Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði tungumála
- Aðgangur ókeypis
Rannsóknarstofa Stutt og námsleið í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands standa fyrir dagskrá til heiðurs argentínska rithöfundinum Enrique del Acebo Ibáñez. Enrique er prófessor í félagsfræði við Salvador og Buenos Aires-háskóla í Argentínu og var nýverið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Eftir del Acebo liggur umfangsmikið æviverk og meðal þess er að finna fimm söfn örsagna sem nú hafa verið endurútgefin í nýju yfirlitsverki.
Haldið á heimasvæði tungumála á 2. hæð í Veröld, þriðjudaginn 20. október kl. 15:00. Dagskráin er öllum opin og fer fram á spænsku.
Dagskrá:
- 15.00 Kristín G. Jónsdóttir, prófessor, setning og umfjöllun um örsagnaformið.
- 15.10 Enrique del Acebo Ibáñez segir frá rithöfundaferli sínum, áskorunum og uppskeru.
- 15.30 Hólmfríður Garðarsdóttir leggur spurningar fyrir gestinn og les þýðingar sínar á nokkrum örsögum hans.
- 15.50 Spurningar og svör
- 16.00 Léttar veitingar og óformlegt spjall.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!