Aðalbygging Háskóla Íslands í ljósaskiptum
Umgengnisreglur í byggingum Háskóla Íslands

Skylt er að ganga vel um húsakynni Háskóla Íslands, umhverfi hans, tæki og búnað á hverjum stað. Enginn má skilja eftir sig rusl, hvorki innan dyra né utan. Notum ruslafötur!

Hverjum og einum ber að sýna tillitssemi og valda ekki öðrum truflun eða óþægindum. Öll umgengni í lesrýmum og tölvuverum skal vera hávaðalaus. Slökkt skal á farsímum í lesrýmum, tölvuverum og kennslustofum. Hliðra skal til fyrir ræstingarfólki, svo að störf þess geti farið fram truflunarlaust.

Allar reykingar (þar með taldar rafsígarettur) eru óheimilar innanhúss og við innganga bygginga Háskóla Íslands sem og undir opnanlegum gluggum. Sérstakt reykingaskýli er að finna vestan við Háskólatorg.

Þau hús Háskólans sem ekki eru með aðgangsstýringu eru almennt opin frá kl. 7:30 - 18:00 virka daga. Í húsum með aðgangsstýringu gilda mismunandi reglur um opnunartíma.

Neysla matar er óheimil í kennslustofum og tölvuverum.

Hvers konar viðburðir, kynningar, veitingar og sala er óheimil í húsakynnum Háskóla Íslands án leyfis. Sækja skal um leyfi til viðkomandi þjónustuborðs eða með því að senda tölvupóst á kennslustofur@hi.is eða hi@hi.is.

Auglýsingar eru eingöngu leyfðar á auglýsingatöflum og/eða tilkynningaskjám. Þær mega ekki brjóta í bága við reglur og almennt velsæmi.

Brot á húsreglum, tjón og hvers konar spjöll geta leitt til bótaskyldu og/eða brottvísunar.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil