Lögberg
Stofa 101
- Aðgangur ókeypis
Hið persónulega er pólitískt. Hafa umönnunar- og heimilisstörf neikvæð áhrif á réttindi kvenna innan almannatryggingakerfisins?
Lagadeild Háskóla Íslands býður til opins fyrirlestrar þar sem Halldís Embla Guðrúnardóttir, lögfræðingur, kynnir efni og helstu niðurstöður meistararitgerðar sinnar sem hún varði við lagadeildina í maí síðastliðnum. Að erindinu loknu gefst gestum kostur á að bera fram spurningar og ræða efnið. Fundarstjóri verður Brynhildur G. Flóvenz, leiðbeinandi Halldísar Emblu við vinnslu ritgerðarinnar.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!