Gimli
Siðanefnd háskólanna um vísindarannsóknir

Háskólaráð skipar siðanefnd háskólanna um vísindarannsóknir. Nefndin er skipuð sjö fulltrúum, fjórum fulltrúum og varamönnum þeirra eftir tilnefningu frá forsetum fræðasviða Háskóla Íslands.

Aðrir háskólar tilnefna sameiginlega tvo fulltrúa og varamenn þeirra. Auk þess tilnefnir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands einn fulltrúa auk varamanns. Formaður nefndarinnar og varamaður hans eru skipaðir af rektor úr hópi fulltrúa fræðasviða háskólans. Skipunartími nefndarinnar er þrjú ár í senn. Við tilnefningu skal fylgt ákvæðum í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Reynir Örn Jóhannsson, verkefnisstjóri á vísinda- og nýsköpunarsviði, starfar með nefndinni. Fyrirspurnir og erindi til nefndarinnar berist til hans í netfangið roj@hi.is.

Umsóknir

Skilafrestur vegna umsókna er að lágmarki einni viku fyrir fund. Fundir að jafnaði einu sinni í mánuði.

Fundir á vormisseri 2026: 23. júní.

Skipan 1. júlí 2023 - 30. júní 2026

Tengt efni
háskólaráð
Gimli
Old Icelandic manuscript
University of Iceland, Main building
Division of Science and Innovation staff

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil