Gimli
Um nefndir háskólaráðs

Starfsnefndir háskólaráðs eru ráðgefandi hver á sínu sviði, en fara hvorki með framkvæmda- né ákvörðunarvald, nema sérstaklega sé kveðið á um það í erindisbréfi sem háskólaráð setur.

Starfsnefndir

Endurskoðunarnefnd háskólaráðs er skipuð þremur fulltrúum í háskólaráði, skv. starfsreglum endurskoðunarnefndar, samþykktum af háskólaráði 1. október 2020.

Skipan endurskoðunarnefndar 1. júlí 2026 - 30. júní 2028:

  • Ólafur Pétur Pálsson, formaður, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, fulltrúi háskólasamfélagsins
  • Arnar Þór Másson, ráðgjafi og stjórnarformaður Marel ehf., fulltrúi tilnefndur af háskólaráði
  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyti, fulltrúi tilnefndur af iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Sigurjón G. Geirsson, innri endurskoðandi, starfar með nefndinni.

Starfsreglur endurskoðunarnefndar

Fjármálanefnd háskólaráðs er skipuð forsetum fræðasviða og skv. ákvörðun háskólaráðs frá 19. maí 2016 er rektor formaður nefndarinnar.

Skipan fjármálanefndar 1. júlí 2026 - 30. júní 2029:

Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri sameiginlegrar stjórnsýslu, og Jenný Bára Jensdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs, starfa með nefndinni.

Starfssvið jafnréttisnefndar nær til jafnréttismála í víðum skilningi, sbr. 65. grein stjórnarskrárinnar og ber henni að hafa gildandi lög um jafna stöðu kvenna og karla að leiðarljósi.

Í nefndinni eiga sæti fulltrúar jafnréttisnefnda fræðasviða, jafnréttisnefndar sameiginlegrar stjórnsýslu, einn fulltrúi stúdenta tilnefndur af Stúdentaráði og formaður sem rektor skipar. Jafnréttisfulltrúi situr jafnframt fundi nefndarinnar.

Skipan jafnréttisnefndar 1. júlí 2026 til 30. júní 2029:

  • Hrafnhildur Snæfríðard. Gunnarsdóttir, lektor á Heilbrigðisvísindasviði, formaður
  • Ásdís A. Arnalds, lektor á Félagsvísindasviði. Varamaður: Sigrún Gunnarsdóttir prófessor
  • Erna Magnúsdóttir, prófessor á Heilbrigðisvísindasviði. Varamaður Sævar Ingþórsson dósent
  • Björn Þorsteinsson, prófessor á Hugvísindasviði. Varamaður: Ann-Sofie Nielsen Gremaud, dósent
  • Heimir Freyr Viðarsson, lektor á Menntavísindasviði. Varamaður: N.N.
  • Ásdís Helgadóttir, dósent á Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Varamaður: Jón Emil Guðmundsson prófessor
  • Sólrún Sigurðardóttir verkefnisstjóri, fulltrúi miðlægrar stjórnsýslu
  • Auður Halla Rögnvaldsdóttir, fulltrúi stúdenta

Með nefndinni starfa:

Kennslumálanefnd er átta manna nefnd sem háskólaráð skipar til þriggja ára í senn. Í nefndinni eiga sæti aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis, sem er jafnframt formaður nefndarinnar, formenn kennslunefnda fræðasviðanna fimm, einn fulltrúi Háskóla Íslands á Hólum og einn fulltrúi stúdenta, tilnefndur af Stúdentaráði.

Hlutverk kennslumálanefndar er að vinna að þeim markmiðum stefnu Háskóla Íslands er lúta að námi og kennslu. Í því felst að stuðla að þróun kennslu og kennsluhátta við Háskóla Íslands og vinna á annan hátt að því að nemendur öðlist framúrskarandi menntun í nánum tengslum við rannsóknastarf skólans.

Nánari upplýsingar um kennslumálanefnd og hlutverk hennar eru í Uglu – innri vef Háskóla Íslands

Skipan kennslumálanefndar frá 1. júlí 2025 til 30. júní 2027:

Með nefndinni starfa:

Nefndin er skipuð þremur fulltrúum til þriggja ára í senn. Tveir þeirra sitja starfs síns vegna í nefndinni. Formaður er valinn úr röðum fastráðinna kennara.

Skipan samráðsnefndar um kjaramál 2026-2029:

Skipulagsnefnd háskólasvæðisins er skipuð frá 1. júlí 2025 til 30. júní 2028. Hlutverk hennar er að vera rektor og háskólaráði til ráðuneytis og hafa á hverjum tíma yfirsýn yfir skipulag háskólasvæðisins, ásýnd, uppbyggingu, nýtingu og viðhald. .

Nefndina skipa:

Með nefndinni starfa deildarstjóri framkvæmda- og tæknisviðs sem er ritari hennar. Framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. og fulltrúi stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands ehf. sitja jafnframt fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúar.

Upplýsingasíða fyrir Þróunaráætlun Háskóla Íslands

Skipan Stefnu- og gæðaráðs

Starfsreglur fyrir Stefnu- og gæðaráð háskólaráðs (Krefst innskráningar í Uglu).

Hlutverk vísindanefndar er mótun stefnu á sviði vísinda við Háskóla Íslands. Hlutverk hennar er jafnframt að efla rannsóknastarfsemi við Háskólann og vera háskólaráði og rektor til ráðuneytis.

Vísinda- og nýsköpunarsvið sér nefndinni fyrir skrifstofuþjónustu.

Skipan vísindanefndar frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029:

Starfsmenn sem starfa með nefndinni:

Erindisbréf vísindanefndar

Aðrar nefndir

Dómnefndir vegna nýráðninga - Fastafulltrúar

(í hverju máli bætist við sérfræðingur tilnefndur af deild)

Skipunartími 2026 - 2029.

Félagsvísindi:

Formaður: Þorgerður J. Einarsdóttir, prófessor emeríta við Stjórnmálafræðideild
Jón Torfi Jónasson, prófessor emeritus við Menntavísindasvið

Heilbrigðisvísindi:

Formaður: Kristín Briem, prófessor í sjúkraþjálfun við Læknadeild
Pálmi V. Jónsson, prófessor emeritus við Læknadeild

Hugvísindi:

Formaður: Ásdís Rósa Magnúsdóttir, prófessor í frönsku við Mála- og menningardeild
Páll Björnsson, prófessor við Háskólann á Akureyri

Menntavísindi:

Formaður: Ingvar Sigurgeirsson, prófessor emeritus við Menntavísindasvið
Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, prófessor emeríta við Menntavísindasvið

Verkfræði- og náttúruvísindi:

Formaður: Áslaug Geirsdóttir, prófessor emerita við Jarðvísindadeild
Hlynur Óskarsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands

Nánari upplýsingar er að finna í Uglu:

Sjá nánar feril vegna nýráðningar

Dómnefndir vegna framgangs - Fastafulltrúar

(í hverju máli bætist við fulltrúi tilnefndur af deild)

Skipunartími 2024 - 2027.

Félagsvísindi:

Formaður: Sveinn Agnarsson, prófessor við Viðskiptafræðideild
Kristín Loftsdóttir, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri

Heilbrigðisvísindi:

Formaður: Helga Gottfreðsdóttir, prófessor við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Hákon Hrafn Sigurðsson, prófessor við Lyfjafræðideild
Helga M. Ögmundsdóttir, prófessor emerita við Læknadeild

Hugvísindi:

Formaður: Ármann Jakobsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild
Geir Sigurðsson, prófessor við Mála- og menningardeild
N.N., Íslensku- og menningardeild

Menntavísindi:

Formaður: Amalía Björnsdóttir, prófessor við Deild kennslu- og menntunarfræði
Kristín Björnsdóttir, prófessor við Deild faggreinakennslu
Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri

Verkfræði- og náttúruvísindi:

Formaður: Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
Rannveig Ólafsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild
Ása Lovísa Aradóttir, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands

Sjá nánar feril vegna framgangs

Valnefnd um akademískar nafnbætur

  • Formaður: Guðrún Kristjánsdóttir, prófessor
  • Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor
  • Karl Andersen, prófessor (fulltrúi Landspítala)

Háskólaráð skipar fagráð um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi, sbr. 3. gr. verklagsreglna sem samþykktar voru á fundi háskólaráðs þ. 7. september 2017. Skipunin er til þriggja ára í senn, frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.

Í fagráðinu sitja:

  • Þóra S. Einarsdóttir, sálfræðingur hjá Domus Mentis – Geðheilsustöð, formaður
  • Finnborg Salome Steinþórsdóttir, aðjunkt við Stjórnmálafræðideild HÍ
  • Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur

Með fagráðinu starfa Guðrún Ösp Sigurmundardóttir, verkefnisstjóri á mannauðssviði, og Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi HÍ.

Allar ábendingar og fyrirspurnir til fagráðsins skulu sendar á formann þess.

Verklagsreglur um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi innan Háskóla Íslands.

Rektor Háskóla Íslands skipar fulltrúa og varafulltrúa í framgangs- og fastráðningarnefnd Háskóla Íslands sbr. reglur um framgang akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, nr. 1300/2020, sem tóku gildi 1. febrúar 2021 og ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, nr. 1301/2020.

Aðalfulltrúar:

  • Ragna Benedikta Garðarsdóttir, prófessor og aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis, formaður
  • Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor á Félagsvísindasviði
  • Ingibjörg Harðardóttir, prófessor á Heilbrigðisvísindasviði
  • Jón Ólafsson, prófessor á Hugvísindasviði
  • Rannveig Björk Þorkelsdóttir, prófessor á Menntavísindasviði
  • Sigurður Erlingsson, prófessor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði

Varafulltrúar:

  • Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor á Félagsvísindasviði
  • Herdís Sveinsdóttir, prófessor emerita á Heilbrigðisvísindasviði
  • Marion Lerner, prófessor á Hugvísindasviði
  • Ástríður Stefánsdóttir, prófessor emerita á Menntavísindasviði
  • Ebba Þóra Hvannberg, prófessor á Verkfræði- og náttúruvísindasviði

Nefndin er skipuð til þriggja ára eða til 30. júní 2029.

Heiðursdoktorsnefnd var skipuð 3. desember 2009.

Í nefndinni, sem skipuð er til þriggja ára í senn, eiga sæti einn fulltrúi frá hverju fræðasviði og einn fulltrúi háskólaráðs, sem er formaður.

Nefndin er þannig skipuð frá 1. júlí 2025 til 31. desember 2027:

  • Már Jónsson, prófessor við Deild sagnfræði, heimspeki og fornleifafræði
  • Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, tilnefndur af Félagsvísindasviði - varamaður: Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor
  • Elín Soffía Ólafsdóttir, prófessor við Lyfjafræðideild, tilnefnd af Heilbrigðisvísindasviði - varamaður: Sigurður J. Grétarsson, prófessor emeritus
  • Oddný Sverrisdóttir, prófessor emerita við Mála- og menningardeild, tilnefnd af Hugvísindasviði - varamaður: Torfi H. Tulinius, prófessor
  • Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Deild menntunar og margbreytileika, tilnefnd af Menntavísindasviði - varamaður: N.N.
  • Sigurður Brynjólfsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, tilnefndur af Verkfræði- og náttúruvísindasviði - varamaður: Ebba Þóra Hvannberg, prófessor

Viðmið um veitingu doktorsnafnbótar í heiðurs skyni, samþykkt í háskólaráði 1. október 2009.

Hugverkanefnd var sett á laggirnar samkvæmt ákvörðun háskólaráðs og stjórnarnefndar Landspítala-háskólasjúkrahúss árið 2002 og var nefndin skipuð árið 2003. Hlutverk Hugverkanefndar er að framfylgja því verklagi sem Háskóli Íslands og Landspítali hafa sett sér varðandi hagnýtingu á uppfinningum og rannsóknaniðurstöðum starfsmanna stofnananna. Nefndinni er ætlað að hvetja starfsmenn og nemendur til að hagnýta rannsóknaniðurstöður, meðal annars með öflun einkaleyfa, gerð leyfissamninga og stofnun fyrirtækja. Nefndin metur uppfinningar og hugmyndir með aðstoð Auðnu-tæknitorgs ehf. og tekur afstöðu til aðkomu stofnananna að hagnýtingu hugverka.

Í Hugverkanefnd Háskóla Íslands og Landspítala sitja:

Með nefndinni starfa:

  • Halldór Jónsson, sviðsstjóri Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands
  • Brynja Björg Halldórsdóttir, lögfræðingur á Vísinda- og nýsköpunarsviði

Vefur Hugverkanefndar

Kærunefnd í málefnum nemenda starfar í samræmi við 3. mgr. 7. greinar reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um og veita háskólaráði álit um kvartanir og kærur stúdenta samkvæmt 50. grein reglnanna. Háskólaráð skipar þrjá menn í nefndina og jafnmarga til vara til þriggja ára, samkvæmt tilnefningu rektors. Skal formaður nefndarinnar vera lögfræðingur.

Skipan kærunefndar í málefnum nemenda

(frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029)

Með nefndinni starfar Magnús Jökull Sigurjónsson, persónuverndarfulltrúi Háskóla Íslands.

Erindi til kærunefndar í málefnum nemenda skulu berast skriflega. Póstfang nefndarinnar er:

Háskóli Íslands
Kærunefnd í málefnum nemenda
Skrifstofu rektors, Aðalbyggingu
Sæmundargötu 2
102 Reykjavík

Einnig er unnt að senda erindi til kærunefndar til ritara háskólaráðs, Magnúsar D. Baldurssonar, á netfangið mb@hi.is.

Ferli kvartana og kærumála

Um ferli kvartana og kærumála nemenda er fjallað í 50. grein reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Meginatriðum ferlisins er einnig lýst í kennsluskrá.

Stúdent getur því aðeins skotið máli sínu til háskólaráðs að hann/hún hafi áður sent skriflegt erindi til deildarforseta viðkomandi deildar OG að endanleg ákvörðun eða afstaða deildarforseta liggi fyrir, EÐA þrír mánuðir séu liðnir frá því erindi var fyrst lagt skriflega fyrir deildarforseta. Áður en háskólaráð tekur ákvörðun skal ráðið leita álits kærunefndar í málefnum nemenda við Háskóla Íslands.

Erindi til háskólaráðs skulu berast skriflega.

Nánari leiðbeiningar og lýsing á ferli kvartana og kærumála

  • Erindi stúdents til háskólaráðs skal vera skriflegt.
  • Í erindinu skal stúdent gera ítarlega grein fyrir álitaefninu og forsögu þess.
  • Skýra skal frá niðurstöðu deildarforseta og ástæðu þess að stúdent unir henni ekki.
  • Greina skal skilmerkilega frá því hver sé krafa stúdents í málinu og færa rök fyrir henni.
  • Ef erindi stúdents lýtur að málsmeðferð vegna skriflegs erindis til deildarforseta skal rekja þau atriði sem óskað er álits háskólaráðs á.
  • Hafi stúdent einhver gögn fram að færa, máli sínu til stuðnings, skulu þau fylgja erindinu.
  • Erindið skal vera dagsett og undirritað af stúdent.

Ferli kvartana og kærumála nemenda

Um ferli kvartana og kærumála nemenda er fjallað í 50. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Nokkur helstu ákvæði greinarinnar eru tekin saman hér að neðan:

  • Telji stúdent brotið á rétti sínum varðandi kennslu, próf, námsmat, einkunnagjöf, mat á námsframvindu eða annað sem lýtur að kennslu og prófum skal hann senda skriflegt erindi til deildarforseta viðkomandi deildar.
  • Í erindinu skal greina skilmerkilega frá því hvert álitaefnið er, hver sé krafa stúdents og færa rök fyrir henni.
  • Deildarforseti skal fjalla um og afgreiða álitaefnið eins fljótt og unnt er, að jafnaði eigi síðar en innan tveggja mánaða.
  • Deildarforseti skal afgreiða erindi stúdents með formlegu svari.
  • Ef stúdent unir ekki endanlegri ákvörðun deildarforseta getur hann skotið máli sínu til háskólaráðs.
  • Áður en háskólaráð tekur ákvörðun leitar ráðið álits kærunefndar í málefnum nemenda við Háskóla Íslands.
  • Deildarforseti, háskólaráð eða kærunefndin endurmeta ekki prófúrlausnir eða faglega niðurstöðu kennara eða prófdómara.
  • Forsenda þess að stúdent geti skotið máli sínu til háskólráðs er að hann/hún hafi áður sent skriflegt erindi til deildarforseta viðkomandi deildar og að endanleg ákvörðun eða afstaða deildarforseta liggi fyrir, eða að liðnir séu þrír mánuðir frá því að erindi var fyrst lagt skriflega fyrir deildarforseta (sbr. 4. mgr. 50. gr.).
  • Ákvarðanir háskólaráðs er hægt að kæra til áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema, að uppfylltum þeim skilyrðum sem tilgreind eru í 5. málsgrein 50. gr.

Samkvæmt málstefnu Háskóla Íslands starfar föst málnefnd sem heyrir undir rektor, skipuð fulltrúum allra fræðasviða, sameiginlegrar stjórnsýslu og stúdenta. Hún er stjórnendum og öðrum starfsmönnum skólans til ráðuneytis um málefni íslenskrar tungu, gerir tillögur um framkvæmd málstefnunnar og fylgist með hvernig henni er framfylgt og stendur fyrir kynningu stefnunnar og endurskoðun eftir þörfum.

Málstefna Háskóla Íslands

Nefndarfulltrúar 1. júlí 2026--30. júní 2029:

Rektor skipar sex manna ráð um málefni fatlaðs fólks til þriggja ára í senn sbr. 12. gr. reglna um sértæk úrræði í námi við Háskóla Íslands nr. 481/2010.

Jafnréttisfulltrúi háskólans er formaður ráðsins og stýrir störfum þess.

Í ráðinu sitja enn fremur einn fulltrúi tilnefndur af framkvæmda- og tæknisviði háskólans, einn fulltrúi tilnefndur af Náms- og starfsráðgjöf háskólans og einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af Félagi háskólakennara og Félagi prófessora úr hópi fastráðinna kennara háskólans og skal sá hafa sérþekkingu á sviði fötlunarfræða.

Að auki sitja í ráðinu tveir fulltrúar tilnefndir af stúdentaráði Háskóla Íslands og skal miðað við að allavegana annar fulltrúanna komi úr hópi þeirra nemenda sem falla undir 1. mgr. 1. gr. reglna þessara.

Í ráðinu skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Í þessu skyni skulu tilnefningaraðilar tilnefna tvo aðila, karl og konu, til setu í ráðinu.

Ráðið leitar álits hjá aðilum innan háskólans eftir því sem tilefni þykir til. Þá er ráðinu heimilt að afla ráðgjafar frá aðilum utan háskólans.

Hvert fræðasvið tilnefnir starfsmann af fræðasviðinu sem skal vera tengiliður þess við ráðið. Jafnframt tilnefnir starfsmannasvið Háskóla Íslands einn tengilið og hagsmunafélög nemenda einn hvert.

Hlutverk ráðs um málefni fatlaðs fólks er:

  • að hafa yfirumsjón með málefnum fatlaðs fólks í Háskóla Íslands og nemenda með sértæka námsörðugleika, í umboði rektors og háskólaráðs;
  • að gangast fyrir reglubundinni endurskoðun á stefnu háskólans í málefnum fatlaðra;
  • að undirbúa og fylgja eftir áætlunum um framkvæmd á stefnu háskólans í málefnum fatlaðra;
  • að stuðla að samstarfi hinna ýmsu aðila sem að málaflokknum koma innan Háskóla Íslands, þar á meðal Náms- og starfsráðgjafar, jafnréttisnefndar, framkvæmda- og tæknisviðs, kennslusviðs, deilda og fræðasviða;
  • að veita umsagnir, sbr. 14. gr., álit, sbr. 15. gr., og ráðgjöf þegar aðilar innan skólans leita eftir því;
  • að veita ráðgjöf við hönnun nýbygginga á vegum Háskóla Íslands og gera tillögur um úrbætur sé þess þörf. Einnig að fylgja eftir að aðgengi á háskólasvæðinu sé í samræmi við stefnu um málefni fatlaðra;
  • að afla tölulegra upplýsinga og birta skýrslu um málaflokkinn á þriggja ára fresti;
  • að hafa frumkvæði að fræðslu og umræðum um málefni fatlaðs fólks innan háskólasamfélagsins;
  • að fylgjast með nýmælum og því hvernig málefnum fatlaðs fólks er háttað við háskóla og aðrar sambærilegar stofnanir heima og erlendis, og stuðla að því að málefni fatlaðs fólks séu sjálfsagður þáttur í starfi háskólans.

Ráð um málefni fatlaðs fólks fylgist vel með rannsóknum, sem tengjast málefnum fatlaðra í háskólasamfélaginu. Að auki hefur ráð um málefni fatlaðra sinnt fræðslu, útgáfu kynningarefnis og upplýsingum um aðgengi að byggingum Háskóla Íslands.

Haustið 2005 gaf ráðið út bæklinginn Háskóli fyrir alla, sem dreift var innan Háskólans og í alla framhaldsskóla landsins.

Veturinn 2005-2006 starfaði ad hoc starfshópur í umboði ráðsins um málefni fólks með geðraskanir. Afrakstur þeirrar vinnu eru verklagsreglur um úrræði hjá Háskóla Íslands fyrir fólk með geðraskanir.

Ráð um málefni fatlaðs fólks starfar í nánu samstarfi við Námsráðgjöf Háskóla Íslands og byggingastjóra Háskóla Íslands.

Ráð um málefni fatlaðs fólks fundar að jafnaði einu sinni í mánuði.

Ráðið skipa frá 1. júlí 2025 til 30. júní 2028:

  • Sveinn Guðmundsson, jafnréttisfulltrúi, formaður, skipaður án tilnefningar
  • Hanna Björg Sigurjónsdóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, tilnefnd af Félagi háskólakennara og Félagi prófessora
  • Jón Sigurður Pétursson, deildarstjóri, tilnefndur af framkvæmda- og tæknisviði
  • Ástríður Margrét Eymundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, tilnefnd af Náms- og starfsráðgjöf
  • Halldóra Elín Einarsdóttir, tilnefnd af Stúdentaráði
  • Aníta Ósk Arnardóttir, tilnefnd af Stúdentaráði

Hægt er að hafa samband við ráðið í gegnum rumff@hi.is.

Formaður siðanefndar er skipaður af háskólaráði samkvæmt tilnefningu rektors. Félag háskólakennara og Félag prófessora skipa hvort um sig einn nefndarmann.

Þegar fram kemur kæra um brot á siðareglum getur rektor skipað tvo menn að auki eftir eðli máls til þess að fjalla um kæruna ásamt formanni og fulltrúum kennarafélaganna. Í umboði háskólaráðs skipar rektor þessa tvo menn að fengnum tilnefningum formanns nefndarinnar.

Skipunartími formanns og fulltrúa kennarafélaganna er þrjú ár, en skipun annarra nefndarmanna tekur einungis til fyrirliggjandi máls. Rektor skipar nefndinni ritara úr hópi starfsmanna Háskólans.

Siðareglur Háskóla Íslands, samþykktar á háskólaþingi 31. október 2019 og staðfestar í háskólaráði 5. desember 2019.

Starfsreglur siðanefndar, samþykktar á háskólaþingi 31. október 2019 og staðfestar í háskólaráði 5. desember 2019.

Nefndarfulltrúar 1. júlí 2026 - 30. júní 2029:

Nefndin tekur einnig við erindum bréflega og skulu þau berast til:

Háskóli Íslands
Siðanefnd
Aðalbyggingu, Sæmundargötu 2
102 Reykjavík

Nefndin er skipuð sjö fulltrúum og varamönnum þeirra. Háskóli Íslands skipar þrjá fulltrúa og varamenn, aðrir háskólar tilnefna sameiginlega tvo fulltrúa og varamenn þeirra. Auk þess tilnefnir Siðfræðistofnun Háskóla Íslands einn fulltrúa auk varamanns. Formaður nefndarinnar og varamaður hans eru skipaðir af rektor úr hópi fulltrúa fræðasviða háskólans. Skipunartími nefndarinnar er þrjú ár í senn. Við tilnefningu skal fylgt ákvæðum í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Starfssvið sjálfbærninefndar nær til sjálfbærni í víðum skilningi, sbr. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og heildarstefnu Háskóla Íslands hverju sinni.

Nefndina skipa:

Öryggisnefnd Háskóla Íslands er skipuð og starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (46/1980). Innan hvers fræðasviðs starfar öryggisnefnd, svo og í sameiginlegri stjórnsýslu, en öryggisnefnd Háskóla Íslands samanstendur af formönnum viðkomandi nefnda, auk áheyrnarfulltrúa stúdenta.

Skipan öryggisnefndar frá 15. október 2023 til 30. september 2026:

Starfsmaður öryggisnefndar er Snorri Páll Davíðsson, verkefnisstjóri á framkvæmda- og tæknisviði.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil