1920_KRI_byggingar_160804_09.jpg
Hvenær
29. september 2026
14:00 til 14:45
Hvar

Veröld - Hús Vigdísar

Heimasvæði tungumála

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Mirko Garofalo, aðjunkt í íslensku sem öðru máli við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, flytur erindi í Bitaboxi Rannsóknastofu í máltileinkun (RÍM) á heimasvæði tungumála á 2. hæð í Veröld, 29. september kl. 14:00-:14:45.

Erindið nefnist „Hljóðvörp: Ekki aðeins regla heldur gagnlegt tól í höndum annarsmálsnema.“ Í erindinu er lagt til að hljóðvarpamynstur sem til eru í íslensku málkerfi (t.d. a > ö, kaka → köku; a > e, fara → ég fer; o.s.frv.) verði ekki aðeins kynnt í íslenskunámi sem einföld regla til að beygja fallorð og sagnir, heldur sem tól sem nemendur geta nýtt til að tileinka sér betur orðaforða og búast við tilteknum málfræðilegum einkennum fallorða og sagna. Dæmi eru sýnd um hvernig nemendur geta nýtt hljóðvörp á ólíkum sviðum íslenska málkerfisins.

Hljóðvörp: Ekki aðeins regla heldur gagnlegt tól í höndum annarsmálsnema
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil