Icelandic Online fyrir börn
Hvenær
21. september 2026
15:00 til 16:30
Hvar

Edda

Fyrirlestrasal

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Mánudaginn 21. september verður dagskrá í fyrirlestrarsal Eddu, húsi íslenskunnar, til að minnast þess að 25 ár eru liðin frá því hafist var handa að vinna vefkennsluefnið Icelandic Online og fagna þeim áföngum sem unnist hafa síðan. Dagskráin hefst kl. 15:00 og stendur yfir til kl. 16.30.

Til máls munu taka Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emeritus við Mála- og menningardeild HÍ, Branislav Bédi, umsjónarmaður sumarnámskeiða, Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar HÍ, Kolbrún Friðriksdóttir, dósent við Íslensku- og menningardeild HÍ og Úlfar Bragason rannsóknarprófessor emeritus.

Við þetta tækifæri verður opnaður nýr vefkennsluvefur Icelandi Online fyrir börn.

Verið velkomin að fagna með okkur og þiggja léttar veitingar

Styrktaraðilar eru Árnastofnun, Háskóli Íslands og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

Icelandic Online 25 ára
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil