Meistarapróf (MS) í faraldsfræði eða skyldum greinum á stigi 6.2 með a.m.k. 30 ECTS lokaverkefni og fyrstu einkunn, 7,25. Heimilt er að veita undanþágu þeim umsækjendum sem hafa lokið 90-120 ECTS meistaraprófi á stigi 6.1 með lokaverkefni undir 30 ECTS, hafi þeir í umsókn sinni gert grein fyrir rannsóknarreynslu, sem fastanefnd metur sem ígildi 30 ECTS lokaverkefnis.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa lokið eftirfarandi eða sambærilegum námskeiðum:
LÝÐ202F Verklag í vísindum
LÝÐ107F eða LÝÐ003M Faraldsfræði
LÝÐ105F eða LÝÐ004M Líftölfræði I
LÝÐ301F Klínísk spálíkön.
Í sérstökum tilfellum getur stjórn námsins, í samráði við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi fræðasviðs, heimilað umsækjanda að leggja inn umsókn áður en skilyrði um námskeið er að fullu uppfyllt, og ljúka völdum námskeiðum á fyrsta ári námsins.
Staðfestingu á enskukunnáttu er krafist sé íslenska ekki fyrsta tungumál umsækjanda.
Nemendur þurfa að ljúka 180e í doktorsverkefni og 3-6e námskeiði í vísindasiðfræði, auk námskeiðanna LÝÐ085F Aðferðir í faraldsfræði og LÝÐ097F Viðfangsefni í faraldsfræði hafi þeim ekki þegar verið lokið á fyrra námsstigi.
Auk fræðilegs inngangs telur ritgerð til doktorsprófs í faraldsfræði að lágmarki þrjú handrit vísindagreina og skulu tvær þeirra vera birtar eða samþykktar til birtingar í ritrýndum vísindatímaritum.
- CV
- Research proposal
- Reference 1, Name and email
- Reference 2, Name and email
- Supervisor/supervising teacher at the University of Iceland
- Certified copies of diplomas and transcripts
- Copy of grant or scholarship application and/or confirmation, if applicable
- Proof of English proficiency
Further information on supporting documents can be found here.
Please use the form below for your application and follow the instructions closely.
Dóra Ragnheiður Ólafsdóttir
Project manager