""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Tvö misseri
Námsform
Staðnámsleið Netnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á jafnréttismálum?
  • Langar þig að greina viðfangsefni samtímans út frá kynja- og margbreytileikasjónarmiðum?
  • Vilt þú afla þér undirstöðuþekkingar til að efla jafnréttisstarf?
  • Vilt þú rýna stöðu ólíkra hópa á einkasviðinu og á opinberum vettvangi, í íslensku samfélagi og í alþjóðlegum samanburði?
  • Vilt þú fara í stutt og hagnýtt nám?

Í 30 eininga örnámi í hagnýtri jafnréttisfræði er farið í almennan grunn kynjafræða, staða kynjanna í íslensku samfélagi skoðuð ásamt því að rýna í opinbera jafnréttisstefnu og framkvæmd hennar.

Jafnréttisfræðsla er lögboðin á öllum skólastigum enda er hún nauðsynleg fyrir fjölmargar stéttir í samfélaginu. Auk þess er hún gagnleg og skemmtileg fyrir öll sem vilja vinna að réttlæti, jafnrétti og lýðræðislegri þátttöku allra.

Eitt hlutverka kynjafræðinnar er að renna stoðum undir jafnréttisstarf í landinu og mæta þeim kröfum sem hið opinbera regluverk setur okkar. 

Athugið að námsleiðina er hægt að taka sem netnám án rauntímaþátttöku. 

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hluta nám til eins árs.

Skyldunámskeið á námsleiðinni:

  • Almenn kynjafræði, 10 einingar
  • Kenningar í kynjafræði, 10 einingar 
  • Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags, 10 einingar 

Meðal viðfangsefna

  • Margbreytileiki mannlífsins
  • Félagslegir áhrifaþættir
  • Jafnrétti og réttlæti
  • Opinber jafréttisstefna

Fyrirkomulag kennslu

Flest námskeið námsleiðarinnar eru kennd í fjarnámi, netnámi.

Námið er kennt á íslensku en kennslubækur eru á ensku.

    Meginmarkmið

    Miðað er að því að nemendur öðlist almennan grunn í kynjafræði, skilji þverfræðilegt inntak hennar og helstu veikleika og styrkleika.

    Annað

    Í framhaldi af náminu geta nemendur sótt um MA-nám í kynjafræði og lokið MA-prófi kjósi þeir það. Örnám fæst að fullu metið inn hjá þeim nemendum sem samþykktir eru inn í MA-nám í kynjafræði.

    BA-, B.Ed.- eða BS-gráða eða sambærilegt nám.

    Ljúka þarf 30 ECTS einingum. Örnámið samanstendur af þremur skyldunámskeiðum. Nemendur með kynja- og margbreytileikafræði sem aukagrein í grunnnámi og hafa lokið námskeiðunum Inngangur að kynjafræði og kynjafræðikenningar velja önnur námskeið í staðinn í samráði við umsjónarmann. 

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Prófskírteini/námsyfirlit

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Óháð námsári | Haust
    Almenn kynjafræði (KYN101F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

    Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Óháð námsári | Vor
    Kenningar í kynjafræði (KYN211F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Óháð námsári | Vor
    Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags (KYN202F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

    Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Óháð námsári
    • Haust
    • KYN101F
      Almenn kynjafræði
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

      Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Vor
    • KYN211F
      Kenningar í kynjafræði
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • KYN202F
      Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags
      Skyldunámskeið
      10
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

      Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Dæmi um starfsvettvang:

    • Kennslu og fræðslustörf
    • Fjölmiðla- og upplýsingastörf
    • Verkefna- og starfsmannastjórnun
    • Hagsmunasamtök og frjáls félagasamtök
    • Jafnréttisráðgjöf

    Listinn er ekki tæmandi.

    Kynjafræðin hefur mikil og sterk tengsl við samfélagið. Núverandi og fyrrverandi nemendur eru afar virkir í samfélagsumræðunni, frjálsum félagasamstökum og öðrum lýðræðishræringum samfélagsins.

    Við Háskóla Íslands er starfrækt Femínistafélag Háskóla Íslands og Q félag hinsegin stúdenta.

    Umsagnir nemenda
    ""
    Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil