Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða sér um mat á rannsóknum og innri rannsóknatengda sjóði við Háskóla Íslands. Önnur verkefni eru ráðgjöf, tölulegar greiningar á rannsóknum, röðunarlistar, talnaefni á vef og upplýsingakerfi rannsókna (IRIS).
Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða sér um mat á rannsóknum og innri rannsóknatengda sjóði við Háskóla Íslands. Önnur verkefni eru ráðgjöf, tölulegar greiningar á rannsóknum, röðunarlistar, talnaefni á vef og upplýsingakerfi rannsókna (IRIS).
Akademískir starfsmenn Háskóla Íslands eiga að skila inn skrá yfir ritverk, kennslu og stjórnun í samræmi við matsreglur. Eyðublöð og nánari upplýsingar eru á Uglu. Skiladagur framtala er 1. febrúar. Fyrirspurnir um ársmat skal senda á framtal@hi.is.
Nýir akademískir starfsmenn sem og aðjúnktar og nýdoktorar eiga að skila inn skrá yfir ritverk, kennslu og stjórnun í samræmi við matsreglur. Framtal og fyrirspurnir skal senda á framtal@hi.is.
Akademískar nafnbætur starfsfólks á heilbrigðisstofnunum með samstarfssamning við Háskóla Íslands. Sjá upplýsingasíðu um veitingu akademískra nafnbóta og reglur um akademískt hæfi heilbrigðisstarfsfólks.
Forsetum fræðasviða er heimilt, í umboði rektors, að bjóða völdum einstaklingum að gegna akademískum gestastörfum. Vísindanefnd háskólaráðs annast faglegt mat og tekur afstöðu til umsókna.
Sjá verklagsreglur áður en umsóknareyðublaðið er fyllt út.
Ósk um endurnýjun samnings skal senda til formanns vísindanefndar ekki síðar en 6 mánuðum áður en samningurinn rennur út. Senda skal póst á formann vísindanefndar háskólaráðs ásamt rannsoknasjodur@hi.is og óska eftir endurnýjun (tilgreinið nafn gestakennarans og látið fylgja núgildandi samning).
| Nafn | Deild |
|---|---|
| Anders Jeppsson | Læknadeild |
| Annette Lassen | Íslensku- og menningardeild |
| Björn Birnir | Raunvísindadeild |
| Christopher Hamilton | Jarðvísindadeild |
| Donata Schoeller | Deild heimspeki, sagnfæði og fornleifafræði |
| Enrique del Acebo Ibanez | Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild |
| Erla Björk Örnólfsdóttir | Líf- og umhverfisvísindadeild |
| Gottskálk Þór Jensson | Íslensku- og menningardeild |
| Hákon Hákonarson | Læknadeild |
| Helena Brisby Jeppson | Læknadeild |
| Ian F. Akyildiz | Rafmagns- og tölvuverkfræðideild |
| Jesse L. Byock | Deild heimspeki, sagnfæði og fornleifafræði |
| Jocelyn Chanussot | Rafmagns- og tölvuverkfræðideild |
| Karl Aspelund | Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild |
| Kevin W. Burton | Jarðvísindadeild |
| Kolbrún Sveinsdóttir | Matvæla- og næringarfræðideild |
| Kristjana Gunnarsdóttir | Mála og menningardeild |
| Margrét Hallgrímsdóttir | Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild |
| Michael Schulte | Mála og menningardeild |
| Michal Czepkiewicz | Umhverfis- og byggingaverkfræðideild |
| Ólafur Guðmundsson | Jarðvísindadeild |
| Páll Hreinsson | Lagadeild |
| Pétur Dam | Lagadeild |
| Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir | Umhverfis- og byggingaverkfræðideild |
| Sigurdís Hjaltadóttir | Læknadeild |
| Sigurður Bogason | Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild |
| Steven Hartman | Deild heimspeki, sagnfæði og fornleifafræði |
| Uranchimeg Tsultem | Íslensku- og menningardeild |
| Valur Emilsson | Læknadeild |
| Viðar Már Matthíasson | Lagadeild |
| Weiqi Fu | Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild |
Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða starfar með dómnefndnum í nýráðningum, framgang og mat á akademísku hæfi (klíniskra nafnbóta og gestakennara nafnbóta).
Akademísk störf eru m.a. auglýst á Starfatorgi og sótt er um á umsóknareyðublaði þar.
Nánari upplýsingar veitir Baldvin Zarioh, bmz@hi.is.
Flýtiframgangur: Framgangur í kjölfar nýráðningar. Sjá verklagsreglur.
Umsóknarfrestur er 1. nóvember ár hvert.
Nánari upplýsingar um framgang. (Krefst innskráningar í Uglu).
Sjá upplýsingar um ótímabundna ráðningu í Uglu.
Nánari upplýsingar veitir Mannauðssvið, mannaudur@hi.is.