Ég gæti ekki mælt meira með skiptinámi! Þetta er búið að vera ótrúlega lærdómsríkt ferli og ég er búin að eignast marga vini, bæði japanska og allsstaðar að úr heiminum. Ég mun búa að þessari reynslu alla ævi. Eltið drauma ykkar og sækið um skiptinám. Þið munuð ekki sjá eftir því.
Mig langaði rosalega að búa á Ítalíu til þess að fá tækifæri á að tala ítölskuna á hverjum degi. Skiptinámið gaf mér líka kost á að takast á við áskorunina að búa ein á nýjum stað og kynnast öðrum menningarheimi. Auk þess sem það er mikilvægt að hafa stundað nám við háskóla erlendis, og læra að fóta sig í öðruvísi háskólakerfi en maður er vanur. Sú reynsla er góður undirbúningur fyrir næstu verkefni, hvort sem er á vinnumarkaði eða í áframhaldandi námi. Skiptinám er náttúrlega frábært tækifæri til þess að læra og búa erlendis og fá styrk til þess.
Skiptinámið mitt í Granada var einstök upplifun sem breytti mér bæði sem námsmanni og manneskju. Ég eignaðist vini til lífstíðar, öðlaðist betri tungumálafærni og lærði að aðlagast nýjum aðstæðum í allt öðruvísi menningu. Það var ótrúlega dýrmætt að fá tækifæri til að stunda nám erlendis og fá til þess Erasmus+ styrk. Ef þú ert með ferðabakteríuna og langar að prófa eitthvað nýtt – farðu í skiptinám!
Það má í raun segja að ég hafi farið í nám við HÍ vegna möguleika á að taka hluta af náminu erlendis. Það hafði alltaf verið draumur að búa í útlöndum og ég sá þarna kjörið tækifæri til að gera það og mennta mig í leiðinni. Ég myndi hiklaust og eindregið ráðleggja öllum að fara í skiptinám. Þetta er einstök lífsreynsla og tækifæri sem maður fær ekki endilega svo auðveldlega aftur í lífinu. Ef þetta er ekki það sem lífið snýst um þá veit ég ekki hvað, þ.e. að skora á sjálfan sig, upplifa nýja hluti, sækjast eftir því að kynnast fólki frá öðrum menningarheimum og stíga út fyrir þægindarammann á heimaslóðunum og fyrir vikið verða heilsteyptari og víðsýnni einstaklingur.
Alþjóðasvið
Virka daga 10-12 og 13-15
Frekari upplýsingar um skiptinám
Skiptinám innan Evrópu:
outgoing.Europe@hi.is
Skiptinám utan Evrópu:
outgoing.international@hi.is