1920_KRI_visindagardar_200428_009.jpg
Hvenær
29. október 2026
15:00 til 16:00
Hvar

Læknagarður

Lg-201

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Berglind Hálfdánsdóttir fæddist þann 25. ágúst 1973. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1993, BS- prófi í Hjúkrunarfræði árið 2004, Kandítatsprófi í ljósmóðurfræði árið 2007 og Meistaraprófi í ljósmóðurfræði 2011 frá Háskóla Íslands. Berglind lauk Doktorsprófi í ljósmóðurfræði árið 2016 frá Háskóla Íslands þar sem hún rannsakaði heimafæðingar á Íslandi. Frá árinu 2016 hefur Berglind starfað sem lektor og síðar dósent við Háskóla Íslands, þar sem hún sinnir kennslu og rannsóknum í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands. Rannsóknaráherslur Berglindar hafa einkum verið skipulag barneignarþjónustu innan og utan sjúkrahúsa, siðfræði og upplýst val í barneignarþjónustu, þjónustuþarfir ólíkra hópa og fæðingarþjónusta utan faglegra viðmiða.

Berglind hlaut þriggja ára Rannís styrk fyrir doktorsverkefni sínu, auk smærri styrkja, og var valin ungur vísindamaður Landspítala árið 2017. Berglind hefur setið í ýmsum nefndum, ráðum og starfshópum, s.s. starfshópi Heilbrigðisráðuneytis um stefnumótun í Barneignarþjónustu á Íslandi 2020-2030 og starfshópi Embættis landlæknis um leiðbeiningar um val á fæðingarstað og tengd efni. Hún sat jafnframt í ritnefnd Ljósmæðrablaðsins, meðal annars sem ritstjóri fræðilegs efnis. Berglind hefur verið virk í erlendu samstarfi og er meðal annars í stýrihópi fyrir samnorræna kennslu á doktorsstigi um hugmyndafræði og kenningar í ljósmóðurfræði.

Eiginmaður Berglindar er Páll Einarsson, vöruhönnuður hjá Rafnar ehf. Þau eiga þrjú börn, Björgúlf Egil, Hálfdán Hörð og Matthildi Maríu, og barnabörnin eru tvö.

Prófessorsfyrirlestur - Berglind Hálfdánsdóttir
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil