Saga
S-114
- Aðgangur ókeypis
Það er okkur sönn ánægja að bjóða til vinnustofa sem haldnar verða í Sögu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands, 29. september 2026 kl. 12.30–17.00, á vegum rannsóknarverkefnisins Saman eða sundruð? Menntun og félagsleg þátttaka flóttabarna og -ungmenna á Íslandi (ESRCI).
Markmið rannsóknarverkefnisins var að rannsaka með gagnrýnum hætti þátttöku flóttabarna og -ungmenna frá Sýrlandi og Írak á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, skipulag náms þeirra og hvernig hugað er að vellíðan þeirra í félagslegu og námslegu umhverfi.
Þátttakendur í ESRCI-verkefninu voru, auk barnanna og ungmennanna, foreldrar, kennarar, skólastjórar, námsráðgjafar, starfsfólk sveitarfélaga og fulltrúar sjálfboðaliðasamtaka í nærsamfélögum þeirra.
Dagskrá
Kl. 12.30–14.00 – Stofa S-114, Saga
Viðburðurinn hefst með kynningu á meginniðurstöðum rannsóknarverkefnisins og lokaskýrslu þess.
Kl. 14.20–17.00 – Stofur S-312 og S-316, Saga
Að lokinni kynningu fara fram vinnustofur þar sem meðal annars verður fjallað um tungumál og fjöltyngi, styrkleika og viðurkenningu, tilheyrandi og virka þátttöku, félagslegt réttlæti og fjölmenningarhæfni, samstarf og framtíðartækifæri.
Áherslur vinnustofanna
• Samtal um hvernig niðurstöður verkefnisins geta nýst starfsfólki skóla og sveitarfélaga sem og fræðasamfélaginu.
• Samtal um hagnýt verkefni og aðferðir sem styðja við farsæla móttöku og menntun barna og ungmenna með flóttabakgrunn í skóla-, frístunda- og félagsstarfi.
• Samtal um lausnir og aðferðir sem hafa reynst vel í starfi með börnum og ungmennum með flóttabakgrunn.
Markhópur
Vinnustofurnar eru ætlaðar starfsfólki skóla-, frístunda- og félagsþjónustu, fræðasamfélaginu og öðrum sem vinna með börnum, ungmennum og fjölskyldum með flóttabakgrunn.
Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á veitingar.
Nánari upplýsingar um rannsóknarverkefnið:
https://esrci.hi.is/is/forsida-islenska/
Við vonumst til að sjá ykkur.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!