenningar í afbrotafræði og félagsfræði frávika. Nemendur munu lesa rannsóknagreinar þar sem kenningarnar eru prófaðar, bæði á Íslandi og erlendis.

Fjallað verður um mismunandi brota- og efnisflokka í félags- og afbrotafræðilegu ljósi, t.d. kyn og afbrot, búferlaflutninga og afbrot.

Áhersla er lögð á nemendur tengi saman kenningarlega umræðu og fyrirliggjandi rannsóknir.   

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Leiðangur meistaranema I: Lagt úr höfn (FÉL302F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að leggja almennan grunn fyrir meistaranám í félagsfræði, aðferðafræði og afbrotafræði. Fjallað verður um námsbrautina, kennara hennar og fræðasamfélagið almennt. Nemendur munu ræða ýmis rannsóknarefni og möguleg viðfangsefni meistararitgerða sinna. Verkefni í námskeiðinu munu snúast um fjölbreytileika og stigveldi ritrýnda tímarita, markvissa notkun Web of Science og gervigreindar og gagnrýnið mat á ritrýndum fræðigreinum. Í lok námskeiðsins skila nemendur skriflegu lokaverkefni og kynna það munnlega.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Rannsóknaraðferðir félagsvísinda (FÉL301F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins eru þríþætt: i) að nemendur öðlist dýpri skilning á rannsóknarferlinu og helstu rannsóknaraðferðum, ii) að nemendur fái þjálfun í því að kynna sér og leggja sjálfstætt mat á fyrirliggjandi rannsóknir og iii) að nemendur fái þjálfun í því að setja fram rannsóknarspurningar með hliðsjón af kenningarlegri umræðu og fyrirliggjandi rannsóknum. Fyrirlestrar: Fjallað er um hugtakanotkun og rannsóknaraðferðir með áherslu á að i) draga fram styrkleika og veikleika mismunandi aðferða og ii) tengja saman aðferðafræði, aðferðir og kenningarleg málefni og álitamál. Umræðutímar: Nemendur lesa allmörg rannsóknardæmi og ræða rannsóknaraðferðir á gagnrýninn hátt í tengslum við tiltekin félagsfræðileg umfjöllunarefni. Lokaverkefni: Nemendur skrifa sjálfstæða rannsóknartillögu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Málstofa meistaranema I (FÉL103F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er kynningar- og samráðsvettvangur nemenda í meistaranámi í félagsfræði, aðferðafræði og abrotafræði. Í málstofunni kynnast nemendur kennurum þessara námsbrauta og öðrum nemendum. Nemendur munu jafnframt gera grein fyrir  meistaraverkefnum sínum þegar þar að kemur. Skyldumæting er fyrir nemendur í málstofuna, einu sinni í byrjun misseris og einu sinni í lok misseris. Málstofan telur ekki til eininga.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Kenningar í félags- og mannvísindum (FMÞ102F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um nýleg verk og stefnur sem valdið hafa, eða eru líkleg til að valda, straumhvörfum í félags- og mannvísindalegri hugsun. Áhersla er lögð á samfélagslegt og sögulegt samhengi kenninganna. Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum. Skyldumæting er í umræðutíma einu sinni í viku í 40 mínútur. Fjarnemar geta mætt í kennslustofu eða tekið þátt í gegnum Internetið (með Zoom). 

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Réttarkerfið og löggæsla (FÉL007F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennari lætur nemendum í té leslista sem inniheldur úrval af lesefni á sviði sakfræði. Fjallað verður um kenningar og rannsóknir félags- og afbrotafræðinga á réttar- og löggæslukerfinu. Áhersla er lögð á að nemendur tengi saman kenningarlega umræðu og fyrirliggjandi rannsóknir. Umræðutímar verða haldnir aðra hverja viku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Tölfræði félagsvísinda: Aðhvarfsgreining (FMÞ501M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning og verklega færni til að beita aðhvarfsgreiningu á eigin spýtur. Fjallað er um þau afbrigði aðhvarfsgreiningar sem hvað oftast eru notuð í rannsóknum á sviði félagsvísinda. Farið er í stjórnun breyta, notkun nafnbreyta, línuleg og ólínuleg líkön, aðferðir til þess að prófa miðlun breyta og samvirkni breyta og aðferðir til að nota breytur sem hafa skekkta dreifingu svo eitthvað sé nefnt. Fjallað er um forsendur aðhvarfsgreiningar og aðferðir til að fást við þær. Einnig er fjallað um "logistic" aðhvarfsgreiningu, þar sem háða breytan er tvígild nafnbreyta. Samhliða þessari umfjöllun verður farið í saumana á ályktunartölfræði, notkun marktektarprófa og túlkun niðurstaðna. Áhersla er lögð á að nemendur fái umtalsverða verklega reynslu af því að greina megindleg gögn. Kennari útvegar könnunargögn sem nemendur nota til þess að prófa þær aðferðir sem kenndar eru. Eftir fremsta megni verður reynt að samþætta fræðilegar spurningar og tilgátuprófun. Tölfræðiforritið SPSS fyrir Windows er notað.

Annað ár | Vor
Leiðangur meistaranema II: Land fyrir stafni (FÉL429F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að skapa stuðningsnet fyrir meistaranema í félagsfræði og afbrotafræði sem vinna að meistararitgerðum sínum. Í upphafi misserisins kynna nemendur örstutt viðfangsefni ritgerða sinn en ítarlegri kynningar á niðurstöðum þeirra verða á dagskrá síðar á misserinu eftir því sem meistaraverkefnunum vindur fram. Kennurum, doktorsnemum og öðrum rannsakendum verður einnig boðið að taka þátt á semínarinu eftir því sem við á. Hvatt verður til uppbyggilegrar endurgjafar og samræðna milli nemenda og kennara, jafnframt því sem nemendur fá þjálfun í því að kynna niðurstöður rannsókna og styrkja með því faglega og akademíska sjálfsmynd sína.

Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna að ritun meistararitgerðar. 

Málstofa meistaranema II (FÉL430F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynning á lokaritgerð í meistaranámi í félagsfræði, aðferðafræði og afbrotafræði.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Óháð misseri
MA-ritgerð í félagsfræði (FÉL441L, FÉL441L, FÉL441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0/0/0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð er lokaverkefni í meistaranámi og byggir á sjálfstæðri rannsókn eða starfstengdu rannsóknar- og þróunarverkefni. Lokaverkefni til meistaragráðu skal vera einstaklingsverkefni. Markmið lokaverkefnis er að þjálfa nemendur í sjálfstæðum fræðilegum vinnubrögðum.

Meistaranemar hafa umsjónarkennara úr hópi lektora, dósenta eða prófessora. Leiðbeinandi leiðbeinir með lokaverkefni til meistaragráðu. Umsjónarkennari og leiðbeinandi eru að jafnaði sami maðurinn. Heimilt er að ráða meðleiðbeinanda en sú ráðning er háð samþykki deildar.

Lengd meistararitgerða er háð því hvers konar verkefni er um að ræða, einingafjölda þess og efnistökum. Miðað skal við að 60 eininga meistararitgerð sé að jafnaði 40.000 orð. Hver deild setur nánari reglur um umfang og efnistök meistararitgerða.

Prófdómari skal ávallt leggja mat á lokaverkefni meistaranema ásamt leiðbeinanda. Deildarráð tilnefnir prófdómara.

Nánari upplýsingar á heimasíðu deildar: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3458

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

Nánari upplýsingar á heimasíðu deildar: Lokaritgerðir í meistaranámi í Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild

Óháð námsári | Heilsársnámskeið
Mentor í Spretti (GKY001M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu felast verkefni nemenda í því að starfa sem mentor fyrir þátttakendur á framhalds- og háskólastigi í verkefninu „Sprettur“. Mentorar sinna mikilvægu hlutverki við að styðja og hvetja aðra nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk mentora er að skapa uppbyggjandi samband við þátttakendur, vera jákvæð fyrirmynd og taka þátt í sameiginlegum viðburðum sem skipulagðir eru innan Spretts. Mentor hlutverkið byggir á tengslamyndun og reglulegri samveru og felur í sér skuldbindingu gagnvart þeim nemendum sem mentor styður. 

Sprettur er stuðningsverkefni fyrir nemendur með erlendan bakgrunn sem óska eftir auknum stuðningi til að efla námsárangur og þátttöku í háskólasamfélaginu. Nemendur í námskeiðinu starfa sem mentorar og eru tengdir saman við þátttakendur með hliðsjón af sameiginlegum áhugasviðum. Mentorar vinna jafnframt saman í hópum og í samráði við kennara og umsjónaraðila verkefnisins. 

Nemendur geta valið að skrá sig í námskeiðið á haustönn, vorönn eða dreifa álaginu yfir báðar annir (allt skólaárið). Skipulag námskeiðsins tekur mið af þessu vali, en allar námskröfur eru þær sömu óháð annaskiptingu. Mentorar skipuleggja reglubundna samveru með þátttakendum í Spretti og verja að jafnaði þremur klukkustundum á mánuði í samveru með þátttakendum, þremur klukkustundum á mánuði í heimavinnuhópi og mæta í alls fimm málstofur.  

Nemendur skila dagbókarfærslum á Canvas og þurfa að hanna og framkvæma námsupplifun fyrir þátttakendur í Spretti. Dagbókarfærslur byggjast á lesefni og gagnrýnum hugleiðingum um mentorstarfið og eigin reynslu af þátttöku í verkefninu. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku. 

Að loknu námskeiði, og að uppfylltum öllum kröfum, fá nemendur 5 ECTS einingar auk formlegs vottorðs fyrir þátttöku og lok verkefnisins. 

Nemendur fylla út rafrænt umsóknareyðublað og umsjónarkennari hefur samband við umsækjendur.  

Frekari upplýsingar um verkefnið „Sprettur” má nálgast hér: www.hi.is/sprettur  

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Eigindlegar rannsóknaraðferðir I (FMÞ103F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

Kennslutungumál: Íslenska

Sjálfið mætir samfélaginu: Félagssálfræði hversdagslífsins (FÉL701F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hversdagslíf okkar getur sýnst leiðinlega venjubundið og fyrirsjáanlegt. Félagssálfræðin sýnir þó að um er að ræða spennandi og fjölbreytilegt fyrirbæri sem hvílir á flóknu samspili einstaklingsbundinna þátta og samfélagslegra formgerða. Í þessu námskeiði verða kenningar og rannsóknir félagssálfræðinga nýttar til að varpa ljósi á það sem dylst að baki glitri hins sjálfgefna. Farið verður frá því sem öllum er opinbert til þess sem við dyljum og felum, skoðað það sem auglýsendur, sölufólk og áhrifavaldar gera til að sveigja okkur og beygja og skoðað að hve miklu leyti breytur á borð við kyn, stétt og þjóðerni stjórna því hvað við sjáum, hvernig við sjáum og hvernig framkoma okkar og viðbrögð við áreiti hversdaglífsins eru.

Lagt er upp með að nemendur vinni fjölbreytileg smærri verkefni í tengslum við umfjöllunarefni námskeiðsins, ýmist einir eða í hóp. Þó svo félagssálfræði nýti bæði eigindlegar og megindlegar aðferðir verður áherslan á eigindlegar aðferðir í verkefnum nemenda svo sem myndgreining, samtalsgreining og þátttökuathuganir.

Félagsfræði borgarsamfélaga og landsbyggða (FÉL301M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um borgir, bæi, þorp og sveitir í hnattvæddum heimi. Áhersla verður lögð á þann mikla hreyfanleika fólks, fjármagns, varnings og upplýsinga sem hefur umbylt innra gangverki, afmörkun og tengslum þéttbýlis og dreifbýlis í ólíkum löndum. Fjallað verður um helstu kenningar um samspil menningar og formgerðar og þær þjóðfélags- og tæknibreytingar sem riðlað hafa afmörkun og samskiptamynstri milli þéttbýlis og dreifbýlis. Sérstaklega verður fjallað um búferlaflutninga innan og milli landa og áhrif þeirra á þróun ólíkra byggðarlaga.

Inngangur að hagtölum (FÉL303F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er kennt í samvinnu við Hagstofu Íslands,  Háskólann á Bifröst og Háskólann á Akureyri, með stuðningi frá Samstarfi háskóla.

Markmið þessa námskeiðs er að efla hæfni nemenda til þess að skilja og greina innlendar og erlendar hagtölur. Nemendur munu öðlast þekkingu á tilgangi hagtalna, framleiðslu þeirra og aðferðafræði við framleiðslu hennar. Þá fá nemendur þjálfun í að greiningu útgefinna hagtalna, framsetningu og túlkun í innlendu og alþjóðlegu samhengi, eftir viðfangsefni þeirra.

Nemendur munu öðlast hagnýta reynslu við að vinna raunhæf verkefni  þar sem hagtölur eru notaðar til að greina efnahags- og samfélagslega þróun og í að greina aðgerðir stjórnvalda á grundvelli hagtalna. Nemendur skila greiningarskýrslu sem miðar að því að veita upplýsingar sem leggja má til grundvallar stefnu stjórnvalda og mats á aðgerðum þeirra í tilteknum málaflokkum.

Kennsla fer fram á tímabilinu 1. september til 17. október. Kennt verður í fjarnámi með netfundum í rauntíma sem mikilvægt er að mæta í. Fyrsti netfundur er þriðjudaginn 2. september. Nánari upplýsingar um kennslufyrirkomulag og tímasetningar eru birtar í kennsluáætlun. 

Praktík og kenningar í safnafræði (SAF002F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður tekist á við spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr praktísku safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri greinum.  Saga greinarinnar verður skoðuð með gagnrýnu hugarfari og hugað verður að straumum og stefnum í faginu við upphaf 21. aldar. Sérstaklega er litið til safna sem almannastofnanir, en sem slíkar hafa þær mörgum og vaxandi hlutverkum að gegna fyrir samfélög, lífsgæði fólks og hópa, menntun, rannsóknir og þverþjóðleg samskipti svo eitthvað sé nefnt. Hugað verður að því hvernig bæði praktík og kenningar hafa mótað safnastofnanir og starfsemi þeirra. Fjallað verður m.a. um praktík og kenningar um söfnun, varðveislu, flokkun og skráningar, sýningagerð, ritskoðun, frumbyggja, áhrif stafrænnar menningar, trúarbrögð, innflytjendur, fólksflutninga, minni, gleymsku og sanngildi.  Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi og byggir námsmat á verkefnum sem unnin eru yfir misserið. 

Formæður og franskir barmar: Menningarmörk, klæðnaður og þjóðernismótun á 19. öld (ÞJÓ063M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt í ágúst 2022

Í námskeiðinu verður rannsakað hlutverk klæðnaðar í mótun menningarmarka og þjóðernisvitundar á Íslandi, c. 1790-1920. Sérstök áhersla verður lögð á þjóðlegan klæðnað kvenna, en almennt athugað hvernig klæðahættir beggja kynja áttust við tískustrauma og stefnur meginlandsins þegar skilgreina skyldi sýnileg einkenni íslensks þjóðernis. Kynntar verða kenningar um þróun menningarmarka, sem og aðferðafræði um nýtingu persónulegra frásagna og sögulegra heimilda í túlkun á menningu þjóðar. Rýnt verður í ferðabækur, greinaskrif og sendibréf til að kanna áhrif gagnvirkra samskipta milli menningarheilda á gerð og þróun menningarmarka og þjóðernisvitundar. Í skriflegu lokaprófi skulu kenningar og heimildir þessar nýttar til að skýra áhrif og notkun klæðnaðar í myndun og staðfestingu menningarmarka og ætlast til að nemendur geti rætt og metið áhrif einstakra persóna og hópa á mótun þjóðernisvitundar með klæðnaði

Umsjónarmaður: ÓIafur Rastrick             
Kennari:  Dr. Karl Aspelund, Associate Professor, University of Rhode Island.

Mannskepnur og önnur dýr (ÞJÓ110F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðu, rafrænum fyrirlestrum og vettvangsferðum í náttúru og á söfn.

Samskipti manneskjunnar við önnur dýr er viðfangsefni þessa námskeiðs sem við nálgumst frá bæði fræðilegum og listrænum sjónarhornum. Nemendur vinna sjálfstæð verkefni, um dýr að eigin vali, þar sem áhersla er einnig lögð á sjónræna framsetningu - t.d. teikningar eða ljósmyndir.  Í fyrirlestrum verður m.a. fjallað um hvítabirni, hvali, geirfugla og lunda og nýlegar rannsóknir á þeim.  Fjallað verður um áhrifavald og ólíkar birtingarmyndir dýra í margvíslegu listrænu og menningarlegu samhengi, til dæmis í fornbókmenntum, þjóðsögum, munnmælum, kvikmyndum, fréttum, efnismenningu og ferðamennsku. Þá verður til dæmis hugað að „framhaldslífi“ dýra í formi listmuna, safngripa og minjagripa. Við munum skoða gripi í einkaeigu og á opinberum vettvangi og spyrja spurninga á borð við: hvað gerist þegar lifandi dýri er breytt í safngrip? Hvernig þróast og breytist merking dýrsins í ólíku samhengi? Hvernig mótast hugmyndir okkar um dýr? Tekist verður á við hlutverk ólíkra dýra í þekkingasköpun og mótun orðræðu um loftslagsmál og málefni norðurslóða, tengsl við ákveðin landsvæði og menningarhópa og hlutverk þeirra í ímynda- og sjálfsmyndasköpun bæði fortíðar og samtíma.  Stigið verður út fyrir hefðbundna ramma sem snúa að aðgreiningu manna/dýra og annarra lífvera um leið og við könnum samtvinnaða hugmynda- og vistheima þeirra.

Markmið

Markmið námskeiðs er að velta upp áríðandi spurningum og málefnum er snúa að sambúð fólks og dýra, loftlagsbreytingum, útrýmingu dýrategunda og sjálfbærni. Við munum íhuga hvernig listamenn, rannsakendur, aðgerðasinnar og söfn hafa tekið þátt í umræðu um þessi málefni og hvernig hægt sé að þróa umræðuna áfram. Við munum skoða hvernig mismunandi lista- og menningarminjasöfn miðla hugmyndum og upplýsingum um samband manna og dýra í gegnum safneign sína og sýningar. Nemendur eru hvattir til að nálgast, með gagnrýnum hætti, sjónrænt efni, muni, gripi og texta, bæði rafrænt en einnig með heimsóknum á söfn og sýningar. 

Stjórnun menningarstofnana (SAF027F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

 Í þessu námskeiði verða kynnt til sögunnar fræðilegar nálganir á stjórnun menningarstofnana, svo sem safna, og starfsemi hins opinbera sem snýr að stofnunum á sviði menningarmála. Markmiðið er að gefa innsýn í mikilvægi menningarstarfsemi í samfélaginu. Fjallað er um menningarmál í sögulegu samhengi, kerfi menningarmála hjá ríki og borg, lagagrundvöll menningarstarfsemi og stefnumörkun á fagsviðinu. Fjallað er um hlutverk og sérstöðu hins opinbera í stjórnun á sviði menningarmála. Markmiðið er að gefa innsýn í skipulag ríkis og sveitarfélaga. Þá verður fjallað um stjórnun verkefna og stofnana, mikilvægi faglegrar stjórnunar á sviði verkefnastjórnunar, fjármálastjórnunar og mannauðsmála. Sjónum verður beint að aðstæðum hér á landi og á Norðurlöndum í samhengi við lýðræði og hugmyndir um aðgengi almennings að menningu. Litið til menningar- og safnamála í alþjóðlegu samhengi

Söfn sem námsvettvangur (SAF016F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einn megintilgangur safna á Íslandi er að skila menningar- og náttúruarfi landsins til komandi kynslóða og stuðla að aukinni þekkingu á þessari arfleifð og skilningi á tengslum hennar við umheiminn. Ætlast er til þess (samkvæmt safnalögum) að söfn reyni að „auka lífsgæði manna“ með því að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista náttúru eða vísinda. Söfn og safnfræðsla geta því haft áhrif á samfélag, hópa og einstaklinga. Safnafræði getur komið hér að liði og er megin viðfangsefni námskeiðsins. Kynntar verða fræðilegar kenningar sem hafa að markmiði að stuðla að fjölbreyttri og áhrifamikilli fræðslu tengdri fornleifum, list, náttúruvísindum, menningarlegri arfleifð og öðrum viðfangsefnum safna. Hugað verður að fjölbreyttum markhópum safnfræðslu, hlutverki safngesta innan safna, rými, textagerð, margmiðlun, gagnvirkni og fleira.

Þetta er fjarkennslunámskeið sem skiptist í þrjár lotur. Í hverri lotu eru ör-fyrirlestrar frá kennara með hugleiðingum um námsefnið, gesta-fyrirlestrar (stafrænir) og aukaefni. Þrjár stað- og/eða ZOOM-lotur eru yfir önnina, þar sem nemendur fá fyrirlestra frá starfsmönnum safna og vinna að fræðsluverkefni í samstarfi við safn í Reykjavík. Verkefnið verður þróað út frá fræðilegum áhuga nemenda undir handleiðslu kennara og með aðstoð starfsmanna safnsins.

Hreyfanleiki og fólksflutningar: aðferðafræðilegar áskoranir (MAN101M)
Valnámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Evrópsk samfélög nútímans einkennast af vaxandi hreyfanleika, fólksflutningum og fjölbreytileika. Þessar breytingar skapa ýmsar áskoranir fyrir gagnasöfnun, svo sem með manntölum og könnunum. Innflytjendur eru yfirleitt skilgreindir sem hópar sem erfitt er að ná til vegna mikils hreyfanleika, tímabundinnar búsetu og/eða óreglulegrar búsetu. Þetta hindrar hefðbundnar úrtökuaðferðir. Að auki geta innflytjendur haft takmarkaða hvata til að taka þátt í rannsóknum sem gerðar eru í móttökuríkinu. Í námskeiðinu munum við ræða mismunandi rannsóknaraðferðir sem hægt er að nota til að rannsaka hreyfanleika og fólksflutninga. Án þess þó að vera bundið við það er áherslan lögð á megindlegar og blandaðar aðferðir.

Gagnrýnin sýn á praktík og kenningar í safnafræði (SAF105F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður tekist á við gagnrýnar spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr praktísku safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri greinum. Saga safna verður skoðuð með gagnrýnu hugarfari og hugað verður að straumum og stefnum í faginu við upphaf 21. aldar. Sérstaklega er litið til safna sem almannastofnanir, en sem slíkar hafa þær mörgum og vaxandi hlutverkum að gegna fyrir samfélög, lífsgæði fólks og hópa, menntun, rannsóknir og þverþjóðleg samskipti svo eitthvað sé nefnt. Fjallað verður m.a. um hagnýtingu kenninga í safnastarfi, siðferði, ritskoðun, hnattvæðingu, frumbyggja, áhrif stafrænnar menningar, trúarbrögð, innflytjendur og inngildingu, svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi og byggir námsmat á verkefnum sem unnin eru yfir önnina. Námskeiðið hefst í byrjun október og endar í lok nóvember.

Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Praktík og kenningar í safnafræði (SAF104F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður tekist á við spurningar sem tengjast víxlverkun á milli praktíkur (e. practice) og kenninga í safnastarfi. Fjölmörg dæmi úr safnastarfi listasafna, náttúruminjasafna og menningarminjasafna verða skoðuð í þessu samhengi og hentar námskeiðið því nemendum úr fleiri greinum en safnafræði, s.s. eins og fornleifafræði, listfræði, menningarfræði, fötlunarfræði, mannfræði, þjóðfræði, félagsfræði og fleiri. Hugað verður að því hvernig bæði praktík og kenningar hafa mótað safnastofnanir og starfsemi þeirra. Fjallað verður m.a. um praktík og kenningar um söfnun, varðveislu, flokkun og skráningar, sýningagerð, gesti, markaðsmál og félagsleg áhrif safna. Námskeiðið er kennt sem netnám og byggir námsmat á fjölbreyttum verkefnum sem unnin eru í námskeiðinu. Námskeiðið er kennt við upphaf haustannar og lýkur í lok september.

Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Umhverfismannfræði (MAN509M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um rannsóknir mannfræðinnar og annarra fræðigreina félags- og mannvísinda á náttúru, umhverfi og tengslum manneskjunnar og umhverfis hennar. Ýmis grunnhugtök og fræðilegar hugmyndir sem umhverfismannfræðin og skyldar greinar nota verða kynnt og rædd.

Gerð er grein fyrir ýmsum tilraunum til að varpa ljósi á tilurð og einkenni ýmissa menningarstofnana og félagslegra ferla með skírskotun til vistkerfa og efnislegra skilyrða sem forsendu tilvistar þeirra. Þá verður vikið að gagnrýni sem þessi sjónarmið hafa sætt. 

Sérstaklega verður vikið að þeim nýju viðhorfum sem skapast hafa í umhverfismálum á síðustu árum, meðal annars hvað varðar auðlindanýtingu af ýmsu tagi og umhverfishyggju.

Síðast en ekki síst verður farið yfir ýmsa snertifleti loftslagsbreytinga og samfélaga víða um heim. Loftslag, loftslagsbreytingar og samfélög og menning verða einnig skoðuð í sögulegu ljósi, út frá ýmsum kenningum sem hafa komið fram um samband þeirra og gagnkvæm áhrif.

Nokkur etnógrafísk dæmi um samspil manns og umhverfis eru höfð til hliðsjónar í námskeiðinu. 

Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu

Almenn kynjafræði (KYN101F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

Lífshlaupið, sjálf og samfélag (FFR302M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í umfjöllun námskeiðsins, þar sem áhersla er á lífshlaupið og þau meginsvið sem snerta daglegt líf, svo sem fjölskyldulíf, menntun, atvinnu og búsetu. Rýnt verður í íslenskar og erlendar rannsóknir um líf og aðstæður fatlaðs fólk og þau fjölmörgu öfl sem móta sjálfsmynd og sjálfsskilning fatlaðra barna, ungmenna og fullorðins fólks. Fræðileg umfjöllun námskeiðsins er tengd við lagasetningar, stefnumótun, þjónustu, velferðarkerfi og félagslegar aðstæður fatlaðs fólks. 

Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði (FFR102F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á þróun hugmynda og kenninga um fötlun og læri að greina áhrif þeirra á stefnumótun, þjónustu og daglegt líf fatlaðs fólks. Námskeiðið byggir á þverfræðilegum og gagnrýnum sjónarhornum og tengir fræðilega umfjöllun við réttindabaráttu og alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD). Fjallað verður um félagsleg og menningarleg sjónarhorn, helstu kenningar og nýjustu rannsóknir í fötlunarfræðum. Áhersla verður á virka þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu sem styrkir gagnrýna hugsun og hæfni til að beita fræðunum í rannsóknum og starfsháttum.

Megindleg aðferðafræði (FMÞ001F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

Sviðslistafræði (Performance Studies): Frá sagnaflutningi til uppistands, kjötkveðjuhátíða og stjórnmálamanna (ÞJÓ107F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sviðslistafræði (Performance Studies) fjallar um það hvernig fólk í öllum samfélögum, bæði fyrr og nú, tekur þátt í ymis konar sviðslist (performances) í daglegu lífi, á mismunandi "leiksviðum", allt frá helgisiðum til kirkjupredikana, leiksýninga, kvikmyndasýninga, útvarpsþátta, uppistands, sagnaflutnings, gjörningalistar, hátíða, útskriftasiða, matarboða, dulbúningasiða og málflutnings stjórnmálamanna heima og erlendis. Á námskeiðinu munu nemendur kynnast þeim margslungnu táknmálsformum sem beitt er í mismunandi tegundum sviðslista, frá talmáli til búninga, útlits, svipbrigða, kyns, samhengis, hljóðs, "timing" og nytsemi rýmis og viðtöku áhorfenda.

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, umræðum um fyrirlestra og farið í heimsóknir.

Menningararfur (ÞJÓ506M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði. 

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Hnattvæðing (MAN095F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða skoðaðar nýlegar kenningar og rannsóknir sem tengjast hnattvæðingu og hnattrænum ferlum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirsýn yfir mikilvæg þemu sem tengjast hnattvæðingarferlum.  Skoðaðar verða rannsóknir sem varpa ljósi á ólíkar hliðar hnattvæðingar og afleiðingar fyrir félagslegan, efnislegan og pólitískan veruleika. Í námskeiðinu er bæði fjallað á gagnrýnin hátt um fyrrnefnd hugtök en einnig lögð áhersla á að skoða rannsóknir á hvernig fólk er þátttakendur/þolendur/gerendur í hnattvæðingarferlum.

Kennslan felst í fyrirlestrum og umræðum. 

Námskeiðið er kennt á ensku, en hægt er að skila inn verkefnum á íslensku.

Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði (FÉL001F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði. Nemandi leitar til fastráðins kennara við námsbraut í félagsfræði og óskar eftir leiðsögn í sjálfstæðu lesnámskeiði. Kennari og nemandi setja saman leslista í upphafi annar og nemandi, í samráði við leiðbeinanda, gerir reglulega grein fyrir framgangi. Viðfangsefnið þarf að vera félagsfræðilegt. Nemandi skráir sig ekki í námskeiðið fyrr en kennari hefur samþykkt skriflega (t.d. með tölvupósti) hlutverk sitt sem leiðbeinanda.

Sjá Ritgerðarefni-sérsvið kennara

Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði (FÉL090F)

Óháð námsári | Vor
Ójöfnuður og heilsa (FÉL098F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Félagslegur ójöfnuður hefur áhrif á heilsu. Almennt hafa þeir sem eru í viðkvæmari stöðu í samfélaginu verri heilsu en þeir sem að betra hafa það. Í þessu námskeiði er sjónum beint að sambandi félagslegrar stöðu og heilsufars. Nemendur munu kynnast helstu kenningum innan heilsufélagsfræðinnar, s.s. kenningum Link og Phelan um grundvallarástæður sjúkdóma (fundamental causes of disease) og fara yfir rannsóknir á sviðinu. Eitt mikilvægasta framlag félagsfræðinnar er skilningur á því hvernig stærri samfélagslegir þættir (t.d. heilbrigðis- og velferðarkerfið) móta líf einstaklinga og við munum því skoða hvernig samband félagslegrar stöðu og heilsu mótast af svona þáttum. Þar sem að heilsa fólks er flókið fyrirbæri munum við einnig skoða hana í þverfaglegu ljósi og notast meðal annars við kenningar og rannsóknir úr lýðheilsufræðum, heilbrigðisvísindum, mannfræði og stjórnmálafræði. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Afbrot á Íslandi (FÉL0A4F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í upphafi námskeiðs er afbrotafræðin og viðfangsefni hennar skilgreind og útlistuð með dæmum. Helstu fræðilegu sjónarhorn kynnt, fræðilegar spurningar og rannsóknaráherslur. 

Í framhaldi eru tiltekin þemu tekin fyrir sem hafa verið áberandi í íslenskum rannsóknum í afbrotafræði. Afbrot á Íslandi í alþjóðlegu samhengi, gögn lögreglu yfir tíðni og tegundir ólíkra brota, ofbeldisbrot, áfengis- og vímuefnabrot og efnahagsbrot. Íslensk refsistefna skoðuð í ljósi alþjóðlegs samanburðar og afstaða borgaranna til afbrota og refsinga metin út frá ólíkum gögnum. 

Nemendur skrifa dagbók um efni fyrirlestra og lesefnið sem tekið er fyrir í tímum, leggja mat á efnið og draga eigin ályktanir. Staðpróf í lok misseris.

Kynferðisbrot, lög og réttlæti (FÉL601M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Umræðan um kynferðisbrot og hvernig eigi að bregðast við þeim hefur farið hátt síðustu misseri, þá sérstaklega í kjölfar #MeToo hreyfingarinnar. Rannsóknir sýna að einungis lítill hluti kynferðisbrotamála eru kærð til lögreglunnar og aðeins örlítill hluti þeirra lýkur með sakfellingu. Því má segja að málaflokkurinn einkennist af réttlætishalla. Í auknum mæli sjáum við einnig þolendur kynferðisbrota segja sögu sína á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum og í sumum tilvikum eru meintir gerendur ásakaðir opinberlega sem getur vakið ólík viðbrögð og haft ýmiss konar afleiðingar.

Í þessu námskeiði verður leitað skýringa á þessari samfélagsþróun út frá sjónarhóli félags- og afbrotafræði. Í námskeiðinu verður meðal annars leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hverjir fremja kynferðisbrot og af hverju? Hvernig er reynsla karla sem verða fyrir kynferðisbrotum önnur en reynsla kvenna? Hver er munurinn á réttarstöðu sakborninga og réttarstöðu brotaþola? Af hverju er munur á ætlun og framkvæmd laganna? Hvernig hefur refsivörslukerfið þróast? Hver er munurinn á lagalegu réttlæti og félagslegu réttlæti? Hvernig eru óhefðbundin réttarkerfi betri eða verri en hefðbundin réttarkerfi? 

Athugið að námskeiðin Afbrot á Íslandi og Kynferðisbrot, lög og réttlæti eru jafnan kennd annaðhvert ár, hvort á móti öðru.

Samfélagslegar áskoranir og söfn (SAF202M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skoðar á gagnrýninn hátt áhrif samtímans á söfn og starfshætti þeirra. Leitast verður við að gefa góðan skilning á því hvernig söfn standa frammi fyrir og leitast oft við að takast á við ýmsar samfélagslegar áskoranir, þar á meðal fjölbreytni, jöfnuð, þátttöku, félagslegt réttlæti og sjálfbærni. Í námskeiðinu verður fræðilegur grunnur samfélagsmála safna skoðaður og dæmi þar að lútandi. Áherslur verða meðal annars á að skoða hlutverk safna sem talsmenn jaðarsettra hópa, mikilvægi samvinnu og samsköpunar og aðferðir til að takast á við loftslagsbreytingar innan safnastarfs, svo eitthvað sé nefnt. Umræður og verkefni skora á nemendur að hugsa gagnrýnið um hlutverk safna í samfélaginu. Í lok námskeiðsins verða nemendur búnir góðri færni og þekkingu til að takast á við félagsleg hlutverk safna í ört breytilegum heimi. Námskeiðið verður kennt frá lokum febrúar til loka mars.

Safn og samfélag: Sirkus dauðans? (SAF201M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verða margþætt tengsl safna og þeirra samfélaga sem þau þjóna skoðuð. Kannað verður hvernig söfn eru ekki aðeins vörslumenn menningararfs heldur einnig virkir þátttakendur í mótun menningarlegra frásagna og samfélagslegra sjálfsmynda. Með því að skoða sögulegt samhengi, fræðilega umgjörð og hagnýtar dæmisögur fá nemendur innsýn í það mikilvæga hlutverk sem söfn gegna við að sýna og stundum ögra samfélagslegum gildum. Í námskeiðinu verður farið yfir efni eins og söfn sem hvati til samfélagsbreytinga, mikilvægi inngildingar og aðgengis, og áhrif stafrænnar tækni á samfélagsþátttöku. Með umræðum, dæmum og praktískum verkefnum munu nemendur kanna hvernig söfn geta á áhrifaríkan hátt virkjað fólk og stuðlað að réttlátara samfélagi. Í lok námskeiðsins munu nemendur hafa tileinkað sér góðan skilning á því hvernig söfn geta brugðist við þörfum og gildum fólks í þeim samfélögum sem þau þjóna.

Norræn trú (ÞJÓ203F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Inngangur að sýningarstjórnun (SAF019F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um helstu atriði sýningargerðar og störf sýningarhöfundar, sýningarstjóra og sýningarhönnuðar. Mismunandi aðferðir við sýningastjórnun verða skoðaðar með gagnrýnum hætti og hugmyndafræðilegur grunnur sýninga kannaður. Áhersla verður lögð á frásagnarafbrigði sýninga, handritsgerð og miðlunarleiðir. Einnig verður lögð áhersla á að skoða og greina sýningar listasafna, menningarminjasafna og náttúruminjasafna og kanna með gagnrýnu hugarfari hvernig ólíkar leiðir miðla upplýsingum og upplifunum. Hugað verður að innlendum og erlendum dæmum.

Flækjur? Vistfræði arfleifða og safna (SAF018M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið Flækjur? Vistfræði arfleifða og safna leiðir nemendur í þverfaglegan fræðaheim þar sem samtvinnun menningar og náttúru og vistfræði arfleifða og safna eru tekin til sérstakrar athugunar. Hugmyndir um jafnan gerendamátt og tengsl mannlegra og ómannlegra þátta verða lögð til grundvallar með því að kynna fyrir nemendum kenningar pósthúmanisma (posthumanism) og nýefnishyggju (new materialism) með tilvísun í vistfræði arfleifða og hlutverk safna í samtímanum. Sérstaklega verður dregið fram hvernig hægt er að líta á arfleifð sem meira en mannlega smíð og fyrirbæri sem hvetur til hugrenningatengsla og hugmyndasköpunar fremur en óvirkt viðfangsefni. Innlend dæmi verða dregin fram í námskeiðinu sem byggir að hluta á rannsóknarleiddri kennslu.

Mannfræði borga (MAN507M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

According to the United Nation’s Department of Economic and Social Affairs, slightly over half of the world’s population lives in urban areas. This is projected to be 66% percent by the year 2050, with Africa and Asia accounting for 90% of this new urban growth. Urban anthropology has increasingly played a critically important role in the development of the discipline of anthropology in terms of theory, research methods and social justice movements. This course provides an historical overview of the development of urban anthropology and on through to recent developments. An emphasis will be placed on anthropological theory and research methods, but also issues such as social justice, architecture, design and urban planning. The course will cover, among others, the early Chicago ethnographers and early urban poverty research, utopian and modernist urban planning, power and built form, divisions and gated communities, crime and urban fear, urban homelessness, and the governance of built spaces. The course will conclude with a section on cities in transition, which includes a focus on the post-industrial/global city, the effects of neoliberalism on urban spaces, and a discussion of the possible future(s) of urbanism and the role of anthropology in understanding these developments.

