""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Ert þú með bakgrunn í félagsráðgjöf?
  • Langar þig að dýpka þekkingu þína á ákveðnu sviði innan félagsráðgjafar?
  • Vilt þú fá þjálfun í sjálfstæðri rannsóknarvinnu?

Meistaranám í félagsráðgjöf er rannsóknartengt nám þar sem nemendur með grunn í félagsráðgjöf geta breikkað og dýpkað þekkingu sína á völdu fræðasviði innan félagsráðgjafar og öðlast kerfisbundinn skilning á nýjustu þekkingu á því sviði og rannsóknaraðferðum sem þar er beitt.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Nemandi velur valnámskeið í samráði við leiðbeinanda.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.

    Meginmarkmið

    Markmið námsins er að veita útskrifuðum félagsráðgjöfum tækifæri til þess að dýpka þekkingu sína á tilteknu sviði.

    Annað

    Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

    BA-gráða í félagsráðgjöf. Krafist er fyrstu einkunnar (7,25).

    Ljúka þarf 120 ECTS einingum. Námið skiptist í þrjá megin þætti: Fræðileg námskeið, námskeið í aðferðafræði og lokaritgerð. Vægi lokaritgerðar skal að jafnaði vera 40-60 ECTS einingar. Samsetning námsins er sveigjanleg og skipuleggur hver nemandi námið í samráði við sinn leiðbeinanda.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Greinargerð um markmið með námi
    • Rannsóknaáætlun
    • Meðmælandi 1, nafn og netfang
    • Meðmælandi 2, nafn og netfang
    • Prófskírteini/námsyfirlit

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Óháð námsári | Heilsársnámskeið
    Rannsóknamálstofur í MA-námi við Félagsráðgjafardeild (FRG003F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Undirbúningur og gerð lokarannsóknar í meistaranámi. Farið er yfir verklag í fræðilegum ritgerðum. Meðal annars er fjallað um rannsóknaáætlanir, aðferðir og hvernig rannsóknir eru tengdar kenningagrunni og starfsvettvangi félagsráðgjafar. Nemendur kynna rannsóknaáætlanir sínar, fá gagnrýna viðgjöf og taka þátt í hópumræðum sem gagnast á gagnkvæman hátt.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Óháð námsári | Haust
    MA ritgerð í félagsráðgjöf (FRG441L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið meistaraverkefnis er að veita nemanum þjálfun í að hanna, skipuleggja, þróa og framkvæma rannsóknarverkefni í félagsráðgjöf, læra að taka tillit til þeirra takmarkana sem leiða af vali á aðferðum, tækni, vísindasiðfræði og reglum um persónuvernd. Nemendur skulu með sjálfstæðum hætti og í rituðu máli geta skilgreint rannsóknarefni sitt, sett fram rannsóknarspurningar og tilgátur.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Óháð námsári | Haust
    Rannsóknaraðferðir félagsvísinda (FÉL301F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins eru þríþætt: i) að nemendur öðlist dýpri skilning á rannsóknarferlinu og helstu rannsóknaraðferðum, ii) að nemendur fái þjálfun í því að kynna sér og leggja sjálfstætt mat á fyrirliggjandi rannsóknir og iii) að nemendur fái þjálfun í því að setja fram rannsóknarspurningar með hliðsjón af kenningarlegri umræðu og fyrirliggjandi rannsóknum. Fyrirlestrar: Fjallað er um hugtakanotkun og rannsóknaraðferðir með áherslu á að i) draga fram styrkleika og veikleika mismunandi aðferða og ii) tengja saman aðferðafræði, aðferðir og kenningarleg málefni og álitamál. Umræðutímar: Nemendur lesa allmörg rannsóknardæmi og ræða rannsóknaraðferðir á gagnrýninn hátt í tengslum við tiltekin félagsfræðileg umfjöllunarefni. Lokaverkefni: Nemendur skrifa sjálfstæða rannsóknartillögu.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Haust
    Megindleg aðferðafræði (FMÞ001F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir I (FMÞ103F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Óháð námsári | Haust
    Inngildandi rannsóknaraðferðir (ÞRS104F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er sjónum beint að þróun rannsókna og  rannsóknaraðferða innan gagnrýnna fræða svo sem fötlunar -, hinsegin- og kynjafræði. Athyglin beinist að gagnrýni jaðarsettra hópa á hefðbundnar rannsóknir, en sú gagnrýni á meðal annars rætur sínar að rekja til femínískra fræða. Farið verður yfir með hvaða hætti nýlegar áherslur endurskilgreina valdatengsl milli rannsakanda og þátttakenda. Slíkar rannsóknir byggjast á nánu samstarfi á milli þátttakenda og fræðifólks þar sem byggt er á gagnkvæmri virðingu og þátttöku. Markmið þeirra er að vera umbreytandi og stuðla að valdeflingu þátttakenda í öllu rannsóknarferlinu. Rýnt verður í helstu einkenni, möguleika og takmarkanir slíkra rannsóknarhefða og aðferð, t.d. starfendarannsókna, þátttökurannsókna, samvinnurannsókna, dagbókaskrifa, sögulokaaðferð og spurningalista út frá algildri hönnun, auk þess sem fjölbreyttar samstarfsleiðir verða kynntar. Þá verður sjónum beint að þeim fjölmörgu siðferðilegu áskornunum sem mæta samstarfsaðilum í slíkum rannsóknum. Áhersla verður á að kynna og ræða nýjar rannsóknir og þróunarverkefni á sviðinu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Óháð námsári | Vor
    MA ritgerð í félagsráðgjöf (FRG441L)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið meistaraverkefnis er að veita nemanum þjálfun í að hanna, skipuleggja, þróa og framkvæma rannsóknarverkefni í félagsráðgjöf, læra að taka tillit til þeirra takmarkana sem leiða af vali á aðferðum, tækni, vísindasiðfræði og reglum um persónuvernd. Nemendur skulu með sjálfstæðum hætti og í rituðu máli geta skilgreint rannsóknarefni sitt, sett fram rannsóknarspurningar og tilgátur.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
    Óháð námsári | Vor
    Stjórnun atvinnulífs og velferðar (FRG064F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um þróun atvinnulífs sem og helstu úrlausnarefni sem íslensk og önnur vestræn stjórnvöld standa frammi fyrir. Fjallað verður um gjánna sem breikkar sífellt á milli góðra starfa og slæmra, ríkra og fátækra, aukna áherslu á margbreytileika þjóðlífsins og stöðu ólíkra þjóðfélags- og þjóðernishópa. Þá er sjónum beint að breytingum á vinnumarkaði og á vinnustöðum og þeim áskorunum sem atvinnurekendur og starfsfólk stendur frammi fyrir af þeim sökum. Samhliða þessu er fjallað um tengsl vinnuskipulags við heilsu og líðan starfsfólks. Sjónum er beint að samspili fjölskyldu og atvinnulífs, streitu, kulnun, ofbeldi, áreitni og einelti á vinustöðum, atvinnuleysi og starfsóöryggi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    Óháð námsári | Vor
    Eigindlegar rannsóknaraðferðir II (FMÞ201F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er þá fjölbreytni sem er að finna í  eigindlegum rannsóknum. Rýnt er í fimm mismunandi rannsóknarhefðir, þ.e. tilviksathuganir, frásögurannsóknir, etnógrafíu, fyrirbærafræði og grundaða kenningu. Nemendur öðlast aukna færni í að afla rannsóknargagna á vettvangi og beita mismunandi greiningaraðferðum á eigindleg gögn. Þeir fá jafnframt þjálfun í framsetningu niðurstaðna í tengslum við fræðiskrif. Þá fá nemendur tækifæri til að ígrunda eigin rannsóknir og sjálfa sig sem eigindlega rannsakendur.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Óháð misseri
    Lesnámskeið um sérsvið (FRG004F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi vinnur skrifleg verkefni eða ítarlega heimilda-ritgerð um tiltekinn þátt þess rannsóknasviðs sem hann hefur valið sér í samráði við umsjónarkennara.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári
    • Heilsársnámskeið
    • FRG003F
      Rannsóknamálstofur í MA-námi við Félagsráðgjafardeild
      Skyldunámskeið
      0
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      0 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Undirbúningur og gerð lokarannsóknar í meistaranámi. Farið er yfir verklag í fræðilegum ritgerðum. Meðal annars er fjallað um rannsóknaáætlanir, aðferðir og hvernig rannsóknir eru tengdar kenningagrunni og starfsvettvangi félagsráðgjafar. Nemendur kynna rannsóknaáætlanir sínar, fá gagnrýna viðgjöf og taka þátt í hópumræðum sem gagnast á gagnkvæman hátt.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Haust
    • FRG441L
      MA ritgerð í félagsráðgjöf
      Skyldunámskeið
      0
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      0 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið meistaraverkefnis er að veita nemanum þjálfun í að hanna, skipuleggja, þróa og framkvæma rannsóknarverkefni í félagsráðgjöf, læra að taka tillit til þeirra takmarkana sem leiða af vali á aðferðum, tækni, vísindasiðfræði og reglum um persónuvernd. Nemendur skulu með sjálfstæðum hætti og í rituðu máli geta skilgreint rannsóknarefni sitt, sett fram rannsóknarspurningar og tilgátur.

      Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    • FÉL301F
      Rannsóknaraðferðir félagsvísinda
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins eru þríþætt: i) að nemendur öðlist dýpri skilning á rannsóknarferlinu og helstu rannsóknaraðferðum, ii) að nemendur fái þjálfun í því að kynna sér og leggja sjálfstætt mat á fyrirliggjandi rannsóknir og iii) að nemendur fái þjálfun í því að setja fram rannsóknarspurningar með hliðsjón af kenningarlegri umræðu og fyrirliggjandi rannsóknum. Fyrirlestrar: Fjallað er um hugtakanotkun og rannsóknaraðferðir með áherslu á að i) draga fram styrkleika og veikleika mismunandi aðferða og ii) tengja saman aðferðafræði, aðferðir og kenningarleg málefni og álitamál. Umræðutímar: Nemendur lesa allmörg rannsóknardæmi og ræða rannsóknaraðferðir á gagnrýninn hátt í tengslum við tiltekin félagsfræðileg umfjöllunarefni. Lokaverkefni: Nemendur skrifa sjálfstæða rannsóknartillögu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • FMÞ001F
      Megindleg aðferðafræði
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Meginefni námskeiðsins eru megindlegar rannsóknaraðferðir og tölfræði í félags- og menntavísindum. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda og umfjöllun um þátt rannsókna í samfélaginu. Fjallað er um helstu rannsóknarsnið, úrtaksfræði og gerð spurningalista. Í tölfræðihluta er kennt um lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði og fjallað ítarlega um dreifigreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur vinna hagnýt verkefni í tölfræðilegri úrvinnslu gagna með jamovi forritinu samhliða fyrirlestrum. Nemendur geta unnið með eigin gögn.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • FMÞ103F
      Eigindlegar rannsóknaraðferðir I
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist fjölbreytileika og fræðilegum forsendum eigindlegrar rannsóknahefðar í félagsvísindum og öðlist reynslu í að beita eigindlegum aðferðum. Um hagnýtt námskeið er að ræða þar sem hver nemandi vinnur sjálfstætt rannsóknarverkefni sem felst í því að hanna og undirbúa rannsókn, afla gagna, greina þau og skrifa um helstu niðurstöður undir handleiðslu kennara. Í námskeiðinu verður farið ítarlega í undirbúning rannsókna, gerð rannsóknaráætlunar, gagnaöflun, greiningu og skrif.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Ekki kennt á misserinu
      ÞRS104F
      Inngildandi rannsóknaraðferðir
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu er sjónum beint að þróun rannsókna og  rannsóknaraðferða innan gagnrýnna fræða svo sem fötlunar -, hinsegin- og kynjafræði. Athyglin beinist að gagnrýni jaðarsettra hópa á hefðbundnar rannsóknir, en sú gagnrýni á meðal annars rætur sínar að rekja til femínískra fræða. Farið verður yfir með hvaða hætti nýlegar áherslur endurskilgreina valdatengsl milli rannsakanda og þátttakenda. Slíkar rannsóknir byggjast á nánu samstarfi á milli þátttakenda og fræðifólks þar sem byggt er á gagnkvæmri virðingu og þátttöku. Markmið þeirra er að vera umbreytandi og stuðla að valdeflingu þátttakenda í öllu rannsóknarferlinu. Rýnt verður í helstu einkenni, möguleika og takmarkanir slíkra rannsóknarhefða og aðferð, t.d. starfendarannsókna, þátttökurannsókna, samvinnurannsókna, dagbókaskrifa, sögulokaaðferð og spurningalista út frá algildri hönnun, auk þess sem fjölbreyttar samstarfsleiðir verða kynntar. Þá verður sjónum beint að þeim fjölmörgu siðferðilegu áskornunum sem mæta samstarfsaðilum í slíkum rannsóknum. Áhersla verður á að kynna og ræða nýjar rannsóknir og þróunarverkefni á sviðinu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • Vor
    • FRG441L
      MA ritgerð í félagsráðgjöf
      Skyldunámskeið
      0
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      0 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið meistaraverkefnis er að veita nemanum þjálfun í að hanna, skipuleggja, þróa og framkvæma rannsóknarverkefni í félagsráðgjöf, læra að taka tillit til þeirra takmarkana sem leiða af vali á aðferðum, tækni, vísindasiðfræði og reglum um persónuvernd. Nemendur skulu með sjálfstæðum hætti og í rituðu máli geta skilgreint rannsóknarefni sitt, sett fram rannsóknarspurningar og tilgátur.

      Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    • Ekki kennt á misserinu
      FRG064F
      Stjórnun atvinnulífs og velferðar
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu verður fjallað um þróun atvinnulífs sem og helstu úrlausnarefni sem íslensk og önnur vestræn stjórnvöld standa frammi fyrir. Fjallað verður um gjánna sem breikkar sífellt á milli góðra starfa og slæmra, ríkra og fátækra, aukna áherslu á margbreytileika þjóðlífsins og stöðu ólíkra þjóðfélags- og þjóðernishópa. Þá er sjónum beint að breytingum á vinnumarkaði og á vinnustöðum og þeim áskorunum sem atvinnurekendur og starfsfólk stendur frammi fyrir af þeim sökum. Samhliða þessu er fjallað um tengsl vinnuskipulags við heilsu og líðan starfsfólks. Sjónum er beint að samspili fjölskyldu og atvinnulífs, streitu, kulnun, ofbeldi, áreitni og einelti á vinustöðum, atvinnuleysi og starfsóöryggi.

      Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
    • FMÞ201F
      Eigindlegar rannsóknaraðferðir II
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Fjallað er þá fjölbreytni sem er að finna í  eigindlegum rannsóknum. Rýnt er í fimm mismunandi rannsóknarhefðir, þ.e. tilviksathuganir, frásögurannsóknir, etnógrafíu, fyrirbærafræði og grundaða kenningu. Nemendur öðlast aukna færni í að afla rannsóknargagna á vettvangi og beita mismunandi greiningaraðferðum á eigindleg gögn. Þeir fá jafnframt þjálfun í framsetningu niðurstaðna í tengslum við fræðiskrif. Þá fá nemendur tækifæri til að ígrunda eigin rannsóknir og sjálfa sig sem eigindlega rannsakendur.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • Óháð misseri
    • FRG004F
      Lesnámskeið um sérsvið
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Nemandi vinnur skrifleg verkefni eða ítarlega heimilda-ritgerð um tiltekinn þátt þess rannsóknasviðs sem hann hefur valið sér í samráði við umsjónarkennara.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Að námi loknu geta nemendur átt frumkvæði að:

    • Rannsókna- og þróunarverkefnum á sínu sérsviði
    • Unnið sjálfstæða rannsóknavinnu
    • Stýrt verkefnum 
    • Borið ábyrgð á vinnu einstaklinga og hópa

    Listinn er ekki tæmandi

    Umsagnir nemenda
    ""
    Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Félagsvísindasvið
    Virka daga 09:00 - 15:00
    Nemenda og kennsluþjónusta

    Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

    Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

    Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil