Helgi Gunnlaugsson (Hann/Hans)
Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Ég er prófessor í félagsfræði á Félagsvísindasviði í Félags-, mannfræði- og þjóðfræðideild. Ég lauk BA prófi í félagsfræði frá HÍ, meistara- og doktorsprófi í félags- og afbrotafræði frá Missouri háskóla í BNA. Rannsóknir mínar eru einkum á sviði afbrotafræði, afstöðu til afbrota og refsinga, áfengis- og annarra vímuefna. Greinar og bókakaflar eftir mig hafa birst víða í tímaritum og bókum í Evrópu, Bandaríkjunum og Suður-Ameríku. Ég hef einn eða í samstarfi við aðra gefið út fjölda verka, þar á meðal Afbrot og íslenskt samfélag (2018) og Wayward Icelanders: Punishment, Boundary Maintenance and the Creation of Crime (2000). Ég hef tekið þátt í mörgum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum í Evrópu og Suður-Ameríku. Má þar nefna afstöðu almennings og dómara á Norðurlöndum til afbrota og refsinga, mælingar á þolendum afbrota í alþjóðlegu ljósi og norræna löggjöf um fíkniefni. Að auki hef ég átt í löngu rannsóknarsamstarfi við fræðimenn frá Suður-Ameríku, Kanada, Frakklandi og Rússlandi á málefnum norður- og suðurslóða. Ég var gestakennari við Háskólann í Grænlandi í Nuuk haustið 2015 og 2016 og við Tækniháskólann í Krakow í Póllandi vorið 2017.
- University of Missouri Félags- og afbrotafræði
- 1992 Doktorspróf University of Missouri Félags- og afbrotafræði
- 1992 Doktorspróf University of Missouri Félagsfræði
- 1992 Doktorspróf University of Missouri Félagsfræði
- 1992 Doktorspróf University of Missouri Félagsfræði
- 1990 Meistarapróf Háskóli Íslands Kennsluréttindi
- 1985 MA University of Missouri Félags- og heilsufélagsfræði
- 1982 BA Háskóli Íslands Félagsfræði