Students must have completed 120 ECTS in their BA study before attending this course

Fjölmenning og fólksflutningar (MAN017F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Oft er talað um fólksflutninga og fjölmenningu sem eitt megin einkenni samfélaga samtímans. Í námskeiðinu eru kynntar helstu kenningar og stefnur sem fram hafa komið í tengslum við rannsóknir á fólksflutningum og fjölmenningu. Fjallað er á gagnrýninn hátt um margskonar kenningar sem tengjast þessum rannsóknarviðfangsefnum og gagnsemi þeirra skoðuð. Skoðuð eru hugtök eins og menning, samlögun, aðlögun og samþætting, en jafnframt gert grein fyrir hreyfanleika fortíðar og tengslum hans við fjölmenningu. Í námskeiðinu eru ólíkar nálganir og kenningarmótun fræðimanna fyrst og fremst dregnar fram og gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum félagsvísindamanna á þessu sviði.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og umræðna.

Kyngervi, sögur og siðir (ÞJÓ021M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

The field of Folklore, emerging out of the phenomena collectively referred to as  Modernity, has a complicated and problematic relationship with gender, both in the material that circulates and the subsequent academic treatment of that material. This seminar combines theoretical perspectives from Gender Studies and Folkloristics to better understand the interconnectedness of popular cultural forms, analyses, and the operations of power, specifically gender relations. Beginning with a feminist critique of Folkloristics from within (a historical reference point), we will examine more recent work on the relationship between gender and genre, between the empowering acts of ordinary rituals (so-called women‘s genres), and how the old, debunked Nature/Culture divide, in which women‘s genres were debased and denigrated, may, looked at from a different perspective, suggest alternate approaches to some contemporary global issues.

Teacher of the course: JoAnn Conrad

Eigindlegar rannsóknaraðferðir II (FMÞ201F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er þá fjölbreytni sem er að finna í  eigindlegum rannsóknum. Rýnt er í fimm mismunandi rannsóknarhefðir, þ.e. tilviksathuganir, frásögurannsóknir, etnógrafíu, fyrirbærafræði og grundaða kenningu. Nemendur öðlast aukna færni í að afla rannsóknargagna á vettvangi og beita mismunandi greiningaraðferðum á eigindleg gögn. Þeir fá jafnframt þjálfun í framsetningu niðurstaðna í tengslum við fræðiskrif. Þá fá nemendur tækifæri til að ígrunda eigin rannsóknir og sjálfa sig sem eigindlega rannsakendur.

Fötlun og menning (FFR201M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á stöðu og ímynd fatlaðs fólks í menningu og listum og geti greint birtingarmyndir fötlunar í sögulegu og samtímalegu samhengi. Fjallað verður um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks í dægurmenningu, fjölmiðlum, bókmenntum, listum og almennri orðræðu. Sérstök áhersla verður á (list)menningu fatlaðs fólks og hvernig fötlun er staðsett sem hluti af fjölbreytileika samfélaga. Rýnt verður í ytra og innra aðgengi að menningu og listum og áhrif þess á þátttöku fatlaðs fólks.

Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags (KYN202F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

Matur og menning: (NÆR613M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.

Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.

Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.

Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.

Safn og samfélag: Sirkus dauðans? (SAF603M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um samfélagslegt hlutverk safna út frá margvíslegum sjónarhornum: efnahagslegum, pólitískum, menningarlegum, félagslegum og síðast en ekki síst alþjóðlegum. Fjallað verður meðal annars um hlutverk safna í hugmyndinni um þjóð, lagalegt umhverfi safna, rekstrarform, staða og hlutverk þjóðarsafna, safna í eigu sveitarfélaga, félagasamtaka og einkafyrirtækja, fjármögnun safnastarfs, stefna yfirvalda í málefnum safna, söfn og mannréttindi, söfn og áföll (trauma), kynjahugmyndir og fleira. Í námskeiðinu er einnig hugað að möguleikum safna á að virkja fólk og samfélög til þátttöku í starfsemi þeirra eins og söfnun, heimildaöflun, sýningarstjórnun, sýningargerð og annarri miðlun. Skoðuð verða innlend og erlend dæmi. Eftir því sem því verður komið við, eru farnar ein til tvær vettvangsferðir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

Kenningar í kynjafræði (KYN211F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

Hinseginlíf og hinseginbarátta (KYN212F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangsnámskeið sem varpar ljósi á sögu hinseginfólks (sam-, tvíkynhneigðra, pansexual, transfólks og fleiri) á Íslandi, reynsluheim þeirra, baráttumál og menningu. Sagan er sett í alþjóðlegt samhengi og gerð er grein fyrir helstu vörðum í mannréttinda¬baráttunni, réttarstöðu og löggjöf. Fjallað er um mikilvæga þætti félagsmótunar¬innar, svo sem sköpun sjálfsmyndar og þróun sýnileika, samband við upprunafjölskyldu og leit að eigin fjölskyldugerð. Rætt er um muninn á samkynhneigðum fræðum og hinsegin fræðum, og kynntar eru kenningar um mótun kynferðis, kyngerva (sex og gender) og kyngervisusla (gender trouble). Vikið er að samræðu hinseginfólks við stofnanir samfélagsins og fjallað um líðan þeirra og lífsgæði. Fjallað er um þátt kynhneigðar í mótun menningar og ýmsar menningargreinar eru teknar sem dæmi um það hvernig veruleiki hinseginfólks birtist í listum og menningu. 

Sjónrænar rannsóknaraðferðir (FMÞ001M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist aðferðarfræðilega þekkingu, skilning og verklega færni til að greina myndir og önnur sjónræn rannsóknargögn (ljósmyndir, kvikmyndir, teikningar, auglýsingar, netmiðla, o.s.frv.). Farið verður í ýmsar aðferðir við greiningu á sjónrænu efni og hugað verður að sjónrænum gagnasöfnum og vinnu með þau. Nemendur fá þjálfun í því að kynna sér og leggja sjálfstætt mat á fyrirliggjandi rannsóknir. Námskeiðið byggist upp á hagnýtum verkefnum, þar sem nemendur undirbúa og hanna rannsóknaáætlanir, afla gagna og spreyta sig á greiningu þeirra. Námskeiðið er þverfaglegt og hentar nemendum á hug- og félagsvísindasviði, sem og öðrum sviðum.

Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði (FÉL009F)

Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði (FÉL091F)

Spurningalistakannanir (FÉL089F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning og verklega færni til að hanna og framkvæma spurningalistakannanir. Rætt verður um helstu úrtaksaðferðir og tegundir spurningalistakannanna (símakönnun, netkönnun o.s.frv.). Fjallað verður um helstu atriði í spurningalistagerð; einkanlega um orðalag og samhengi mælitækja (spurninga). Enn fremur verður fjallað um grundvallaratriði í mælingafræði og aðferðir til þess að meta áreiðanleika og réttmæti mælitækja. Í þessu samhengi verður farið yfir notkun þáttagreiningu (factor analysis) og atriðagreiningu (item analysis). Áhersla er lögð á að nemendur fái verklega reynslu af framkvæmd og úrvinnslu kannanna.

Annað ár | Haust

Hagnýtt verkefni í aðhvarfsgreiningu (FÉL018M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu nota nemendur aðhvarfsgreiningu til að vinna verkefni undir leiðsögn kennara þar sem háða breytan er tvíflokka (binary logisitic regression), raðbreyta (ordinal regression) eða margflokka.

Umsjónarkennari aðstoðar nemendur við að finna leiðbeinanda fyrir verkefnið.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Aðhvarfsgreining þar sem farið er í helstu forsendur og notkun línulegrar aðhvarfsgreiningar

Hnattvæðing (FÉL0A5F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um einkenni og þróun hnattvæðingar (alþjóðavæðingar) og hvernig hún breytir umhverfi nútímafólks á fjölmörgum sviðum. 

Hnattvæðing er skoðuð út frá þremur kenningarlegum sjónarhornum – hreyfanleika, þverþjóðleika og ójöfnuði –  með sérstakri áherslu á tengsl milli hversdagslegra athafna á míkróstigi og stærri félagslegar formgerðir á makróstigi. Við skoðum hvernig einstaklingar, hópar og stofnanir tengjast á þverþjóðlegum grundvelli; hvernig fólk, þekking, hugmyndir og hlutir hreyfast á milli staða; og hvaða áhrif þær félagslegu breytingar sem ný þverþjóðleg rými, sem og hreyfanleiki innan þeirra, hafa á lagskiptingu og aðgreiningu hópa. Í námskeiðinu gefst tækifæri til að kanna hvernig þessi félagslegu ferli hafa áhrif á hversdagslegt líf fólks, eins og heilsu og velmegun, atvinnulíf og öryggi. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og umræðutímum þar sem nemendur taka virkan þátt.

Menntun, félagslegur hreyfanleiki og félagsleg lagskipting (FÉL501M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni? Í þessu námskeiði er skoðað hvernig félagslegur bakgrunnur einstaklings hefur áhrif á þá félagslegu stöðu sem sem viðkomandi nær að lokum í lífinu og hvernig ójöfnuður endurskapast frá einni kynslóð til annarrar. Námskeiðið fjallar um hvernig félagslegur hreyfanleiki hefur breyst í gegnum tíðina og milli landa og hvaða hlutverki menntun gegnir fyrir félagslegan hreyfanleika. Fjallað verður um helstu kenningar sem notaðar eru til að útskýra ójöfnuð í menntun og félagslegum hreyfanleika og (hugsanlegar) breytingar yfir tíma. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á félagslegan bakgrunn einstaklinga (stétt, menntun foreldra eða félags-efnahagslega stöðu foreldra) en misrétti á grundvelli kyns og þjóðernisuppruna  verður einnig skoðað á síðustu fundum. Í málstofunni munum við lesa blöndu af klassískum og nýlegum textum. Jafnframt verður sérstök áhersla lögð á að fjalla um lestur og niðurstöður frá öðrum löndum í samanburði við Ísland.

Umhverfismannfræði (MAN508M)

Tíska og fatnaður: Efnismenning í iðnvæddu markaðsþjóðfélagi (ÞJÓ606M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið beinir sjónum að fatatísku sem efnismenningu og rannsakar tískuhegðun einstaklinga í félagslegu samhengi. Nemendur lesa kenningar um tísku í markaðskerfi iðnvæddra þjóðfélaga og kynnast um leið ýmsum kenningum í heimspeki, félagsfræði, þjóðfræði og mannfræði. Tilgátur um áhrifavalda í fatatísku verða kannaðar með gagnrýnu hugarfari og heimfærðar á umhverfi nemenda. Tískukerfi á heimsvísu eru einnig könnuð og greind. Sérstaklega verður hugað að sambandi tískunnar við kyngervi , stétt, kynhneigð, aldur og aðrar helstu breytur félagslegs mismunar. Nemendur huga að „tíðarandanum“ (Zeitgeist) með smáverkefnum og vinna vettvangsrannsókn á fatatísku tiltekinna hópa eða staða og máta kenningarnar við sín eigin vettvangsgögn.

Rannsóknir og umræður leiða til lokaverkefnis þar sem lögð er fram útlistun á uppruna og eðli ríkjandi fatatísku og spáð á fræðilegan máta fyrir um stærri hreyfingar í fatatísku og tískumenningu komandi ára.

Námskeiðið hæfir meðal annars nemendum í þjóðfræði, mannfræði, menningarfræði og félagsfræði. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum. Fyrirlestrarnir verða á ensku og fjarkenndir þar sem aðalkennari námskeiðsins, Karl Aspelund, verður við University of Rhode Island þar sem hann kennir námskeiðið samtímis. Aðstoðarkennari stýrir síðan umræðutímum og vettvangsrannsóknum nemenda við Háskóla Íslands.

Fyrsta ár
  • Haust
  • FÉL0A1F
    Afbrot og frávikshegðun
    Skyldunámskeið
    10

  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL302F
    Leiðangur meistaranema I: Lagt úr höfn
    Skyldunámskeið
    5

  • FÉL301F
    Rannsóknaraðferðir félagsvísinda

  • FÉL103F
    Málstofa meistaranema I
    Skyldunámskeið
    0

  • FMÞ102F
    Kenningar í félags- og mannvísindum

  • Vor
  • FÉL007F
    Réttarkerfið og löggæsla
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennari lætur nemendum í té leslista sem inniheldur úrval af lesefni á sviði sakfræði. Fjallað verður um kenningar og rannsóknir félags- og afbrotafræðinga á réttar- og löggæslukerfinu. Áhersla er lögð á að nemendur tengi saman kenningarlega umræðu og fyrirliggjandi rannsóknir. Umræðutímar verða haldnir aðra hverja viku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FMÞ501M
    Tölfræði félagsvísinda: Aðhvarfsgreining

    FÉL429F
    Leiðangur meistaranema II: Land fyrir stafni

    FÉL430F
    Málstofa meistaranema II

  • Óháð misseri
  • FÉL441L, FÉL441L, FÉL441L
    MA-ritgerð í félagsfræði
    Skyldunámskeið
    0/0/0

  • Heilsársnámskeið
  • GKY001M
    Mentor í Spretti
    Valnámskeið

  • FMÞ103F
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir I
    Bundið valnámskeið

    FÉL701F
    Sjálfið mætir samfélaginu: Félagssálfræði hversdagslífsins

    FÉL301M
    Félagsfræði borgarsamfélaga og landsbyggða

    FÉL303F
    Inngangur að hagtölum
    Bundið valnámskeið
    6

    SAF002F
    Praktík og kenningar í safnafræði

    ÞJÓ063M
    Formæður og franskir barmar: Menningarmörk, klæðnaður og þjóðernismótun á 19. öld

    ÞJÓ110F
    Mannskepnur og önnur dýr

    SAF027F
    Stjórnun menningarstofnana

  • SAF016F
    Söfn sem námsvettvangur

  • MAN101M
    Hreyfanleiki og fólksflutningar: aðferðafræðilegar áskoranir
    Valnámskeið
    2

  • SAF105F
    Gagnrýnin sýn á praktík og kenningar í safnafræði

  • SAF104F

  • MAN509M
    Umhverfismannfræði

  • KYN101F
    Almenn kynjafræði

  • FFR302M
    Lífshlaupið, sjálf og samfélag

  • FFR102F
    Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði

  • FMÞ001F
    Megindleg aðferðafræði

    ÞJÓ107F
    Sviðslistafræði (Performance Studies): Frá sagnaflutningi til uppistands, kjötkveðjuhátíða og stjórnmálamanna

    ÞJÓ506M
    Menningararfur

  • MAN095F
    Hnattvæðing

  • FÉL001F
    Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði

  • FÉL090F

  • FÉL098F
    Ójöfnuður og heilsa

  • FÉL0A4F
    Afbrot á Íslandi

    FÉL601M
    Kynferðisbrot, lög og réttlæti

  • SAF202M
    Samfélagslegar áskoranir og söfn

  • SAF201M
    Safn og samfélag: Sirkus dauðans?

  • ÞJÓ203F
    Norræn trú

    SAF019F
    Inngangur að sýningarstjórnun

    SAF018M
    Flækjur? Vistfræði arfleifða og safna

    MAN507M
    Mannfræði borga

  • MAN017F
    Fjölmenning og fólksflutningar

    ÞJÓ021M
    Kyngervi, sögur og siðir

  • FMÞ201F
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir II

  • FFR201M
    Fötlun og menning

  • KYN202F
    Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags

  • NÆR613M
    Matur og menning:

    SAF603M

  • KYN211F
    Kenningar í kynjafræði

  • KYN212F
    Hinseginlíf og hinseginbarátta

  • FMÞ001M
    Sjónrænar rannsóknaraðferðir

  • FÉL009F

  • FÉL091F

Annað ár

Óháð námsári

    Eigindlegar rannsóknaraðferðir I hide

    Leiðangur meistaranema I: Lagt úr höfn hide

    Rannsóknaraðferðir félagsvísinda hide

    Málstofa meistaranema I hide

    Kenningar í félags- og mannvísindum hide

  • FÉL089F
    Spurningalistakannanir hide
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning og verklega færni til að hanna og framkvæma spurningalistakannanir. Rætt verður um helstu úrtaksaðferðir og tegundir spurningalistakannanna (símakönnun, netkönnun o.s.frv.). Fjallað verður um helstu atriði í spurningalistagerð; einkanlega um orðalag og samhengi mælitækja (spurninga). Enn fremur verður fjallað um grundvallaratriði í mælingafræði og aðferðir til þess að meta áreiðanleika og réttmæti mælitækja. Í þessu samhengi verður farið yfir notkun þáttagreiningu (factor analysis) og atriðagreiningu (item analysis). Áhersla er lögð á að nemendur fái verklega reynslu af framkvæmd og úrvinnslu kannanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FMÞ501M
    Tölfræði félagsvísinda: Aðhvarfsgreining hide

    Leiðangur meistaranema II: Land fyrir stafni hide

    Málstofa meistaranema II hide

    MA-ritgerð í félagsfræði hide

    Mentor í Spretti hide

    Afbrot og frávikshegðun hide

  • FÉL018M
    Hagnýtt verkefni í aðhvarfsgreiningu hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu nota nemendur aðhvarfsgreiningu til að vinna verkefni undir leiðsögn kennara þar sem háða breytan er tvíflokka (binary logisitic regression), raðbreyta (ordinal regression) eða margflokka.

    Umsjónarkennari aðstoðar nemendur við að finna leiðbeinanda fyrir verkefnið.

    Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið námskeiðinu Aðhvarfsgreining þar sem farið er í helstu forsendur og notkun línulegrar aðhvarfsgreiningar

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    FÉL701F
    Sjálfið mætir samfélaginu: Félagssálfræði hversdagslífsins hide

    Félagsfræði borgarsamfélaga og landsbyggða hide

    Inngangur að hagtölum hide

    Praktík og kenningar í safnafræði hide

    Formæður og franskir barmar: Menningarmörk, klæðnaður og þjóðernismótun á 19. öld hide

    Mannskepnur og önnur dýr hide

    Stjórnun menningarstofnana hide

    Söfn sem námsvettvangur hide

    Hreyfanleiki og fólksflutningar: aðferðafræðilegar áskoranir hide

    Gagnrýnin sýn á praktík og kenningar í safnafræði hide

    Umhverfismannfræði hide

    Almenn kynjafræði hide

    Lífshlaupið, sjálf og samfélag hide

    Kenningar og sjónarhorn í fötlunarfræði hide

    Megindleg aðferðafræði hide

    Sviðslistafræði (Performance Studies): Frá sagnaflutningi til uppistands, kjötkveðjuhátíða og stjórnmálamanna hide

    Menningararfur hide

    Hnattvæðing hide

    Lesnámskeið í MA-námi í félagsfræði hide

    Réttarkerfið og löggæsla hide

    FÉL0A5F
    Hnattvæðing hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um einkenni og þróun hnattvæðingar (alþjóðavæðingar) og hvernig hún breytir umhverfi nútímafólks á fjölmörgum sviðum. 

    Hnattvæðing er skoðuð út frá þremur kenningarlegum sjónarhornum – hreyfanleika, þverþjóðleika og ójöfnuði –  með sérstakri áherslu á tengsl milli hversdagslegra athafna á míkróstigi og stærri félagslegar formgerðir á makróstigi. Við skoðum hvernig einstaklingar, hópar og stofnanir tengjast á þverþjóðlegum grundvelli; hvernig fólk, þekking, hugmyndir og hlutir hreyfast á milli staða; og hvaða áhrif þær félagslegu breytingar sem ný þverþjóðleg rými, sem og hreyfanleiki innan þeirra, hafa á lagskiptingu og aðgreiningu hópa. Í námskeiðinu gefst tækifæri til að kanna hvernig þessi félagslegu ferli hafa áhrif á hversdagslegt líf fólks, eins og heilsu og velmegun, atvinnulíf og öryggi. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og umræðutímum þar sem nemendur taka virkan þátt.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL098F
    Ójöfnuður og heilsa hide

    Afbrot á Íslandi hide

    Kynferðisbrot, lög og réttlæti hide

    Samfélagslegar áskoranir og söfn hide

    Safn og samfélag: Sirkus dauðans? hide

    Norræn trú hide

    Inngangur að sýningarstjórnun hide

    Flækjur? Vistfræði arfleifða og safna hide

    Mannfræði borga hide

    Fjölmenning og fólksflutningar hide

    Kyngervi, sögur og siðir hide

    Eigindlegar rannsóknaraðferðir II hide

    Fötlun og menning hide

    Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags hide

    Matur og menning: hide

    Kenningar í kynjafræði hide

    Hinseginlíf og hinseginbarátta hide

    Sjónrænar rannsóknaraðferðir hide

  • FÉL501M
    Menntun, félagslegur hreyfanleiki og félagsleg lagskipting hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni? Í þessu námskeiði er skoðað hvernig félagslegur bakgrunnur einstaklings hefur áhrif á þá félagslegu stöðu sem sem viðkomandi nær að lokum í lífinu og hvernig ójöfnuður endurskapast frá einni kynslóð til annarrar. Námskeiðið fjallar um hvernig félagslegur hreyfanleiki hefur breyst í gegnum tíðina og milli landa og hvaða hlutverki menntun gegnir fyrir félagslegan hreyfanleika. Fjallað verður um helstu kenningar sem notaðar eru til að útskýra ójöfnuð í menntun og félagslegum hreyfanleika og (hugsanlegar) breytingar yfir tíma. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á félagslegan bakgrunn einstaklinga (stétt, menntun foreldra eða félags-efnahagslega stöðu foreldra) en misrétti á grundvelli kyns og þjóðernisuppruna  verður einnig skoðað á síðustu fundum. Í málstofunni munum við lesa blöndu af klassískum og nýlegum textum. Jafnframt verður sérstök áhersla lögð á að fjalla um lestur og niðurstöður frá öðrum löndum í samanburði við Ísland.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÉL0A1F
    Afbrot og frávikshegðun hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið ítarlega í helstu kenningar í afbrotafræði og félagsfræði frávika. Nemendur munu lesa rannsóknagreinar þar sem kenningarnar eru prófaðar, bæði á Íslandi og erlendis.

    Fjallað verður um mismunandi brota- og efnisflokka í félags- og afbrotafræðilegu ljósi, t.d. kyn og afbrot, búferlaflutninga og afbrot.

    Áhersla er lögð á nemendur tengi saman kenningarlega umræðu og fyrirliggjandi rannsóknir.   

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN508M

    ÞJÓ606M
    Tíska og fatnaður: Efnismenning í iðnvæddu markaðsþjóðfélagi hide

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Framhaldsnám í félagsfræði nýtist á fjölbreyttum sviðum atvinnulífsins, bæði á opinberum markaði sem og einka.

Félagsfræðingar starfa meðal annars við:

  • Opinbera stjórnsýslu
  • Félagsþjónustu
  • Tómstunda-, menningar- og íþróttastarfsemi
  • Fræðslu
  • Fjármála- og tryggingastarfsemi
  • Rannsóknir og ráðgjöf

Listinn er ekki tæmandi.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil