Saga
5. Hæð - kaffistofa
- Aðgangur ókeypis
Ert þú með hugmynd að alþjóðlegri ráðstefnu eða fundi á Íslandi?
Meet in Reykjavík – Iceland Convention Bureau (MiR) býður starfsfólki Háskóla Íslands upp á óformlegan viðtalstíma þar sem hægt er að fá gjaldfrjálsa ráðgjöf um fyrstu skrefin við undirbúning alþjóðlegra ráðstefna.
Engin skráning er nauðsynleg – aðeins að mæta í spjall.
Við hjálpum þér að taka fyrstu skrefin
Meet in Reykjavík og Háskóli Íslands hafa unnið saman frá árinu 2018 að því að fjölga alþjóðlegum akademískum fundum og ráðstefnum á Íslandi.
Meet in Reykjavík getur meðal annars:
- metið möguleika Íslands sem áfangastaðar fyrir ráðstefnuna
- leiðbeint um umsóknar- og tilboðsferlið
- aðstoðað við gerð kynningar- og umsóknargagna (bid)
- veitt upplýsingar um ráðstefnuaðstöðu og þjónustuaðila
- útvegað kynningarefni um Reykjavík og Ísland
Meet in Reykjavík er ekki ráðstefnuskipuleggjandi (PCO), heldur veitir faglega ráðgjöf og stuðning á fyrstu stigum verkefnisins.
Nánari upplýsingar:
Guðrún Kristinsdóttir, Meet in Reykjavík
gudrun@meetinreykjavik.is
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!