Þverfræðilegt doktorsnám heyrir ekki faglega undir eina tiltekna deild, þar sem nokkrar eða margar deildir skólans eiga venjulega aðild að náminu. Fagleg ábyrgð á þverfræðilegu námi er þess vegna í höndum sérstakrar námsstjórnar, sem skipuð er fulltrúum þeirra deilda eða fræðasviða sem að náminu koma.
Í flestum tilvikum ráða nemendur frá hvaða deild þau brautskrást og þar með hvar áherslan í náminu liggur. Þetta fer þó eftir reglum viðkomandi námsleiðar og samkomulagi milli þeirra deilda sem standa að náminu.
Eftirspurn eftir fólki með fjölbreytta menntun fer sífellt vaxandi og Háskóli Íslands hefur brugðist við þessari þróun með því að auðvelda nemendum að leggja stund á fleiri en eina grein með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval af þverfræðilegum námsleiðum.
Umsóknarfrestur um þverfræðilegt doktorsnám er sá sami og hjá sviðinu þar sem leiðbeinandi doktorsnema starfar.
Sjá nánar: Umsóknarfrestur um doktorsnám
Umsækjendur um doktorsnám þurfa að vera komnir með leiðbeinanda áður en sótt er um.