""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum).
Lengd náms
1 og ½ ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að öðast þekkingu og skilning á handleiðslufræðum til þess að geta beitt þeim faglega í starfi?
  • Stefnir þú að því að geta unnið sjálfstætt að handleiðslu?
  • Ert þú með löggild starfsréttindi?
  • Vilt þú fá tækifæri til þess að vinna markvisst að því að styrkja fagímynd þína og styrkt þig í þverfaglegu samstarfi?

Í örnámi í handleiðslu læra nemendur að þekkja og beita kerfisnálgun og dýnamiskri sýn á samskipti milli einstaklinga, faghópa og í stofnanasamstarfi. Nemendur þróa með sér og læra að sýna fram á nauðsynlega hæfni til að geta skipulagt og séð um framkvæmd handleiðslukerfis.

Námsleiðin er ætluð fagfólki með löggild starfsréttindi s.s. félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum, kennurum, læknum, prestum/guðfræðingum, iðjuþjálfum, sálfræðingum og sjúkraþjálfurum. 

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er sett upp sem eins og hálfs árs árs hlutanám.

Skyldunámskeið á námsleiðinni:

  • Faghandleiðsla - ytri umgjörð og innri samskipti á vinnustöðum, 10 einingar
  • Faghandleiðsla og handleiðslutækni, 10 einingar
  • Faghandleiðsla og samtími - breytt viðtak og nálgun, 10 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið skiptist í fyrirlestra, klíníska þjálfun, heimanám með verkefnavinnu og annað sem styrkir lærdóms-og þroskaferli þátttakenda. Í náminu er regluleg hóphandleiðsla aðra hvora viku, auk þess sem nemendur skulu hafa lokið 60 tímum á námstímabilinu í þjálfunarskyni.

Annað

Hægt er að fá námið metið inn í meistaranám í félagsráðgjöf að uppfylltum inntökuskilyrðum.

Námsleiðin er ætluð heilbrigðisstarfsfólki með löggild starfsréttindi og öðru fagfólki.

Inntökuskilyrði eru að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi með fyrstu einkunn að jafnaði, a.m.k. fjögurra ára starfsreynsla ásamt því að vera í starfi og hafa lokið 40 klst. í faghandleiðslu, þar af minnst 25 klst. í einstaklingshandleiðslu.

Ljúka þarf 30 ECTS einingum. Námið er skipulagt sem þriggja missera hlutanám, en hægt er að ljúka því á lengri tíma.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Faghandleiðsla - ytri umgjörð og innri samskipti á vinnustöðum (FRG121F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um kerfisnálgun, stjórnun og samskipti í velferðarstofnunum (human services organization). Kynnt er uppbygging og líkön handleiðslukerfa. Fjallað er um kerfisgreiningu, stjórnunarleg starfsfélaga- og yfirmannasamskipti og faglegt samráð. Þessu tengt er athygli beint að því hvernig má draga úr álagi, starfsþreytu og kulnun í starfsumhverfi. Þá er mið tekið af hlut handleiðslu í að auka starfsánægju, efla fagmanninn og bæta gæði þjónustu til skjólstæðinga. Byggt er m.a. á stjórnunar-og stofnanafræðum, samskiptakenningum og psychodýnamiskri nálgun. Samhliða fyrirlestrum er klínísk kennsla (hóphandleiðsla) þar sem nemendur vinna með eigin handleiðsluverkefni undir leiðsögn sérþjálfaðra handleiðara.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Faghandleiðsla og handleiðslutækni (FRG229F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hugmyndafræði, sögu og upphafskenningar handleiðslu og fagsiðfræði (e. professional ethics), og athygli beint að tengsla- og fagþroska (e.personal and professional development), m.a á grunni psykodýnamskra-og tengsla kenninga. Áhersla er á aðgreiningu ólíkra handleiðslutegunda og forma, ásamt þeim eðlismun sem er á nema - og faghandleiðslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Faghandleiðsla og samtími (FRG308F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hugtök, ferli og fyrirbæri, hlutverkastöður, vinnulag og tækni. Sérstök áhersla er á upphafstengsl, einkenni þrepa í handleiðsluferlinu, hliðstæð ferli (e.paralell process) og úrvinnslu hindrana. Þá eru kynntar leiðir til að beita ígrundun, meta framvindu og fella af tengsl (ljúka handleiðslu).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    FRG121F
    Faghandleiðsla - ytri umgjörð og innri samskipti á vinnustöðum
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um kerfisnálgun, stjórnun og samskipti í velferðarstofnunum (human services organization). Kynnt er uppbygging og líkön handleiðslukerfa. Fjallað er um kerfisgreiningu, stjórnunarleg starfsfélaga- og yfirmannasamskipti og faglegt samráð. Þessu tengt er athygli beint að því hvernig má draga úr álagi, starfsþreytu og kulnun í starfsumhverfi. Þá er mið tekið af hlut handleiðslu í að auka starfsánægju, efla fagmanninn og bæta gæði þjónustu til skjólstæðinga. Byggt er m.a. á stjórnunar-og stofnanafræðum, samskiptakenningum og psychodýnamiskri nálgun. Samhliða fyrirlestrum er klínísk kennsla (hóphandleiðsla) þar sem nemendur vinna með eigin handleiðsluverkefni undir leiðsögn sérþjálfaðra handleiðara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    FRG229F
    Faghandleiðsla og handleiðslutækni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um hugmyndafræði, sögu og upphafskenningar handleiðslu og fagsiðfræði (e. professional ethics), og athygli beint að tengsla- og fagþroska (e.personal and professional development), m.a á grunni psykodýnamskra-og tengsla kenninga. Áhersla er á aðgreiningu ólíkra handleiðslutegunda og forma, ásamt þeim eðlismun sem er á nema - og faghandleiðslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    FRG308F
    Faghandleiðsla og samtími

Annað ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar gjarnan:

  • við geðendurhæfingu
  • við velferðarþjónustu
  • við ráðgjöf og þjónustu hjá stéttarfélögum
  • á endurhæfingarstöðum
  • á fullorðinsfræðslustöðum
  • á vinnustöðum fyrir fatlað fólk

Listinn er ekki tæmandi

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil